Tíminn - 16.10.1962, Page 15
GLÆSILEGT KJÚRDÆMISÞING
Framsóknarmenn í Reykja
neskjördæmi héldu kjördæmis
Þing sitt í GóStempIarahúsinu
í Hafnarfirði s.l. sunnudag. —
Þinghald þetta var hið fjöl-
mennasta, sem Framsóknar-
menn hafa haldið og var salur
Gó'ðtemplarahússins fullsetinn.
Á þinginu héldu alþingis-
mennirnir Jón Skaftason og Ey
steinn Jónsson ítarlegar ræður
og margir fundarmenn aðrir
tóku til máls. Einkenndist þing
hald þetta af eindrægni og
sóknarhug fundarmanna, og
mátti glöggt heyra, ag Þeir eru
staðráðnir í að fylgja undan-
gengnum kosningasigrum fast
eftir í alþingiskosningunum í
vor.
Fimdurinn ályktaði í fjöl-
mörgum málum og verður
þeirra ályktana getið síðar.
f aðalstjóm fyrir næsta kjör
tímabil voru ltjörnir: Jóhannes
Sölvason, Seltjarnarnesi, form.,
Jóhanna Bjarnfreðsdóttir, Kópa
vogi; Hilmar Pétursson, Kefla-
vík; Sigurður Sigurjónsson,
Hafnarfirði; Teitur Guðmunds-
son, Móum, Kjalarncsi; Jón
Bjarnason, Ytri-Njarðvík og
Guðmundur Þorláksson, Selja-
brekku, Mosfellssveit.
Þingforseti var Tómas Árna-
son, héraðsdómslögm., Kópa-
vogi.
Sjómannasambandii mót-
mælir gerðardómslögum
3. þing Sjómannasambands
íslands var haldið í Reykjavík
dagana 13. og 14. okt. s.l. Á
þinginu voru kjörnir 28 full-
trúar frá 7 aðildarfélögum
sambandsins, og sátu þeir
flestir þingiS.
Á þinginu var gerð eftirfarandi
samþykkt að tillögu kjaranefndar:
I. 3. þing Sjómannasambands
fslands haldið 13. og 14. okt. 1962
mótmælir harðlega að gerðardóms
lög skyldu sett til lausnar síld-
veiðideilunni á s.l. vori, og telur
að vel hefði mátt leysa þá deilu
á heppilegri hátt, t.d. með því að
ákveða sömu kjör og áður giltu,
Stöðug slys
Framhald af 1. síðu.
hægt að keyra hana norður fr'á
Miklubraut á meðan. Nú er Langa-
hlíðin opin fyrir umferðinni að
sunnan og enn hefur skarðinu í
eyjuna á Miklubraut ekki verið lok
að. Þetta er þröngt skarð. Raunar
var þarna full þörf fyrir víð' gatna
mót meðan Langahlíð var lokuð
timferðjnni að sunnan, og sú þörf
virðist enn fyrir hendi. Svo mikill
cr umfeiðarþunginn á neðri gatna
mótunum.
Þarna við skarðið varð harkaleg
ur árekstur sl. sunnudagskvöld.
Bíll á leið austan Miklubraut
sveigðj norður í skarðið, en sam-
timis kom annar bíll vestan Miklu
brautina og gaf stefnumerki s'uður
úr skarðinu, sem er of þröngt
fyrir tvo bíla m. v. slíkar aðstæð'-
ur. Fyrrnefndi bíllinn hélt svo á-
fram norður úr skarðinu, en síð-
artalda bílinn bar á miilli, þannig
að stjórnandi hins sá ekkj þriðja
bílinn, sem bar að vestan Miklu
braut í sömu andrá. Hann ók því
á hliðina á þessum bíl, sem var
kominn þvert fyrir um leið og
hann sást. Bíllinn skutlaðist á nær-
liggjandi ljósastaur og síðan aft-
ur á bak sniðhallt yfir götuna og
á eyjuna. Tveir menn voru í bíln-
um, stjórnandinn og fatlaður pit-
ur, sem kastaðist út, en hvorugur
meiddist alvarlega. Það mátti kall-
ast slembilukka eins og til var
slofnað.
