Tíminn - 25.03.1962, Síða 2

Tíminn - 25.03.1962, Síða 2
Fenuiugargjöfín í ár STÓRA ALFRÆÐIORÐABÚKIN NORDISK KONVERSATIONS LEKSIKON sem nú kemur út að nýju á svo ótrúlega lágu verði ásamt svo hagstæðum greiðsluskilmálum, að allir hafa efni á að eignast hana. Verklð samanstendur af: 8 stórum bindum í skrautlegasta bandi, sem völ er á. Hvert bindi er yfir 500 síður, innbundið í ekta „Fab-lea", prýtt 22 ka.rata gulli og búið ekta gullsniði. Bókin er öll prentuð á fallegan, sléttan og ótrénaðan pappír, sem aldrei gul'nar. í henni er fjöldi mynda auk litmynda og landabréfa, sem prentuð eru á sórstakan listprent- unarpappír. í bókina rita um 150 þekktustu vísindamanna og rit- snillinga Danmerkur, og öllum mikilvægari köflum fylgja bók- menntatilvitnanir. Nú, á tímum geimferðanna, er það nauðsynlegt, að uppdrættir af löndum og borgum séu stað- settir á hnattlíkani, þannig að menn fái raunverulega hugmynd um, hvað er að gerast umhverfis þá. Stór, rafmagnaður Ijóshnött- ur með ca. 5000 borga- og staða- nöfnum, fljótum, fjöllum, hafdjúp um, hafstraumum o. s. frv., fylgir hókinnl en það er hlutur, sem hvert heimili verður að eignast. Auk þess er slíkur ljóshnöttur vegna hinna fögru lita, hin mesta stofuprýði. VIÐBÆTIR: Nordisk Konversati- ons Leksikon fylgist ætíð með tímanum og verður því að sjálf- sögðu framhald á þessari útgáfu. AFHENDING: Áætlað er, að bindi bókarinnar komi út með fjögurra mánaða millibili. — Hnattlíkanið er þegar hægt að afhenda, ef gerð er f það pöntun tafarlaust VERÐ alls verksins er aðeins kr. 4.800,00. ljóshnötturinn innifalinn. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Við mót- töku bókarinnar skul'u greiddar kr. 4.00,00, en síðan kr. 200.00 mánaðarlega, unz verkið er að fullu greitt. Gegn staðgreiðslu er gefinn 20% afsláttur, kr. 060.00 Bókabúð Norðra Hafnarstræti 4, sími 14281 Utvarpsstöiá Hverfísgötu 63 í fyrrakvöld fór lögreglan með liði inn á Hverfisgötu 63 í Reykja- vík og stöðvaði þar sendingar frá nýrri „útvarpsstöð“, sem ungur radíóamatör hafði komið sér upp. Hafði hann sent gegnum ljósvak- ann á kvöldin undanfarinn hálfan mánuð við og við, tónli'starefni af erlendum hljómplötum með nokkr- um skýringum. Samkvæmt upplýs- ingum rannsóknarlögreglunnar stóð maðurinn einn að stöðinni, en kunningja- og vinahópur hans vissi af þessu og naut góðs af. Bylgju- lengd stöðvarinnar var 1388,08 kílórið, og styrkleiki 7—10 vött. Með fullum styrk telur „útvarps- stjórinn“, að styrkleiki stöðvarinn- ar gæti verið 28 vött, en fróðleik sinn kvaðst hann aðallega hafa úr bandarískri handbók fyrir amatöra. Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því, að þetta væri ólög- legt athæfi, svo lengi sem það truflaði ekkeit annað. Rannsóknarlögreglan hefur enn ekki fengið skýrslu frá sérmennt- uðum mönnum um þessa stöð, en að sögn er hún talin heldur frum- stæð. Þó mun hafa heyrzt til henn- ar um alla borgina. Stöðin fannst með því að Landsíminn miðaði hana út, og að sögn var miðunin svo nákvæm, að símamennirnir gátu sagt um, hve hátt hún væri yfir sjó. Ræða Rusks í Genf í fyrradag „Enda þótt aðeins nokkrir tug- ir manna séu nú í Genf til þess