Tíminn - 04.08.1962, Side 16
Laugardagur 4. ágúst 1962
176. tbl. 46. árg.
Bræðsla á
Bakkafirði
Um síðustu helgi tók tii
starfa ný síldarbræðsla á
Bakkafirði. Þetta er í fyrsta
sinn, sem síldarbræðsla er
starfrækt á staðnum, og mikið
hagræði að því fyrir síldveiði-
flotann, og atvinnumöguleikar
Aukin vega-
þjónusta
FÉLAG ísl. bifreiSaeigenda, sem
annazt hefur viðgerðarþjónustu
nokkrar helgar á sumri hverju,
mun annast slíka þjónustu um
verzlunarmannahelgina. Þá munu
alls 15 bílar annast þjónustuna og
milli 20 til 30 menn annast við-
gerðir og aðstoða vegfarendur.
Að þessu sinni mun Bindindis-
félag ökumanna taka þátt í við-
gerðarþjónustunni, og leggur það
til þrjá bíla. Margir aðrir aðilar
Framh. á 15. síðu.
fyrir þorpið og sveitina í
kring.
Síldarbræðslan er í eigu hluta-
félagsins Sandvik. Var hún reynd
um síðustu helgi, og reyndust all-
ar vélar í ágætu lagi. Bræðslan
á að geta afkastað um 500 málum
á sólarhring og ætlunin er að þró-
arrými hennar verið fyrir 10 þús.
mál síldar.
Smíði terksmiðjunnar var hafin
í apríl í vor, en margt varð til þess
að tefja smíðina, t. d. dróst hún á
langinn um 5 vikur í járnsmiða-
verkfallinu. Verksmiðjuhúsið er
480 fermetrar að stærð, og sá hluta |
félagið Bjarg um byggingu þess, j
og einnig um að koma upp færi-
böndum utan húss. Vélsmiðjani
Héðinn sá um kaup á öllum vélum,
í verksmiðjuna og uppsetningu
þeirra.
Margt manna hefur unnið við
að koma verksmiðjunni í gang, og
þegar flest var, munu hafa verið
milli 20 og 30 verkamenn við vinnu
þarna. Nokkuð af aðkomufólki
vinnur við bræðsluna, enda er enn
ekki fulllokið við að ganga frá hús-
inu. Einnig á eftir að byggja síld-
Framhald á 15 síðu
Geh engin grío
A FUNDl Þingvallanefndar
liinn 26. júlí s. 1., voru rædd
löggæzlumál í þjóðgarðinum,
aðallega í tilefni af því, að mik-
il óregla átti sér stað í sam-
bandi við nýafstaðið hesta-
mannamót á Þingvöllum, en
fjöldi ölvaðra gesta, sem höfðu
í frammi margs konar spjöll,
komu á mótsstaðinn. Til þess
að fyrirbyggja að slíkir atburð
ir endurtaki sig, lagði nefndin
fyrir þjóðgarðsvörð að leita
aukinnar aðstoðar lögreglunn-
ar ef á þyrfti að halda, og brögð
yrðu að óreglu í þjóðgarðin-
um. Yrðu þannig allir óróa-
seggir tafarlaust fluttir í
burtu, og fullkominni reglu
haldið uppi.
Kvendjákni
í heimsókn
Hérlendis er í heimsókn vestur-
heimsk kona, Laufey Olson að
■nafni. Laufey er fædd í Selkirk
í Manitoba, en foreldrar hennar,
Pálína Margrét Hafliðadóttir úr
Fljótum og Davíð Jónsson, ætt-
aður úr Borgarfirði, fluttust vest-
ur um haf upp úr aldamót-
um. Laufey var gift sr. Carl 01-
son, en þegar hann lézt árið 1951,
tók hún að starfa við söfnuð
Fyrstu lúthersku kirkjunnar í
Winnipeg, sem dr. Valdimar Ey-
lands er nú prestur við. Laufey
er diakonissa (kvendjákni) við
þann söfnuð í dag. Hér er húrí
sem styrkþegi lútherska heimssam
bandsins og gestur íslenzku kirkj-
unnar. Hún mun dveljast hér á
landi í þrjá mánuði og kynnast
íslenzku kirkjulífi og safnaðar-
starfi.
ELDHNATTAHRÍÐ!
Á FIMMTUDAGINN var frá því skýrt í blaðinu, að bændur úr Biskupstungum hefðu séð eld-
hnött, sem féll til jarðar suður af Tungufelli í Hrunamannahreppi. í gær barst blaðinu önnur
frétt um eldhnött, og að þessu sinni var hún frá Vestur-Eyjafjallahreppi.
