Tíminn - 04.08.1962, Qupperneq 15
FRUIN
Nýtt nútíma kvennabla'ð, metJ góftu efni og yfir 90 myndum. — Fæst í
bókaverzlunum og bla<Saútsölum. — Gerizt áskrifendur í síma 14003
og 15392. Áskriftarverð kr. 180,- árgangurinn. Kemur út mánaftarlega.
Hmn fyrsti af átta . ..
Framhald af 8 síðu
sem hér átti að mæta ýmsum göml-
um vinum og sveitungum, en Jón
á Hofi þakkaði viðtökurnar af
hálfu Skagfirðinga. Þá tók og farar
stjórinn Ragnar til máls og lýsti
ferðaáætlun, sem væri á köflum
nokkuð ströng en þó ekki umfram
það, sem vera yrði. Las hann upp
ýmis boðorð, sem nauðsynlégt væri
að halda á ferðum sem þessari, en
þó væri stundvísin þeirra þýðing-
armest. Það boðorð yrði hver og
einn að muna og halda, því að
sjálfur væri hann bæði svipulaus
og hundlaus og því ekki sem bezt
búinn til erfiðrar smalamennsku.
Kvaðst Ragnar bera ábyrgð á
mannskapnum að deginum, „en að
næturlagi ekki“ og heyrði ég á
ýmsum, að það þótti þeim góðar
fréttir. Gaman hefði verið að
dvelja lengur á Akureyri, en til
þess vannst ekki tími að þessu
sinni og var farið þaðan kl. 1,30.
Að Laugum
Var nú ekið sem leið liggur inn
fyrir Eyjafjörðinn og út Svalbarðs
strönd yfir Vaðlaheiði og niður í
Fnjóskadal. Hinn eini stórskógur
okkar Norðlendinga varð ekki skoð
aður að þessu sinni, enda höfðu
flestir í hópnum komið þar áður
og svo var Hallormsstaðaskógur á
ferðaáætluninni og sú skógarför
varð að nægja. Haldið er gegnum
Ljósavatnsskarð, þar sem sagt er
að engar áttir séu heldur segi
menn bara hérna megin og hinum
megin. Snöggvast er numið stað-
ar hjá Fosshóli. Gengu sumir upp
að Goðafossi, en þeir, sem höfðu
séð hann áður, létu sér nægja að
eyða aurum í verzluninni. Brúin
yfir Skjálfandafljótið er að verða
hálfgert skrapatól. Þótti bílstjórun
um rétt að láta menn ganga yfir
hana og leyfði reyndar ekkert af
því að bílunum yrði komið yfir,
svo þröng er brúin. Sé ég ekki að
hjá því verði komizt að byggja þar
nýja brú hið allra fyrsta. Á Foss-
hóli var nú ekki lengur fyrir Sig-
urður Lúter til að fagna gestum
og söknuðu hans margir, því að
hann var góðkunnur í Skagafirði.
Áfram er haldið upp úr Bárðar-
dalnum og yfir Fljótsheiði, niður
í Reykjadal og að Laugum. Þar
skyldi kaffi drukkið í boði Búnað-
arsambands Þingeyinga. Úti fyrir
s-kólanum stóð mikill og myndar-
legur hópur þingeysks bændafólks
og fagnaði komumönnum. Átti þar
ferðafólkið allt vinum að mæta
og margir auk þess kunningjum.
Þingeyjarsýsla hefur um langt
skeið verið vagga og heimili fjöl-
margra mætismanna, sem ekki
hafa aðeins reynzt farsælir for-
ystumenn og brautryðjendur marg
háttaðrar og þýðingarmikillar
menningarstarfsemi heima í hér-
aði, heldur einnig átt ríkan þátt
í að móta og leiða sjálfstæðis- og
framfarabaráttu landsbúa allra
næstliðna sjö aldarfjórðunga a. m.
k. Þingeyingar hafa látið gera
myndir af mörgum þessum mönn-
um og geyma þær í menntasetri
sínu, Laugaskóla. Flestar mynd-
anna mun listamaðurinn Ríkharð-!
eyinga: Jóhann Skaftason, sýslu-
maður, Jón H. Þorbergsson á Laxa-
mýri, Hermóður Guðmundsson í
Árnesi og Egill skáld Jónasson í
Húsavík. Orð fyrir Skagfirðingum
höfðu þeir Gísli Magnússon í Ey-
hildarholti og Björn Jónsson í
Bæ. Þar að auki talaði svo Ragnar
fararstjóri. Loks söng Karlakór
Reykdæla nokkur lög undir stjórn
Þórodds Jónassonar, læknis á
Breiðamýri.