Þessi árekstur hefði að likindum
ekki átt sér stað, ef skarðið hefð'i
verið svo vítt, að bíllinn sem fór
norður úr því og hinn, sem ætl-
aði suður úr því, hefðu getað far-
íð þar um samtímis, eða með öðr-
um orðum sæmileg gatnamót með
nægu svigrúmi.
Þetta skarð er ekki til á neinurn
uppdrætti, en var eins og fyrr
segir tekið sem bráðabirgðaráð-
stöfun meðan verið var að ganga
frá Lönguhlið. Hér virðist því að-
eins um tvennt að velja, loka
skarðinu eða víkka það áður en
fleiri hafa velt bílum (eða drepið
sig) í því.
sérstaklega þegar litið er til þess,
að á stórum hluta síldveiðiflotans
voru óbreytt kjör samkv. gildandi
eldri samningum.
Þingið lýsir ánægju sinni með
þá samstöðu,' er tekizt hefur með
félögunum í yfirstandandi síld-
veiðideilu og heitir á öll þau félög,
sem ótvírætt hafa lausa síldveiði-
samninga, að standa fast saman
um samningsgerðina, svo og um
samræmdar aðgerðir ef nauðsyn-
legt þykir, til þess að viðunandi
samningar fáist um sfldveiðikjör-
in.
II. Varðandi hina almennu
bátakjarasamninga telur þingið,
að enda þólt skammur tími sé til
uppsagnar að þessu sinni, verði
ekki hjá því komizt að segja upp
þeim samningum, ef kauptrygg-
ing og önnur kaupákvæði í samn-
ingunum fást ekki hækkuð í hlut-
falli við þá kauphækkun, sem orð-
ið hefur síðan samningarnir voru
gerðir.
Þingið felur væntanlegri stjórn
sambandsins, að ræða við samtök
útvegsmanna um þessar lagfæring-
ar, og fáist ekki jákvæð svör, heit-
ir þingið á aðildarfélög sambands-
ins að segja samningunum upp.
III. Þingið telur nauðsynlegt að
samið sé um alla þætti bátakjara
á sama tíma, og felur væntanlegri
stjórn sambandsins að vinna að
því á næsta ári, að fá sem bezta
■samstöðu allra þeirra félaga, sem
samningsaðild eiga, um sameigin-
lega baráttu um samræmd bætt
kjör bátasjómanna, og leita sam-
vinnu við væntanlega stjórn Al-
íslands, í því efni.
Verður Frakkland . . .
Framhald af 3. síðu
það þing, sem saman kemur eftir
kosningarnar, áreiðanlega enn
erfiðara viðureignar, en þag sem
frá er að fara.
Þegar Mollet var spurður um,
hvað gerast myndi, ef forsetinn
segði af sér, sagði hann stjórnar-
andstöðuna sammála um það, að
forseti senatsins Gaston Monner-
vie verði þá forseti.
De Gaulle forseti mun halda
sjónvarpsræðu á fimmtudaginn,
en búizt er við, ag hann eigi eftir
að halda enn aðra ræðu fyrir þjóð
aratkvæðagreiðsluna.
Gróður og garóar
Framhald af 13. síðu.
Gulrótarma'ðks varð vart í fá-
einum görðum í Reykjavík í
fyrra .Leggið gulrótarreitina
niður, ef þið finnið ormsmogn
ar gulrætur. Rækta má þar kál
eða kartöflur í staðinn.
Látið Atvinnudeild Háskól-
ans eða Búnaðarfélag íslands
vita ef vart verður við hnúð-
orma, kálæxlaveikt eða gulróta
maðk á nýjum stöðum.
þýðusambandsins og stjórn Far-
manna- og fiskimannasambands
Þinginu lauk á sunnudagskvöld.
