Tíminn - 11.04.1962, Blaðsíða 16
Spúði 100 milljon
rúmm. af hrauni
í nýútkomnum Náttúrufræð-
ingi skrifar Þorleifur Einars-
son um Öskjugos, og ræðir
meðal annars um gos það, sem
varð í Öskju á síðast liðnu ári.
Hér fer á eftir stuttur útdrátt-
ur úr þeirri grein:
„Gosinu mun hafa lokið í byrjun
desember. Þegar Björn Pálsson
flaug yfir eldstöðvarnar 15. des.,
sást engin glóð lengur í gígunum
eða hrauninu. En um langa hríð
mun gufu enn leggja upp úr gígun-
Míðvikudagur 11. apríl 1962
86. tbl.
46. árg.
Gríma hugsar
til mánudags
Það er alltaf líf í tuskunum,
þegar Gríma dregur tjaldið
frá í Tjarnarbæ. Nú sýnir fé-
lagið „Biedermann og brennu-
vargana" við góða aðsókn og
undirtektir, en annað kvöld
brýtur Gríma~ upp á algerri
nýjung í leikritaflutningi hér-
lendis. Kl. 8.30 á fimmtudag
verður nýtt íslenzkt leikrit
eftir Halldór Þorsteinsson,
bókavörð, lesið af sviðinu.
Þetta er fyrsta verk Halldórs.
Leikritið heitir „Á morgun er
mánudagur", en leikstjóri er
Gunnar Eyjólfsson.
Hlutverkin eru 8, og eru þau
í höndum valmkunnra leikara.
Karlmennirnir eru ekki nema
tveir: Róbert Arnfinnsson og Jón
Sigurbjömsson, en kvenhlutverk-
in eru í höndum Herdísar Þor-
valdsdóttur, Þóru Friðriksdóttur,
Emilíu Jónasdóttur, Önnu Guð-
mundsdóttur, Nínu Sveinsdóltur
og Margrétar Á. Auðuns, en hún
er níu ára gömul.
Vigdís JFinnbogadóttir hafði orð
fyrir aðstandendum Grímu á
Halldór Þorstelnsson
blaðamannafundi í Tjarnarbæ í
gær. — Þetta er alger nýjung í
leikritaflutningi hérlendis, en til-
tölulega algengt erlendis. Til dæm
is má nefna að lesin eru leikrit
af sviði í Art’s Theater í London
á hverjum sunnudegi. Með þess-
um hætti verður nánara samband
og meiri samvinna milli höfund-
arins og fólksins, sem vinnur í
leikhúsinu, og hefur það samband
oftast þótt gefa góða raun. Marg-
ir höfundar og mörg leikhúsverk
hafa komið fram á sjónarsviðið
á þennan hátt, og þar hafa leik-
hússtjórar og aðrir framámenn
(Framh. á 15. síðu).
í gærdag var mikið um að vera á túnunum inni við Laugardalsvöll —
eSa að minnsta kos'ti fannst börnunum á Laugarlækjarskóla það. Leik-
fimikennararnir, Kristín Helgadóttir og Ólafur, Unnsteinsson, gáfu nem-
endunum frí i leikfimitímunum, og drifu þá þess i stað í 4 km. skíða-
gönguna, og börnunum fannst það vel þess virði. Ánægjusvipur var á
hverju andliti, þegar þau fengu viðurkenningarmerkið og öll ætluðu þau
niður í Hellas til að kaupa merki landsgöngunnar. Ljósmyndari Tímans,
G.E., brá sér inn eftir í gær. og tók þá þessa mynd af nokkrum þátttak-
andanna. Áætlað var að um 3—400 nemendur á aldrinum 7—11 ára hefðu
gengið í gær, en í skólanum eru 500 nemendur. — Stærri myndin er af
börnunum að leggja af stað, en minni myndin er af Kristínu Helgadóttur
að afhenda merkin í lok göngunnar.
Skammaii Guðmund og Gylía
Samkvæmt mælingum Trauslja
Einarssonar mun hiti hraunkvik-
unnar í gígunum hafa verið um
1200 stig C, en það er mun meira
en mældist í hraungíg Heklu 1947.
Þar var hitinn 100 stig C., en úti
í hrauninu allt að 1150 stig C.
All undarlega kom það eldsóvön-
um fyrir sjónir, að glóandi hraun-
jaðrarnir skyldu ekki bræða snjó-
inn, áður en hraunið rann yfir. -
Líklegt er, að kalt loftið, sem sí-
fellt streymdi að glóandi hraun-
brúninni, hafi valdið þar nokkru
um. Klukkutímum eða dögum síð-
sást gufa stíga upp úr hraun-
inu, og var þar sennilega kominn
snjórinn, sem varð undir hraun-
inu, sem gufa. Lík fyrirbæri voru
algeng í Heklugosinu síðasta.
