Tíminn - 23.11.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.11.1962, Blaðsíða 1
::,/h : Meira siðleysi er erfitt a8 hugsa sér en skrif þau, seni Mbl. birtir í gær um þá Fram- sóknarmenn, sem eiga setu á þingi ASÍ. Svo gersamlega er þar öllu ídiúið við, að því er haldifc' fram, að Framsóknarmenn hafi unnið þar gegn lögum og rétti. Það voru einmitt Framsóknar- menn, sem tryggðu það með af- stöðu sinni, að úrskurður Fé- lagsdóms var að öllu leyti tek- inn til greina og þannig komið í veg fyrir þá óhæfu og sundr- ungu, sem æsingamenn komm- únista og Sjálfstæðisflokksins létu sig dreyma um. Afgreiðslan á kjörbréfum Framhaid a L5 síðu Framsóknarmenn í ASI tryggðu inngöngu UV samkvæmt dómnum og björguðu aiþýðusamtökunum frá því að klofna Ágreiningur um kjörbréf í gietfa sinn breytir engu um niðurstöðu. Það er nú aujfljóst á öllu, að forustumenn Sjálfstæðis- flokksins hafa ætlað að kljúfa Alþýðusamband íslands. Fyr- irætlun sína um þetta, byggðu þeir á þeirri von, að komm- únistum tækist að fá því fram gengt á þingi ASÍ, að úrskurð- ur meirihluta Félagsdóms um inntöku LÍV yrði ekki tekinn til greina. Það tilefni ætlaði Sjálfstæðis- flokkurinn að nota til þess að kljúfa Alþýðusambandið. Þetta komu Framsóknarmenn á þingi ASÍ í veg fyrir og fengu því fram- gengt, að þingið viðurkenndi dóm- inn. Út af þessu hafa forustumenn Sjálfstæðisflokksins o.g þó sérstak lega flokksformaðurinn, Bjarni Benediktsson, alveg tryllst og eru skrif Mbl. um þessi mál í gær hin ofsalegustu, sem nokkru sinni liafa sézt í íslenzku blaði. Það var Ijóst strax og kunnugt varð um úrskurð meirihluta Félags dóms, að komúnistar vildu, að þing Alþýðusambandsins hefði hann engu. Með því að neita að hlýða dómnum, hefði Alþýðu- sambandið gert sig sekt um að ganga á móti lögum og rétti í landinu. Dómum aðila eins og fé- iagsdóms verður að hlíta hvort sem menn telja þá rétta eða ranga. Það var von forustumanna Sjálf- síæðisflokksins, að kommúnistum myndi heppnast þessi fyriræt'lun. Það tilefni ætluðu þeir að nota til að kljúfa Alþýðusambandið og siofna annafl verkalýðssamband, sem átti síðan að veita opinbera viðurkenningu. Meg »'ð var ekki farið dult af hálfu ýmissa tals- nianna Sjálfstæðismanna, að þetta væri ætlunin og var þegar farið að hlakka yfir því, að með þessu myndi takast að gera verkalýðs- hreyfinguna áhrifalausa. Þessar vonir brugðust hinsvegar fullkomlega, þegar Framsóknar- menn komu því til vegar á þingi Alþýðusambandsins, að úrskurður Félagsdóms væri fullkomlega tek- inn til greina og LÍV viðurkennt sem fullgildur aðili að ASÍ. Þetta var gert með þeiip hætti, að þing- ið ákvað að taka til meðfgrðar kjörbréf fra LÍV, en í því fólst a? taka úrskurð félagsdóms til greina og þar með viðurkenning á því, að LÍV væri komið í ASÍ. | Vitanlega eru ekki tekin fyrir Itjörbréf frá öðrum félögum eða samböndum en þeim, sem eru við urkenndir fullgildir aðilar. Þetta var líka strax viðurkennt | í blöðum stjórnarflokkanna daginn eftir, eins og sézt á fyrirsögnum þeim í Vjsi og Alþýðublaðinu, sem eru birtar á öðrum stað. Með þessu höfðu Framsóknar- menn tryggt það, að farið var eft- ;r lögum og rétti. Öfgamenn komm únista. sam ekki vildu hlíta úr- skurði meirihluta Félagsdóms urðu hinsvegar æfareiðir og sama gilti um forustumenn Sjálfstæð- isflokksins, þó einkum Bjarna Benediktsspn, er sáu, að með þessu voru að engu gerðar þær vonir þeirra, að hægt væri að fá tilefni lil að kljúfa verkalýðssamtökin Þessi reiði Bjarna Benediktsson ar fær lausan tauminn á forsíðu Mbl. í gær. en þar er ráðist með roeiri heift a Framsóknarmenn en dæmi eru til um áður og er þá mikið sagt. Sú átylla er m.a. notuð til að réttlæta þessar árásir, að frestað var að taka kjörbréf LÍV gild, þar sem fullnægjandi gögn voru ekki j talin fyrir hend; né timi til að athuga þau. Slíkt er algeng af-. greiðsla á kjörbréfum og breytir j ekki neinu um það, að LÍV er! íullgildur aðili að ASÍ. Þannig' leikur enginn vafi á því, að Verka 1 Prarnh a 15 siðu TVEIR ÚÁNÆGDIR BJARNI BENEDIKTSSON * BJARNI BEN. og íhaldið vonuðust eftir: Að dóm- urinn yrði hundsaður og þeir fengju átyllu til að kljúfa al- þýðusamtökin og lama áhrif þeirra um langa framtíð. Þetta komu Framsóknarmenn á Al- þýðusambandsþingi í veg fyrir, — því er Bjarni nú óður. * KOMMÚNISTAR v i 1 d u: EINAR OLGEI'RSSON Að dómurinn yrði hunds- aður og hafður að engu. Þetta hefði skapað lögleysisástand í landinu og leitt til klofnings alþýðusamtakanna. — Þessu fengu kommúnistar ekki ráðið, Framsóknarmenn á þingi ASÍ sáu um það. Sáu um, að dóm- urinn væri tekinn til greina og LÍV viðurkennt löglegur félagi í ASÍ. ★ HÉR eru fyrirsagnir Vísis og Alþýðublaðsins í fyrradag, er sagt var frá ASÍ-þinginu, og er hin efri úr Vísi. Þessar fyrirsagnir eru ekki myrkar í máli og sýna, að blöðin telja það fullgildingu á kjörbréfum LÍV að taka þau fyrir á þing- inu. Samþykkir að ræða verður jf, ’íitííiloðu, j/figar þaír bcita sér- smdrlu lýúriuðihsinna í íyrra ?,iuníö og kommún- SIÐLAUS MALFLUTNINGUR STAÐREYNDUM SNÚIÐ VIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.