Tíminn - 30.05.1962, Síða 15
f hljómleikasal
B'rámháld ct 8. slðu.
ar. Einsöngvararnir Rolf Halvor-
sen og Knut Erik Ek, bassar,
sungu einsöng með kórnum og
gerou það prýðilega, sá síðar-
nefndi fór mjög smekklega með
einsöng sinn í rússnesku þjóð-
lagi.
Söngstjórinn Sverre Bruland
stjótnaði kórnum vel og örugg-
lega.
U. A.
Skóbursiun á forginu
(Framhald af 16. síðu).
Ekki vissi borgarverkfræðingur
nein deili á umsækjanda önnur
en iþau, að hann ætti heima í Út-
'hlíð 13. Við hringdum heim til
hans. Þar var okkur vísað á
Kristján í hlaupareikningsdeild
Landshankans, en hann vinnur
þar.
Aðspurður sagðist Kristján hafa
fengið hugmyndina í vor. Skóburst
un þykir sjálfsögð í flestum borg-
um erlendis, en þekkist varla í
Reykjavík. Þó kvaðst Kristján
hafa heyrt, að ungur maður hefði
burstað skó á Lækjartorgi í
hitteðfyrra. Annars hefur þessi
þjónusta verið óþekkt hér. Krist-
ján er fastur starfsmaður í Lands
bankanum og hefur ekki hugsað
til að taka sér burstann í hönd
sjálfur, heldur láta annan sjá um
verkið.
Til sölu
lítil, rafdrifin
steypuhrærivél.
Upplýsingar í síma 3-76-40
Dráttarvél
til sölu, INTERNATIONAL,
26 hestöfl.
Vélinni fylgir sláttuvél,
hjólaplógur og sextán-
diskaherfi. Skipti á jeppa
koma til greina.
Upplýsingar í síma 7582, j
Sandgerði.
Miðstöðvalagnir
Geislahitunarlagnir
Vatnslagnir
Breytingar fyrir hita-
veitutengingar o. fl.
TÆKNI H.F., Súðavog 9 j
Símar: 33599 og 38250
FRIMERKI
Kaupi öll notuS íslenzk
frímerki hæsta verði.
Gísli Brynjólfsson,
Pósthólf 1039, Reykjavík.
Bændur
Mjög duglegur 11 ára
drengur óskar eftir að
komast á gott sveitar-
heimili í sumar.
Upplýsingar í síma 1577,
Keflavík.
Dansar á heims-
sýningimni
(Framhald af 16. síðu).
eftir fór hann aftur til Robbins,
en þá var það, sem hann hitti nú-
verandi yfirmann sinn og meistara
Robert Joffrey.
Joffrey er einn kunnasti ballett
meistari í Bandaríkjunum, og hef-
ur New York Herald Tribune
meðal annars kailað hann „einn
hæfileikamesta ballettstjórnanda
vorra daga“.
Eftir að Helgi hafði æft með
flokki Joffreys var ákveðið, að
hann réðist í sýningarferðalag um
Bandaríkin í febrúar, marz og
apríl s.l. Sýningarferðin stóð í 10
vikur, og sýndi flokkurinn um 60
sinnum. Fékk hann alls staðar
mjög góða dóma. Helgi byrjaði
með því að dansa aðalhlutverk í
tveimur ballettum, en í ferðalok
hafði hann mfeð höndum sólódansa
í 6 ballettum.
Stjóm Heimssýningarinnar í
Seattle fór fram á það við Joffrey
Skattheimtumenn læstu
útvarpinu
(Framhald af 1. síðu).
ingarnar og færa þær þuli tól lestr
ar. Var augiýsingaskrifstofunni lok
að, og einnig var skrifstofa aðal-
gjaldkerans innsigluð, en hann var
ekki viðstaddur, er þetta gerðist.
Síðan hurfu mennimir á brott.
