Tíminn - 27.03.1962, Qupperneq 3

Tíminn - 27.03.1962, Qupperneq 3
MOTMÆLAFOR OAS VARD AÐ BLÓDBADI NTB—Algeirsborg, 26. marz. Eftir tiltölulega rólega helgi blossaði allt upp síðdegis í dag í Algeirsborg. Að minnsta kosti 26 menn létu lífið og 130 særðust í bardaga milli her- lögreglu og þúsunda Frakka, sem réðust á bækistöðvar lög- reglunnar við pósthúsið. Blaða menn telja, að miklu fleiri hafi falRS eða um 50 manns og nær tvö hundruð hafi særzt. Óeirðirnar hófust með mótmæla göngu, sem leyniherinn OAS efndi til í mótmælaskyni við umsátur hersins um hverfið Bab-el-Oued, helzta vígi OAS. Þegar mótmæla- gangan kom að lögreglustöðinni, réðust Frakkarnir á hana og þá hófust vopnaviðskiptin. Frá nærliggjandi húsþökum var skotið á herlögregluna, sem svar- aði í sömu mynt,. Þyrla frá lögregl unni kom á vettvang, en skotið var á hana með léttum vélbyssum, Þá komu herlögreglumenn frá stjórnarráðshúsinu á vettvang, og tókst þeim eftir' nokkur átök að hrekja mannfjöldann í burtu. Fólkið forðaði sér inn í næstu hús og hélt áfram að skjóta það- an á lögregluna. Klukkustund síðar fór herlögreglan á brynvögn um í allar helztu götur bæjarins, en sjúkrabílar fluttu hina særðu og látnu af vígvellinum. Fyrir hádegi hafði allt verið rólegt í Algeirsborg. Herliðið hef ur hverfið Bab-el-Oued stöðugt í herkví og hleypir engum í gegn. Flugfélagið Air France frestaði siðdegis í dag öllum ferðum til Algeirsborgar. Sögðu fulltrúar flugfélagsins, að það væri ógern- ingur fyrir farþegana að komast inn í borgina frá flugvellinum. f Oran var í gær barizt í sex sturidir, þegar herinn ruddist um borgina á brynvögnum. _ Þar kom ekki til átaka í dag. í morgun voru gerðar umfangsmiklar hús- leitir í Bone, þar sem uppþot voru í gærkveldi. Voru 10 menn handteknir, grunaðir um að vera OAS-æsingamenn. Jouhaud á bak við lás og slá Fyrrverandi hershöfðinginn Edmond Jouhaud, sem er annar yfirmaður leynihersins OAS í Alsír, var handtekinn á sunnu- dagskvöldið í Oran ásamt 12 hjálparmönnum sínum, Hann var þá með fölsuð skilríki og nefnd- ist Angeibert. Hundruð lögreglu- manna áttu þátt í árásinni á skýjakljúfinn í Oran, þar sem Johaud var handtekinn. Grænlendingum fjölgar of ákaft í morgun gerðu OAS-menn til- raun til að leysa Johaud úr fang- elsinu. Þeir réðust að fangelsinu og lokuðu götunum að því með bilum og strætisvögnum. Það tókst þó að hindra tilraunina. Síð- an var Johaud smyglað úr landi um borð í herflugvél og hann fluttur til Parísar, þar sem hann situr nú á bak við lás og slá í Santa-fangelsi. Fundur hefur verið kallaður saman í dómsmálaráðuneytinu til þess að ákveða örlög hins 56 ára gamla hershöfðingja, sem hefur verið hægri hönd Salans í OAS i tvö ár. Jouhaud var dæmdur til dauða í fyrra eftir apríluppreisnina í Alsír, en var fjarverandi og hef- ur því rétt á að fá málið tekið fyrir að nýju. Handtaka hans er mesta veiði, sem franska stjórn in hefur fengið í bardaganum gegn OAS. Fyrrverandi yfirmaður útlend- ingahersins, Paul Gardy, var strax eftir handtöku Jouhaud skipaður yfirmaður leynihersins OAS í Vestur-Alsír. SjónvarpsrætJa de Gaulle De Gaulle Frakklandsforseti hélt sjón- og útvarpsræðu í dag og skoraði á Frakka að styðja stefnu sina i þjóðaratkvæða- greiðslunni 8. apríl næstkomandi, þegar þjóðin fær tækifæri til að segja álit sitt á Alsírsamningun- um við Serki. Ræðan stóð yfir í 10 mínútur og veittist de Gaulle bæði harð- lega að kommúnistum og öðrum stjórnmálamönnuim, sem vildu græða á þjóðaratkvæðagreiðsl- unni með háværu samþykki sínu, og einnig að þeim glæpamönnum, sem vilja neyða ríkið og oka þjóð ina með framferði sínu. Þeir eiga aðeins refsingu skilið, sagði de Gaulle. TOPPFUNÐUR, Ek7 ■ ■ NTB — Geneve, 26. marz: Dean Rusk frá Bandarikj- j unum lýsti yfir því í dag, að ,! ekki hafi verið rætt um topp fund á afvopnunarráðstefn- unni. Fyrst verðum við að vita, hvort grundvöllur er fyrir slíkum fundi, sagði ut- anríkisráð'herrann, — ef hann misheppnast hefur spennan í heiminum aðeins aukizt. Rusk sagði, að upphaf af- vopnunarráðstefnunnar hefði ekki verið sem verst, en minnti í því sambandi á, að greinileg andstaða Sovét- rikjanna gegn