Upp úr hrauninu sáust einnig
stíga bláleitar gufur, líklega eink-
um brennisteinstvísýringur og aðr-
ar gosgufur. Einkum súrnaði
í vitum í nánd við eld-
stöðvarnar. Úr gufum þessum sett-
ust víða til sölt sem hvítar skellur,
svo og brennisteinn. Þetta útfall
hefur ekki enn verið efnagreint.
Vikrahraun (en svo er nýja
hraunið nefnt — innsk. Tímans)
er rúmir 9 km að lengd og þekur
um 11 ferkílómetra lands. Meðal-
þykkt hraunsins mun vera 8—10
m., svo að rúmmál þess mun vera
nálægt 100 millj. rúmmetra. Vikra-
hraun er því fjórum sinnum minna
að rúmmáli en Hekluhraunið, enda
stóð Öskjugosið 1961 líklega aðeins
í 6 vikur.
Vikrahraun er úfið apalhrajm
nema hraunið, sem rann eftir 6.
(Framh. á 15. síðu).
Það bar til tíðinda í neðri deild
Alþingis í gær, að Alþýðuflokks-
menn reittu Ólaf Thors, forsætis-
ráðherra, tll reiði með því að greiða
atkvæði á annan veg en forsætisráð-
herrann. Að vísu var hér ekki um
ýkja mikilvægt mál að ræða, svo að
stjórnarslitum þarf varla að valda,
en forsætisráðherrann varð svo reið-
ur yfir, að Alþýðuflokksmenn
skyldu sýna af sér sjálfstæðan vilja,
að hann sleppti sér og húðskamm-
aðl ráðherra Alþýðuflokksins, þá
Guðmund og Gylfa, sagði þetta svik
og sagðist myndu stöðva frumvarp.
ið, þótt stjórnarfrumvarp væri.
Benedikt Gröndal hafði borið fram
breytingartillögu vlð stjórnarfrum-
varp um skemmtanaskatt, þess efn-
Is, að ágóði ViStækjaverzlunar ríkis-
ins af sölu sjónvarpstækja skyldi
renna í sérstakan sjónvarpssjóð. Er
tillaga þessi kom til atkvæða óskaðl
Benedikt eftir nafnakalli um tillög-
una. Ólafur Thors, forsætisráðherra,
varð fyrstur til að greiða atkvæði
og sagði hátt og skýrt nei. Úrslit
urðu þó þau, að tillagan var sam-
þykkt með 18 atkvæðum gegn 12.
Guðmundur í. Guðmundsson sat hjá,
Gylfi sagði já, en Emil var fjarstadd
ur. Forseti, Ragnhildur Helgadóttlr,
galt tillögunni jáyrði og kannske
hefur Ólafi sárnað það einna mest.
Það var ekki nóg með, að hann
missti stjórn á Alþýðuflokksdeildinni
í flokknum, heldur var forsetl, sem
hann var þó enn vissari um að hafa
í hendi sér, farin að hlaupa út und-
an sér líka.
Eftir atkvæðagreiðsluna spratt Ól
afur úr sæti sínu, kom askvaðandi
’til þeirra Gylfa og Guðmundar í. og
vændi þá um svik, svo hátt að bing
heimur mátti gjörla heyra. Sagðist
hann myndu stöðva frumvarpið, Það!
skal ekki í gegn, sagði hann. Á eftir
fékk svo „forsetaynjan" lexíu hjá for
sætisráðherranum. Fór ekki milli
mála, að Ólafi féll þetta mjög þungt.
Forsætisráðherra getur stöðvað
málið með því að fá forseta til að
fallast á að taka málið ekki á dag-
skrá — aðra leið á hann ekki. —
Kann svo að fara, að Guðlaugur þjóð
leikhússtjóri þurfi að bíða eftir tekj
um af skemmtanaskattinum og Gylfi
verði að gefa út bráðabirgðalög í
sumar — án viðaukans frá Bene-
dikt.
Heiðursfélagi HIP
Á síðasta aðalfundi sínum, sem haldinn var á sunnudaginn var,
kaus Hið íslenzka prentarafélag Jón Þórðarson, prentara í prent-
smiðjunni Eddu, heiðursfélaga í HÍP. Jón var einn af stofnend-
um prentsmiðjunnar Acta, sem stofnuð var 1920, og var árum
saman gjaldkeri þess fyrirtækis, en er Prentsmiðjan Edda h.f.
keypti Acta og tók við rekstri hennar undir nýju nafni, réðst
Jón til vinnu þar og hefur unnið síðan í Edduprentsmiðju.