Tíminn - 27.07.1962, Blaðsíða 9
Þorsteinn Gíslason við stýriS í GuSrúnu Þorkelsdóttur.
(Ljósm.: K.l.)
upp að Austfjörðum, þá náum
við henni með hjálp hinpa
nýju tækja. Þróun málanna er
sú, að nú getum við alltaf sótt
hana dýpra niður í sjóinn.
— Hvað getur/þú sótt hana
djúpt með þessari nót, sem hér
er um borð?
— Ja, torfa, sem stendur frá
25 niður á 40 til 50 faðma tek-
íir hún.
Austursíld — NorAur-
síld
— Hvað finnst þér nú helzti
munurinn á hegðun Norður-
lands- og Austfjarðasíldarinn-
ar?
— Mér finnst helzti munur-
inn sá, að það er meira af síld
fyrir Austurlandinu.
— Er Norðurlandssíldin feit-
ari?
— Já, síldin sem veiðist út
af Sléttunni. Enn þá er Aust-
urlandssíldin magrari, það er
af því að hún hefur seinna kom-
izt í æti.
— Hvað um rauðátuna hér
eystra?
— Það er mikil rauðáta.
— Og gæti það ekki bent til
þess að síldin hérna eigi eftir
að fitna?
— Jú, auövitað.
— Það sagði við mig reynd-
ur sjómaður hér um daginn, að
það gæti vitað á langa vertíð
hve síldin fitnar seint.
— Já, það hefur alla tíð þótt
vita á gott, þegar síldin er mög
ur í upphafi vertíðar.
— Að það þýði lengri ver-
tíð?
— Já, þá dvelur hún lengur
meðan hún er að fita sig.
Mikil bói aó fi!komii
þriSia leitarsksfisips
— Hvað um síldarleitina Þor-
steinn?
— Það var mikil framför að
[lá þrið'ja leitarskipið. Nú höf-
um við Ægi, Fanneyju og Pét-
ur Thorsteinsson, sem öllum er
stjórnað af hæfum og duglegum
mönnum, undir yfirstjórn okk-
ar ágæta Jakobs Jakobssonar
fiskifræðings.
Fjórir Stýrimanna-
skólakennarar á einni
fleytu
— Hvemig hefur það annars
gengið hjá ykkur á Guðrúnu í
sumar? Ertu ánægður með það
sem af er?
— Ja, það hefur rætzt úr. Við
vorum óhepptiir í fyrstunni,
þurftum að fara af miðunum
fyrsta daginn í slipp til Akur-
eyrar og misstum bezta veiði-
tímann nyrðra, Eftirí að við
komum austur sprengdum við
svo tvo fyrstu dagana.
— Þetta hefur auðvitað dreg-
ið úr aflanum framan af?
— Já, við vorum búnir að
fá 160 mál. þegar 83 skip voru
komin yfir 500 mál.
— En nú er þetta að koma?
— Við skulum vona það.
V Mér skilst, að þú sért með
alllærða áhöfn hér um borð í
sumar?
— Það má segja, við erum
hér fjórir kennarar úr Stýri-
mannaskólanum, tveir nemend-
ur okkar, loftskeytamaður og
hinir allir með einhvers konar
réttindi.
— Já, þetta ætti að vera góð-
ur hópur
— Já. þetta er einhver sú
harðduglegasta skipshöfn sem
ég hef verið með.
Þegar héi var komið sögu vor
um við komnir inn undir
bryggju a Rayðarfirði. og ekk-
ert að gera annað en. sveifla f
sér í löndunina Því setjum |
við punktinn hér — K.I. t
Geir Aðils skrifar frá Kaupmannahöfn:
TfVOU MINNIST
150 ARA AFMÆLIS
STOFNANDA SiNS
í næsta mánuði verða stórfenglegustu hátíða-
höld, sem fram hafa farið í Tívoli-garðinum
í Kaupmannahöfn.
Það er unaðslegt að dveljast
einn sunnudag í Tívolí Kaup-
mannahafnar. Fyrripart dags-
ins er kyrrð í garðinum, þeg-
ar undan er skilið hornið við
Ráðhústorgið, þar sem er leik-
svæði fyrir börnin. Margir
listamenn hafa skapað þetta
svæði, en var fullbyggt árið
1 1958 og varð strax óhemju
vinsælt, enda eru þar margir
hlutir, sem freista barnanna.
