Tíminn - 08.04.1962, Síða 1

Tíminn - 08.04.1962, Síða 1
16 SÍÐUR SUNNUÐAGSBLAÐ 24 SIÐUR SÖLUBÖRN Blaöið afgreitt í Bankastræti 7 á laugardagskvöldum SÖLUBÖRN Afgreiðslan i Banka- stræti 7 opnuð kl. 7 alia virka daga 83. tbl. — Sunnudagur 8. apríl 1962 — 46. árg. BÓLAN I CARDIFF NTB — London, 7. apríl: Óttinn við bólusóttina skaut á ný upp kollinum í dag, er átta manns voru lagðir inn í sjúkrahús í Cardiff, taldir sýktir af bólusótt. Þctta kom mjög á óvart, því að talið var, að hættan væri liðin hjá eftir bólusóttartilfellin í vetur. f Indónesíu herjar nú bólusótt og hefur fjöidi manna látizt' þar, en nokkur hundruð manna liggur sjúkt af veikinni. ...- ASI setur stjórninni lokafrest BlaðiS talaði við Hannibal jværi rétt, að Alþýðusambandið Valdimarsson, forseta Alþýðu- sambands íslands, í gær og spurðist fyrir um, hvort það Nú standa fermingar yfir og þeim fylgja kransakökur ásamt mörgu öðru góðu. Og liér c,’ komin sú stærsta, sem búin hef ur verið til á íslandi. Hún var gerð í brauðgerðarhúsi A. Bridde og búin til úr ekta dönskum konfekt-massa. Verð fengum við ekki uppgefið, enda er bakarinn sjálfur eigandi. Það er nefnilega verið að ferma hjá honum. Vibekka Scheving af- greiðslustúlka er hér á mynd- inni með kransaköku af venju- legri stærð. (Ljósmynd: TÍMINN GE) HEKLA KAFSIGUR BAT Þegar Heklan var á leið mn Eyjafjörö á föstudags kvöldiö frá SiglufirÖi til Akureyrar, sigldi hún á vélbátinn Pálma frá Litla- Árskógssandi og sökk hann stuttu síóar. Heklan var að koma frá Siglu- firði um kl. 21 á föstudagskvöld, og sigldi hún vestan við Hrísey á leið inn til Akureyrar. Vélbát- urinn Pálmi var að koma úr róðri og sigldi skipið austan við eyjuna. Kom Pálmi skáhallt í veg fyrir Hekluna á bakborða, og biðu þeir, sem á verði voru í brúnni, eftir því, að hann véki til hliðar, eins og þeir töldu að hann ætti að gera samkvæmt sjóferðaregl- um. Báturinn vék ekki af leið og flautuðu þá skipsmenn á Hekl- unni, og beygðu um leið á stjórn- borða, en það var orðið of seint og rakst skipið á Pálma aftarlega og kom á hann mikið gat. Tilraun var gerð til þess að taka Pálma í tog, en báturinn, sem er 10 lestir að stærð, var með mikinn afla og því nokkuð þungur, og sökk hann áður en nokkuð varð að gert. Fimm menn voru á Pálma, og tókst þeim öllum að komast í gúmmíbát og síðan uci borð í Hekluna, sem flutti þá til Akur- eyrar. Eins og áður segir var Pálmi á leið að landi úr róðri, en hann hefur verið að netaveiðum að und anförnu. Var báturinn með mik- inn afla, og flýtti það mikið fyrir því að hann sökk. Ekki er talið líklegt, að hægt verði að ná hon- um upp þar sem hann nú liggur á hafsbotni. Skipstjórinn á Pálma er Gunn- laugur Sigurðsson frá Brattavöll- (Framhald a 15 síðu) hefði hætt viðræðum við ríkis- stjórnina um launamálin. Hannibal svaraði, að Alþýðu- sambandið hefði sett ríkisstjórn- Framhald á 15. síðu. BLOÐÁ ■ ■ Inn viS Glerverksmiðjuna sál- ugu er mikill haugur af glerúr- gangi, og er hann kallaður Gler fjallið. í gær hringd'i móðir til Tírnans og bað um, að þeirri kröfu yrði komið á framfæri, að Glerfjallið yrði girt af, svo börn væru þar ekki að leik. Sagði móð- irin, að ógerningur væri að vakta börn'in gvo vel að þau kæmust ekki í hauginn, og vart Iiði sá dagur, að ekki kæmu böm heim til sín með skomar og blóðugar hendur. Djilas aftur / fangelsi NTB — Beograd, 7. apríl: Milovan Djilas var tekinn höndum í morgun af júgóslav- nesku lögregluliði og fluttur í fangelsi. Djilas var fyrrum einn heizti leiðtogi kommúnista í Júgó- slavíu, en komst í andstöðu víð flokkinn og ritaði m.a. bókina „Hin nýja stétt“. Hann var dæmdur í níu ára fangelsi árið 1957 fyrir áróður fjandsamleg- an Júgóslavíu. Honum var sleppt eftir fjög- urra ára og tveggja mánaða fcngelsi, en var þá mjög heilsu- laus. Hann hefur síðan búið í kyrrþey í Beograd og hefur ver ið meinað að skipta sér nokkuð af stórmálum. Engin opinber skýring á ..and tökunni hefur verið gefin. Lög- reglan kom heim til Djilasar kl. níu um morguninn og var inni hjá honum í klukkutíma. Hún tók á brott með sér dálítið af skjölum og handritum. Djilas setti eitthvað af fötum niður í ferðatösku og fór með Iögregl- ur.ni út í fangavagn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.