Tíminn - 08.04.1962, Síða 2

Tíminn - 08.04.1962, Síða 2
 Konur ársins 1961 Eitt stærsta og viðurkennd- asta tímarit kvenna í Banda- ríkjunum heitir Mademoiselle. Það veitir árlega tíu ungum konum, sem skarað hafa fram úr í sinni grein, listum, vísind- um, viðskiptum o. s. frv., sér- staka viðurkenningu, sem veitt er án tillits til þjóðernis, litar- háttar eða annars, sem ágrein- ingi getur valdið í þjóðfélagi mannanna. Mademoiselle hefur nýlega skýrt frá vali sínu á konum ársins 1961, og segir tímaritið m. a. í fréttinni, að „þessar ungu konur hafa þegar skapað sér frægðarorð af eigin ramm- leik, og búast má við, að þeim verði síðar á ævinni enn meiri sómi sýndur en við erum fær um nú“. Ungu konurnar tiu eru: JOAN BAEZ, þjóðvísnasöng- kona. Hún er aðeins 20 ára að aldri og var algerlega óþekkt, þegar hún kom fyrst fram ár- ið 1959 á Newport Folk Festi- val, en síðan þá hefur hún stöðugt tekið framförum og hlotið æ betri dóma fyrir list sína. „Ný stjarna er tekin að skína", skrifaði gagnrýnandi New York Times. „Ung sópran- söngkona með töfrandi, þrótt- mikla og hlýja rödd, sem hún hefur fullt vald á“. Joan Baez hefur nýlokið 12 vikna söngför um Bandaríkin, og vakti hún hvarvetna mikla aðdáun og hrifningu. Einnig hefur hún nýlega sungið inn á plötur og hlotið góða dóma. Bandaríska tímaritið News- week: „Joan syngur af meiri tilfinningu en nokkur hennar líki“. GRACE BUMBRY, óperusöng kona. Þessi þandaríska negra- söngkona, sem hóf sinn frægð- GRACE BUMBRY amerísk óperusöngkona arferil í Evrópu árið 1958, er aðeins 24 ára gömul, en hefur þegar skipað sér á bekk _með beztu söngkonum heims. Á síð ast liðnu ári kom hún fram sem Venus í óperunni „Tann- háuser“ á Bayreuth-hátíðinni, og er það í fyrsta sinn, sem CHRYSSA grísk listakona söngvari með dökkan hörunds- lit kemur fram á þeirri hátíð. „Ósvikin gyðja með frábæra rödd“, sagði Der Tagesspiel í Berlín. Nú starfar Grace Bumbry við Basel óperuna í Sviss, og nýlega flaug hún til Washingtön að beiðni mrs. Kennedy til þess að syngja fyr- ir gesti í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu. CHRYSSA, listakona. Chryssa er fædd í Aþenu á Grikklandi, 28 ára gömul, en kom til Banda ríkjanna 1954, leggur stund á höggmyndalist og málaralist. Hún er mjög frumleg í listsköp un sinni. Hún stundaði nám í sínum listgreinum við Grande Chaumier í París og California School of Fine Arts í San Francisco. Hún hefur tekið þátt í nokkrum hópsýningum og tvisvar sinnum sýnt ein, m. a. sýndi hún eitt sinn ein á Gugg enheim Museum í ,New York. Ennfremur eru listaverk eftir hana í eigu allmargra lista- safna. CAROLE EISNER, tízkuteikn ari. Þó að Carole sé ekki nema 25 ára, hefur hún þegar getið sér orð fyrir óvenjulega hæfi- leika á sínu sviði. Árið 1958 lauk hún prófi í tízkuteiknun frá Syracuso University og var síðan á kvöldnámskeiðum við Fashion Institute of Techno- logy í New York. Hún komst fljótt vel áfram, þegar hún var komin út í starfið og er nú við urkenndur tízkuteiknari. Föt- in, sem hún teiknar, einkenn- ast af hreinum litum. einföldu sniði og frupilegum samsetn- ingum. CARLA FRACCI, ballettdans- mær. Óslitin sigurganga hefur einkennt feril þessarar 23 ára gömlu ítölsku dansmeyjar, allt frá því hún kom fyrst fram ár- ið 1955. Hún lærði við La Scala Opera School og hefur m. a. hlotnast sá heiður að vera nefnd bezta ballettdansmær ítala á þessari öld. 1959 varð hún aðaldansmær við La Scala. Hún hefur komið fram í mörg um höfuðborgum Evrópu og í sjónvarpi. Daily Mail í London: „Hún er einhver bezta ballett dansmær okkar tírna". HOPE GRISWOLD MURR OW, þjóðfélagsfræðingur. Sem meðstjómandi Friends Neigh borhood Group í New York, hef ur mrs. Murrow unnið þarft verk í þágu þjóðfélagsmála. Hún nam við Oberlin College og náði síðar sérstakri gráðu í þjóðfélagsfræði við Columbia University. LAURA MAURER ROTH amerískur eölisfræðlngur LAURA MAURER ROTH, eðl isfræðingur. Dr. Roth, sem hef ur starfað við Lincoln Labora tory við Massachusetts Insti tute of Technology síðan árið 1956, er álitin í fremstu röð ungra vísindalegra eðlisfræð inga. Dr. Roth er 31 árs gömul, gift lífeðlisfræðingi og móðir tveggja barna. Stundaði nám við Swartmore College og Har vard University, og vann ný lega ritgerðasamkeppni vísinda ritsins American Men of Science. CARLA FRACCI ítölsk ballettdansmær JEAN ALICE SZYMANSKI, rafmagnsfræðingur. Árið 1961 var Jean Alice valin. ásamt annarri stúlku, úr hópi 2.200 umsækjenda til vísindastarfa í bandaríska sjóhernum. Hún er nú að nema