Tíminn - 27.03.1962, Qupperneq 13
MINNING:
Karl A. Jónsson
Múla í Álftafirði
Karl A. Jónsson á Múla í Álfta-
firði andaðist 1. febr. s.l. Hann
var fæddur að Kambsseli í sömu
sveit 26. nóv. 1887. Foreldrar hans
voru Jón Árnason og Katrín Ant-
oníusdóttir, sem lengst og mest
bjuggu á Múla í Álftafirði. Þar ólst
Karl upp frá 7 ára aldri og var við
þann bæ kenndur. Búskap hóf
Karl ásamt fyrri konu sinni, Dag-
nýju Þorsteinsdóttur, 1914 og
stofnaði þá þegar nýbýli í Múla-
landi. Var þar allt uppbyggt og
ræktað frá grunni. Þar bjó Karl
allan sinn búskap og gerði mynd-
arlega og góða jörð.
Dagný kona Karls andaðist 1920.
Kvæntist Karl öðru sinni 1923
Guðnýju Jónsdóttur frá Flugu-
stöðum og lifir hún mann sinn.
Karl og Dagný eignuðust 5 börn
og eru 3 á lífi, öll búsett í Alfta-
firði. Karl og Guðný eignuðust
eina dóttui-, og er hún einnig bú-
sett í Álftafirði. Þrjú af börnum
Karls búa á æskuheimili hans
Múla, enda eru þar nú þrjár vild-
arjarðir orðnar, sem áður var
ein.
Karl í Múla, eins og hann var
oftast nefndur, var félagslyndur
maður í bezta lagi og kom víða við
í málefnum sveitar sinnar og hér-
aðs.
Hann var lengi deildarstjóri
Álftafjarðardeildar Kaupfélags
Berufjarðar og síðar í stjórn
þess. Hann var lengi í stjórn
............................., , -.................................
Búnaðarfélagsins og lengst af
formaður. Fulltrúi á Búnaðar-
sambandsfundum og fundum
bænda og sótti þá manna bezt,
enda röskur til ferðalags. Skóla-
nefndarformaður var hann fram
yfir 1950 og svo mætti lengi telja.
Karl var vaskleikamaður, félags-
lyndur og hrókur alls fagnaðar
hvar sem hann fór. Mun hann
lengi minnisstæður þeim, sem
honum kynntust.
Fylgja honum hlýjar kveðjur
og þakklæti þeirra sem honum
urðu samferða á lífsins leið. Karl
var jarðsettur í heimagrafreit að
Múla 10. febr. s.l.
Pökkunarstúlkur
og karlmenn
Óskast. Fæði og húsnæði.
Mikil vinna.
HRAÐFRYSTISTÖÐ VESTMANNAEYJA
sími 11 og 60 (í Reykjavík 19-4-20).
£*ér nfótið vaxandi álits_
jþegar þér notið
Blá Gillette Extra rakblöð
’ér getið verið vissir um óaðíinnanlegt útlit yðar, þegar þér notið Blá Gillette
\tra blöð, undrablöðin, sem þér finnið ekki fyrir. Pó skeggrótin sé hörð eða
úðin viðkvæm, þá finnið þér ekki fyrir blaðinu ef notuð eru Blá Gillette Extra.
5 blöð aðeins Kr. 18.50.
GiHette
er eina leiðin
til sómasamlegs
raksturs
® Gillette er skrásett vorumerkl.
B íiaviðgerðaverkf ærí
„cylinder“ slípihausar
°g
bremsudælu slíparar
fyrirliggjandi.
SNORRRI G. GUÐMUNDSSON
Hverfisgötu 50.
Sími: 12242.
Barnavagnar
Notaðir barnavagnar og
kCTrur og burðarrúm, einn-
ig nýjar kerrur.
Sendum í póstkröfu hvert á
land sem er.
BARNAVAGNASALAN
Baldursgötu 39. Sími 24626
PASKAFERÐ TIL KANARIEYJA
★
★
★
★
★
Tólf daga ferð, 14.—26. apríl, verzlunardagur í Lontlon
Suðurhafseyjar með sólskinsparadís allan ársins hring.
Heitur sjór og sólheitar baðstrendur 2400 km frá miðbaug.
Skemmtiferðir um litríkt landslag og borgir með fjölbreyttu
skemmtanalífi.
Tveggja daga ævintýraferð til Afriku fyrir þá, sem vilja
ferðast meira.
Dvalið á glæsilegu luxushóteli á Tenerife. Einkasundlaug
fyrir gestina og bag og sólsvalir með hverju herbergi.
íslenzkur farastjóri alla ferðina.
fslenzk flugvél alla leið lækkar ferðakostnaðinn um helm-
ing. Flugferðir qg allt uppihald kr. 12.800,—. Venjulegt flug-
far með áætlunarvélum og sams konar dvöl kr. 25.300,00.
Flogig allar leiðir ferðarinnar með nýjustu millilandaflugvél
Flugfélags íslands h.f. Cloudmaster DC 6B me ðradar og
loft-þéttu farþegarými, sem tryggir þægilega ferð. Fyrsta
flokks veitingar á flaugleiðunum.
Dragið ekki of lengi ag tilkynna þátttöku, því þag er þegar
búið að ráðstafa miklum meirihluta af þelm 74 sætum, sem
hægt er að taka í þessa eftirsóttu ferð.
Sleppið ekki þessu einstæða tækifæri til ag komast ódýrt tii
hinna eftirsóttu Suðurhafseyja, sem Forn-Rómverjar gáfu
nafnið „Paradísareyjar", vegna landslagsfegurðar og veður-
sældar.
Ferðaskrlfstofan
fflfflfflá)
Bankastræti 7 » Símí 16400
TIMINN, þriðjudaginn 27. marz 1962