Tíminn - 04.08.1962, Blaðsíða 3
Nazisftapmg í Bretlandi
Framhald af bls. 1.
Vig félagarnir beram ekki vopn,
en erum vel æfðir í sjálfsvarnar-
brögðum og bardögum án vopna.
„Herbúöirnar", sem ráðstefnan
fer fram í, eru reistar á einka-
landsvæði og stofnaðar í anda vin-
áttunnar, eins og litlu herbúð-
irnar, sem Hitler kom upp, löngu
áður en hann komst til valda,
sagði talsmaðurinn.
Hann sagði enn fremur að
einkennisbúningurinn væri grá
skyrta ,svört bindi, svartar eða
brúnar buxur, reiðstígvél og arm-
band með hakakrossmerkinu.
Þá skýrði talsmaðurinn frá því,
að unnið væri að alheimsráð-
stefnu „nasjónalsósíalista", sem
haldin yrði í Englandj 15.—17.
ágúst, og 'sótt hefði verið um leyfi
til útifundar á Trafalgartorgi þann
19. ágúst.
Kjörorg útifundarins mun verða:
„ Alheimsnasj ónalsósíalistahreyf-
ing fyrir hinn hvíta mann.“
Að lokum sagði talsmaðurinn,
að yfirmann ibandarísku nazista-
hreyfingarinnar, Lincoln Rock-
well, hefði verið boðig til ráð-
stefnu leiðtoganna og myndi hann
koma til Bretlands þann 12. ágúst.
Fiskur megrunarlyf
Framhald al 1. síðu.
ir sölustjórar og níu umboðsmenn
Coldwater í Bandaríkjunum, er
S.H. hélt blaðamannafund í gær.
Bandaríkjamennirnir hafa dvalizt
hér undanfarið til þess að kynna
sér hraðfrystiiðnað landsmanna
með heimsóknum í hraðfrystihús
og viðræðum við forráðamenn SH.
Talið var æskilegt, að þeir kynnt-
ust nánar framleiðslu afurðanna,
sem þeir selja úti í Bandaríkjun-
um.
Sigurður Ágústsson, stjórnarfor-
niaður Coldwater, skýrði nokkuð
frá starfsemi fyrirtækisins frá því
er það seldi 300 tonn árið 1946 og
þangað til í fyrra, er það seldi tæp
15 þúsund tonn. Á Coldwater nú
2.—3. stáerstu frystiverksmiðju
Bandaríkjanna í fiskiðnaði, en
það ér Nanticokc-verksmiðjan.
Richard Augello sölustjóri, sagði
blaðamönnum frá ástandi og horf-
um á Bandaríkjamarkaðnum. —
Benti hann á, að söluaukningin í
ár væri geysimikil og myndi hún
vaxa enn á næsta ári Hann sagði,
að mikil þörf væri á að breyta
stöðugt útliti og tilreiðingu vörunn
ar, og fylgdist Coldwater vel með
slíkum sölumöguleikum.
Á fundinum kom fram, að fryst
síld getur í framtíðinni orðið ein
stærsta útflutningsvara okkar ís-
lendinga. Voru forráðamenn SH
sammáia um, að mikil framtið
væri í frystri síld, því markaður
væri mikill fyrir hana.
FAGNAÐ
INS 0G ÞJÓÐHETJU
NTB-Algcirsborg, 3. ágúst.
Ben Bella, varaforsætisráð-
herra og formaður 7-manna-
stjórnarnefndarinnar, sem nú
hefur verið fengin öll völd í
Alsír í hendur, var boðinn vel-
kominn með gífurlegum fagn-
aðarlátum íbúa Algeirsborgar,
er hann kom þangað með flug-
vél síðdegis eftir sex ára út-
legð frá borginni.
Mikill mannfjöldi hafði safnazt
saman við flugvöllinn, og flugvélin
var varla lent, er manngrúinn
laust upp fagnaðarópum, Mörgum
klukkustundum áður en Ben Bella
gerð'i innreið sína í sjálfa borgina,
höfðu Serkir safnazt þúsundum
saman á götum og torgum og veif-
uðu grænhvíta fána landsins.
•
í fylgd með Bella voru nokkrir
meðlimir stjórnarnefndarinnar og
áttu þeir félagar í erfiðleikum með
að komast leið'ar sinnar vegna hins
fagnandi mannfjölda.
Bella mun nú koma sér fyrir í
borginni og taka formlega við
stjórn landsins fram að næstu kosn
ingum a. m. k. , j
Á blaðamannafiindi í dag sagði
Ben Khedda, forsætisráðherra
FLN-stjórnarinnar, að hann óskað'i
Ben Bella og stjórnarnefnd hans
allra heilla og biði Bella og félaga!
hans velkomna til Algeirgborgar. \
Sagði Khedda, að nú myndi
stjórnarnefndin hefjast handa um'
undirbúning kosninganna, stjórna
þjóðfrelsishreyfigunni og virða
þjóðfrelsisráðið, sem síðar mun
fjalla um skipun nefndarinnar.
