Tíminn - 14.07.1962, Qupperneq 15

Tíminn - 14.07.1962, Qupperneq 15
Þyrlupallur Framhald ai 1. síðu. ingur frá verksmiðjunni. Loks má geta þess að ætlunin er að breyta útbúnaði á bátaþil- fari þannig að þyrla geti athafn- að sig þar eins og á varðskipinu OÐNI. Meðal annars verður aftur sigla skipsins tekin burt og önn- ur ný sett framar upp frá reyk- háf, fyrir loftnct og radar, sem jafnframt verða hækkaðir nokk- uð frá því sem nú cr, til þess að fá meira langdrægi. Ætlunin er að hafa lokið þessu að mestu leiti fyrir n.k. mánaða- mót. Endurnýjun á umsóknum Framhald_ af 2 síðu. þvf skorið hjá húsnæðismálastjórn áður en byggingaframkvæmdir hefjast, hvort væntanlegt hús þeirra eða íbúð verði talið láns- hæft með því að leggja fram teikningu og lánsumsókn með VeTijulegum gögnum. 3. Að allir, sém telja sig eiga rétt til hærra hámarkslánsins, sanni þann rétt sinn með vottorði viðkomandi byggingafulltrúa (eða býgginganefndar) nm hvenær botnplata viðkomandi húss var tekin út. Öll eyðublöð varðandf fram- kvæmd þessara mála, hafa verið póstlögð til bæjarstjóra eða odd- vita. — Húsnæðismálastofnuniin hvetur alla hlutaðeigendur til þess að að láta vita ef fyrrgreind gögn berast ekki í síðasta lagi nú allra næstu daga. íþróttir Framhald af 12. síðu. lecht, Belgíu. Ipswich, Englandi, gegn Floriana, Möltu, Dundee, Skotlandi, gegn Köln, Þýzkalandi. Shelbourne, Italíu, gegn Sporting Lisbon,« Portúgal. Reims Frakk- ' landt 'og bikarmeistararnir frá í vor, Benefica, komast í 2. umferð án keppni. Deildakeppnin, 2. riðill Vorværts, Austur-Þýzkalandi, gegn Dukla, Tékkóslóvakíu, Tir- ana, Albaníu gegn Norrköping, Svíþjóð. Meistarar Rúmeníu gegn Galanta, Tyrklandi, Beuthen, Pól- landi, gegn Panathianaikos, Gxikk- Iandi, Fredrikstad, Noregi, gegn Vasas, Ungverjalandi, Vienna, Austurríki, gegn Kamraterna, Finn landi og CDNA, Búlgaríu, gegn Partizan, Júgóslafíu. í keppni bikarmeistara landanna farar Tottenham, Englandi, Porta- down, Norður-felandi, Shamrock Rovers, írlandi, ásamt þýzku meist- urunum beint i aðra umferð. Lið- unum þar er einnig skipt í tvo riðla. B 1909 frá Danmörku leikur gegn Dudelingen, Luxemborg og má því segja, að dönsku liðin hafi verið heppin í drættihum. Glasgow Rangers leikur gegn Sevilla, Spáni, en þess má geta, að Real Madrid sigraði einnig í bikarkeppninni á Spáni, en getur ekki tekið þátt í nema annarri keppninni, og kem- ur Sevilla því í stað þess. Þetta verður einn harðasti leikurinn í 1. umferðinni. Minningarsjóður Guðmundur Jónas- sonar, frá Flatey Eins og áður hefur verið skýrt frá, hafa nokkrir vinir Guðmundar Jónassonar, B. A. frá Flatey, er lézt 16. júní sl., ákveðið að stofna sjóð, er helgaður verði minninguj hans. Stofnun sjóðsins hefur nú verið undirbúin nokkuð og er m. a. ákveðið, að tilgangur hahs Verði að heiðra árlega einn eða fleiri nemendur í 6. bekk Menntaskól- ans á Akureyri, sem brotizt hafa til mennta af eigin rammleik og sýnt í því efni sérstakan dugnað og atorku. Þá er gert ráð fyrir, að úthlutun úr sjóðnum verði með þeim óvenjulega hætti, að nem- endur sjálfir hafi hana með hönd- um. í ráði er, að fyrsta úthlutun fari fram veturinn 1963—’64, en e. t. v. á vetri komanda, ef sjóðs- stofnunin gengur vel. Þeir, sem gerast vilja stofnend- ur sjóðsins eða efla hann með stærri eða smærri framlögum geta snúið sér til einhvers af eftirtöld- um mönnum: Sverris Hermannssonar, dagblað inu Vísi, Eggert Ásgeirssonar, skrifstofu borgarlæknis og Magnús ar Óskarssonar, borgarskrifstofum Fósthússtræti 9. Loftpressa til leigu Loftpressa á bíl til leigu. Upplýsingar gefur Konráíí Andrésson, Borgarnesi Sími 155. PILTAP, EF r>n? EICIP ÚKHUSTONA ÞÁ Á ÉP HRINC-ÍKfl / /t<ts/srr*rri8 \' l-.