Tíminn - 11.04.1962, Qupperneq 6
mm
Lántaka til að fullgera
viðbyggingu Landspítala
Ríkisstjómin hefur nú lagt
fram frumvarp um heimild til
8 milljón króna lántöku til
framhaldsframkvæmda við ný-
byggingu Landsspítalans. Með
þessu lánsfé, 4 milljónir króna
á þessu ári og 4 milljónir á
næsta, telur ríkisstjórnin, að
unnt verði að fullgera vestur-
álmu í nýbyggingu Landsspítal-
ans. Þeir Þórarinn Þórarinsson,
Jón Skaftason og Halldór E.
Sigurðsson hafa flutt frumvarp
um heimild til handa ríkis-
stjóminni til allt að 30 milljón
króna lántöku. Frumvarp þetta
fluttu þeir í fyrra og aftur nú.
Frumvarpið var lagt fram í nóv
ember og talaði Einar Ágústs-
son, sem þá átti sæti á þinginu
í fjarveru Þórarins Þórarinsson
ar, fyrir því og gerði ýtarlega
grein fyrir málinu. Var útdrátt
ur úr ræðu hans þá birtur hér
á síðunni. Gat hann þess, að til
að Ijúka viðbyggingum Lands-
spítalans myndi þurfa 35—40
milljónir króna og með svipaðri
fjárveitingu og veitt er til þess
arar framkvæmdar myndi a.m.
k. taka 4—5 ár að fullgera bygg
inguna. Töldu flutningsmenn
tillögunnar, að það myndi unnt
að Ijúka byggingu vesturálmu
fyrir árslok 1962, ef lán væri
tekið. Um stutt lán hefði getað
verið að ræða, er endurgreidd-
ust á næstu 4—5 árum með ár-
legum fjárveitingum á fjárlög-
um til byggingarinnar. — Þann
ig höfðu Framsóknarmenn al-
gert frumkvæði í þessu máli. —
Frumvarpið var sent til um-
sagnar landlæknis og mælti
hann með samþykkt þess. —
Nú hefur ríkisstjórnin látið
undan baráttu Framsóknar-
manna í þessu máli. Sömu sögu
er reyndar að segja um frum-
vörpin um byggingarsjóð verka
manna og byggingarsjóð ríkis-
ins, Framsóknarmenn hafa á
undanförnum þingum flutt
frumvörp, er ganga í sömu átt
og stjórnarfrumvörp þau, sem
þingið hefur haft til afgreiðslu
á undanförnu. Frumvörp stjórn
arinnar ganga bara miklu
skemmra en Framsóknarmenn
vildu.
LAUNASKATTUR-
INN ER RANGLÆTI
Ágúst Þorvaldsson mælti í gær
fyrir nefndaráliti mínnihl. land-
búnaðarnefndar neðri deildar um
stofnlánadeild landbúnaðarins og
skattgjaldið á bændur. Hér fara
á eftir stuttir kaflar úr nefndar-
áliti Ágústs:
Með þessu frumvarpi er megin-
tilgangurinn sá, ag vinna það upp
aftur, sem tapazt hefur við geng-
isfellingarnar, og efla sjóðina að
nýju. Þessum tilgangi gerir frv.
rág fyrir að verði náð bæði með
framlagi úr ríkissjóði og með skatt
lagningu á söluvörur bænda, sem
gerir um kr. 1700.00 á ári af sölu
vörum meðalbús, eins og þag er
nú. Þá er einnig samkvæmt frv.
ákveðig að innheimta álag á út-
söluverð landbúnaðarafurða. Sjóð
unum á ag steypa saman í einn
sjóð, sem á að bera nafnið Stofn-
lánadeild landbúnaðarins.
Þessari skattlagningu á bænd-
ur hafa samtök þeirra, sem málið
var sent til umsagnar, mótmælt.
Minni hlutinn telur, að ríkis-
valdinu, sem ákvag hinar miklu
gengisfellingar, er urðu lánasjóð-
unum að svo miklum skaða, sé
skylt. að bæta þeim tapið á annan
hátt en þann, að þeim, sem sjóð-
unum er ætlag ag styðja, sé með
skattgjaldi gert að taka tapið á
sig.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem fjármálaráðherra hefur ný-
lega gefið í dagblaðinu Vísi um
aukningu sparifjár, virðist ekki
vera, eins og sakir standa, um
neinn lánsfjárskort að ræða í
landinu. Þag er ekki nema eðli-
legt og sjálfsagt, að lánastofnanir
landbúnaðarins fái að njóta að
nokkrum hluta þess fjármagns,
sem safnast fyrir hjá þjóðinni,
sem sparifé, eins og aðrir atvinnu
vegir, og að bændur fái að njóta
hóflegra vaxtakjara meg því móti,
að ríkissjóður greiði vaxtamun,
sem verða kann af því fé, sem á
þann hátt er fengið til stofnlána
í landbúnaðinum.
