Tíminn - 22.11.1962, Blaðsíða 10

Tíminn - 22.11.1962, Blaðsíða 10
 I dag er fimmtudagur- inn 22. nóvember. Gec- ilíusmessa. Árdogisháflæði kl. 2.19 Tiingl í hásuðri kl. 8.53 fíedsugæzLá Slysavarðstofan I Heilsuverndar- stöðinni er opin allan sólarhring inn. — Næturlæknir kl. 18—8 Sími 15030. Neyðarvaktin: Sími 11510, hvern virkan dag, nema laugardaga, kl. 13—17. Holtsapótek og Garðsapótek opin virka daga kl. 9—19 laugardaga frá kl. 9—16 og sunnudaga kl. 13—16. Reykjavík: Vikuna 10.11.—17.11. verður næturvörður í Laugavegs- Apóteki. Hafnarfjörður: Naeturlæknir vik una 17.11.—24.11. er Ólafur Einarsson. Sjúkrabifreið Hafnarf jarðar: — Sími 51336 Reykjavík: Vikuna 17.11.—24.11. verður næturvörður í Vestur. bæjarapóteki. Keflavik: Næturlæknir 22. nóv. er Guðjón Klemenzson. F LugáætLcifitir Flugfélag íslands h.f.: Millilanda flug: Skýfaxi fer til Glasg. og Kmh kl. 07,45 í fyrramálið. — Innanlandsfl'ug: í dag er áætl- að að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, — Ve f .nannaeC/’ja og Þórshafnar, — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Fagur- hólsmýrar, ísafjarðar, Homafj., Sauðárkróks og Vestmannaeyja. Loftlelðir h.f.: Snorri Sturluson er væntanlegur frá NY kl. 08,00 fer til Glasg. og Amsteirdam kl'. 09,30. Eiríkur rauði er væntan- legur frá Helsingfors, Kmh og Oslo ki. 23,00, fer til NY kl. 00,30. FerskeytLan Níels skáldi kvað: Ég að öllum háska hlæ hafi sóns á ströngu. Mér er sama nú hvort næ nokkru landi eða öngu. Mætlð vel og stundvíslega. — Nefndin. Háskólafyrirlestur um Rousseau. — Á þessu ári eru 250 ár liðin frá fæðingu Rousseaus og 200 ár síðan frægasta bók hans, Emil, eða um uppeldið, kom út. Rit þetta markar tímamót í sögu uppeldis og uppeldisfræði og er tvímælalaust eitt merkasta rit all'ra alda á því sviði. Af þessu tilefni mun prófessor Símon Jóh. Ágústsson flytja erindi um Rou- sseau n.k. sunnudag, hinn 25. nóv. kl. 2, stundvíslega í hátíða- sal Háskólans. Mun hann fyrst rekja æviferil Rousseaus, síðan drepa á helztu rit hans og þá sérslaklega á Emil. Jafnframt mun hann ræða nokkuð um þau áhrif, sem rit Rousseaus liafa haft, og gildi þeirra fyrir nú- tímamenn. — ÖHum er heimill aðgangur. Félagslíf §Siglingar Félagar eru vinsamlega beðnir að koma munum á bazarinn, sem haldinn verður 2. des. n.k., til skrifstofunnar Bræðraborgarstíg 9, sem allra fyrst. —Sjálfsbjörg. Ljósmæðraféiag íslands hefur skemimtifund að Hverfisgötu 21, mánudaginn 26. nóv. kl. 20,30. Jöklar h.f.: Drangajökuil er í Gdynia, fer þaðan til Hamborg- ar, Fiekkefjord og Rvíkur. Lang jökuU kemur til Camden í dag. Vatnajökull fór frá Rotterdam í gær, áleiðis tU Rvíkur. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Rvik. Esja er á Norðurlands. höfnum. Herjólfur fer frá Vest- mannaeýjum kl. 21,00 í kvöld til Rvíkur. Þyrill er væntanleg- ur til' Reyðarfjarðar 23.11. frá Manchester. Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun til Breiöafjarða- og Vestfjarðahafna. Herðubreið er í Rvík. Hafskip: Laxá fór 21, þ. m. frá Kirkwall til Stornoway. Rangá fór frá Bilbaó 21. þ. m. til Nap- oli. Hans Boye fór frá Stettin 16. þ. m. tU Akraness. Eimskipafélag íslands h.f.: Brú- arfoss kom til Rvíkur 19.11. frá Hamborg. Dettifoss kom til NY 20.11., fer þaðan 30.11. til Rvík. Fjallfoss fór frá Eskifirði 21.11. til Lysekii, Iímh Leningrad, K- mh og Rvíkur. Goðafoss fór frá NY 16,11. til Rvíkur. Gullfoss fer frá Rvík 23.11. til Ifamborg- ar go Kmh. Lagarfoss fór frá Raufarhöfn 21.11. til Húsavík- ur, Dalvikur, Hríseyjar, Siglu- fjarða, Akureyrar og Vestfjarða hafna, Reykjafoss kom til Lyse- kil 19.11. fer þaðan tU Kotka, Gdynia, Gautaborgar og Rvíkur. Selfoss er í Hafnarfirði. Trölla- foss fer frá Þingeyri í dag 21.11. tU Flateyrar, ísafjarðar, Siglu- fjarðar, Akureyrar, Seyðisfjarð- ar, Norðfjarðar, Eskifjarðar