Yfirmenn útvarpsins höfðu farið
þess á leit, að þeir fengju frest
til að greiða söluskattinn, þar til
úrskurður kæmi um það, hvort
hljómsveitinni bæri að greiða
hann. Því var neitað á þeim for-
sendum, að engum væri gefinn
slíkur flestur. Á hinn bóginn hefði
útvarpið getað greitt skattinn með
fyrirvara, og síðan fengið hann
endurgreiddan, þegar dómur geng
ur í málinu, svo framarlega, sem
hann verður hljómsveitinni í vil.
Mun það ráð hafa verið tekið í
gærdag, eftir að viðskiptavinir
höfðu orðið fyrir talsverðum óþæg
indum af því að ekki voru lesihár
auglýsingar í hádegi og með írétt
um, og sjálft mun útvarpið hiafa
orðið fyrir nokkrum skaða, þar
eð ágóðinn af auglýsingum nem-
ur dag hvern þúsundum króna.
Útvarpið telur vafasamt, að því
beri skylda til að standa skil á
þessu gjaldi vegna þess, að Sin-
fóníuhljómsveitin, þótt hún sé að
nokkru leyti rekin á vegum Ríkis-
útvarpsins, hefur sjálfstætt reikn-
ingshald, og ætti því innheimtunni
að hafa verið beint til hennar. Mun
því Ríkisútvarpið höfða skaðabóta-
mál út af þessari lokun, þar sem
það varð fyrir tugþúsunda tjóni
við missi þeirra auglýsinga, sem
ekki komust í hádegisútvarpið.
í gær setti útvarpið síðan trygg-
ingu fyrir greiðslunni. Var þá opn-
að aftur og hernaðarástandinu þar
með aflétt.
Til sölu
Margs konar varahlutir í
DODGE CARIOL
bæSi nýir og notaðir.
Mótorar, Gírkassar,,
millikassar, hásingar
framan og aftan, drif,
öxlar, hjöruliðir,
stýrissnekkjur.
Dynamoar, startarar o.fl.
Sendi gegn póstkröfu.
ViSgerðarverkstæSi
GuSm. Valgeirssonar,
Auðbrekku,
sími um Möðruvelli.
að hann setti upp ballett í sam-
bandi við sýninguna, og^ varð það
úri að hann gerði það. Átta menn
úr flokki hans voru valdir til far
arinnar úr hinum upprunalega
flokki hans, og varð Hel,gi einn
þeirra. Dansar þeir, sem Joffrey
setur upp, eru í sambandi við sýn
ingar á óperunni Aida eftir Verdi.
Alls taka 25 manns þátt I dönsun-
um, og þar af eru 4 sólódansar,
og var Helgi valinn til þess að
verða einn þeirra.
Ekki hefur Helgi ákveðið hvað
hann gerir að þessum sýningum
loknum, en þær verða enn um óá-
kveðinn tíma.
Lippmann
Framhald af 7 síðu
tekst að halda þeim áfram, ef
til vill í nokkur ár. Ég trúi
því, að með tímanum opnist
augu allra fyrir mikilvægi far
sællar lausnar. Að baki máls-
ins er mikil og almenn hreyf-
ing, byggð á hinum augljósu
fjá'rhagslegu kostum einingar-
innar og þeim miklu friðar- og
öryggisvonum, sem eru sam-
fara einingunni. Hvað okkur
Bandarikjamenn snertir, þá
verðum vift nær veruleikanum
og höldum vonum okkar og
stefnu hærra á loft með ein-
lægum vilja til að halda áfram
að reyna að ná endanlega hinu
mikla marki. Evrópa 1962 er
alls ekki eins og hún á að
verða eða hlýtur að verða að
lokum. Hún gæti tekið mikl-
um breytingum á fáeinum
mánuðum.
Humarinn hækkar
(Framhald af 16. síðu).
leyfin bátum innan við 40—45 lest
ir, því að svo litlir bátar eiga ó-
hægt um aðrar veiðar. Stóru bát-
arnir veiða ekekrt meira af humar
en þeir litlu og eiga hæg heima-
tökin um aðrar veiðar. Fáum um-
sóknum hefur þurft að hafna, þar
sem eágikJ stórir bátar hafa sótt
jUrúý^Ý’estmþ.nnaeyjabátunum, sem
reyndust brotlegir í fyrra, hefur
verið veitt leyfi aftur í sumar, en
þeim leyfum hafa fylgt strangar
viðvaranir.