Skagfirðingar og Þingeyingar
hafa löngum verið taldir manna
montnastir. Að vísu má vera, að
allir séu ekki á einu máli um það,
því að sagt er, að þegar Jónas frá
Hriflu var að því spurður, hverjir
þessara nágranna væri montnari,
þá hafi hann svarað: Húnvetning-
ar. En í ræðum manna á Laugum
FRUIN
Ungu hján’in lifi lengi,
leiki við þau sæld og gengi,
land og sjór þeim gefi gæði,
guð þau leíði sérhvert spor;
þeirra ást æ stöðtig stand'i,
sterk, sem bjarg, er ekkert
grandi;
lengi hjónin lifi, ungu,
lcngi oig vel, það ósk er vor.
Jó.n Thoroddsen.
hólum er tvíbýli. Á öðru býlinu
gista þau Rögnvaldur og Ingibjörg
í Flugumýrarhvammi en við á
hinu, hjá Bjartmar Baldvinssyni
og Guðnýju Sigvaldadóttur. Þar
var gott að vera. Um tíuleytið göng
um við með Guðnýju út í móana
norðan við túnið. Norðangoluna
hefur nú lægt. Skjálfandaflóinn
liggur bláskyggður og spegilsléttur
fyrir fótum okkar. Lögun hans
minnir á efri hlutann af hitabrúsa
og snýr stúturinn inn að landinu.
Við ströndina heyrist væsJSarlegt
úið í æðaifuglinum en yfir höfð-
um okkar flögra herskarar af krí-
um, því að þarna er mikið kríu-
varp. Lambærnar lötra makinda-
legar í kringum okkur. Guðný
gengur að nokkru'm þeirra, gælir
við þær og strýkur þeim. Þær eiga
sjáanlega góða fóstru þar sem hún
er. Við vöðum döggina heim túnið
á Sandhólum. Fögrum degi og
ánægjulegum er lokið. — mhg.
í/IÐAVANGUR
Framhald af 2 síðu.
dómgreind fólkSins og koma
fram áformum sínum“.
Það er ekki gott að segja,
hvort svona munnsöfnuður
heyrir undir það að „falsa
tungunia", en liann gefur að
minnsta kosti ófalsaða mynd af
hugarjafnvægi og sálarástandi
þeirra, sem þetta sömdu.
ur Jónsson hafa gert. Safn þetta
er þegar orðið myndarlegt að vöxt
um en væntanlega hafa Þingeying-
ar byrjað hér starf, sem aldrei
verður lokið, því að maður kemur
í manns stað. Sagan varðveitir
minninguna um andleg og efnisleg
afrek þessara manna. En nemend-
ur Laugaskóla og aðrir þeir, sem
þar genga um garða nú og í fram-
tíðinni, eiga þess einnig kost, að
virða fyrir sér svipmót þeirra Þin|
eyinga, sem með framsýni sinni,
óeigingirni og atorku áttu gildan
þátt í að endurreisa menningar-
þjóðfélag á íslandi.
Undir borðum á Laugum ríkti
Iglaumur og gleði. Teitur Björns-
I son á Brún bauð gesti velkomna.
En auk hans töluðu af hálfu Þing-
Þakka ykkur af alhug alla hjálp og hluttekningu við andlát og
útför eiginmanns míns,
Jóhannesar Jörundssonar.
Sérstaklega þakka ég hjónunum Margréti Jörundsdóttur og Kristni
Sveinssyni, sem önnuðust útför hans.
Fyrir mína hönd, barnanna og annarra vandamanna,
Þórey Skúladóttir.
Innilega þökkum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vlnáttu við
andlát og jarðarfö'r,
Þorvaldar Jónssonar,
Skúmstöðum,
Guðríður Ársælsdóttir,
Ragíheiður Þorvaldsdóttir.
