Tíminn - 01.09.1962, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
augu vandláfra blaSa-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
SVAR
STRAX eftir að fréttin barst
af síðustu EBE-ræSu Adenau-
ers, sendi TÍMINN skeyti til
blaða'fulltrúa hans með fyrir-
spumum varðandi orð hans um
ísland.
Þess skal getíð, að skeyti
FRÁ
þetta var sent áður en fréttatil-
kynnlng barst frá ríkisstjóm
íslands út af sama atriði. Svar-
skeyti blaðafulltrúans, von
Hase ráðuneytisstjóra, fer hér
á eftir. Jafnframt fylgir mynd
af skeytinu.
HASE
„Kanzlarinn minntizt reynd-
ar á fsland til þess að gefa til
kynna vandamálin í sambandi
við útvíkkun Efnahagsbanda-
lagsins með inngöngu fleiri
hafa farið á íslandi í sambandi
við inngöngu eða aukaaðild fs-
lands að EBE, en tilsvarandi
BBNBESKANZLER HAT ISLANH LED16LIGH ERNAEHNT UH
PROBLeHATJK DER AUSHEITUNG DER Ewe DURCH BElTRlTT
NBITERER STAATEN ANZUDEUTCHBN jf IN ISL'AND ANOESTELLTB
UEBERLE6UNGEN BEZUEGLICH EINES BEITRITTS ODER E.INB
assozierung islands zur ENG SIND HlER znar BEKANNT
GENORDEN ENTSPRECHENDE HUENSCHE JEDOCH BEl DER
BUNDESREGIERUNB BISHER NEDER VON DER ISLAENDISCHEN
RE61ERUNG NOCH EINEH REG lERUNGSBEAUFTRAGTEN V0RGETRA6EN
NORDEN - VON HASE
óskir hafa hingað til ekki ver- ina af íslenzku stjóminni eða
ið bornar fram vi'ð þýzktí stjórn fulltrúum hennar. von Hase“.
yf.
(Ljósm.: TÍMINN-EE),
Á fundi í prentarafélaginu í gær, þar sem fellt var að taka tilboði vinnu veitenda
PRENTARAVERKFALL
• o
- BLODIN STODVAST
Klukkan tólf á miSnætti
skall á verkfall prentara, og
stöðvast því öll blaðaútgáfa og
önnur útgáfustarfsemi af
þeim sökum. Fundir voru
bæði hjá prenturum og vinnu-
veitendum í gærkvöldi. Hafði
prenturum borizt tilboð frá
vinnuveitendum, sem var
hafnað. Sendu prentarar gagn
tilboð, er skyldi svarað fyrir
tólf á miðnætti, en þar sem
ekkert svar barst hófst verk-
fallið á áður boðuðum tíma.
Hinar upphaflegu kröfur prent-
ara voru fjórtán prósent kaup-
hækkun, lenging sumarfría eftir
starfsaldri, sex prósent orlof á
alla aukavinnu og tíniakaup yrði
reiknað út frá fjörutíu og fjögurra
Framhald á 15. síðu.
MET
ÞAU EFLA ÞJOÐARHAG
SAMBAND
bandarískra
samvinnufélaga
hélt fyrir stuttu
aðalfund sinn í
hænum Colum-
bus í Ohio. —
Þingið fór
fram í háskóla-
byggingunum,
en yfir 3000
manns tóku
þátt í því, þar
á meðal gestir
frá öllum heims
hornum.
K e n n e d y
Bandaríkjafor-
■SfilL.SfMÍ atjal-
fundinum skeyti með nokkrum
hvatnlngarorðum. Þar stóð m.
a.:: „Ef samvinnufélögin eru
kröftug og ákvcðin, mun allur
efnahagur Bandaríkjanna hafa
hag af því. Samvinnufélögin
eru lífsnauðsynlegur þáttur
hinnar. frjálsu samkeppni í
Bandaríkjunum. í þeim felst
sjálfstraust hlnna bandarísku
bænda, sern hafa byggt upp
fullkomnasta búskap heimsins“.
Á fundinum kom m. a. frani
mikil ánægja með, hversu at-
hafnasiim samvinnufélögin þar
hafa verið í rafmagnsmálum.
Meira en hclmingur hinna nær
fiögurra millióna hændahvla í
Bandaríkjunum fá raforku sína
frá samvlnnuaflstöðvum. Einn-
ig ríkir nú mikill áhugi vestra
á húsbyggingasamvinnufélög-
um. f Washington er t. d. ný-
lega fullgert heilt hverfi, sem
er reist af samvinnufélagl hús-
cigcndanna.