Formaður var einróma endur-
kosinn Jón Sigurðsson, Reykjavík.
Aðrir í stjóm voru einróma
kjörnir samkv. tillögu kjörnefnd-
ar:
Ragnar Magnússon, Grindavík,
Sigríkur Sigríksson, Akranesi,
Magnús Guðmundssón frá Mat-
sveinafél. S.S.Í.,
Hilmar Jónsson, Reykjavík,
Sigurður Pétursson, Hafnarfirði
Geir Þórarinsson, Keflavík.
í Sjómannasambandinu eru nú
7 félög með samtals rúmlega 2400
félagsmenn.
St|órnarskráin og IBE
Framhald af 1. síðu.
Þá vék prófessorinn að þeim
grundvallarmismuni, sem væri á
þeim alþjóð'astofnunum, er við
værum þegar aðilar að og Efna-
hagsbandalagi Evrópu, sem nú er
mikið rætt um. Ýmsar alþjóðlegar
stofnanir legðu okkur kvaðir á
herðar og gætu haft afskjpti af
málum okkar. En ákvarðanir
þeirra, þær, sem á annað borð
væru bindandi, væru aðeins bind-
andi fyrir íslenzka ríkið, en fengju
ekki gildi hér á landi, nema fyrjr
tilstilli ríkisvaldsins. Þær væru
þjóðréttarlegar skuldbindingar, en
yrðu ekki settar á bekk með lands-
lögum eða innlendum úrskurðum.
íslenzk stjórnarvöld yrðu sérstak-
lega að gefa þejm gildi hér á landi,
til þess að þeim yrði beitt eða
framfylgt hér. Þá væri og í stofn-
skrám flestra hinna alþjóðlegu
samtaka gert ráð fyrir því að að-
iidarríki gætu sagt sig úr tengslum
við þau.
Um Efnahagsbandalagiö giltu
aðrar reglur. Þar væri vissum
hluta af ákvörð'unarrétti um lands
mál afsalað i hendur alþjóðastofn
unar, og bandalagið fengi rétt til
íhlutunar uon málefni þegnanna,
Efnahagsbandalagið værj „yfir-
ríkjastofnun". Teldi hann því, að
aöalreglan hlyti að verða sú, að
ísiand gæti ekkj gerzt aðili að al-
/ sh t ii i
"1
....... .......... ' .----------------------------------------------------------------------------------------------
Þessl uppdráttur sýnir, hvaða svæði voru mæld í sumar í Faxaflóa. —
ÞaS eru svæðin með punktunum. Ská strlkuðu svæðin hafa áður verið
mæld, aðaiiega með siómælingabátnum Tý. — Tölurnar í hringjunum
merkia hugsanlega skekkju til eða frá.
ið af Faxaflóa er enn þá eftir
að kortleggja á þennan hátt, en
Pétur kvaðst vonast til, að
unnt yrði að halda Því áfram
sem fyrst.
Sjómælingar
Framhald af 16. síðu
á kort. Síðan verður skipzt á
kortum og upplýsingum. Megn
þjóðstofnunum á borð við EBE,
nema samkvæmt sérstakri stjórn-
lagaheimild, eða undangenginni
stjórnarskrárbreytingu, „en ég
skal játa, að sú ákvörðun er
sjálfsagt ekki óumdeilanleg“,
sagði prófessorinn.
Prófessorinn endaði mál sitt
með því að draga saman niður-
stöður sínar. Þar sagði hann m.a.
að hann teldi ástæðu til þess að
setja í stjórnarskrána sérstakt á-
kvæði varðandi heimild landsins
tii þess að gerast aðili að alþjóða-
slofnunum, sem á einhvern hátt
skerði rétt landslaga og stjórnar-
valda. Þar ætti að binda þátttöku
því skilvrði, að hún hefði áður ver
ið borin undir þjóðaratkvæði og
ssmþykkt af meirihluta kjósenda.