aiþjóðaeftir- Íliti hefði valdið ströndun við ræðnanna um tilraunabann. KALLAÐUR HEKHI NTB — Moskva, 26. marz: Talsmaður sovézka utan- ríkisráðuneytisins neitaði í dag að segja nokkuð um þá ákvörðun frönsku stjórnar- innar að kalla sendiherra sinn í Moskvu heim til- skrafs og ráðagerða, vegna viðurkenningar Sovétríkj- anna á þjóðernissinnastjórn Serkja. Talsmaðurinn sagði, að hann vissi ekki, hvað rík- isstjórnin mundi gera í mál- inu, en af vestrænni hálfu er reiknað með yfirlýsingu Sovétstjórnarinnar innan tíð ar. EKKI MEIRA 1 BILI NTB Washington, 26. marz: í dag neitaði Indónesía að halda áfram leyniviðræðun- um við Holland um Irian- deiluna, en þær viðræður hafa farið fram í viku í út- jaðri Washington fyrir milli göngu Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóðanna. Samtímis þessu bárust fréttir um, að til átaka hefði komið við Irian milli Hol- lendinga og Indónesa. Ltman Eldur í Þorlákshöfn Um kl. 6 á sunnudagseftirmið- dag kom upp eldur í Fiskverkunar- stöð Guðmundar og Friðriks Frið- rikssonar í Þorlákshöfn. Tjónið varð mikið, enda mun ekki hafa verið fulltryggt. Fiskverkunarstöð- in er nýtt hús, sem reist var á s.l. hausti. Siökkvilið er ekkert til á Þorlákshöfn, en notazt var við slökkvidælu Meitils h.f. þar á staðnum. Tókst að ráða niðurlög- um eldsins á stundarfjórðungi. Eldurinn mun hafa komið upp í kaffistofu hússins, út frá rafmagns- töflu. Kaffistofan brann öll að inri- an, og einnig skemmdist mikill hluti þaksins. Miklar saltbirgðir voru í Fisk- verkunarstöðinni og eyðilögðust þær algjörlega. Þær voru ótryggð- ar og er það tjón eitt metið á 100 þúsund kr. Einnig var mikið af saltfiski þarna, og var hann met- inn á 1 milljón, en mun þó aðeins hafa verið tryggður á hálfa milljón króna. AB NÝ SÝNING HJÁ GRÍMU Kaupmannahöfn, 26. marz (einkaskeyti). Grein í Grönlandsposten eft- ir prófast Grænlands, Erik Rasmussen, um takmörkun barneigna hefur vakið feikna athygli í Danmörku. Hafa birzt greinar þar í ýmsum blöðum um málið. Vekja blöðin á því athygli, að Grænlendingum fjölgi svo óskap- lega, að ekki verði unnt að útvega þeim öllum vinnu, svo að þeir geti lifað mannsæmandi lífi, og því hafi grænlenzku kirkjunni snúizt hug- ur í þessu máli. Ilingað til hefur takmörkun barneigna verið ósam- rýmanleg siðfræði kirkjunnar, en nú hefur prófasturinn sjálfur tekið ákveðna jákvæða afstöðu til þeirra. Rasmussen prófastur skrifaði m. a., að takmörkun barneigna sé eina ábyrga lausnin á vandamál- inu. íbúar Grænlands eru nú um 30 þúsund og þeim fjölgar með þvílíkum hraða, að þeir verða sennilega orðnir 60 þúsund eftir aðeins 20 ár, sem er fjölgun um helming. Rasmussen segir, að það sé vafasamt, að stjórnarvöldin geti séð fyrir vandamálunum, sem fylgja fólksfjölguninni. Aðeins eitt land í heiminum hefur örari fólksfjölgun en Græn- land og það er Indland. Aðils. Síðan leikklúbburinn Gríma sýndi leikritið Læstar dyr eftir Sartre fyrr í vetur, liafa leikhús- gestir í Reykjavík beðið mcð ó- þreyju eftir því, að Gríma léti á sér kræla. Og nú ér komið að því; á fimmtudagskvöldið frumsýnir Gríma Biedermann og brennuvarg urinn eftir svissneska nútímahöf- undinn Max Fi’isch. Þetta er gamanleikur í tveimur þáttum, og kallar höfundurinn það prédikun án boðskapar. 13 leik endur eru í þessu leikriti, og leik- stjóri er Baldvin Halldórsson. — Leiktjöld málaði Steinþór Sigurðs- son, og Þorgeir Þorgeirsson ann- aðist þýðingu. Gríma hefur nú fengið inni til bráðabirgða í Tjarnarbæ, sem áð- ur hét Tjarnarbíó. Segja gaman- samir menn, að nafninu hafi verið breytt þannig vegna þess, að þá þarf ekki að breyta nema tveimur stöfum í ljósaskiltinu yfir dyrum hússins. Inni hefur einnjg talsvert verið breytt, sviðið lengt fram og fjórum áhorfendabekkjum fórnað. Húsið rúmar nú 322 í sæti. Æsku- lýðsráð liefur nú fengið Tjarnar- bæ til afnota, og hefur samkomu- lag náðst milli Æskulýðsráðs og Grímu um það, að Gríma fái þar á- kveðið sýningarkvöld og aðstöðu til æfinga. Öll störf Grímu eru unnin fyrir áhugann einan saman, þar sem eng (Framh. á 15. sfðu.' T í MIN N , þriðjudaginn 27. marz 1962 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.