-—— Trúlofunarhringar FIIót afgreíðsla GUÐM ÞORSTEINSSON gullsmiSur Bankastræti 12. Sími 14007 Sendum gegn póstkröfu. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tcngdamóður og ömmu, JÓHÖNNU JÓNSDÓTTUR frá Kjaransstöðum. Börn, tengdabörn og barnabörn. Okkar innilegustu þakkir fyrir þá samúð og hlýhug, sem okkur hefur verið sýnd við andlát og jarðarför eiglnkonu mlnnar, dóttur og móður, GERÐAR HELGADÓTTUR Kárl B. Helgason, Þórlaug Hansdóttlr, Helgi Kárason. Fréttaritari blaðsins á Vopna firði skýrði frá því í gaer, að sjórinn væri svartur af síld fyrir Austurlandi. Til Vopna- fjarðar höfðu komið 11 bátar með 8150 mál síðasta sólar- hringinn. Alls hafði þar verið tekið á móti 35.000 málum. Löndunarbið á Vopnafirði er fram á sunnudag, en verk- 1000 hestar Fra: hald af 1. siðu. gær, hlýtt og lygnt, en sólarlítið. Fólki fór þar fjölgandi eftir því sem á daginn leið og nýjar og nýjar tjaldborgir risu upp hver á fætur annarri. Úr Reykjavík hélt fjölmenn sveit áleiðis austur í gær og mun hafa komið þangað seint í gærkvöldi. Er það fjöl- mennasti flokkurinn, sem þangað hefur komið í samreið. Dagskráin Dagskrá mótsins í dag verður á þessa leið: Klukkan 10 setur Steinþór Gestsson, formaður L.H. mótiðj kl. 10,15 verða kynbóta- hestar sýndir í dómhring, kl. 11,30 verður gert matarhlé, kl. 13 verða hryssúr sýndar í dómhring, dóm- um lýst og verðlaun afhent, kl. 15,30 verða íþróttir á hestum — Rosemary Þorleifsdóttir o.fl. kl. 16 verða góðhestar sýndir í dóm- hring og dómum lýst, kl. 19,30 verða undanrásir kappreiðanna og millj kl. 22 og 1 verður stiginn dans. Á sunnudag verður mótinu svo haldið áfram og lýkur þá um kvöldið. Þeir flýðu Framhaid af 1. síðu. lostnir, og vissu ekki hvað á sig stóð veðrið, er hópur íbúa hljóp eins og fætur toguðu um götur bæjarins, með löng og uggvekj- andi spjót í höndum. Héldu ame- rísku ferðamennirnir, að uppreisn hefði verið gerð í bænum og urðu dauðhræddir. — Hefðu Ameríku- mennirnir vitað betur, hefði þessi atburður ekki fengið svo á þá., segir blaðið. Hér var nefnilega um að ræða ósköp hversdagsleg- an atburð í lífi Færeyinga. Grind hvalavaða hafði sem sé gengið inn á höfnina og Færeyingarnir bjuggu sig til að veita henni varm- ar viðtökur. En bandarísku ferða mennirnir höfðu aldrei um annað eins og þetta heyrt og hlupu því í ofboði til skips og þóttust eiga fótum sínum fjör að launa. Brátt rann þó upp fyrir ferða- mönnunum, hvað hér var um að vera og breyttist þá hr'æðsla þeirra I óskiptan áhuga fyrir því, sem fram fór. í hvalavöðunni voru alls 100 grindhvalir og voru flest ir þeirra áflífaðir í höfninni og fjöruborðinu. Vegaþjónusta um 6 helgar Framhald af 2 síðu. ingi vegaþjónustunnar. Utanfélags menn greiða þjónustuna að fullu. FÍB vill beina þeim tilmælum til allra vegfarenda að þeir að- stoði við að koma skilaboðum til Viðgerðarþjónustunnar fyrir þá, sem á hjálp þurfa að halda. Einnig er það ósk og tilmæli FÍB að bifreiðastjórar aki með gát og gagnkvæmri tillitssemi, virði umferðarlög og siðareglur veganna i hvivetna, á þann hátt verður umferðin greiðust, þægi- legust og skemmtilegust, en verð ur jafnframt afstýrj; óþarfa töf- um, tjónum og slysum. smiðjan tekur á móti um 5000 málum á sólarhring. Á Seyðis- firði var söltuh enn ekki haf- in í gærkvöldi, en þar átti að reyna að salta síld af einum, sem var á leið inn. Frá Neskaupstað