Ræðu sína endaði prófessorjnn
með þessum orðum: „Það verður
að setja skilvirkar skorður við
þátttöku íslands í þvílíkum stofn-
rnum og því valdaafsali, er þar af
leiðir. Vegna smæðar sinnar, sögu
sinnar og margháttaðrar sérstöðu
er eðlilegt, að íslendingar sýni
mikla varúð í þeim efnum. Á hinn
bóginn er heimskulegt og gagns-
laust að stinga höfðinu niður í
sandinn og loka augunum fyrir
þeim straumhvörfum, sem nú eru
að myndast á sviði milliríkja sam-
v;nnu. Það er barnalegt að halda,
að sú framvinda fari að öllu fram
hjá okkur íslendingum. En með
skynsamlegu stjðrnlagaákvæðum
eigum við að tryggja, að engin
örlagarík skref séu stigin á því
sviði, án þess að þjóðarviljinn sé
örugglega kannaður.“
Sendi Nasser . . .
,'Framhald af 3. síðu).
ráðuneytisins segir stjórn sína enn
ekki hafa tekið neina ákvörðun
9. ÞING S.U.F.
Eins og tilkynnt hefur veriS verSur 9. þing Sambands
ungra Framsóknarmanna haldiS í Borgarnesi dagana
2., 3. og 4. nóvember n.k, Um tilhögun þingsins og
dagskrár þess verSur formönnum félaganna og stjórn-
um sent bréf mjög fljótlega. Sambandsstjórn hvetur öll
F.U.F.-félög til aS senda fulltrúa til þingsins og minnir
stjórnir þeirra á að boSa til aSalfunda í tæka tíS oq
senda hiS fyrsta félagaskrár tij framkvæmdastjórnar.
um það, hvort hún viðurkenni
stjórn Jemens. Það er haft eftir ör
uggum heimildum, að þessi Skvörð
un verði ekki tekin, fyrr en stjórn
in hafi fengið öruggari heimild-
ir urn ástandið í landinu yfirleitt.
Amman-útvarpið sagði frá því
í dag, að Hussein konungur í Jord-
an hafi fengið skeyti frá Imam
Mohammed el Badr konungi í Je-
men, og var það sent frá Jemen.
í skeytinu skýrir konungurinn frá
því, að Nasser forseti Arabíska
sambandslýðveldisins hafi gtutt
nppreisnarmenn allt frá upphafi.
Samkvæmt Ammanútvarpinu
hafði Imaninn einnig farið þess á
leit við Arabaríkjas-ambandið, að
það kæmi saman til þess að ræða
ástandið í Jemen.
E1 Badr hefur einnig sent Nass-
er skeyti og krafizt þess, að full-
trúi Egyptaiands í Jemen hverfi
á brott úr landinu, þar sem hann
hafi blandað sér í innanríkismál
landsins.
Izman-útvarpið segir, að iman-
inn hafi nú komið upp aðalbæki-
stöðvum sínum fyrir innan landa-
mæri lands síns.
Vigfusarbók
Áskrifendur að Minningabók
Vigfúsar eru vinsamlega beðnir
að vitja bókarinnar ag Tjarnar-
götu 26, kl. 5—7 í kvöld.
Kona fyrir bíl
75 ára gömul kona, Fanney
Tómasdóttir, varð fyrir bifreið á
móts við húsið nr. 42 við Lauga-
veg um fimmleytið í gærdag. Hún
var flutt í slysavarðstofuna. —
Meiðsli hennar voru ekki talin al-
varleg.
Kl. 8 í gærkvöldi var slökkvi-
liðið kallað að Templarasundi 3.
Eldur var þá laus í kössum og
rusli inni í verzlunni, sém þar er
til húsa. Slökkviliðinu tókst að
slökkva eldinn áður en nokkrar
skemmdir yrðu, en húsið er timb-
urhús.
Visrlvsið í Tímanum
T í M I N N, þriðjudagurinn 16. okt. 1962. —
15