Tíminn - 23.11.1962, Side 2

Tíminn - 23.11.1962, Side 2
fsmeyjan Slrry Geirs- dó'l’tlr — neydd af rfkisstjórn sinni til a'ð snúa bakinu við bandarísku hermönnunum, Stúlkurnar búa landi ■ IS I kuldans ísland á við vandamál að stríða: Fallegar stúlkur og bandarískt herlið. Og lausn á vandamálinu er fundin — ekkert samneyti. íslenzkar stúlkur eru með- al hinna fegurstu í heimi. Hið tæra loft gefur þeim gallalausa húð og fallegan litarhátt, og erfiðisvinna sér þeim fyrir fallegum vexti. Ætla mætti, að þetta væri mjög ákjósanlegt fyrir þá f jögur þúsund hermenn, sem staðsettir eru við eina NATO bækistöðina, í Keflavík, — þrjátíu mílur fyrir utan höf- uðborg landsins, Reykjavík. En viti menn; þessir blóðheitu hermenn eru skildir frá ísmeyj- unum með ósýnilegum múr, sem þó er eins áhrifamikill og Berlín armúrinn. fslendingar vilja halda stúlkun- um sínum á eyjunni, því að í svo einangruðu og ditlu þjóðfé- lagi — íbúafjöldi aðeins 170,000 — er vinna þeirra mikilvæg fjár hagslega. Svo að um leið og ríkisstjórn- in viðurkennir b^kistöðvarnar í Kcflavík frá hernaðarlcgu sjónar miði, hefur hún neytt fyrirliða setuliðsins til að draga úr félags legu sambandi milli hermanna og íslenzkra stúlkna, svo að heita má að það sé ekki neitt. Þvf er ekki einkennilegt, að það að vera staðsettur á íslandi, sé óttalegasti dómur, sem hægt er að fá innan .bandaríska hersins. Bak við gaddavír Há gaddavírsgirðing umkrng- ir bækistöðina á Keflavíkurflug- velli. Og, þar er stöðugt haldinn vörður af íslenzku lögreglunni og bandarískri herlögreglu. Þar til fyrir skömrnu var að meðaltali aðeins einn hermaður af hundraði, sem nokkurn tíma hafði komið út fyrir girðinguna frá komudegi til brottfarardags. Þeir einu, sem höfðu útgöngu- leyfi, voru þeir heppnu kvæntu menn, sem konurnar höfðu fylgt eftir til íslands á eigin kostnað. Konur þeirra búa í þorpinu (Keflavík), þar sem íslending- arnir láta þær aldrei gleyma, að þær eru óvelkomnir gestir í ó- kunnu landi. En jafnvel þessir öfundsverðu menn verða að vera komnir aft- ur til bækistöðvanna klukkan tíu á kvöldin nema á miðviku- dögum, þá mega þeir vera úti til miðnættis. Þótt undarlegt megi virðast, er miðvikudagur sá dagur vik- unnar, þegar þeim tveimur veit ingastöðum, sem hafa vínveit- ingaleyfi, er bannað að selja á- fengi. Nú eru samt aðstæðurnar að- eins og skána. Hópi hermanna er leyft að yfirgefa bækistöðvarnar til að skoða bæinn, en þeir verða að vera komnir aftur klukkan hálfellefu um kvöldið. Takist þeim að komast hinn hálfunna og illfæra veg til Reykjavfkur, þá bíður þeirra þar lítið. Þar eru engir barar, bjór- inn er óáfengur. Og kvikmynda húsin tvö sýna kvikmyndir, sem eru miklu eldri en þær, sem sýndar eru innan vallarins. Yfirvöldinu, — trú minning- unni um hinn hræðilega atburð árið 1956, þegar liðsforingja frá Virgíniu tókst að sigrast á varð- mönnunum við girðinguna og hitta Ágústu Guðmundsdóttur, Ungfrú ísland, árið 1956, og loks kvænast henni, — sjá um, að enginn maður komist svo út fyr- ir girðinguna, að hann geti stofn að til alvarlegs sambands við íslenzka stúlku. Reglurnar banna einnig, að nokkrar gjafir séu fluttar út fyrir múrinn. Ekki einu sinni konfekt kassi kemst í gegnum hliðið — og hraustir leynilögreglumenn rannsaka hvern þann, sem yfir- gefur bækistöðina. Eins er bannað að koma með stúlkur inn á völlinn, svo að eina tækifærið til að eygja þess ar fornfrægu