Tíminn - 11.11.1962, Qupperneq 2
A FÖRNUM VEGI
LÆKNISLEIT
Lönguin var ég læknir minn,
lögfræðingur, prestur,
smiður, kónigur, kennarinn,
kerra, plógur, hestur.
Menn hafa lengi raulayy þessa
vísu Stephans G. — raulað hama
með angurtrega og samúð með lífi
einyrkjans, þess sem býr að mestu
utan við lijálparkerfi mannlegs
samfélags. Þetta liefur verlð talin
cinhver snjalIaSta og raunsannasta
Iýsing á slíku lífi — Iífi, sem
heyrði fortíðinni til, sem betur
færi.
Nútíma samféla.g manna er
byiggt á öðrum grunni. Steinar
þess grunns eru sérliæfðar og sér-
menntaðar stéttir sem vinna á-
kveðin verk, og þannig vinna
mennirnir saman og hver fyrir
annian. Þroski oig framvinda nú-
tíðar þjóðfélags eru talin mjög
undir því komin, að hver steinn í
þessari bygigingu skipi sitt rúm
vel og bili í en.gu, því að þá getu.r
allt húsið skekkzt.
AÍIar stéttir eru mik'ilvægar, en
tímamir fá þeiin þó verkefni í
hendur með misjafnlegri þýðingu.
f dag er starf þessarar stéttar
mikilvæigast — á morgun annarr-
ar. Verkefni nútíma þjóðfélags
kalla svo misjafnt að. Óhætt mun
þó að fullyrða, að síðustu áratug-
ina hefur vöxtur og framfarir þjóð
arinnar öðru fremur verið kominn
undir starfi þeirra stétta, sem ann
ast vísindi, tækni og menntun.
Það er ekki nema rúm öld síða,n
engar stéttir læknia, verkfræðinga
og kennara voru til í landinu. Nú
er þjóðfél.ag óhugsandi án þess-
ara stétta. Ef þær hyrfu frá okk-
ur, mundum við hrapa í einu vet-
fangi niður á annað tilverustig,
sem meira ætti skylt við hellisbúa
fomaldar en nútíðarmenningu.
Ýmislegt hefur gerzt í þjóðfélagi
okkar síðustu missirin, sem bendir
til, að þessi hætta sér ekki óhugs-
andi.
Menn muna, hvernig gengið
hefur að fá kennara til starfa, og
það er opinbert leyndarmál, að
það er ekki svo vel skipað liði í
alla skóla um þessar mundir, að
hægt sé að segja að öllum fræðslu-
og menntamálum þjóðarinnar sé
vel borgið — og kcmur fleira til
en manneklan. En sleppum kenn-
urunum. Hættan er enn geigvæfl.
leigri í öðru.m stéttum, sem lengri
skólagönigu eiga að b,aki.
Mikil deila hefur undanfarið
slaðið við verkfræðinga og hlé á
í bili. Fjöldi þeirra starfar er-
lendis, og skorturinn hér heima
tefur framkvæmdir þjóðarinnar.
Okkur vantar og fjölda langskóla-
manna til vísindastarfa. Og svo
komum við að læknunum — það
er mál dagsins.
Menn geta vafalaust orðið sam-
inála um ag tvennt sé einna nauð-
syrilegast til þess að efla efnalega
velferð og lífsöryggi — verkleg
kunnátta og læknis- og heilbrigð-
isþjónusta. Hvort tveggja krefst
langmenntunar fremur cn flest
annað. Þeir, sem öðlazt hafa tækni
— og vísindamenntun og læknis-
menntun eru nú eftirsóttastir til
starfa, og þeim standa allar dyr
opnar í flestum löndum heims.Þjóð
irnar heyja harða samkeppni um
þessa menn. Þær kosta kapps um
og spara ekkert til að mennta slíka
menn heima en reyna auk þess að
laða til sín menn af þcssu tagi frá
öðrum þjóðum. Framfarir og lífs-
kjör almennings næstu áratugi eru
talin fara mjög eftir því, hve
marga þessara manna þjóðirnar
hafa að störfum eða fá til starfa
á næstu árum.
íslendingar standa þarna illa að
vígi. Þeir verða að sækja þcssa
menntun ag verulegu leyti út fyr-
ir landsteina. Þeir hafa ekki enn
getað eða viljað bjóða þessum
mönnum lífs- og starfskjör til jafns
við aðrar þjóðir. Afleiðingin er
sú, að þeir hafa misst hlutfalls-
lega fleiri verkmenntamenn, vís-
indamenn og lækna úr landi til
starfa með öðrum þjóðum. Og
cftir síðustu gengislækkanir vant-
ar mikið á, að við séum samkeppn
isfærir um þjónustu þessara
manna.
Það hefur sífellt hallað meira á
ógæfuhlið i þessum málurn og má
segja, ag nú sé komið að þvi að
snarast með læknadeilu þeirri,
sem nú stendur. Yfir vofir, að
VALVER
LAUGAVEGl 48
Við aðstoðum
yður við að
gleðja börnin.
Avallt úrval
af leikföngum.
VALVER
SlMJ 1 56 92
Sendum heim
og I póstkrofu
um land allt.
Sendísveinn óskast
Skrifstofa ríkisspítalanna óskar eftir að ráða sendi-
svein nú þegar. Umsóknir sendist Skrifstofu rik-
isspítalanna Klapparstíg 29.
Reykjavík, 10. nóvember 1962
Skrifstofa ríkisspítalanna
fjöldi lækna fari nú til útlanda
til viðbótar þeim sem þar eru fyr-
ir, en eftir sitjum við með læknis-
laus sjúkrahús og lamaða heil-
brigðisþjónustu.