Um miðnætti hinn 25. júlí var Karl bóndi Sigurjónsson að Efstu-Grund í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi staddur úti á túni heima á Efstu-Grund. Var hann að galta hey, ásamt með tveimur drengj-
um, sem hjá honum eru.
Heyrði hann þá þungan dyn, sem virtist koma úr norðvestri inn á heiðum. Var þeim litið í þá
átt og sáu þá eldhnött, sem var allt að því á stærð eins og tungl í fyllingu. Kom hnötturinn
fljúgandi með feikna hraða frá vestri til austurs yfir Eyjafjallajökul. Var eins og neistaði aftur af
honum. Að síðustu virtist hann springa meðan hann var enn í fullri augsýn.
Karl bóndi telur þessa sýn hafa borið fyrir sig um sama leyti, og bændur úr Biskupstungum
sáu svipaða sýn, að öðru leyti en því, að hnöttur Biskupstungnamanna kom úr norðausturátt.
Hér kemur
sú fjoröa
VEGAMÁLASTJÓRN hefur á þessu sumri fjórar stórbrýr í smíðum.
Tíminn hefur fyrir stuttu birt myndir af þremur þessara brúa, brúnni
á Fjallsá í Öræfum, sem var opnuð fyrir umferð nýlega, á Blöndu og
á Gljúfurá. Hér kemur svo mynd af hinni fjórðu, brúnni á Klifanda
í Mýrdal. Gamla brúin er orðin heldur ræfilsleg' eins og sést á mynd-
inni, en búið er að steypa stöpla nýju brúarinnar, sem á að verða
tilbúin í september. Nýja brúin verður 104 metra bitabrú í átta 13
metra löngum höfum. — (Ljósm.: Lars Björk).
KEPPT I FLUGI
HÉR19. ÁGÚST
Eins og frá var skýrt
hér í Tímanum nýlega,
gengst Flugmálafélag ís-
lands ffyrtr flugkeppni nú
í ágúst, sennilega 19. ág.
Verður keppt um Shell-
bikarinn, og í sambandi
við keppnina verður flug-
módelsýning.
Árifj 1956 gaf Shell bikar til
flugkeppni, en fram að þessu
hefur aðeins einu sinni verið
keppt um hann. Öllum er heimil
þátttaka í þessari keppni á hvaða
vélum sem er, en að sjálfsögðu
er miðað vijy litlar vélar. Keppn-
in er eingöngu miðuð við það að
kanna hæfni flugmannanna, hraði
■skiptir þar ekki máli.
Ekki er alveg búið að ákveða
tilhögun keppninnar, en i ráðj er
að hafa yfirlandsflug í nágrenni
Reykjavíkur, lendingu á vissum
stað og koma skilaboðum á mið-
um eða öðru á vissa staði. Keppn-
in fer að öllum líkindum fram
19. ágúst, ef veður verður þá hag-
stætt, en frestur til að tilkynna
þátttöku er til 15. ágúst. Ekki
er unnt að segja fyrir um
þátttöku strax, vegna þess hve
•stutt er síðan auglýst var eftir
þátttöku til keppninnar.
í sambandi við keppnina er á-
kveðið ag hafa flugmódelsýningu
Reykjavíkurgvelli, og verða þar
sýnd bæði svifflugmódel og vél-
flugmódel.
FÆKKAÐ UM
DANSLEIK
Víða verSa margir dans-
leikir haldnir um verzlun-
armannahelgina, sem nú
fer í hönd. Verður aS venju
dansað í eitt eða fvö, eða
jafnvel þrjú kvöld. Sums
sfaðar er föluverður viðbún
aður, enda hefur seff geig
að mönnum eftir hesta-
mannamótið á Þingvöllum.
Það er þó ekki af þeim sök
um, sem þeir í Húnaveri í
Austur-Húnavatnssýslu hafa á
kveðið að halda aðeins þrjá
dansleiki um verzlunarmanna-
helgina, en ekki fjóra eins og
venjan hefur verið undanfarið,
þegai kc-mur að þessari löngu
fríhelgi. Þar hafa verið og
verða nú dansleikir á laugar-
dagskvöld, sunnudagskvöld og
mánudagskvöld, en í fyrra var
fjórði dansleikurinn eftir há-
degi á sunnudag. Ilann var hald
inn í tilefni bændaþings þar
nyrðra. í ár fellur þessi bænda
dagadansleikur Húnvetninga
niður vegna samkomu í Þórdís
arlundi.
Húnaver er mjög vinsæll
samkomustaður og dansleikir
. Framh. á 15. síðu.