Tíminn - 06.04.1962, Page 12

Tíminn - 06.04.1962, Page 12
Danska knattspyrnan hófst s.l. sunnudag — og var veöur mjög slæmt. Mörgum leikjum var frestaö á Jótlandi, en leikirnir í Kaupmannahöfn fóru fram, aS undanskildum einum. Myndin hér að ofan er tekin í Idretsparken, og reyna áhorfendur að koma sér í skjól nema einn, en þaS fylgir skýringunni með myndinni, að þessi eini hljóti að vera frá Fjóni, því myndin er tekin í leik AB og B 1909 og sigraði síðarnefnda liðið með 4—1. ár Armanns- mót í svigi Imianfélagsmót Skfðadeildar haldið' i Jósefsdal sunnudaginn 25. marz 1962. SVIG KARLA, ÚRSLIT: Ármannsmeistari I svigi varð: Stefán Kristjánsson, samanl. tími 113,8 Sigurður R. Guðjónsson 115,3 Bjarni Einarsson 116,0 SVIK KVENNA ÚRSLIT: Ármanns meistari kvenna í svigi varð: Arnheiður Árnadóttir, samanlagður tími 66,4 Ses°elja Guðmundsdóttir 66,9 Eirný Sæmundsdóttir 70,9 Svig unglinga, karla, úrsiit: Þorgeir Ólafsson, samanlagðu tími 79,3 Sigurður Guðmundsson 91,8 Arnór Guðbjartsson 110,2 SVIG DRENGJA, ÚRSLIT: Georg Guðjónsson samanlagður tími: 44,5 Brinjólfur Bjarnason 45,5 Gísli Erlendsson 46,4 Rúnar Sigurðsson 47,5 Örn Ingvarsson 49.4 Þetta eru síðustu íþróttafréttir úr Jósefsdal. Skíðadeiid Ármanns SKIPAUTGCRB RÍKISINS Herjólfur mun fara aukaferð til Vest- mannaeyja, miðvikudaginn 18. apríl (daginn fyrir skírdag). Er æskilegt að væntanlegir farþegar láti skrá sig, því að verði mjög margir, er hugsan- legt að láta skipið aðeins fara til Þorlákshafnar og taka far- þegana þar. M.s. Skjaldbreið vestur um land til Akureyrar hinn 10. þ. m. Vörumóttaka í dag til Tálknafjarðar, áætlun- arhafna á Húnaflóa og Skaga- firði og Ólafsfjarðar. Farseðlar seldir á mánudag. Höfn Framhald ef 8 síðu stofan í Vík tollafgreiðir lík- lega vart aðrar vörur en þær, sem hér koma upp, enda er engin löndunaraðstaða þar af eðlilegum ástæðum. Þá eru sennilega fleiri íbúar í Austur- Skaftafellssýslu en í Vestur- Skaftafellssýslu. — Hvenær var hafizt handa um fiugvallargerð hér? — Á stríðsárunum komst nokkur skriður á flugvallar- málin hér, fyrst voru það Brelí ar, sem hófust handa, en síðan Bandaríikjamenn. Mikið þurfti ekki ag gera fyrir flugvöHinn, svo að hann yrði nothæfur, því að hann er næsta sjálfgerður af náttúrunnar hendi. Flugfélag íslands hefur lengi haft hingað regluhundið flug, og má segja, ag flugig hafi verig næstum eina samgöngu- leiðin að og frá staðnum til skamms tíma. Flugvöllurinn er á heldur óhentugum stað, enda þarf að flytja fólk á bát- um frá honum í land. í athug- un er, ag flugvöllur verði byggður inni í sveit, en það er óráðið enn þá. — Til gamans mætti geta þess, að Lindberg, hinn frægi flugmaður, hafði hér millilend ingu í Atlantshafsflugi sínu og var það eini staðurinn á fs- landi, sem hann lenti á. Minn ismerki var reist um þennan atburð fyrir nokkrum árum og kom þá Lindberg s'jálfur til þess að vera viðstaddur afhjúp un merkisins. — Koma strandferðaskipin oft hér við, Aðalsteinn? — Áður fyrr kom ekkert strandferðaskipanna hér að bryggju, heldur voru þau af- greidd úti á firði. Herðubreið kom að vísu hér inn endrum og eins, áður en innsigling- unni var breytt og þá aðeins á flóði. Með tilkomu Herjólfs væntu menn betri þjónustu af hálfu Skipaútgerðarinnar, en þá breyttist áætlun Herðubreið