„EINS OG ILLA
LYKTANDI GEIT“
NTB—Moskvu, 3. ágúst.
Hin vestræna heims-
veidisstefna er eins og
illa lyktandi geit, sem
Sovétríkin eru neydd tii
aS lifa meS, sagSi Nikita
Krustjoff, forsætisráS-
herra í opinberri ræSu í
Moskvu í dag.
Ef maður er neyddur til þess
að hafa daunilla geit í húsi sínu,
verður maður að reyna að venjast
lyktinni og lifa i óþefnum. Við
skulum hugsa okkur, að alríkis-
stefnan sé geit og alheimur heim-
ili okkar.
Hvern fjandann erum við bætt-
ari með styrjöld?
Betra er að halda áfram sam-
vistum við geitina og umbera hina
óþægilegu lykt, en, eins og kerl-
ingin sagði, sleppig henhi ekki í
jurtabeðið!
Þannig hljóðaði einn kaflinn í
ræðu Krútjoffs, sem að öðru leyti
fjallagj mest um sovézkan land-
búnað.
Krústjoff sagði, að nauðsynlegt
væri fyrir Sovétríkm að auka
veralega tækniþekkinglu í land-
inu, bæta fjárhaginn og auka
menntun landsmanna.
Þetta verðum við að gera, og
þá munu fjendur vorir bíta sig í
tunguna, sagði Krútsjoff.
Við verðum líka að eiga eld-
flaugar og vetnissprengjur, og
þegar svo er komið, getum við
látið okkur líða vel.
Krústjoff lagði áherzlu á, að
auka þyrfti framleiðsluna í land-
inu og deildi hart á landbúnaðar-
ráðuneytið, sem hann sagði ráð-
þrota og gagnslaust til að taka
nokkrar stórar ákvarðanir.
Þá sagði Krústjoff, ag ekki væri
hægt ag verða við kröfunn; um
jöfn laun fyrir alla. Ríkið borgar
vísindamönnum srnum og tækni-
fræðingum, 'sem smíða eldflaugar,
góð laun.
Ef þessum mönnum væri ekki
vel borgað, myndi tækniþróun
okkar ekki hafa orðið jafn ör, eins
og raun ber vitni.
Verið ekki öfumdsjúk í garð
aidar Soblen-mál-
í mi!Siríkjadeilu?
NTB-Tel Aviv og Lundúnum, 3. ág.
ísraelska stjórnin sendi
brezku stjórninni í dag form-
leg mótmæli vegna þeirrar
ákvörðunar brezkra yfirvalda,
að bandaríski njósnarinn dr.
Robert Soblen skuli sendur
með ísraelskri áætlunarflug-
vél til Bandaríkjanna, þeirri
sömu og flutti Soblen frá
ísrael til Bretlands á dögun-
um. Á fundi ísraelska flugfé-
lagsins El Al síðdegis var sam-
þykkt að neita algerlega flutn-
ingi á Soblen til USA.
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum, er Soblen dæmdur til
ævilangrar fangelsisvistar fyrir
rjjósnir í þágu Sovétríkjanna. Hon
um tókst að flýja frá Bandarrkjun-
um til ísraels, er honum hafði ver-
ið sleppt lausum um stundarsakir
gegn tryggingu.
Yfirvöld í Israel ákváðu eftir
nokkrar vangaveltur að afhenda
Bandaríkjamönnum njósnarann,
! en skömmu eftir að flugvélin, sem
| flytja átti Soblen til USA, var kom
, in á loft, skar Soblen á púls sér og
var fluttur i sjúkrahús í Bretlandi.
Brezka stjórnin hefur vísað á
1 bug endurteknum beiðnum Soblens
um landvistarleyfi sem pólitískur
flóttamaður og hefur nú loks
ákveðið að afhenda hann Banda-
ríkjamönnum.
En nú virðist ný hlið vera kom-
in upp á þessu einstæða máli, sem
þegar hefur valdið miklum úlfa-
þyt. fsraelska stjórnin neitar sem
sé að láta áætiunarflugvélar sínar
flytja njósnarann til USA og mót
mælir sérstaklega orðalagi á úr-
skurði brezku yfirvaldanna, þar
sem raunverulcga er sagt, að
ísraelska flugfélaginu EI A1 beri
skylda til þessara flutninga.
Lítur nú helzt út fyrir, að þetta
njósnamál ætli að verða að hat-
rammri milliríkjadeilu.
þeirra, sem sjálf hafa unnið sér
braut til frama, meðan þið hin
sátuð við spilaborðið, sagði Krjúst
joff að lokum.
Fórst
hún?