Rannsókna þörf
Fréttaritari blaðsins á Stokks-
eyri benti í gær á, í viðtali við
blaðið, að mikil þörf sé á vísinda
legum rannsóknum á humrinum,
bæði leit að miðum og einnig á
styrkleika stofnsins og hættu á of-
veiði. Ekkert hefur enn verið unn
ið að þessu, svo vitað sé.
Humarveiðarnar eru mikil lyfti
stöng fyrir sjávarþorpin, þar sem
þær eru stundaðar. Á humri er
mjög öruggur markaður og verðið
fer sihækkandi. Geysimikil vinna
er í landi við vinnsluna. Á Stokks-
eyri eru t.d. allar hendur vinnandi
við hann allt sumarið frá miðjum
maí fram í september, en það eru
sérstaklega konur og unglingar,
sem vinna við humarinn.
Það sem veitt hefur verið þessa
dagana, hefur fengizt aðallega
djúpt suður af Selvogi, á svipuðum
slóðum og mest var veitt í fyrra.
Einnig eru humarmið út af Eldey,
suður af Hornafirði, og eitthvað
út af Vestfjörðum.
Um helmingur í 1. flokk
Nú eru greiddar 12,40 krónur
fyrir kílóið af stórum humar og
4,75 krónur fyrir kílóið af litlum.
Fyrst var um þriðjungur humars-
ins af stærri og verðmeiri flokkn-
um en. nú er það komið upp í um
það bil helming. f fyrra voru
greiddar átta krónur fyrir I. flokk,
en 3,75 krónur fyrir II. flokk.
Blaðið hafði í gær samband við
fréttaritara sína á helztu humar-
verstöðvunum. Þá voru allmargir
bátar nýbyrjaðir róðra og voru
búnir að fara 1—-5 ferðir, en aðrir
voru enn að undirbúa sig.
Fréffabréf
K; in a! 9 siðu '
ingu slíkrar starfsemi fyrir kyn-
bætur nautgripa hefur þó, að ég
hygg, farið hér sívaxandi. Hefur
og komið til tals-, að Austur-Hún-
vetningar a.m.k., jafnvel vestur-
sýslan einig, hafi félagsskap við
Skagfirðinga um stofnun stöðv-
arinnar og rekstur. Á samlagsfund
inum kom fram svohljóðandi til-
laga í málinu, flutt af allmörgum
fundarmönnum:
„Aðalfundur Mjólkursamlags
Skagfirðinga 1962 samþykkir, að
stofnframlag Skagfirðinga til vænt
anlegrar sæðingarstöðvar fyrir
nautgripi verði greitt af Mjólkur-
samlagi Skagfirðinga á árunum
1962—1964 að báðum meðtöldum.
Árleg greiðsla verði þó eigi hærri
en sem svarar 2 aurum á hvern
innveginn mjólkurlítra.“
Nokkurs skoðanamunar gætti
um tillöguna á fundinum, en sam-
þykkt var hún með miklum meiri
hluta atkvæða. Má því væntanlega
gera ráð fyrir, að mál þetta sé
þar með komið á þann rekspöl, að
framkvæmda megi vænta innan
langs tíma a.m.k. ef Húnvetningar
skerast ekki úr leik.
—mhg—
Rússneskan ráðgáta
(Framhald af 16 síðu).
bandi því, sem haft er við geirn-
fara.
Aðrir sérfræðingar á sviði loft-
skeyta segja hins vegar, að hér sé
einungis um að ræða skeytasend-
ingar milli sovézks fiskveiðiflota
og loftskeytastöðvar í landi.