og þaðan til Hull, Hamborgar, Gdyn- ia og Antwerpen. Tungufoss fór frá Húsvík 17.11. til Lysekil, — Gravarna, Hamborgar og Hull. Þetta er betra en síðast. Þetta er dálagleg fúlga. Gæfan virðist vera farin að brosa við mér! peningunum, heldur hann til herbergis- Er lestarræninginn hefur gengið frá ins, þar sem Priscilla hefur falið sig. Boð Dreka berast til Wambesiþorps- ins. — WambQsimenn — ekki eldraunina — Dreki skipar. — Berjið trumburnar, allir! Skilaboðin eru yfirgnæfð. — Þetta voru boð frá Dreka Týndu skógum! — Þú heyrðir ekkert • ar hér! Moogoo stjórn Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Antwerpen. Arnar,fe!l fór í gær frá Leningrad áleiðis til Gdynia, Stettin, Hamborgar, Grimsby og íslands. JökulfeU er væntanlega í NY í dag frá Gloucliester. — Dísarfell' losar á Húnaflóahöfn- um. Litlafell fór 18. þ.m. frá Eskifirði áleiðis til Hamborgar. Helgafell er á Raufarhöfn. — Hamrafell fór 17. þ.m. frá Rvík áleiðis til Batumi. Stapafell fer í dag frá Rvík áleiðis til Norður- landshafna KR. — FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD. Aðalfundur deildarinnar verður haidinn í kvöld kl. 20,30 að Café Höll. — Dagskrá: Venjuleg að- alfundarstörf. Félagar fjölmenn- ið. — Stjórnin. Fréttátilkynningar Frá Náttúrufræðlfélaginu. Litar. erfðir sauðfjár. — Á fundi í Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi í 1. kennslustofu Háskólans mánudaginn 26. nóv. kl. 20,30 mun Stefán Aðalsteinsson, bú- fjárfræðingur flytja erindi, er hann nefnir Litarerfðir sauðfjár, og sýna skuggamyndir tU skýr- ingar. — Undanfarin sex ár hef ur Stefán Aðalsteinsson unnið að rannsókn þessa efnis á veg- um Búnaðardeildar Atvinnudeild ar Háskólans. Þær rannsóknir hafa leitt í Ijós ákveðin lögmál eða reglur fyrir því, hvernig litur sauðfjár erfist frá foreldr- um tU afkomenda. Þessar reglur hafa sauðfjárbændur þegar not að sér með góðum árangri til að fá verðmætari gærur af fé sínu. Erindi Stefáns mun fjalla um þessar rannsóknir og árang- ur þeirra. Aðalfundur Rithöfundafélags ís- lands var haldinn sunnudaginn 11. nóv. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa, ftutti formaður Rithöfundasambands íslands, Björn Th. Björnsson, skýrslu um starfsemi sambandsins á síð- astliðnu starfári. Umræður urðu um hana, vo og um marg- vísleg hagsmunamál rithöfunda önnur, og félagsleg verkefni, sem framundan eru. í\ stjórn Rithöfundafélags íslands voru kjörnir eftirtaldir menn: Frið- jón Stefánsson, form.; EUas Mar ritari; Baldur Óskarsson, gjald- keri; meðstjórnendur: Kristján Bender og Sveinbjörn Beinteins son og endurskoðenduir: Jóhann Kúld og Sigríður ELnarsdó&tir frá Munaðarnesi. í stjórn Rithöf- undasambands íslands næsta ár voru kjörnir: Jóhannes úr Kötl- um og Björn Th. Björnsson; í stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisút- varpsins: Jón úr Vöir. — í Rit höflundaféiagi fslands eru nil rúmlega 70 manns. Eiríkur og Ervin gengu um rjúkandi rústirnar og athuguðu vegsummerki. Margir manna þeirra voru fallnir. Arna benti á eitt líkið, og sagði, að þetta væri hermaður Njáls, sem hefði tekið þátt í árásinni. Enginn lifandi maður sást í grennd né heldur neitt, sem benti til, hvaðan árás- armennirnir hefðu komið, eða hvert þeir hefðu farið. Arna rann sakaði svæðið gaumgæfilega. Allt í, einu kallaði hún til Eiríks: — Þeir hafa farið þessa leið! Eirík- ur hraðaði sér til hennar og hún benti honum á ógreinileg spor sem þau röktu svo inn í skóginn. Arna fór fyrst, þar sem hún átti auðvelt með að rekja spor, en skyndilega rak hún upp óp Eiríki brá illa við. er hann sá, að stúlk an hélt á hárbandi Vínónu. 25 H J * A L IVI l) R B3SK- 10 'HIN N, fimmtudagurinn 22. nóv. 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.