Tíminn - 06.04.1962, Qupperneq 1

Tíminn - 06.04.1962, Qupperneq 1
SÖLUBÖHN Blaðið afgrsift í ^ankastræfi 7 á laugardagskvöldum SÖLUBÖRN Afgreiðslan í Banka- sfræii 7 opnuð kl. 7 aila virka daga 81. tbl. — Föstudagur 6. apríl 1962 — 46. árg. Um klukkan 18,20 í gærkvöldi fékk varnarliðið og COMBARFORLANT á Keflavíkurflugvelli hjálparbeiðni frá isienzku flugstjórninní um að leita að ftskibát, sem talið var að kviknað hefði í um 20 mílur NNV. af Garðsskaga. Áhöfnin á flugvélinni P2V. U.S. Navy, fann hinn brennandi fiskibát; flugstjóri var LT. JG Holmes. Lega bátsi'ns var þegar tiikynnt íslenzku landhelgisgæzlunni, sem sendi skip á slysstaðinn. — (Frétt frá US. Navy, sem barst í nótt, ásamt meðfylgjandi myndum). BATUR HAFI- Um klukkan tuitugu mínútur yfir ellefu sökk mótorbáturinn Vörður frá Reykjavík norð-norðvest- ur af Garðskaga. Hafði komið upp eldur í honum fyrr um kvöldið og áhöfn in yfirgefið bátinn. Kom- ust þeir í gúmmíbát og var síðar bjargað um borð í mb. Reyni frá Akra itesi. Mennirnir komu til Keflavíkur klukkan fvö í nótf, Mb. Vörður var á línuveiðum 20 mílur nnv. af Garðskaga, þeg- ar eldur varð allt í einu laus í vélarrúmi bátsins. Þetta var um klukkan 5,30 í gær. Bátsverjar reyndu fyrst að slökkva eldinn, en hann reyndist þeim óviðráðan legur, og urðu þeir bráðlega að yfirgefa skipið. Þeir fóru í gúmmí björgunarbát, en leitarflugvél fann þá sköfnmu síðar og vísaði mb. Reyni til þeirra. Fimm menn um borS Fimm menn reru þennan túr á mb. Verði. Þeir eru Guðmund- ur Guðmundsson, skipstjóri, Krist ján Guðmundsson, vélstjóri, Jón Guðmundsson, háseti, allir bræð- ur frá Stokkseyri, Trausti Jóns- son, útgerðarmaður og matsveinn sem blaðinu tókst ekki að vita heiti á í gærkveldi. Eins og fyrr segir björguðust allir mennirnir um borð í Reyni, en síðan voru þeir fluttir um borð í varðskipið Gaut, sem fór meg þá til Keflavíkur. HeyrSi um slysiS Það var Guðmundur Guðmunds son, slökkviliðsstjóri á Reykja- víkurflugvelli, sem fyrstur manna vissi um nauðir þeirra skipsfé- laga um borð í Verði. Heyrði hann um eldsvoðann á bátabylgj- unum og tilkynnti flugstjórn þeg ar hvernig komið var. Flugstjórn- in hafði strax samband við flug- björgunarsveitina á Keflavikur- flugveili, sem sendi flugvélar strax til leitar. Þegar flugbjörg- unarsveitin fékk boðin, var flug- vél af R2V gerg í þann mund að koma til Keflavíkur frá Argentia á Nýfundnalandi og var rétt ólent. Var henni þegar snúið frá lendingu og send til að leita báts- ins. Fannst fljótt Þeir í vélinni fundu gúmmíbát- inn með mönnunum eftir skamma leit. Þá sendi sjóherinn á Kefla- víkurflugvelli aðra vél af stað til ag leysa hina af hólmi. Einnig sendu þeir kopta á vettvang. Koptinn og síðari vélin vísuðu siðan Reyni leiðina til gúmimí- björgunarbátsins, sem var stadd- ur skammt undan, eða um þrjár mílur. Til enn frekara öryggis var flugvél landhelgisgæzlunnar reiðu búin til flugs allan tímann, með- an á þessu stóð, en aldrei kom til þess að hún þyrfti að fara á loft. Þór reynir að slökkva Varðskipin Þór og Gautur komu brátt á vettvang. Mennirnir af Verði fóru þá um borð í Gaut, sem hélt með þá til Keflavíkur. Þór sneri sér hins vegar að því að reyna að slökkva eldinn í Verði. Jafnframt tók hann bátinn í tog og ætlaði með hann til Hafn (Framhald a 15 síðu > í gær skýrði Stefán Guð- mundsson, innheimtumaður, Grjótagötu 10 hér í bæ, rann- sóknarlögreglunni svo frá, að hann hefði verið rændur veski með 4—5. þús. krónum í pen- ingum, að hann telur, og ávís- unum stíluðum á Raforku- málaskrifstofuna og fleiri fyr- irtæki hér, að upphæð nokkr- ir tugir þúsunda, aðfaranótt s.l. miðvikudags. Enn fremur, að hann hefði verið rændur lyklum að bif- reið sinni, R-10702, sem er Volkswagen, en hún stóð á bifreiðastæðinu við Aðalstræti, skammt frá heimili Stefáns. Bifreiðin fannst í gærmorgun í Vallarstræti, þar sem hún stóð opin. Lykill hafði verið notaður við gangsetningu, en ekki tengt beint, en það gefur til kynna samband ránsins og þjófnaðar á bifreiðinni, og að sá, sem rændi Stefán, hafi þekkt hann og vitað að hvaða bifreið hann átti að ganga. Stefán kvaðst hafa farið á veitingahúsið Naust á þriðju- dagskvöldið ásamt kunningja 'sínum og hefðu þeir dvalið þar framyfir miðnætti. Þeir urðu svo samferða heimundir húsið Grjótagötu 10, en þar skildust leiðir þeirra og Stef- án gekk heim að húsinu, en kunningi hans niður götuna. Stefán tekur fram, að hann hafi þá verið mjög undir á- hrifum víns. Eftir þetta man hann ekki eftir sér unz hann vaknar liggjandi í blóði sínu við húströppurnar. Honum tókst með erfiðismunum að komast inn, þar sem hann náði í handklæði og vafði um höfuð sér til að stöðva blóð- strauminn. Stefán hélt svo út aftur til að leita hjálpar við að komast undir læknishend- ur. Af því kveðst hann ekkert muna fyrr en hann vaknar á læknavarðstofunni, þar sem verið er að gera að sárum hans, en það var undir morg- (Framhald á 15 síðu) Mennirnir í gúmmíbjörgunarbátnum, skömmu áSur en þeim var bjargaS um borS í Reyni. Þessar iitlu, harSgerSu plöntur, kaktusarnir, eru í tízku um þessar mundir. ÁSur fyrr voru kaktusar álitnir mesta óræsti, sem ekkert gerSu annaS en stinga þá, sem kæmu of nærrl. En nú er öidin önnur. Sumir éta kaktusa — og þykir fint, og alls staSar þykir prýSi aS þessum jurtum. — Myndin er tekin í gróSurhúsl Paul Michelsen í HveragerSi í gær. — Sjá frétt á bls. 3.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.