Hvað snertir þann halla, er
stofnlánasjóðir landbúnaðarins
hafa orðið fyrir vegna aðgerða
ríkisvaldsins í efnahagsmálum,
þá er hin eina sanngjarna lausn
á því máli sú, að ríkig taki á sig
þann halla, enda ber ríkissjóður
ábyrgg á skuldbindingum þessara
sjóða.
Slík framlög ríkissjóðs eru nauð
synleg hlutdeild þjóðarinnar allr
ar í því grundvallarstarfi bænda-
stéttarinnar að byggja, nema og
rækta landið, svo að þjóðin megi
hafa hér trygga framtíg fyrir sig
og komandi kynsióðir. j
Samkv. þessu frumv á upp-
bygging hinnar nýju Etofnlána-
deildar að vera þannig, að í stað
þess, að vextir voru 3—4%, þegar
Framsóknarmenn réðu þessum
málum, þá eiga þeir að vera 6—
6i/2% og í stag þess, ag lánstími
var þá 20—25 ár á lánum til rækt
unar og útihúsabygginga, ^ þá á
hann nú að vera 15 ár. Á þeim
14 árum, sem áætlað er að það
taki að byggja Stofnlánadeildina
upp, er gert ráð fyrir, að vaxta-
greiðslur bændanna nemi 485
millj. kr. og 1% skatturinn á sölu
vörur þeirra verði 133 millj. kr.
Þannig er gert ráð fyrir, að frá
bændum komi beint 618 millj.
kr.
Vaxta- og lánskjör bænda nú á
tímum má telja svipaðs eðlis og
leiguliðakjör fyrri tíma bænda,
þegar kirkjan og fáir auðmenn
áttu flestar jarðir og bændur
voru píndir meg hárri landskuld
og kúgildaleigu, að þeir ettu sér
af þeim sökum aldrei viðreisnar
von.
Til þess að hægt sé að búa nú-
tímabúskap á jörðum. verða bænd
ur að hafa lánsfé. Afkoma þeirra
getur því í meginatriðum farið
eftir því, hvernig leigukjörin eru,
bæði hvað snertir vexti og láns-
tíma.
Ríkissjóður ber alla ábyrgð á
skuldbindingum þessara sjóða, og
er það skoðun minni hlutans, að
ríkinu beri siðferðileg og lagaleg
skylda til ag taka á sig að greiða
þann halla, sem þessir sjóðir hafa
orðið fyrir vegna gengisfelling-
anna 1960 og 1961. Gerir minni
hluti nefndarinnar tillögu um
þetta á sérstöku þingskjali og að
frumvarpið verði að öðru leyti
fært í þetta horf:
Ag Stofnlánadeild veiti ekki lán
framvegis með gengisákvæði.
Ag felld verði niður úr frumv.
ákvæðin um sérstakan skatt á
bændastéttina og enn fremur á-
kvæðin um sérstakt álag á útsölu-
verð landbúnaðarafurða, en stuðn
ingur við Stofnlánadeildina auk-
inn frá þvi sem lagt er til í frv.
Að upphæg lána til íbúðarhúsa
í sveitum megi nema allt að 75%
af kostnaðarverði þeirra.
Ag „viðreisnar“-vextirnir af
stofnlánum til landbúnaðar verði
lækkaðir. en vextir af þeim lán-
um lögbundnir, 3y2% af lánum til
íbúðarhúsa og 4% af öðrum lán-
um Stofnlánadeildar.
Að aukið verði ag miklum mun
fé veðdeildar Búnaðarbankans frá
því, sem lagt er til í frv.
Ag framlög til nýbýla og rækt-
unar á jörðum. sem hafa minna
en 10 ha. tún, verði hækkaðar
vegna þeirrar verðhækkunar, sem
leiðir af gengislækkuninni 1961.
Að stofnaður verði bústofns-
lánasjóður.
Akveðið er nú að útvarpsumræður, eldhúsdagsumræður, verði
á fimmtudag og föstudag.
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, hefur lagt fram tillögu
til rökstuddrar dagskrár um, að afgreiðsla frumvarpsins um al-
mannavamir verði ekki afgreidd nú, en ríkisstjórninni verði
heimilað að gera skyndiráðstafanir með bráðabirgðalögum.
Minni hluti fjárveitinganefndar hefur skilað áliti um tillögu
Framsóknarmanna um heyverkunarmál. Hér er um gagnmerka
tillögu að ræða og var hennar getið ýtarlega hér á síðunni, er
hún var lögð fram. Meiri hlutinn vill vísa tillögunni frá.
Uts varsfrum varpið
Vo"
Hér fara á eftir kaflar úr
nefndaráliti Karls Kristjánsson
ar og Alfreðs Gíslasonar við út
svarsf rumvarpið:
Það er stefnugalli, að vald
sveitarfélaga um ákvörðun
gjalda er skert. Skattstjórar
látnir annast álagningu útsvara
í skattaumdæmum, með tak-
mörkuðum heimildum til und-
anþágu að vísu. Enn fremur
eiga skattstjórarnir að annast
álagningu aðstöðugjalda. Frá
því eru engar undanþágur heiir
ilaðar.
