Tíminn - 01.03.1962, Síða 12
Eiga 25 ára starfsafmæli í dag
píi
xý:;::.;
Flugfélögin
fara undir
sama þakið
Byggingarnefnd Reykjavík-
ur samþykkti á fundi sínum
22. febrúar s.l. að leyfa Flug-
ráði að byggja afgreiðslu- og
veitingahús á Reykjavíkur-
flugvelli til afnota fyrir bæði
flugfélögin. Áætlað er að hef ja
byggingu hússins strax í vor,
og hafa Loftleiðir þegar boðið
fram fé til framkvæmdanna í
bréfi.
Segir svo í íréttatilkynningu frá
byggingarnefnd:
Flugvallarvegur. Hlíðarfótur
(Reykjavikurflugvöllur).
Flugráð íslands, Reykjavíkur-
flugvelli, sækir um leyfi til að
byggja tvílyft veitinga- og af-
greiðsluhús úr steinsteypu við
Hlíðarfót (Reykjávíkurflugvöllui).
Stærð 1230.7 ferm., 13322 rúmm.
Gjald kr. 11.080.00. Samþykkt að
iskildu samþykki heilbrigðisnefnd-
ir og með fyrirvörum þeim, er
gerðir eru í samþykkt borgarráðs
9. þ. m.
Á borgarstjórnarfundi 15. febrú-
ar s.l. var samþykkt að leyfa bygg-
ingu varanlegs afgreiðsluhúss og
veitingaskáía á Reykjavíkurflug-
velli með 14 atkv. gegn 1. Alfreð
Gíslason bar fram breytingartil-
lögu, sem kvað svo á, að aðeins
yrði leyfð bygging bráðabirgða-
I húss á flugvellinum, enda yrði
| húsið flutt burt eða rifið á kostn-
að eigenda^ ef nauðsyn krefði að
1 dómi borgarstjórnar. Byggðist
i breytingartillagan á því, að óráð-
j legt væri að leyfa byggingu varan-
[legra húsa á óskipulögðum svæð-
j um, eins og hér væri um að ræða.
I Sú tillaga var felld.
Fyrir bæði félögin
Þegar blaðið átti tal við Sigurð
Magnússon, fulltrúa hjá Loftleið-
um í gær, sagði hann, að eflaust
hefði brumnn á Reykjavíkurflug-
velli fyrir skemmstu átt sinn þátt
í að ýta undir þetta mál, en bygg-
ingin verður reist á vegum flug-
málastjórnarinnar. Snerum við
okkur því til Agnars Kofoed-
(Framhald á 11. síðu).
Myndin er af ellefu lögreglumönnum, sem i dag eiga tuttugu(og fimm ára starfsafmælí. Efri röS frá vinstri:
Ólafur Guðmundsson, Ingólfur Sveinsson, Hermundur Tómasson, Jakob Jónsson, Hallgrímur Jónsson, Hjörtur E.
Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Ólafur J. Símonarson, Þórður Ðenediktsson, Guðmundur Jónsson, Haf.
steinn Hjartarson, Jóhann Ólafsson. Þessir voru allir seftir lögreglumenn 1. marz ásamt sjö öðrum lögreglu-
mönnum. Tveir af þessum sjö eru dánir, þeir Axel Helgason, sem lengi var yfirmaður tæknideildar rannsóknar
lögreglunnar og Pétur Kristinsson, varðstjóri. Hinlr fimm hafa hætt störfum á ýmsuni tímum. Lögreglustjarn-
an á myndlnni er gerð af Pétri Kristinssyni, varðstjóra. — Myndina tók Sveinn Þormóðsson, Ijósmyndari.
Þykir lausmáll
innan Kremlmúra
Danskennsla í útvarpi
Ambassador V-Þýzka-
lands í Moskvu Hans Kroll
sem er talinn vera í
metum hjá Krústjoff hefur
síðusfu daga verið ákærð
ur harðlega í sumum vest
ur-þýzkum blöðum fyrir
að ganga með áætlanir
um miklu nánari sam-
skipti við Sovétríkin, þar
sem m. a. sé gerf ráð fyrir
miklum eftiigpam af
hálfu yestur-Þjóðverja.