Sigríður Helgadóttir
frá Gularási, sem andaSist 30. f. m. verður jarffsett að Krossi í
Landeyjum, miðvikudaginn 8. ágúst, kl. 2 e. h.
Vandamenn.
gætti nokkuð bollalegginga um
þetta rómaða mont. Kom ræðu-
mönnum saman um, að vel færi á,
að Skagfirðingar og Þingeyingar
létu þennan eiginleika birtast í
því, að standa sem fastast saman
um hagsmunamál sín og Norðlend
inga yfirleitt, og láta hvergi ótil-
neyddir undan siga fyrlr ofurvaldi
og aðdráttarafli Stór-Reykjavíkur.
] Aftur á móti áleit Egill skáld, að
Sunnlendingar þjáðust mjög af lít-
illæti og mátti á honum skilja, að
það væri aldrei nema mannúðar-
verk að senda þeim nokkra pilta,
sem hefðu þó einhvern grún um,
að þeir væru lifandi menn.
Senn líður að kvöldi. Skemmti
legri en mikils til of stuttri við-
dvöl á Laugum er að ljúka. Við
erum þó ekki alveg að yfirgefa
Þingeyinga. Það mun bíða morg-
uns. En ákveðið hefur verið að sjá
Uxahver í Reykjahverfi. Laugar
eru kvaddar og flestir þeir, sem
þar voru fyrir, en nokkrir fylgja
okkur áfram út í Reykjahverfi.
Uxahver tekur okkur ágætlega.
Hann fær saðningu sína af sápu
og borgar greiðann með myndar-
legu gosi.
Og úr þessu taka menn að búast
í náttstað. Slíkur flokkur, sem
þarna er á ferð, rúmast að sjálf-
sögðu ekki í neinni einni sveit.
Einn bíllinn skilar fólki af sér í
Reykjahverfi og í Húsavík, annar
á Tjörnesi, þriðji í Kelduhverfi og
sá fjórði fer til Axarfjarðar Á
flestum bæjum í þessum fjórum,
sveitum verða gestir í nótt. Eg er
í Tjörnesbílnum og við hjónin fá-
um gistingu að Sandhólum, sem
er utarlega á Tjörnesinu, nokkuð1
innan við Breiðuvík, sem skerst
inn í Tjörnesið norðanvert. Á Sandí
Fækkað um einn
Framhald aí 16, síðu.
þar eru sóttir víða að. Því hef-
ur jafnvel verið fleygt, að
Vestmannaeyingar hafi komið
þar á dansleiki, en þeir áttu
víst leiS þar um í sumarfríi.
Hins vegar eru dæmi þess að
fólk úr Reykjavík hafi hringt
í Húnaver á laugardagsmorgun
og pantað borð fyrir kvöldið,
og síðan ekið norður til að
dansa. Þá liggur í augum uppi
að fólk úr nærliggjandi héruð-
um sækir staðinn.
En margir fleiri staðir en
Húnaver eru vinsælir ög marg-
ir munu stíga dansinn um þessa
helgi ef að líkum lætur. Fólk
ætti að hafa í huga að skemmta
sér vel, eins og eftirfarandi
tilkynning segir til um, en
henni er ætlað að fylgja Reyk-
vikingum í ferðalagið:
„Framundan er mesta ferða-
helgi ársins Þjóðvegirnir þétt
skipaðir bifreiðum, sem flytja
menn og konur, unga og
gamla, þúsundum saman burt
frá borginni og hinu daglega
striti, í faðm sveitanna og ó-
byggðanna, til hvíldar og hress-
íngar. í slíkri umferð, sem
þeirri. er senn hefst, gildir
öðru framar fyllsta gætni og
að vikið sé því til hliðar, sem
deyfir og dregur úr öryggi.
Áfengisvarnarnefnd Reykja-
víkur skorar á alla þá, sem nú
hyggja á ferðalög og dvöl í
óbyggðum, t. d. Þórsmörk eða
annars staðar, að sýna sannan
þroska og þá umgengnismenn-
ingu, sem frjálsbörnu fólki á
að vera í blóð borið.
En því aðeins- verður það, að
menn almennt hafi þann mann-
dóm til að bera, að hafna allri
áfengisneyzlu í skemmtiferða-
lögum.
