Tíminn - 28.09.1962, Qupperneq 3
Líkin fíutt í laiid
NTB-Ltindúnum, 27. september.
ÞYRILVÆNGJA flutti í dag tjl Shannonflugvallar á írlandi lík 12 \
farþega, sem létu lífið, er bandaríska Super-Constellation farþegaflug- |
vélin nauðlenti á hafinu undan strönd írlands.
Þyrlan þurfti a3 fara margar ferðir milli skips og lands, en hún flutti
einnig tvo farþega, sem höfðu særzt hættulega í lendingunni. Voru
þeir svo illa farnir, að gefa varð þcim bló'5, áður en hægt var að flytja
þá áleiðis til Lundúna frá írlandi.
EVROPU?
NTB-Washington, 27. sept.
Formælandi bandaríska
utanríkisráðuneytísins lét
þsss getiS i dag, ad stjórn
Bandaríkjanna ^ myndi
ekki standa í vegi fyrir
því, aó komið yrói upp
her í' Evrópu útbúnum
kjarnorkuvopnum, svo
fremi sem Evrópulöndin
óski þess sjálf.
Ástæðan fyrir þessari yfirlýs-
ingu formælanda ’ utanríkisráðu-
neytisins er, að í ræðu ráðgjafa
fors'etans, McGeorge Bundy, sem
hann hélt í Kaupmannahöfn, kom
fram, ag Bandaríkin myndu ekki
setja sig upp á móti því, að *tóm-
her yrði komið á fót í Evrópu.
Hafa þessi orð ráðgjafans orðið
orsök mikilla blaðaskrifa í Evr-
ópu að undanförnu.
Formælandi * ráðuneytisins
minnti einnig á það, að Kennedy
NEITA
ÞÝZKUM
NTB (Reuter), — Hull,
27. sept.
Hafnarverkamenn í Hull
hafa neitað að afferma vest
ur-þýzkan togara, sem þang-
að var kominn með fisk-
farm. Ástæðan er sú, að á
stríðsárunum var skotið nið-
ur skip frá Hull af Þjóð-
verjum.
Það olli miklum vand-
ræðum, í hinni mjög svo
mikilvægu hafnarborg Hull,
er verkamenn við höfnina
_ neituðu að afferma þýzka
Ítogarann Heinrich Kern,
sem þangað var kominn með
þorsk af Grænlandsmiðum.
Hafa hafnarverkamennirn
ir neitað algjörlega að af-
ferma nokkurn þýzkan tog-
ara síðan skip frá Hull var
skotið niður á stríðsárun-
um.
Heinrich Kern varð að
halda heim til Þýzkalands í
kvöld eftir þessar viðtök-
ur verkamannanna, en bæði
eigandi hans og fulltrúi fisk
kaupmannasamtakanna
ensku eru mjög órólegir
vegna þessa atburðar.
hefði nýlega varað við þeirri
hættu, sem af því gæti stafað, að
fleiri lönd en nú þegar hafa feng-
ið kjarnorkuvopn fái þau i hend-
ur. Hann benti einnig á það, að
í ræðu, sem Dean Rusk hélt 31.
■maf s. L, hefði hann minnzt á
möguleikana á því, að koma upp
kjarnorkuher á vegum NATO, og
sagt, að það væri mál, sem
ræða ætti og rannsaka innan
Atlantshafsbandalagsins sjálfs.
Eru Rússar að baki
byltingu í Jemen?
NTB-Reuter-Aden-Jemen,
27. september.
Herinn í Jemen hefur tek-
ið í sínar hendur völdin í land
inu, og ekkert er vitað um,
hvað orðið hefur af Imam Mo-
hammed, konungi landsins, en
hann tók við konungdómi fyr-
ir nokkrum dögum, að föður
sínum látnum. Nítján rúss-
nesk herskip voru í höfninni
HEITA
KOSN-
aNGUM
NTB—Buenos Aires, 27. sept.
Argentíska stjórnin mun í vik-
unni skýra frá þeirri ákvörðun
sinni að almennar kosningar verðii
látnar fara fram í landinu í apríl-
mánuði næstkomandi. Það voru |
fulltrúar hins svokallaða bláa
hers, sem skýrðu frá þessu í dag,
en blái herinn sigraði í uppreisn-
inni, sem gerð var í Argentínu í
síðustu viku.
í upphafi var álitið, að kosning-
ar yrðu látnar fara fram í októ-
ber næsta ár, en samkvæmt ósk
Juan Carlos hershöfðingja bláa
hersins var þessu breytt.
Líklega hefur Juan Carlos látið
* Ijós þá skoðun sína, að mynda
ætti stjórn samkvæmt stjórnar-
skránni eins fljótt og unnt væri
og að kosningar skyldu fara fram
fyrr en ákveðið hafði verið í
fyrstu.
í Hodeida meðan á uppreisn-
inni stóð.