að finna þar leiðir til almennrar afvopnuuar, hafa þeir það á til- finningunni, að í rauninni sé þar samankominn allur heimurinn. Svona á þetta líka að vera. Von in um afvopnun er skynsamleg — von, sem maðurinn getur gert að veruleika. Sendinefnd Bandaríkjanna kom til Genf með þá sanfæringu, að þar megi byrja á þessu starfi. Við komum einnig með jákvæðar til- l’ögur um, hvernig megi fram- kvæma þetta. Við erum með skýra og vel vinnandi áætlun um hvert fyrsta skrefið í þessa átt skuli verða — bann um áfram- haldandi tilraunir með kjam orkuvopn og samning til varnar gegn þeim, sem myndu brjóta þetta bann. Við erum einnig með uppkast að áætlun um byrjunar- atriðin í algjörri afvopnun — um að minnka vopnabirgðir stórveld- anna um 30% bæði kjarnorku- vopn og venjuleg vopn. Ef hægt verður að ná samkomu- lagi um annað hvort þessara atr- iða hér, verður þess minnzt sem þess tíma þegar stjórnirnar fundu íeið að því takmarki, sem menn í aldaraðir hafa ekki getað náð. Ég vildi, að ég gæti sagt að miðað hefði í rétta átt fyrstu daga ráðstefnunnar. en ekki hef- ur það verið mikið. En við höfum talað um almenna afvopnun. Bandaríska sendinefndin hefur einnig átt viðræður við sendi- nefnd Sovétríkjanna einslega um hið alvarlega Berlínarvandamál, sem ekki verður rætt á þessari ráðstefnu 8 ríkja, en hefur þrátt fyrir það mjög mikil áhrif á and- rúmsloftið á ráðstefnunni. Samningaviðræður hafa enn ! ekki staðið lengi og málið er hvorki auðvelt né fljótleyst. Það þarfnast dirfsku en einnig ábyrgr ar stjórnkænsku. Áður en við komuim hingað höfðu Vesturveldin og Sovétríkin orðið á eitt sátt um mikilvæg atr- iði í afvopnuninni.. Þessi atriði eru hornsteinar, mikilvægir til að byggja á samning um afvopnun með stöðugum áföngum. Við stöndum um þessi frum- atriði, og geri Sovétrlkin hið sama, verður hægt að hefjast handa. Lausn vandamálsins um tilraun- ir með kjamorkuvopn er mjög aðkallandi. Sem afleiðing af því að Sovétríkin tóku upp aftur til- raunirnar í fyrrahaust eftir langt hlé, eru Bandaríkin neydd til þess að hefja tilraunir aftur, ef ekki næst yaranlegt samkomulag um að hætta þeim. Bandaríkin óska þess af heilum hug, að samkomu- lag náist. Ég vona ákaft að Sovét- ríkin geri samninga mögulega." Ný matvörubúð Ný matvörubúS hefur verið opnuS í verzlunarhúsakynn- um KjörgarSs, Laugarvegi 59, undir nafninu MatarkjöriS — KjörgarSi. Verzlunin er öll hin vistleg asta og er staSsett á 1. hæS KjörgarSs. Innréttingu verzl unarinnar teiknaSj Helgi Hall grímsson,. arkitekt en tréverk annaSist trésmíSaverkstæði GuSna Árnasonar. Eigandi verzlunarinnar MatarkjöriS — KjörgarSi er ÞórSur Arason og hyggst hann kappkosta aS veita vlð- skiptavinum sínum 1. flokks vöruval og góSa þjónustu. Við höfum fengið scndingu af sérstaklega ódýrum og hentug- um tékkneskum borðstofustóluin Skoðið þá um helgina í glugganum í Kjörgarði. TEKKNESKIR borðstofustólar SKEIFAN KJÖRGARÐI SÍMI 16975 Þar scm birgðirnar eru mjög tak- markaðar hvetjum við þá sem áhuga hafa fyrir þeim að panta scm fyrst. Skoðið þá um helgina. ÓDÝRIR ‘i T I M I N N, sunnudagur 25. marz 1962.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.