Með þessu er ekki aðeins
dregið úr heimavaldinu, heldur
líka tafsamt skipulag lögleitt
fyrir suma staði og kunnugleik-
inn ekki metinn svo mikils sem
vert er.
Veltuútsvar er samkv. frum-
varpinu, lagt niður, en þess í
stað á að lögleiða svonefnt Aí)-
STÖÐUGJALD, enda verður
ekki séð, að sveitafélögin geti.
eins og sakir standa, korhizt af
án þess að hafa einhvem slík-
an tekjustofn, sem er ekki
mjög hverfull, þótt misjafnt
ári.
Veltuútsvarið hefur verið
mjög óvinsælt hjá gjaldendum.
En óliklegt er, að aðstöðugjald-
ið verði betur liðið. Að vísu á
aðstöðugjaldið að verða frá-
dráttarhæft í skattframtali hjá
gjaldendum, en auðvelt Iiefði
líka verið að lögleiða, að veltu-
útsvarið væri það.
Veltuútsvarið var lagt á
brúttótekjur af rekstri og
þjónustu (umsetningu).
„Aðstöðugjald skal miða vii
samanlögð rekstrargjöld, þax
með taldar, fymingarafskriftir
samkvæmt ákvæðum skatta
laga, svo og vörukaup verzlana
og efniskaup vegna framleiðslu
iðnfyrirtækja.
Aldrei skal reikna aðstöðu-
gjald af hærri upphæð en sem
nemi brúttótekjum“.
Um aðstöðugjaldið má því
segja, að það sé ekki siður
veltuútsvar en hitt, sem á að
leggja niður. Bæði lögð á eftir
sömu bókinni: hið fyrrverandi
á tekjuhliðina, hið tilkomandi í
gjaldahliðina.
Grundvöllur sá, er þetta
gjald á að reiknast eftir, sam-
rýmist ekki hugtakinu AÐ-
STÖÐUGJALD. Ekki verður
gjaldskylda manna í sveitarfé-
lagi fyrir aðstöðuna, sem þei:
hafa þar til atvinnurekstrar,
fundin jafnréttislega með því
að láta þá greiða í hlutfalli við
tilkostnað sinn. Venjulega i.hia
— að öðru jöfnu — góð aðstaða
leiða af sér minni tilkostnað í
hagnýtingu en hin lakari. Sam
kv. frumvarpinu á því sá, sem
lakari aðstöðuna hefur, að
borga hlutfallslega meira fyrir
hana. Sömuleiðis eiga tjónin,
sem auka rekstrargjöld, að vera
gjaldastofnar.
Veltuútsvörin koma ekki rét:
látlega niður, en aðstöðugjöld-
in á þessum breiða grandvelli
virðast síður en svo eðlilegri.
Breytingin frá veltuútsvári
yfir í hið svokallaða aðstöðu-
gjald minnir á sjúkling, em
orðinn er þreyttur á að hvíla á
annarri hliðinni og veltir sér
vfir á hina, þó að hún sé veik
ari. Þetta getur veitt honum
fró litla stund, einkum meðan
hann er að hugsa til þess að
gera það.
Minni hlutinn flytur á þskj.
673 nokkrar breytingartillögur
og vill með þeim freista þess
að koma til leiðar nokkrum lar
færingum á frumvarpinu, sum-
um til þess að auka kosti þess,
öðrum til að minnka galla þess.
1. Tillaga um heimild til að
leggja nokkru hærra að-
stöðugjald (allt að 3%) á
rekstur, sem gefur mikinn
arð, en hefur hlutfallslega lít
inn tilkostnað í för með iér.
2. Tillaga um, að heimilt skuli
að undanþiggja aðstöðugjah"
hjá einstökum gjaldendum
kostnaðarliði, sem stafa af
óvenjulegu tjóni.
3. Tillaga um, að Jöfnunarsjóð-
ur sveitarfélaga fái frá næstu
áramótum \ (í stað £, sem
nú er) af söluskatti, sem inn-
heimtur er til ríkissjóðs skv.
tilgreindum lögum.
4. Tillaga um, að lágmarksfjá -
hæðin, sem ríkissjóður gieið
ir Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga á ári, verði frá næstu
áramótum »að telja ekki 56
millj. kr„ heldur 70 millj.
kr., og óafturkallanleg að
öllu leyti, þó að hún eitthvert
ár verði meira en \ af cölu-
skattinum.
5. Tillaga um, að frá n.k. ára-
mótum renni í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga hluti sá, er rík-
issjóði hefur verið ánafnað-
ur af „umboðsþóknun og
gengismismun gialdeyris-
bankanna". Árið 1962 er sá
hluti áætlaður skv. f járlögum
15 millj. kr.
6. Tillaga um heimild til auk-
ins frádráttar frá útsvarsupp
hæð hjá þeim, sem hafa ieir'
en þrjú böm á framfæri.
7. TiIIaga um heimild handa öll
um sveitarfélögum, þar sem
skattstjóri er ekkí búse.íur,
að ganga frá niðurjöfnun út-
svara heima án miiligöngu
skattstjóra.
b
T f M I N N, miðvikudagur 11. apríl 1962.