Alþýðublaðið - 13.04.1920, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
Grefið út af Alþýðuílokknum.
1920
Þriðjudaginn 13. apríl
81. tölubl.
Alþýðublaðið
«r ódýrasta, fjölbreyttasta og
ibezta dagblað landsins?
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.
Að norðan.
Fannkyngi mikið hefir verið
um alt Norðurland f vetur og ekki
liefir stórhríðin undanfarið bætt
4r skák. í febrúarferð sinni lá
vestanpóstur úti á Vatnsskarði og
misti frá sér fylgdarmanninn, sem
náði þó eftir mikla hrakninga til
bygðar. Sakaði hvorugan. Áustan-
^póstur hafði um líkt leyti orðið
að skilja eftir á Akureyri mikið
af blaða- og bögglapósti.
í Yerkamanninuni hefir und-
anfarið verið að birtast mjög ítar-
leg og fróðleg grein um skattfrelsi
Samvinnufélaga, eftir Halldór Frið-
jónsson.
Yerkamannafélag Aknreyrar
•varð nýlega 14 ára. Félagsmenn
eru nú á 4. hundrað og hafa sjóð-
eignir félagsins aukist s 1. ár um
1264,74 kr., þrátt fyrir það, þó
rúmar 500 kr. hefðu verið veittar
Úr sjúkrasjóði til styrktar veikum
félagsmönnum.
Tengdapabbi hefir verið leik-
ánn í vetur á Akureyri. Róma
norðanblöðin mjög meðferð leik-
enda á leiknum.
Dagur er nú farinn að koma
út aftur á Akureyri, helmingi
atærri en áður. Ritstjóri er Jónas
Þorbergsson, ungur maður og vel
gefinn, bróðir Jóns á Bessastöðum.
Norðurland mun og bráðlega
'hlaupa af stokkunum, enn á ný,
sneð auknum krafti, að því er bréf
að norðan hermir.
Haeli berklasjúkra á Norður-
landi. Mikill áhugi er meðal
manna norðanlands á því, að sett
verði hið bráðasta á stofn hæli
berklasjúklinga á Norðurlandi.
Hefir þegar safnast allmikið fé í
því skyni. Nýlega samþykti Stúd-
entafólagið á Akureyri áskorun til
allra lækna norðan- og austan-
lands um það, að þeir beittu sér
kröftuglega fyrir málinu og sendu
milliþinganefndinni í berklaveikis-
málinu, sem skipuð var í vetur,
rökstuddar tillögur og áskoranir
um stofnun hælisins.
Sýslufundur í Skagafjarðarsýslu
sem haldinn var í febrúar síðasti.,
veitti 10 þús. kr. til húsmæðra-
skóla á Norðurlandi og 10 þús. kr.
til brúar á vesturós Héraðsvatna.
Hvað veldur? Óvenjulega marg-
ar jarðir eru auglýstar í norðan-
blöðunum til sölu og lausar til
ábúðar. Virðist það all óviturleg
ráðstöfun hjá bændum, að selja
jarðir sínar nú á þessum tímum,
þegar alt er svo mjög á huldu,
en búskapur í tryggara lagi, þegar
hyggilega er á haldið. Verður helzt
að geta þess til, að geipiverð það,
er jarðir hafa komist í, í seinni
tíð, freisti manna til þess að selja
þær. En það mun síðar sýna sig,
að augnabliksgróðinn verður þeim
til lítilla heilla. Þeir munu finna
það, að betra hefði verið að eiga
jörðina, heldur en andvirði hennar.
Og ætli þeir sér að flytja til kaup
túnanna, yðrast þeir fljótt þeirrar
ráðsmensku.
Gæzlustjóri, er Jón Stefánsson,
ritstjóri, nýlega orðinn við útbú
Landsbankans á Akureyri, í stað-
inn fyrir Böðvar J. Bjarkan, er
dvelur um þessar mundir utan-
lands, til þess að kynna sér þar
bankastarfsemi.
Alþbl. kostar I kr. á mánuði.
Þrælauppreistin.
(Niðurl.)
Kæra frú! Spurning yðar ber
ekki aðeins vitni um að yður
skorti skilning á líflnu, heldur
einnig hræsni syndarans, sem
ekki vill játa það á sig hrein-
skilnislega, að hann hefir syndgað,
þó að hann finni það innra með
sér. Þér vitið, að þér gátuð ekki
sloppið við að sjá augliti til auglitis,
hvernig lífi fátæka bóndans var
farið. Maður, sem er barinn, hlýt-
ur að hefna sín, fyr eða seinna.
Sá maður, sem aðrir hafa enga
meðaumkun með, þekkir ekki
meðaumkun. Það er augljóst. Og
enn fremur: það er réttlátt,. ekk-
ert annað. Skiljið mig þess vegna
rétt: hið hræðilegasta er ekki það
að slá, heldur hitt, að geta ekki
gert annað en að slá. Hið hræði-
legasta er ekki að vera án með-
aumkunar, heldur hitt, að geta
ekki vakið meðaumkun.
Kæra frú! í Kiev kastaði hin
góðlynda, rússneska þjóð, stór-
verksmiðjueiganda út um glugga
á húsi sínu. Sömuleiðis var kenslu-
konu einni varpað niður á göt-
una. En kauarífugli, sem fanst
þar í búri sínu, var hlíft. Góða,
látið illa yfir verki þessu! Veslings
kanarífuglinn vakti nokkurs konar
meðaumkun, en mönnunum var
fleygt út um gluggann. Þar var
samt sem áður rúm fyrir með-
aumkun í hjörtum byltingarmann-
anna. En sú meðaumkun beindist
ekki til mannannanna, sem ekki
áttu það skilið. í því er fólgið
hið óttalega og sorglega.
Kæra frú! Eruð þér nú alveg
vissar um að þér hafið rétt til að
heimta, að menn hegði sér gagn-
vart yður sem mannlegri veru,
þegar þér sjálfar alla æfi hafið
verið án meðaumkunar með ná-
unga yðar, og álitið að hann
stæði ekki jafnfætis yður. Þér
skrifið bréf. Þér eruð mentaðar.
Þér hafið aö líkindum einnig lesið