Því verður varla neitað, að
kröfur lækna eru studdar veiga-
miklum rökum. Þeir hafa bent á
þá staðreynd, að ævilaun þeirra
nái ekki launum strætisvagnabíl-
stjóra. Þetta beinir athyglinni að
því, að laun má ekki eingöngu
miða við mánaðargreiðslur fyrir
starfstíma. Tillit verður einnig að
taka til þess tfma af ævinni, sem
fer í undirbúning starfsins.
Læknisnámið er lengsta háskóla
nám, sem enn er stundað. Læknir
inn, sem numið hefur sérgrein,
á ag baki um 20 ára námsferU
eftir skyldustig fræðslunnar.
Menntaskólanám tekur 5—6 ár.
Háskólanám og skylduþjónusta um
10 ár og síðan sérnám 4—5 ár.
Þegar hér cr komið og læknirinn
getur hafið ævistarfið er hann orð
inn um 35 ára, hefur eytt beztu
árum ævi sinnar í námið, og nú
aðeins eftir um 30 ára starfsferil
ef vel lætur. Starfsferillinn verður
aðcins þriðjungi lengri en náms-
ferillinn. Auðvitað ber þess að
gæta, að þjóðfélagið hefur greitt
að nokkru nám slíks læknis og
þannig greitt honum nokkur náms
laun. En hann á sámt mikið inni.
Þetta verður hann ag fá endur-
greitt í starfslaunum að einhverju
Ieyti á hinni stuttu starfsævi, eða
þá að horfið verði að því að greiða
hærri námslaun.
Læknadeilan minnir á eina
mestu hættu, sem vofir yfir fs-
Icnzka þjóðfélaginu. Sú hætta er
víðfeðmari en læknisleysi. Úr
verður ekki bætt nema frain fari
alveg nýtt mat á brýnustu störf-
um langmenntamanna í þjóðfélag
inu, og á slíku mati verði byggt
kjarakerfi, sem tryggi samkcppnis
hæfni fslendinga uhí þessa menn,
tryggi það, að við verðum ekki að
láta þessa menn af hendi í hópuin
við þær þjóðir, scem belur bjóða.
Þennan grundvöll verður löggjaf
inn að leggja og það er ekki til
setunnar boðið. Bráðustu vand-
ræði, eins og þessa læknadeilu,
verður ríkisstjórnin hins vegar að
leysa í bili, og það verður ekki
gert með dómsúrskurðum eða laga
hoðum, til þess að halda læknun-
um í bóndabeygju en num sinn.Það
verður aðeins gert með samning-
um við læknana um kjör, sem þeir
geta uriað. Annars missum við þá
og getum aftur farið að kveða af
sannfæringu: Löngum var ég
læknir minn.
— Hárbarður.
10.530,00
8.520.00
RÍN AUBLÝSIR:
\
Harmonikur
f t a I s k a r :
\ Zero Sette 62 model 120 bassa 7 skiptingar — Kr.
Zero Sette 62 model 120 bassa 3 skiptingar — Kr
Tombolini 120 bassa 7 skiptingar — Kr. 6,200,00
Scandalli 120 bassa 5 skiptingar — Kr. 5.920,00
Scandalli 32 bassa — Kr. 1.625.00
Scandalli 24 bassa — Kr. 1,475,00
Þ ý z k a r :
ítóyal Standard 120 bassa 5 skiptingar Kr.. 7.980,00
Royal Standard 80 bassa 5 skiptingar — Kr. 5,280,00
Royal Standard 62 model 60 bassa^2 skiptingar — Kr. 3.900,00
Royal Standard 60 bassa 2 skiptingar — Kr. 3.200,00
Royal standard 34 bassa 2 skiptingar — Kr. 2,700,00
Weltmeister 120 bassa 9 skiptingar — Kr. 4,980.00
Weltmeister 120 bassa 5 skiptingar — Kr. 4,900,00
Weltmeister 62 model 80 bassa 5 skiptingar — Kr. 5.863,00
Weltmeister 62 model 42 bassa 5 skiptingar — Kr. 4.900,00
Weltmeister 48 bassa 2 skiptingar — Kr. 3,200.00
Weltmeister 48 bassa — Kr. 2.500,00
Weltmeister 12 bassa — Kr. 1.625,00
Tvöfaldar 8 bassa hnappaharmonikur — Kr. 1,892,00
Tvöfaldar 8 bassa hnappaharmonikkur — Kr. 1,670,00
Tvöfaldar 8 bassa hnappaharmonikur — Kr. 1,290,00
Einfaldar 2 bassa hnappaharmonikur 3 skiptingar — Kr. 894,00
Einfaldar 4 bassa hnappaharmonikur — Kr. 8^4,00
GÍTARAR:
Gítarar frá kr. 388.00
Höfner gítarar krá kr. 1,134,00
Rafmagnsgítarar frá kr. 1,894,00
Höfner rafmagnsgítarar með vibration, tveim pick-up og stilli.
Höfner rafmagnsgítarbassar.
Ilöfner magnarar með vibration kr. 4.820,00
Höfner pick-up frá kr. 315.00
Gítarstrengir, gítarbönd og gítarpokar.
MANDOLÍN
Mandolín kr. 585,00
BLÁSTURSHLJÓÐFÆR'
ítalskir Orsi saxófónar, alt og tenor
ítalskir Orsi trompetar
Klarinett.
Athugið að við póstsendum um allt land
Verzlunin
Njálsgötu 23 — Sími 17692
2
T I M I N N, sunnudagurinn 11. nóv. 1963. —