ar, svo að lítill hagur varð að því. f stað þess, sem áður var, er hún nú látin fara vestur fyrir land og ekki koma á neina höfn fyrr en á Kópa- skeri og halda síðan austur fyr ir hringinn. Með'vþessu miss- um við af ferð hennar héðan til Austfjarða með vörur og farþega og til baka aftur frá Austfjörðum. — Hornafjörður hefur ný- lega komizt í vegasamband við aðra landshluta, er ekki svo? — Jú, vegasamband við Austfirði komst á fyrir um tveim til þrem árum, svo að sæmilegt gat talizt. Með til- komu vegasambands liefur til dæmis ferðamannastraumurinn aukizt gífurlega mikið og að sjálfsögðu önnur umferð og bætt samgönguaðstöðu Horn- firðinga. Fyrir um 10 árum var byggð brú yfir Jökulsá í Lóni, sem var önnur lengsta brú á land inu þá. Var þessi brúarsmíði fyrsta stórátakið í þessum mál- um, að koma-Hornafirði í vega samband vig aðra landshluta. Síðan hefur þetta smám sam- an færzt í ho"fið og síðast með brúnni á Hornafjarðarfljót, sem opnuð var til umferðar í fyrra. Má segja, að nú sé kom- ið vegasamband vestur að Jök- ulsá á Breiðamerkursandi, þótt margar minni ár séu óbrúaðar enn þá. — Hafinn er undirbúningur ag brúarbyggingu á Fjallsá, næst vestan Jökulsár, og var unnt að flytja efni t.il þessa nú fyrir skömmu, meðan Jök- ulsá stóð uppi, sem kallað er, en slíkt kemur orðið fyrir nokkra daga á vetri. Er þá ak- fært stórum bílum allt suður í Öræfi og notaður tíminn til flutninga þangað, þar sem flestar smærri ár eru þá á haldi. — Búast má við, að Jökulsá verði brúuð á næstu árum og komast þá Öræfingar í vega samband, en þag hefur aldrei átt sér stað, nema hvað brotizt hefur verið yfir sandan^i til þeirra undanfarin ár að vestan verðu og héðan ag austan, eft- ir að Jökulsá fór að stancla uppi. Eina samgönguleið Ör- æfinga hefur verið flugið. — Aðalsteinn, ég hef heyrt af því látið, að þú yrkir ljóð og kviðlinga. Hefurðu ekki gert eitthvað um Hornafjörð? — Jú, ég á við þetta svona mest mér til gamans, en þú mátt alls ekki birta neitt af þessu, þótt ég láti þig heyra eitthvað. Þú, Hornafjörður, hulinn tignarfeldi meg hafið blátt við yztu sjónarrönd, og fjallaliring, er fegrast sólareldi, hin frjóu tún og víðu beiti- lönd. Á gulli sjávar gæðir þínum börnum og gleði veitir inn í þeirra hús Við söngvanið frá svariahóp á tjörnum er sérhver þegn til æðstu dáða fús. Að sjálfsögðu sagði ég Aðal steini Aðalsteinssyni, þegar ég kvaddi hann, ag ég myndi ekk) birta neitt úr lofgjörð hans til héraðs síns, en hver getur láð mér, þótt ég taki mér bessa leyfi að birta þetta erindi hér? II.G Jörðin Sómastaðagerði við Reyðarfiörð er laus til ábúðar. Heyfengur er ura 300 hestar og stutt er í kaupstað. Á iörðinni er steinsteypt íbúðarhús, fjárhús fyrir 120 ær og fjós fyrir 4 nautgripi, og hlöður, sem rúma um 300 hesta af heyi, og er þessi húsakostur til sölu. Allar nánari upplýsingar gefur Erlendur Friðións- son, Teigagerði, Reyðarfirði. sími 12. Framkvæmdastjórastaða hiá Styrktarfélagi vangefinna er laus til umsóknar. Umsóknir um stöðu þessa ásamt launakröfu óskast sendar til formanns félagsins. Hiálmars Vilhiálms- sonar ráðuneytisstjóra, Arnarhvoli. fyrir 24. þ.nt. Revkiavík, 3. apríl 1962. Stjórn Styrktarfélags vangefinna. 12 TÍMINN, föstudaginn 6. aprfl 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.