Útvarpsstöð Reuters í Lundún-
um skýrir frá því, að loftskeyta-
tæki þar hefðu greint samtal á
rússnesku, sem stóð yfir í 90 mín-
útur. Benda loftskeytamenn þar á,
að þetta langa samtal bendi til
þess, að hér geti ekki verið um að
ræða skeytasendingar milli geim-
fars á braut umhverfis jörðu og
loftskeytastöðvar á jörðu niðri.
Loftskeytastöðvar í Kaupmanna
höfn og Bochum í Vestur-Þýzka-
landi urðu einnig varar við þesar
dularfullu skeytasendingaf.
Egilsbúð
Framhald af 8. síðu.
ir, Þóra Jakobsdóttir, Stefán Þor
leifsson og Ásgeir Lárusson.
Leiknum var mjög vel tekið, og
fyrirhugaðar eru nokkrar sýning
ar á honum í Neskaupstað. Ekki
er ennþá vitað, hvort farig verð
ur með hann í nærliggjandi þorp.
Teikningu af Egilsbúð gerði
Sigvaldi Thordarson arkitekt í
Reykjavík. Yfirsmiður hússins
var fvar Kristiinsson, Kristján
Lundberg sá um raflögn, Jón
Ingólfsson um málningarvinnu og
Þorgeir Sigfinnssoön um múr-
verk.
Ný verzlun í
Hafnarfirði
Nýlega opnaði frú Sigrún Magn
úsdóttip nýja verzlun í Hafnar-
firði. Verzlunin heitir Sigrún og
er til húsa á götuhæð í nýinrétt-
uðu verzlunarhúsnæði við Strand
götu 31.
Brýn þörf hefur verið í Hafn-
arfirði fyrir verzlun sem þessa,
er einkum verzlaði með dömu- og
barnafatnað, en Sigrún mun hafa
á boðstólum sem mest úrval af
ýmiss konar fatnaði, yzt sem innst
einkum kven- og barnafatnaði,
svo sem kápum, drögtum og kjól
um, allt frá vinnukjólum upp í
spari- og módelkjóla. Ennfremur
verða þar seldir skartgripir, tösk
ur og veski, prjónafatnaður o. m.
fl. M. a. mun Sigrún kappkosta
að hafa til sölu vörur frá Eygló
í Reykjavík. Lögð verður áherzla
á mikið úrval og vandaðar vörur,
og munu Hafnfirðingar eflaust
fagna þessari nýju verzlun, þar
eð þeir þurfa nú ekki lengur til
Reykjavíkur, ef þá vantar framan
greinda hluti. Verzlunin er í
gömlu húsi, og hefur hún verið
smekklega innréttuð og máluð.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir og kveðjur færi ég ölum, sem með
heimsóknum, gjöfum og heillaóskum heiðruðu mig á
sextugsafmæli mínu þann 15. þ.m.
Jóney S. Jónsdóttir,
Kletti, Reykholtsdal.
Innilegt hjartans þakklæti til allra, sem heimsóttu
mig á 70 ára afmælisdaginn.
Hjartans þakklæti fyrir allar gjafirnar, blómin og
skeytin.
Guð blessi ykkur öll.
Hjörleifur Ólafsson,
Hrísateig 7
Útför móSur okkar
Guðrúnar Guðmundsdóttur
fer fram föStudaginn 1. júní, hefst með húskveðju að heimili hennar
Torfastöðum, Fljótshlíð, kl. 2 e.h. — Jarðsett verður að Breiðabóls-
stað. — Fyrir hönd vandamanna.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Guðjón Jónsson
Faðir okkar,
Einar Magnússon,
frá Glerárskógum,
andaðist að heimili sínu Meðalholti II, þann 28. þ.m.
Guðbjörg Einarsdóttir,
Magnús Einarsson
Utför mannsins míns,
Gísla Ingvars Hannessonar,
bónda á Skipum, Stokkseyri,
fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 2. júní. Athöfnin hefst
með húskveðju að heimili hins látna kl. 1 e.h. — Bílferð frá Bif-
reiðastöð íslands kl. 10 f.h.
Guðfinna Guðmundsdóttir.
i
I
TÍMINN, miðvikudaginn 30. maí 1962
15