NTB-Nýju-Delhi, 3. ágúst.
Enn hefur ekki tekizt að finna
Dakota-flugvélina, sem saknað hef
ur verið síðan á miðvikudag. Flug-
vélin, sem er með 10 manns, var á
leið frá Katamandu til Nýju-Delhi.
Talið er líklegast, að flugvélin
liafi hrapað einhvers staðar á
landamærum Nepal og Indlands.
Leitarflugvélar hafa verið á
sveimi í allan dag við landamærin,
en án árangurs, enda leitarskilyrði
mjög slæmí
Fyrr í dag hafði borizt frétt frá
Patna í Norðaustur-Indlandi um að
flugvélin væri fundin við Tanak-
pur, rétt hjá landamærunum, en
síðar kom í ljós, að frétt þessi var
röng.
Var þá sagt, að allir hefðu fund-
izt heilir á húfi.
Meðal farþega í flugvélinni er
sendiherra Nepals í Indlandi, tveir
fulltrúar bandarísku stjórnarinnar,
einn Kanadamaður, Pólverji og
Indverji.
Stúlku rænt
Fra ’ ald af 1 síðu.
Unnusti stúlkunnar hafði komið
til Hclsingfors daginn áiður til
þess að sækja sína heitt elskuðu.
En er þau skötuhjúin voru á
Ieið í bifreið burt úr borginni, var
veitzt ag þeim og stúlkan rifin út
úr bifreiðinni með valdi og flutt
brott.
j Síðan hefur ekkert til stúlkunn-
: ar spurzt, en talið er, að hún sé
| höfð i haldi um borg í austur-
j þýzku skipi í höfninni i Helsing-
I fors, en þar halda flestir austur-
þýzku þátttakendurnir á helms-
hrótinu til,
Liigreglan er nú komin í spilið,
og eru vestur-þýzkir lögreglumenn
, væntanlegir til Helsingfors næstu
daga og er talið líklegt, að þeir
muni ráðast út í skipið og sækja
I stúlkuna.
Fundum frestað
í Briissel
NTB-Briissel, 3. ágúst.
ÖLLUM til mikillar
furðu, frestuðu ráðherrar
EBE-landanna og fulltrúar
Breta, frekari viðræðum
um aðild Breta að bandalag-
inu, til morgundagsins, en
ákveðið hafði verið að halda
f'undum áfram í kvöld og
fram eftir nóttu. Þessi
skyndilega ákvörðun, sem
kom mjög á óvart er talin
eiga rætur að rekja til mik-
ils ágreinings meðal ráð-
herra scx-veldánna um fram
tíðarstefnuna í landbúnað-
armálum innan bandalags-
ins.
Á fundi fyrr í dag .náðist
mikilvægt samkomulag um
innflutning landbúnaðar-
vara frá Indlandi, Ceylon
og Pakistan til Efnahags-
bandalagsríkja, eftir að Bret
ar hefðu gerst aðilar að
bandalaginu, ef á annað
borð að aðild verður.
Klukkan hálf níu í kvöld,
eftir íslenzkum tíma átti svo
að hefjast lokaspretturinn í
viðræðunum, um höfuð-
vandamálið, þ. e. útflutn-
nig landbúnaðarvara frá sam
veldislöndunum, en þeim
fundurn var frestað, eins og
á.ður segir.
Dó úr svartadauða
Framhald ai 1 síðu.
inu Odstock í Salisbury.
Við nákvæma rannsókn á
líkj Bacons, fundust greini-
ieg merki pestarinnar, og
cr talið ful'lvist, ag vísinda-
maðurinn hafi orðið’ fyrir
smitun við vísindastörf sín,
en eins og kunnagt er, er
svartidauði einn smitnæm-
asti sjúkdómur, sem herjað
hefur á mannkindina.
Mcir.a en 40 manns, sem
höfðu einhver samskipti við
Bacon sílustu ævidaga
hans, þar á meðai kona
hians og tvær dætur, hafa
verið sett í sóttkví, og hafa
öll verið bólusett.
Branda
fundin
ÞAÐ var ánægjuhreimur í rödd-
inni, sem heyrðist í símanum, er
Tíminn hringdi í slökkvistöðina
seint í gærkveldi og spurði tíðinda.
Sá er svaraði í símann sagðist
gleðifréttir einat hafa að segja,
því kötturinn Branda væri kominn
í leitirnar.
Höfðu brunaverðir fengið til-
kynningu um að köttinn væri að
finna að Framnesvegi 29, en þang-
að höfðu tveir strákar flutt hann
og haft hann sér til ánægju á heim
ilinu. Var kötturinn nýkominn á
slökkvistöðina og búinn að háma
í sig nýja ýsu, sem soðin hafði
verið í tilefni dagsins.
TÍ'MINN, laugardaginn 4. ágúst 1962