Tíminn - 11.04.1962, Side 9

Tíminn - 11.04.1962, Side 9
Athugasemd Mig langar ekki til a3 standa í blaðadeilum við lögregluna, en ég vil gjarnan að hið sanna komi fram um skipti mín við lögreglumenn- ina, sem stöðvuðu mig laugardags nóttina 24. marz er ég var á leið heim með hljóðfæri mín. Þeir ávörpuðu mig með orðunum: Hvar tókstu þetta? Mér gpamdist sá áburður, sem lýsti sér jí orðum þeirra og taldi réttara að finna yfirmenn þeirra og gera grein fyrir eignarétti mínum á hljóðfærunum. Er þangað kom sagði ég til nafns míns og heimilis- fangs, en lögreglan fann það ekki í manntalinu. Það verþ ég að telja sök lögreglunnar, en ekki mína. Eg tilkynnti varðstofu Iögreglunnar núverandi heimilisfang mitt fyrir S mánuðum og hef í höndum kvitt- un, undirritaða af starfsmanni lög- reglunnar, Skarphéðni Loftssyni, um að ég hafi tilkynnt aðseturs- skipti. Annars gat ég að sjálfsögðu átt gítarinn, þó ég væri ekki finn anlegur á manntali þeirra og bauð oft að sýna þeim kvittanir, ef þeir vildu aka mér heim, svo að ég gæti sannað eignarrétt minn, en því var ekkj sinnt. Þá bað ég enn fremur um, að hringt væri í borg- ara, sem gat vottað, að ég fór með rétt mál. Það var heldur ekki leyft. Mér er sagt, að í menningarlöndum sé litið svo á, acS borgari sé sak- laus, þangað til annað sannast. Hér byrjaði lögreglan á þvi að gefa i skyn, að ég hefði tekið hljóðfærin ófrjálsri hendi og neitaði mér um að sanna rétt minn til þeirra. Eg harma, að þetta skyldi henda, en ég erfi þetta ekki við Iögreglu- mennina, og er reiðubúinn að leika fyrir þá á gítarinn minn næst, þeg ar þeir skemmta sér. Þá gætum við t d. sungið: „í kjallaranum “. Með vinsemd, Arnþór Jónsson. Eins og áður hefur verið frá skýrt, telur lögreglan, að Arnþór hafi þráazt við að segja til nafns síns og það hafi tafið fyrir af- greiðslu máls hans. Blaðið getur ekki kveðið upp neinn úrskurð i þessu máli með því að fullyrða, að annar hvor aðilinn sé sekur og hinn saklaus, en hitt virðist auð- sætt, að báðir aðilar hafi gert úlf- alda úr mýflugu. Mál þetta er því útrætt af blaðsins hálfu. ÞaS fór ekk íllli mála aS unga fólklnu var alvara þegar þaS bar fram kröfur rinar um verndun gamla bæjarlns I Kaupmannahöfn — Hér er kröfuganga á RáShústorgi. Kaupmannahofn, 6. apru 1962. — Félag íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn kaus sér stjórn á fjölmennum aðalfundi í Biskupskjallaranum 20. febrú- ar. f hinni nýkjörnu stjórn eru Sigurður B. Jóhannesson, for- maður, Þorsteinn Gunnarsson, ritari; Þorsteinn Vilhjálmsson, gjaldkeri, og Eysteinn Péturs'- son, Jóhannes Sigvaldason og Einar Benediktsson, meðstjórn- endur. Revisorar voru kjörnir Gunnar Björnsson og Otto J. Björnsson. Fundir stúdentafélagsins í vetur hafa ekki verið sérlega vel sóttir eða athyglisverðir. Þó má ekki gleyma bókmennta- kvöldvöku á Kannibalnum 3. marz, þar sem Helgi Sæmunds son hélt ágætan fyrirlestur um nýjar, íslenzkar bækur. Hclgi náði þegar góðu hljóði og at- hygli tUheyrenda með skemmti- legri gagnrýni og persónulegu mati um bækur þær, sem hann ræddi um. Var mönnum skemmtun góð að gamansei .: hans og athugasemdum um ýmis verk, er hann fjallaði um, en jafnframt fór ekki á milli mála skilningur hans og aðdá- un samfara réttsýni í dómum. Þetta varð skemmtUeg kvöld- vaka, og Helgi hlaut hinn bezta róm áheyrenda fyrir ágætt er- indi sitt. f