Áfengisvarnarnefnd
Reykjavíkur".
Öxlar
með fólks- og vörubílahjól-
um fyrir heyvagna og kerr-
ur. — Vagnbeizli og grind-
ur. — Notaðar felgur og
notuð bíladekk — til sölu
bjá Kristjáni Júlíussyni,
Vesturgötu 22, Reykjavík,
sími 22724. Póstkröfusendi.
Bræðsla
Framhaid aí 16. síðu.
arþrær, en þróarplássið er mjög
lítið enn sem komið er.
Eins og fyrr segir verða sólar-
hringsafköstin um 500 mál, en nú
er verksmiðjan búin að taka á
móti 1500 til 1800 málum.
Framkvæmdastjóri hlutafélags-
ins Sandvík er Þórhallur Jónas-
son, en aðrir í stjorn þess eru
Magnús Jóhannesson og Einar
Hjartarson.
Vegaþjónusta
Framhald af 16. síðu.
hafa lagt til bíla og tæki, svo sem
Björgunardeild þungavinnuvéla,
Flugbjörgunarsveitin, Volkswag-
en-umboðið, Afgreiðsla smjörlík-
isgerðanna, Pólar h.f., Varahluta-
verzlun Kristins Guðnasonar, og
þá hefur Slysavarnafélag íslands
lagt bílunum til sjúkragögn. —
Landssíminn hefur lánað talstöðv-
ar í'nokkra bíla og stuttbylgju-
stöðin í Gufunesi mun annast fyr-
irgreiðslu fyrir þá,*sem þurfa að
ná sambandi við viðgerðarbílana.
Megináherzla verður lögð á, að
veita aðstoð á leiðunum Reykja-
vík-Þingvellir-Selfoss-Reykjavík
Selfoss-Hvolsvöllur, Reykjavík-
Keflavík, og Reykjavík-Hvalfjörð-
ur-Borgarfjörður.
Þeir, sem á aðstoð þurfa að
halda, geta hringt í síma 3-30-32
hjá stuttbylgjustöðinni í Gufunesi,
sem mun kalla upp viðgerðarbíl-
ana gegnum talstöðina.
Öll þjónusta, sem veitt verður
á vegum úti, og sömuleiðis að-
stoð við að koma bílum á verk-
stæði, verður veitt ókeypis með-
limum FÍB og BFÖ, geti þeir sýnt
félagsskýrteini fyrir árið 1962. —
Einnig fá þeir ókeypis aðstoð, sem
ganga í annað hvort félagið um
helgina. Hins vegar verður inn-
heimt gjald fyrir þjónustu hjá öðr-
um.
FRÚIl V
BIs. Frú Anna Fleming skrifar:
Eg hef verið svo ham- ingjusöm . 4
Bréf ftg umsagnir 7
Vortízka 9
Vigdís Finnbogadóttir: f
Leiklist . 10
Benedikt Gíslason fr'á Hofteiigi: Frá Iiðnum dögum . . . 12
Lífið kvatt, heimsókn í klaustur . 14
Bréf frá K,ína: Listin að lifia . 16
Húsgagnatizkan, viðfcal vi'S Svein Kjarval arkitekt . 18
Marlon Brando: Þannig er konan . ... . 20
Handavinna . 22
Kötturinn, sem sagði Voff 24
Michael Drury:
Ástin hefur þúsund
andlit 06
Heimsókn í húsmæð’ra- i1 !
skóLa Rvíkur . 28
Matur er mannsins megin 29
Lesendur skrifa
Þau voru alltaf að rífast . 35 I
Líkamsrækt • 37
Lög og réttur . 37
íslenzkar stúikur á er- lendum vettvangi ... . 38
Góð rájj handa verffandi móður . 40
Hvíld og afslöppun • 42
Ingibjörg Lárusdóttir: Bólu-Hj'álmiar . 44
Blómaþáttur \ , . 46
Eldhúsgiarðurinn . 47
Frá „Frúnni“ til frúar- innar . 48
VeFðlaunagetraun . . 49
Ljóð á bls. 7 oig 45. Skrítlur og spakmæli á bls. 21, 29, 47, 48 og 51.
T í MIN N , Iaugardaginn 4. ágúst 1962
15