koma þær fréttir, að sjómenn hafi sjald- an eða aldrei sér jafnmiklar breiður af síld eins og nú. Síldarbræðslan þar hefur nú tekið á móti um 50.000 málum, en hafði aðeins fengið sára- lítið á sama tíma í fyrra. Síld- in er stygg og nokkuð mögur, og í Neskaupstað var’ söltuð Skógareldar í Cannes Framhald af 3. síðu flýja heimili sín, af ótta vig frek- ari útbreiðslu eldsins. Ferðamenn á þessum slóðum voru í skyndingu fluttir á aðra staði á Rivierunni. Vonazt er til, að takast munj að ráða niðurlögum eldsins í dag, eða a.m.k. að koma f veg fyrir frekari útbreiðslu hans. Sjö fyrirlesfrar Framhald af 2. síðu. ingu milli landa við NorðurAt- lantshafið. Eftir hádegi urðu síðan umræð ur um þessi erindi, og stóðu þær fram eftri degi. í dag flytja erindi þeir próf. J.A. Nannfeldt frá Uppsalahá- skóla; O.I. Rönning frá Norska Vísindafélaginu; H. Sjörs frá Skógamálaskóla Svíþjóðar; próf. Omodeo frá Siena-háskóla Qg H. W. Walden frá Náttúrugripasafni Gautaborgar. — Eftir umræðurn ar í dag fara vísindamennirnir í ferðalag til Krýsuvíkur. Óspektfr í Moskvu Framhald : 1 síðu uppsteit. Þið getið haft frammi mótmæli í ykkar eigin löndum, en ekki okkar, sögðu þeir. Einn úr hópnum sagði: Sovétríkin hafa fyr- ir löngu hætt öllum tilraunum með kjarnorkuvopn. Færðist nú hiti í deilurnar og báru hvorir aðilar þjóðum hinna á brýn að hafa rofið samninginn, sem gerður var um bann við til- raunum með kjarnorkuvopn. Blaðamenn og ljósmyndarar vest rænna blaða sögðust hvað eftir annað hafa orðið fyrir aðkasti, er þeir reyndu að ljósmynda það, sem fram fór. fyrsta síldin í gær, 100 tunnur af Stíganda frá Vestmannaeyj- um. Síðastliðinn sólarhring bárust þangað 4.500 mál í bræðslu. Löndunarbið er fram á sunnudagskvöldið. Á Raufarhöfn er löndunar- bið fram á mánudag. Þar hef ur nú verið tekið á móti 75.445 málum í bræðslu, en á sama tíma í fyrra hafði verið tekið á móti 48.891 málum. Síldarverksmiður ríkisins á Siglufirði höfðu tekið á móti 90.529 málum á miðnætti á fimmtudag, og verksmiðjurn- ar á Skagaströnd höfðu fengið 11.951 mál. Þá hafði Rauðka fengið 29.466 mál. Kl. 24 11. júlí var söltun orðin sem hér segir: Sigluf jörð ur 20.722V2 tunna, Ólafsfjörð- ur 1432, Dalvík 2140 Hrísey 1215, Hjalteyri 42, Grímsey 259, Húsavík 2560, Raufar- höfn 17,420 og Þórshöfn 62 tunnur. Breytingar hjá Bretum Framhald af 3. síðu skiptingin um fjármálaráðherra sé mjög djörf og segja, að skoðanir Maudlings, sem nú tekur við af Selwyn Lloyd, séu mjög frábrugðn ar skoðunum fyrirrennara hans, sém fylgdi sterkri launa- og lána- pólitík, sem miða átti að því að bæta hag þjóðarbúsins. Saga opnar F*— —• i’Þ!rt sf 16. síðu fjórar, en allar með sama stil. Inn réttingarnar eru einfaldar og vand aðar. Þarna var í ,gær verið að ganga frá herbergjunum og ryk- suga þau, sem verða tekin í notk- un f dag. Sjöunda hæðin er ófrágengin, en þar eru svalaherbergin. Hin átt- unda er hins vegar að mestu full- búin utan eldhússins, en þar er matstofa og bar. Hann verður þó ekki opnaður strax. Þorvaldur hótelstjóri sagði, er við hittum hann, að hann hugsaði gott til framtíðarinnar. Þessi húsa- kynni mundu verða til mikilla þæg- inda fyrir borg og land, og þetta væri eitt af fáum þjóðþrifafyrir- tækjum, sem ern opnúð þessa dag- ana. í dag opnum við nýja verzlun að Laugavegi 13 SPORTVEIÐITÆKI ÍÞRÓTTAVÖRUR FERÐA- OG VIÐLEGUÚTBÚNAÐUR í miklu úrvali. Nýjar vörur SPOR laugavegi 13 — Austurstræti 1 — Kjörgarði T ÍM IN N, laugardagurinn 14. júlí 1962 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.