sambandi við fregnir af félagslífi íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn er ærið oft minnzt á Kannibalinn og Bisk- upskjallarann. Þessi tvö nöfn hafa Líka verið á dagskrá í öðru sambandi mjög oft að undan- förnu. Ástæðan er sú, að 50 ár eru liðin, síðan fyrsta stúdenta ráð var kosið við Kaupmanna- hafnarháskóla, og eldri og yngri stúdentaráðsmenn hafa sagt frá mörgum minnisverður.i atburðum úr sögu ráðsins, en þeir atburðir eru ærið oft tengd ir þessum tveim stöðum. Kannibalinn er ein af mat- stofum háskólastúdenta, en að Hér sést eitt horn i Biskupskjallaranum, og í loftlnu eru krókarnir, sem biskupinn hengdi á svínssiður sínar árið 1807. unum og deilt matnum til nauð staddra. Sagt er, að kjallarinn hafi haldizt að mestu óbreytt- ur frá fyrstu tíð, en þegar síð- ustu umbætur fóru fram á þess um bygginguin um 1920, voru báðir þessir gömlu kjallarar hreinsaðir, málaðir, hitaBir upn og búnir til nýrrar og ánægju legrar þjónustu fyrir félagslíf stúdentanna. Þess má geta að lokum, að hin gamla og innsta Kaupmanna höfn — gamli bærinn — skrepp ur sífellt saman, og hver sögu- fræg bvggingin af annarri verð ur að þoka fyrir nýjum stór- húsum. En þetta gerist þó ekki sársauka- eða átr’ alaust, og nú sem oftar er það æskufólkið, sem mótmælir harðast. Nýlega efndi ungt fólk hundruðum ::am an til blysfarar um gamla borg arhlutann. Blysförin hófst á Kóngsins nýjatorgi og endaði á Ráðhústorgi. Síðan gekk nefnd inn í ráðhúsið og af- henti borgaryfirvöldum álykt- un, þar sem krafizt er varð- veizlu gamla borgarhlutans sem heildar, svo að hans njóti í réttri mynd, og Kaupmnnna- höfn missi ekki þetta aðals- merki menningarborgar og for tíð og framtíð eigi þar rúm hlið við hlið. Geir Aðils. I Biskupskjallara og Kannibal kvöldi er þar einnig tíður fundar staður stúdenta. Þegar matstofa þessi var gerð fyrir hálfri öld, þótti hún rúmgóð, en nú þykir hún það ekki lengur, og miklar ráðagerðir hafa verið uppi und anfarið að stofna til nýs Kanni bals, og mun vera búið að tryggja honum stað í húsi skammt frá, og munu þessar gömlu stofur þá að líkindum hætta hinu gamla hlutverki sínu. Þann-ig eru nú timamót í sögu Kannibalsins. Biskupskjallarinn, sem áður var kallaður Munkakjallarinn, hefur um langt skeið verið fundar- og liátíðarstaður stúd- enta. Kjallarinn er undir hinni löngu álmu háskólabyggingar- innar, sem veit að Norðurgötu. — Tveir kjallarar eru sögufræg astir undir háskólabyggingun- um. Hinn eldri, sem lengi var notaður sem stúdentafangelsi, var gerður seint á 15. öld, en hinn yngri, Biskupskjallarinn, er undir byggingu, sem upphaf lega var timburhús. Sú bygging brann 1641 en var síðan endur- byggð úr steini. Enn eyðilagðist húsfð í StórbrÚrtÖ 1728, en var fljótlega endurreist. — í sprengjuárásunum 1807 urðu þessar byggingar ekki fyrir telj andi tjóni, og að því er sagt er, á nafnið „Biskupskjallari" að vera frá þeim tíma. Enn má sjá í lágum og sér- kennilegum lofthvelfingum þessarar vistarveru stóra járn- króka í lofti. Sagt er, að sjálf- ur biskupinn, sem átti heiina þama í nágrenninu, hafi þá haft umráð kjallarans, og geymt þama kjötbirgðir, eink um svínssíður haneandi á krnk ÞaS er oft þröngt um alla þá stúdenta, sem gjarnan vilja fá sér að borða á Kannibalnum. T f M I N N, miðvikudagur 11. aprfl 1962.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.