Tíminn - 16.06.1962, Side 2
VID SOFUM ÖLL
ALLTOF MIKIÐ
svo marga, að allir geti veitt sér
átta tíma svefn hverja nótt. Sé
hins vegar svefntíminn skorinn
Amerískir herlæknar telja,
aS hægt sé að minnka svefn-
þörf manna niður í 2—3
tíma á sólarhring. Til þess
þarf að gefa mönnum létt
rafmagnslost við gagnaugun,
og veldur það svo djúpum
svefni, að óþarft verður að
sofa átta tíma, eins og eðli-
legt er nú talið.
Rafmagnið á að hafa áhrif á
svefnstöðina, en hún er í þeim
hluta heilans, sem kallast hypot
halamus. Þessi svefnstöð fannst
við' tilraunir á köttum. Þeir voru
deyfðir og boruð örfín göt í höf-
uðskeljar þeirra, og inn um göt
in voru leiddir rafþræðir. Endar
þeiria voru óeinangraðir og
snertu hypothalamus.
Þegar kettrnir vöknuðu upp
frá deyfingunni, var ekki að sjá,
að þræð'irnir gerðu þeim neitt
til. En nú voru þræðirnir sett-
ir í samband við léttar rafleiðsl
ur, en þó svo að kettirnir gátu
farið allra sinna ferða í til-
raunabúrinu. Þegar straumur
var settur á, féllu kettimir þeg-
ar í svefn, en vöknuð'u aftur um
leið og straumurinn var rofinn.
Gert vegna geimferða
Bandaríkjamenn ætla sér
greinilega að hafa þau áhrif á
taugakerfi manna, að 2—3 tíma
svefn á sólarhring dugi til að
hlaða taugakerfið orku til sól-
arhrings starfa. Þessar áætlan-
ir sfanda í sambandi /við geim-
ferð'alög. Þau munu óhjákvæmi-
lega taka langan tíma, jafnvel
mánuðum saman, og verður ekki
hjá því komizt, að áhöfnin sofi
á leiðinni. En eldflaugar eru ekki sé Þol'nmæðin nóg, er alltaf hægt
svo rúmgóðar, að hægt sé að taka að sofna.
niður, mun það spara mannafl'a
og um leig útrými.
Átta tíma svefn á sólarhring
er ekkert lífsskilyrði. Það sést
m.a. á því, að ýmsir nafnkunn
ir menn hafa mestalla ævina
sofið mun skemur, eða ekki
nema 4—5 tíma. Þannig var til
dæmis háttað með Napoleon,
Alexander mikla, Edison og
Darwin.
Enginn deýr-1 af sveFrtléysi
Og þótt ótrúlegt megi virðast,
er til fólk, sem sefur aldrei. í
Englandi er til maður, sem hef-
ur ekki sofið síðan í heimsstyrj-
öldinni, og í vísindaritum um
huilasjúkdóma er getið' sjúkl-
inga, sem ekki sváfu í meira en
þrjátíu ár.
Orsökin er hjá þessu fólki öllu
skaðsemd á hypothalamus. Hjá
Englendingum orsakaðist hann
af höfuðhöggi, hjá hinum af
heilabólgu. En af þessu má sjá,
að svefnleysi getur ekki verið
banvænt. Sjúklingunum ber öll-
um saman um það, að þeir legg-
ist til hvíldar á venjulegum tíma
á kvöldin. Alla nóttina liggja
þeir rólegir og afspenntir, en
halda meðvitund, og um morg-
uninn eru þeir eins vel hvíldir
og aðrir, sem sofa.
Sé venjulegum manni haldið
vakandi, kemst hann eftir 3—4
sólarhringa í ástand, sem minn-
ir á sinnisveiki. Á endanum fell
ur maðurinn saman og sefur
fast og lengi. Það er þess vegna
hægt að venja sig af svefntöfl-
um, ef þolinmæðin er nóg. Gald-
urinn er bara sá að bíð'a þess,
að svefninn komi af sjálfu sér
En það getur tekið talsverða
bið. Kona ein á sjúkrahúsi í
Kaupmannahöfn var t.d. svipt
svefntöflum, en sofnaði ekki
fyrr en þrettán dögum síð'ar.
SJúkrasamlagi
Reykjavíkur
Frá og með 1. júlí n.k. hættir Esra Pétursson að
gegna heimilislæknisstörfum fyrir sjúkrasamlag-
ið, vegna burtflutnings.
Þess vegna þurfa allir þeir, sem hafa hann fyrir
heimilislækni, að koma í afgreiðslu samlagsins,
Tryggvagötu 28, með samlagsbækur sínar, hið
fyrsta, til þess að velja sér lækni í hans stað.
Skrá yfir samlagslækna þá, sem velja má um,
liggur frammi í samlaginu.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
með ámoksturstækjum til leigu.
Tek að mér að grafa skurði fyrir vatnsveitur, skolp-
leiðslur, rafstrengi og símaleiðslur. Enn fremur
minniháttar framræsluskurði og að hreinsa upp úr
eldri skurðum. Verð mjög hagkvæmt miðað við af-
köst. Flutningskostnaður hverfandi. Allar nánari
upplýsingar gefur
STEINÞÓR STEINGRÍMSSON,
Bogahlíð 16, Reykjavík,
Sími 34073 og 17227.
Galdratrú ekki
aldauða enn
Galdratrú er síður en svo
útdauð alls staðar. Það hef-
ur glöggt komið fram við
réttarhöld í Þýzkalandi að
undanförnu.
Borgarstjórinn í smábænum
Mailach í Bæjaralandi kom fyr-
ir rptt nýlega sem vitni. Hann
lýsti þar yfir sem skoðun sinni,
að til væri fólk, sem hefði „visst
vald“ á öðrum. — Eg trúi því,
að til séu galdranornir, sagði
borgarsrtjórinn, sem er á áttræð-
isaldri. — En ég trúi því líka,
að til sé guð.
Málið, sem borgarstjórinn vitn
aði í, var höfðað gegn ungum
manni, sem fyrir tveimur árum
kveikti í húsi einu, er roskin
kona átti Við yfirheyrslur kvaðst
hann einungis hafa haft í hyggju
að svæla hana út, þar eð hún
væri galdranorn, en ekki sótzt
eftir lífi hennar. Hann vildi
einungis koma því til leiðar, að
hún flytti burt úr bænum.
Konan, sem fyrir íkveikjunni
varð, gat líka bjargað sér úr elds-
voðanum, en allar eigur hennar
glötuðust. Hún lézt skömmu síð-
ar. Ákærandinn krefst þess, að
brennuvargurinn verði dæmdur
í þriggja og hálfs árs fangelsi
fyrir íkveikju og morðtilraun.
Yfirvöldin líta greinilega ekki á
galdraorð konunnar sem afsök-
un eins og bæjarbúar virðast
sjálfir gera.
2
TÍMINN, laugardaginn 16. júní-1962