Mál þetta er nú komið á
svo alvarlegt stig að í dag
fór vestur þýzka utanríkis
ráðuneytið fram á það við
Kroli ambassador að hann
segði álit sitt á ásökun
blaðanna.
Samkvæmt ásökununum á Kroll
að hafa gefið í skyn við Sovét-
stjórnina, að Vestur-Þjóðverjar
væru fáanlegir til þess að viður-
kenna Oder-Neisse línuna, sem lög
Ieg Iandamæri Þýzkalands og Pól-
lands, fáanlegir til þess að viður-
kenna skiptinigu Þýzkalands sem
staðreynd og Austur-Þýzkal. sem
sérstakt ríki og loks fáanlegir til
þess að lána Sovétríkjunum um 10
milljarða þýzkra marka eða rúma
100 milljarða íslenzkra króna.
Það var Felix von Eckart, blaða
fulltrúi vestur-þýzku stjórnarinnar,
sem skýrði í dag frá beiðni utan-
ríkisráðuneytisins til Kroll um
skýringar. Hann sagði um leið, að
engin ástæða væri til að ætla, að
Kroll hefð'i í fyrrgreindum efnum
aðrar skoðanir en fram komu í
yfirlýsingu vestur-þýzku stjómar-
innar til Sovétstjórnarinnar um
daginn. í þeirri yfirlýsingu sagði,
að núverandi ástand í Austur-Þýzka
landi komi i veg fyrir bætta sam-
búð Vestur-Þýzkalands og Sovét-
ríkjanna.
„SlúSur frá upphafi til
enda“
Hans Kroll sagði í Moskvu í dag,
að lygarar og baktjaldamakkarar
standi á bak við orðróminn um,
að hann sé samþykkur viðurkenn-
ingu Oder-Neisse landamæralín-
unnar. Hann sagðist heldur aldrei
hafa minnst á viðurkenningu aust
ur-þýzku stjórnarinnar.
Kroll sagði: — Ásakanirnar á
hendur mér hafa ekki eitt satt orð
að geyma. Þær eru slúður frá upp-
hafi til enda, og það er næstum
hlægilegt, að ég skuli neyðast til
að bera þær til baka. Skoðanir
mínar í jiessum málum eru vel
kunnar bæði í vestur-þýzku stjórn
inni og meðal þeirra, sem fylgjast
í heimalandi mínu með stjórnmál
unum.
Kroll bar einnig til baka, að
hann hefði verið á leynifundi með
Krústjoff í bænum Sochi á Svarta
hafsströnd.
Fyrr í dag hafði von Brentano.
leiðtogi þingflokks kristilegra
demokrata í vestur-þýzka þinginu,
beðið ríkisstjórnina um að skýra
málin í sambandi við ásakanirnar
á hendur Kroll.
Adenauer mun halda að
sér höndum
Þeir, sem fylgjast með málun-
um, segja, að Adenauer kanzlari
muni eiga síðasta orðið í deilunni
um Kroll ambassador. Þeir segja
ennfremur, að Adenauer muní
veigra sér við að kalla heim am*
bassador, sem á jafn góða áheyrn
Krústjoffs og Kroll hefur.
Stækkun
leyfö
Á fundi Byggingarnefnd-
ar Reykjavíkur 22. febrúar
S.I., var lagt fram erindi Út-
vegsbanka íslands, þar sem
spurt er, hvort leyft verði
að stækka og hækka banka-
húsið á Ióðinni nr. 1 við
Lækjartorg skv. meðsend-
um teikningum. Málinu var
vísað til samvinnunefndar
um skipulagsmál til umsagn
ar. Tíminn spurðist fyrir
um það hjá Jóhannesi Elías-
syni, bankastjóra, í gær,
hvers konar stækkun væri í
ráði og hvað Útvegsbankinn
hefði í huga í þessu sam-
bandi. Hann kvað ekkert
hægt að segja á þessu stigi
málsins. Stofnunin hefði að-
eins. spurzt fyrir um þetta
til að vita, hverjar undir-
tektir þetta erindi fengi.
Allt væri enn óráðið um
þessa stækkun hússins og
bankaráð ætti eftir að fjalla
um málið.