rafmagnsverk fræði við Cornell University og mun öðlast liðsforingjatign í sjóhernum, þegar hún hefur lokið sínu fjögurra ára námi. Jafnhliða tæknináminu leggur hún einnig stund á rússnesku í viðbót við þau þrjú tungumál, sem hún kunni fyrir. MGiVitJA VITTI, ieikkona. Monica er nú 28 ára að aldri, fædd í Róm. Hún nam leiklist við National Academy of Dramatic Art og hafði öðlazt reynslu í fjölmörgum hlutverk um á leiksviði, áður en hún tók að leika í kvikmyndum. „L’Av ventura" og „La Notte" heita þær ítalskar kvikmyndir, sem hvað mesta athygli hafa vakið í Bandaríkjunum að undan förnu og verið hlaðnar lofi bæði og gagnrýni. Monica Vitti leikur í báðum þessum kvik myndum og hefur fengið af bragðs góða dóma fyrir frábær an leik sinn. NANETTE EDMONDS WACH TER, verzlunarkona. Síðast lið in tvö ár hefur Nanette verið forstjóri tízkuverzlunar í St. Louis, Missouri, starf, sem krefst skapandi hæfileika og skipulagsgáfu. Hún lagði stund á viðskiptafræði við De Pauw University og hafði þegar get ið sér frægðarorð fyrir hæfi leika sína, þegar hún var að eins 25 ára gömul. MONICA VITTI ítölsk lelkkona Vélahús brenn ur í Breiðuvík Patr-eksfirði i gær. Laust eftir hádegi s.l.' miðviku- dag kom upp eldur í vélahúsi vist- heimilisins í Breiðuvík. Eldurinn var orðinn allmagnaður, þegar hans varð vart. Logaði þá út um stafna hússins, sem er nýleg bygg- ing úr timbri. Heimamönnum tókst að ráða nið- urlögum eldsins áður en húsið féll enda veður stillt. Skemmdir urðu mjög miklar á húsinu. L þvi voru fjórar vélasamstæður, sem framleiddu rafmagn fyrir vistheim- ilið, um 40 kílóvött. Talið er, að vélarnar séu lítt eða ekkert skemmdar, en rafmagnstöflur allar og rafleiðslur í húsinu gjöreyði- lögðust. Eignirnar voru lágt vátryggðar. Ókunnugt er um eldsupptök. Nú hefur tekizt að koma einni véla- samstæðunni í gang, en hún fram- leiðir fjögur kílóvött. — Fréttaritari. Jðkulsá fyrsta skrefið TÖPUDU Á ROBERTINO Aðalfundur Styrktarfélags van gefinna var haldinn í Breiðfirð- ingabúð föstudaginn 30. marz sl. Þar var lögð fram skýrsla stjórnarinnar um starfsemi fé- lagsins á síðastliðnu ári. í skýrslunni segir meðal annars að tala félaga sé nú orðin 568, og þar af eru ævifélagar 112. Á ár- inu bættust félaginu 19 nýir fé- lagar og þar af 3 ævifélagar Fjáröflun félagsins var eins háttað og á undanfömum árum. Efnt var til happdrættis um 3 Volksvagen-bifreiðar, og einnig var stofnað til merkjasölu, og varð af henni dágóður ágóði. Auk þess hefur félagið haft minning arspjöld á boðstólum, en hagnað ur af þeim hefur verið fremur lít ill. Félagið varð fyrir því óhappi í sambandi við söngskemmtun ít- alska drengsins Robertinos, að á hennl varð nokkur halli. Sú nýbreytni var tekin upp á árinu, að rita öllum sveitarstjórn um í landinu bréf, þar sem skor- að var á sveitarstjórnirnar að leggja málefnum vangefinna lið með þvi að verja úr sveitarsjóði árlega sem svaraði 10 krónum á hvern íbúa sveitarfélagsins til þessara mála. Þetta hefur þegar borið töluverðan árangur og má þá vænta enn meira og almenn- ara framlags úr þessari átt þeg- ar fram líða stundir. Nú þegar hafa félaginu borizt um 100 þús. kr. frá sveitarfélögum Stjórnin ákvað að afhenda fé þetta til Styrktarsjóðs vangefinna, sem er í vörzlu ríkisstjórnarinnar. Styrktarfélag vangefinna veitti styrki til einstaklinga, sem fóru utan til þess að afla sér mennt- unar til þess að annast vangefið fólk og til þess að kynnast þróun í málum vangefinna í nágranna- löndunum. Samtals hafa 12 not- ið slíkra styrkja úr félagssjóði frá stofnun félagsins. Haldið var áfram byggingar- framkvæmdum við leikskólann að Lyngási. en hann tók til starfa á sl. vori. og hefur Styrkt arfélag vangefinna lagt 550 þús- und krónur til byggingarinnar, og vonir standa til þess að bygg (Framhald á 15. síðu) Á aðalfundi Búnaðarsambands Eyfirðinga, sem haldinn var á Akureyri 28.—29. marz s.l., var m. a. samþykkt svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur BSE 1962 felur stjórn sambandsins að leita eftir samvinnu við sveitar- og bæjar- stjórnir á sambandssvæðinu um þátttöku í baráttu þeirri, sem hafin er norðanlands og austan fyrir því, að virkjun Jökulsár á Fjöllum verði fyrsta skrefið til þess að hag- nýta fallvötn landsins með stór- iðju fyrir augum.“ Sýning á átján eftirprentunum málverka eftir franska listamenn er nú í Mokkakaffi. Myndirnar eru til sölu. Sýningin er haldin á veg- um Alliance Francaise. 2 TÍMINN. sunnudaginn 8. apríl 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.