Nægir þar að nefna töfratréð
og rútsíbaninn. Flugeldatréð
er þó vinsælast af öllu. Maður
setur í það 25 aura og þá skýt-
jur það flugeldum, sem dreifa
úr sér og mynda stórt tré með
mörgum greinum og voldugri
kórónu. Fullorðnir eiga einn-
ig sitt "aJhVarf í þessu horni
garðsins> þar sem þeir geta
snætt nestisbita og keypt sér
svaladrykki. En annars er ó-
sköp friðsælt i garðinum fyrri-
part dagsins og margur leitar
þá þangað til þess að losna frá
hávaða stórborgarinnar.
Það er fyrst seinnipartinn, að
gestirnir taka að streyma í garð-
inn. Einkum er það fólk utan af
landsbyggðinni, Svíar og aðrir út-|
lendingar og þá ekki sízt þátttak-l
endur í margs konar þingum og
mótum, sem gjarnan enda dvöl
sína í Danmörku með heimsókn
í Tívoli.
Stórfengleg afmælis-
hátíð
Sunnudagurinn 15. júlí sl. var
einn þessara sfkemmtilegu Tívolí-
daga, þegar allra þjóða fólk var
samankomið í garðinum, en hann
var þá heimsóttur af hundruðum
unglinga er setið höfðu alþjóðlegt
æskulýðsþing í Árósum. Þátttak-
endurnir ákváðu að eiga eina helgi
í Höfn og enda hana með heimsókn
í Tívolí. Þeir hafa svo sannarlega
ekki orðið fyrir vonbrigðum. Vafa-
laust hefur Tívólístundin verið
eitt hið skemmtilegasta í Dan-
merkurdvöl þeirra.
Hinar alþjóðlegu æskulýðsbúð-
ir á Ermelundsvöllum voru opn-
aðar laugardaginn 14. júlí og þá
mikið um dýrðir, margt til skemmt
unar, og ræður fluttar af Tage Er-
lander, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar og Julius Bomholt, menntamála-
ráðherra Danmerkur. Ársþing al-
þjóðlega æskulýðsráðsins var hald-
ið í sambandi við opnun búðanna
á Ermelundsvöllum og flestir þátt-
takendanna þar voru einnig gestir
í Tívólí 15. júlí sl. Það áttu sem
sé flestar þjóðir heims fulltrúa í
garðinum þennan sunnudag. Og
una sér vel í lysti- og skemmtigarðinum fræga í Kaupmannahöfn.
Japanski turninn setur svip sinn
á Tívoli
unga fólkið fylgdist með ballet-
sýningu, akróbatik og síðast en
ekki sízt voldugri og glæsilegri
flugeldasýningu.
„Rósir handa Carstensentf
Ekki er vafi á því, að þessar
þúsundir unglinga, er mættu gest-
risni og alúð hvarvetna í Dan-
mörku, munu minnast dvalar sinn-
ar í landinu með fögnuði og hlýju.
Lokum skal þess getið, að á
þessu ári eru liðin 150 ár frá fæð-
ingu stofnanda Tívólí, blaðamans-
ins Georg Carstensen og 31. ágúst
verður þetta afmæli hátíðlegt hald
ið. Þetta verða gífurleg þriggja
daga hátíð'ahöld. Rósir handa Car-
stensen verður yfirskrift þeirra og
aldrei mun hafa verið annað eins
um að vera í garðinum og þá
verður. — Aðils.
Bændadagur
Eyfirðinga
Bændadagur Eyfirðinga hefur
veiið ákveð'inn n.k. sunnudag, og
fara hátíðahöldin fram að Lauga
borg. Það eru búnaðarsamtökin í
Eyjafirði og ungmennafélögin, sem
standa að deginum, og er þetta í
fimmta sinn, sem þessi félagssam-
tök gera það.
Ýmislegt verður til skemmtunar
að Laugaborg. Ármann Dalmanns-
son mun setja skemmtunina. Þá
halda Þórarinn Björnsson skóla-
meistari á Akureyri og Jón Sig-
urðsson bóndi í Yztafelli ræðu, og
séra Benjamín Kristjánsson heldur
guðsþjónustu
Lúðrasveit Akureyrar ætlar að
leika og tvöfaldur kvartett mun
syngja. Keppt verður í íþróttum,
m. a. fer fram knattspyrna. Að
Laugaborg fer einnig fram keppni
í starfsíþróttum, og verður keppt
í dráttarvélaakstri og jurtagrein-
ingu. Að lokum verður búvélasýn-
ing.
T í M I N N, föstudagurinn 27. júlí 1962. —
9