í útvarpstilkynningu frá yfir-
mönnum hersins í Jemen var sagt,
að nú hefðu landsmenn byrjað nýtt
líf, frjálsir og án yfirdrottnunar
konungsins. Ekki er vitað, hvað
gert hefur verið við konunginn,
en í tilkynningunnj var sagt, að
menn hefðu losað sig við hann.
Einnig var frá þvi skýrt, að
menn myndu ekki missa ráð yfir
eignum sínum, og til þess að koma
á ró í landinu var tilkynnt, að upp
reisnarherinn hefði fengið stuðn-
inga frá báðum aðalborgum lands-
ins, Sana, en þar búa 100 þúsund
manns, og Taiz, með 15 þúsund
íbúa. Auk þess hafa þrjú stærstu
héruð landsins, Salef, Ibb og Haj-
ja og hafnarborgin Hodeida sent
skeyti og tilkynnt að þau .séu
hlynnt uppreisninni.
Talið er að um 20 þúsund manns
séu í hinum óbreytta her Jemen.
Frá þvi 1956 hefur herinn fengið
vopn og útbúnað frá Sovétríkjun-
um, og einnig hefur hann verið
þjálfaður af liðsforingjum frá kom
múnistalöndunum. Landið hefur
yfir að ráða litlum flugher, og eru
flugvélarnar smíðaðar í Sovétríkj-
unum og í Tékkóslóvakíu. Á meðan
á uppreisninni stóð voru 19 sov-
ézk herskip í höfninni í Hodeida,
þar af 3 freigátur, og eru þetta
sömu skipin, sem fyrir nokkru
fóru í gegnum Suez-skurðinn.
Eina skýringin, sem gefin er á
því, sem skeð hefur í Jemen, er
sú, að valdataka Imam Muham-
meds 18. september s. I. hafi ver-
ið álitin ólögleg. Hann tók við af
föður sínum Imam Amhad, en
hann var talinn valdaræningi af
nokkrum hluta yfirstéttar lands-
ins.
RÚSSNESKA tónskáldið
Igor Stravinsky, sem nú er
bandarískur ríkisborgari,
hefur í áratugi ekki komið
til Sovétríkjanna, og bann-
að hefur verið að flytja tón
list hans þar í landi. Fyrir
skömmu fór hann þangað í
heimsókn, og aðgöngumi'ðar
að tónleikum hans scldust
upp á örskömmum tíma. —
Hér sést Stravinsky gefa að-
dáendum eiginhandarárit-
un sína.
Vill brjóta
r ■
murmn
NTB—Berlin, 27. sept.
Indverskur verkfræðingur, sem
nú er í Berlin hefur ákveðið, að
gera tilraun til þess að brjóta nið-
ur múrinn, sem aðskilur borgar-
hlutana. Tilraunina gerir hann 2.
október, en það er fæðingardagur
Mahatnra Gandhis.
Verkfræðingurinn, Tapeshwar
Zutshi, sem er 34 ára gamall, ætlar
Framh. á 15. síðu
Noregskóngur / Frukklandi
NTB—París, 27. sept.
Ólafur Noregskonungur
hefur verið í fjögurra daga
opinberri heimsókn í Frakk-
landi, en heldur heimleiðis á
morgun. Konungurinn heim-
sótti í dag norska stúdenta-
húsið í Háskólaborainni í
París og laqði einnia blóm-
sveig á gröf óbekkta her-
mannsins undir Siqurbogan-
um.
Konungurinn ók í morgun að
Sigurboganum í fylgd með de
Gaulle Frakklandsforseta, og þar
lagði hann blómsveig á gröf ó-
þekkta hermannsins á meðan lúð-
urþeytarar hersins léku. Mikill
mannfjöldi tagnaði þjóðhöfðingj-
unum, er þeir óku eftir fegurstu
götu Parísar Champs Elysee.
Fyrr um morguninn hafði Ól-
afur konungur heimsótt Noregs-
húsið í Háskólaborginni. Horn-
stein þessa húss lagði dóttir hans
Ragnhildur prinsessa í júní 1951.
Við móttöku í Hotel de Ville —
ráðhúsinu — flutti borgarstjóri
Pansar ræðu, en konungur svar-
aði, og lýsrti gleði sinni yfir að
vera í París. Hann lagði einnig
mikla áherzlu á það, hversu menn-
ingaráhrifa frá ‘ Frakklandi hefði
ætíð orðið vart i Noregi.
Á morgun heldur konungurinn
heim aftur, og hefur verið ákveðið,
að konungur kveðji frönsku þjóð-
ina í sjónvarpsdagskrá, sem tekin
verður upp i SAS-flugvélinni á
leið til Oslóar. Sjónvarpsdagskrá-
ir. verður síðan send út á laugar-
dagskvöld. Er þetta í fyrsta sinn.
sem þjóðhöfðingi kveður í slíkri
dagskrá, sem tekin er á flugi.
T I M IN N , föstudagurinn 28. sept. 1962 —
3