Forseti samtakanna sagði í
ræðu á fundinum, að Bandarík
in þyrftu á virkri stjórnmála-
og efnahagsmálastefnu að
halda, sem væri reist á hinu vlð
urkennda gildi lýðræðis og sam
vinnu. Hann kvað samvlnnufé-
lögin vera árhifamesta varnar-
lyfið gegn stöðnun og þvingun-
.,«mJ.?fn^JiagsljflHH|__________
ÖLTUN
Heildarsöltunin á öllu landinu
mun nú vera orð'in meiri en
nokkru sinni fyrr í sögu sumarsíld-
veiðanna. Á fimmtudagskvöldið
var búið að salta í 362.852 tunnur i
á öllu landinu, og vantaði þá að-
eins 889 tunnur til þess að söltun
væri orðin meiri en í fyrra Blað-
ið hafði spurnir af því, að saltað
hefði verið á flestum stöðum Aust
anlands í fyrrinótt og fram á dag, I
og einnig var víða saltað í gærdag. I
Á Fáskrúðsfirði einum var sölt- j
unin milli 400 og 450 tunnur, svo '
öruggt má teljast, að nýtt met hef
ur nú verið sett hér á landi.
Á fimmtudagskvöld höfðu síld- j
arverksmiðjur ríkisins tekið á j
móti 753.808 málum, en á sama j
tíma í fyrra böfðu þær brætt 543.
788 mál. Þá höfðu bæði Rauðka
á Siglufirði og SR þar tekið á
móti allri þeirri síld, sem þær
fengu það sumar.
Söltunin var sem hér segir a :
miðnætti 30. ágúst: Skagaströnd
1407 tunnur, Siglufjörður 113.239.
Ólafsfjörður 14 939, Dalvík 15.359.
Hrísey 6787 Hjalteyri 488. Krossa
nes 1560 Grímsey 3656, Húsavík
10.357, Raufarhöfn 76.888, Þói's-
höfn 2350, Bakkafjörður 1767,
Vopnafjörður 12.373, Borgarfjörð-
ur 987, Seyðisfjörður 46.275, Nes-
kaupstaður 22.771, Eskifjörður
9986, Reyðarfjörður 9943, Fá-
skrúðsfjörður 6947, Stöðvarfjörð-
ur 3611 og Breiðdalsvík 1242 tunn-
ur.
STRÁKA
VEGUR
LENGIST
í TVO mánuði í sumar
hefur verið unnið dag og
nótt við að leggja Stráka-
veginn til Siglufjarðar, og er
sumaráætluninni í vegálagn
ingunni nú nýlokið. Er nú
eftir tæpl-ega 10 kílómetra
leið, auk ganganna gegnum
Stráka, sem verða 900 metra
löng. Aðeins 30 metrar hafa
enn verið sprengdir í göng-
unum Siglufjarðarmegin.
Leiðin yfir Siglufjarðar-
skarð til Síglufjarðar hefur
löngum verið nokkuð torsótt,
og vegurinn lokaður meiri-
hluta ársins. Vegurinn gegn
um Stráka er ekki lagður til
þess að stytta leiðina til
Siglufjarðar, heldur tU þess
að fá veg, sem verður fær
mikinn hluta ársins. Nýi veg
urinn er lagður út Almenn-
inga meðfram ströndinni að
vestanverðu, að Strákum,
þar í gegn, og sfðan með
ströndinni til Siglufjarðar.
Er það von manna, að þessi
leið verði auðveldari yfir-
ferðar og snjóléttari, en ó-
víst er, hvenær lokið verður
við veginn, því lagning hans
er bæði erfið og fjárfrek.
í sumar hófst vegagerðin
19. júní, en er nú lokið. Níu
manna vinnuflokkur hefur
unnið að henni með tvær
stórar jarðýtur, undir stjórn
Jóhanns Lúðvíkssonar vega-
vinnustjóra. Unnið hefur
verið á vöktum nær allan
sólarhringinn. Vinnan hefur
gengið betur, en búizt var
við í upphafi, og er lagningu
vegarins lokið um 5 km. út
fyrir Heljartröð, en þar ligg
ur nýi vegurinn af Siglu-
fjarðarveginum.
Frá Heljartröð að jarð-
göngunum, sem væntanlega
verða gerð í gegnum Stráka,
er 13 km. leið. í sumar voru
lagðir tæpir 3 km., en sá
Iiluti leiðarinnar, sem eftir
er, rnun þó vera erfiðari, en
það, sem lokið er við að
leggja, og eru aðalerfiðleik-
arnir við lagningu vegarins
í Mánaskriðum og í Herkonu
Framhald á 15. síðu.
Framhald á 15. síðu.