vikingafegurðardís ir er því á formlegum samkom- um, sem haldnar eru í hinum ýmsu klúbbum vallarins. Þangað koma um það bil tíu stúlkur, sem atvinnu hafa á vellfnum, og yfir- völdin sjá um, að efns margar þeirra og mögulegt er, séu gift- ar. Til þess að milda hjörtu full- trúa íslenzku ríkisstjórnarinnar, sem standa fast á þessum föstu reglum til verndar kvenfólki þjóðarinnar, komu Ameríkanarn ir fyrir sjónvarpi á vellinum ár- ið 1955. Tólf stundir á dag sjón- varpa þeir dagskrá, sem áður hefur verið sýnd í Ameriku. Og það gera þeir ókeypis. Ameríkanarnir ætluðu sér að leyfa íslendingum að njóta þessa ókeypis, þetta átti að vera nokk- • urs konar vinarbragð. Þetta héldu þeir að myndi tengja þess ar tvær þjóðir meiri vinarbönd- um. Engin samvinna En íslendingar samþykktu því aðeins starfsemi stöðvarinnar, að geislinn væri svo veikur, að \ hann næði ekki yfir meira en þessar tilteknu 25.000 ekrur. — Þeir vildu ekki eyðileggja íslend- inga með erlendum sjónvarps- dagskrárm" Og hermennrnir sitja daprir á kvöldin fyrir innan gaddavírs girðinguna og horfa á ógreini- legt sjónvarp, sem sjónvarpað er frá undirhlöðnum aflgjafa. Fyrir utan sitja svo hópar af einmana, ljóshærðum fegurðar- dísum og hlusta á islenzku út- varpsstöðina, sem útvarpar reglu lega viðvörunum til hlustenda um að skemma ekki hið hreina, islenzka mal sitt með útlendum orðum efns og „Juke-box“, „ham burger“ og „darling", sem hinir óvinsælu Ameríkanar smygla inn í landið. Það er einmanalegt líf fyrir inn an klausturmúrana, eins Ameríkanar kalla völlinn í gríni Grein þá, seni hér fer á eftir, rákumst við á í enska tímaritinu T o D a y . Þótti okkur að vonum hún vera allfurð'uleg og langaði til að birta hana íslenzkum lcsendum til „fróðleiks“ — Þætti okkur gaman að vita, hvar blaðamaðurinn, sem skrifaði greinina, John Griffiths, hefur fengið allar þessar upplýsingar, og enn fremur hvar hann hefur komizt yfir myndina af Sig- ríði Geirsdóttur, sem hann lætur vera nokkurs konar táknmynd fyrir allt íslenzkt kvenfólk. — Grein, mynda- tcxti og fyrirsögn er allt saman þýtt orðrétt upp úr áðurnefndu ensku tímariti. i og En öllum íslenzkum stúlkum Keflavíkur- ber saman um það, að enn ein- manalegra sé fyrir utan. Kammertónleikar Kammermúsikklúbburinn gekkst fyrir tónleikum í Samkomusal Melaskólans, þ. 19. nóv. s.l.,Nú á þessu starfsári hafa Sinfóníuhljóm sveitinni bætzt nýir starfskraftar, harpa, óbó og flauta. Þetta fólk lét nú til sín heyra, og er fróðlegt að kynnast starfsemi þess utan ramma hljómsveitarinnar. Hárpa, sem Jude Mollenhauer Webster lék á, skipaði mestan sess á þess- um tónleikum. Þetta gamla, fín- lega og heillandi hljóðfæri, er ekki mjög kunnugt konsertgestum hér í reynd, og því ánægjulegra að stofna til kynna við það. í upphafi tónleikanna léku þau Daniel eg >ide Webster, sónötu fyrir óbó og hörpu, eftir Handel. Webster virðist ágætur óbóleikari, en smávegis álag á hljéðfærinu og taugaóstyrkur urðu þess valdandi, að leikur hans varð heldur lausari í reipunum, en vera þyrfti. Frú Jude Webster lék með á hörpu, og er hún allt í senn skemmtileg og örugg við sitt hljóðfæri, rólegur og yfirv^gaður leikur hennar var mönnum til óblandinnar ánægju. „Largo“ Handels fyrir óbó og hörpu var í túlkun þeirra hljóna einu mum of rösklega flutt. Sónötu fyrir einleikshörpu, lék frúin af skilningi og festu, og tvo spánska dansa túlkaði hún af mjög öruggri „rytmakennd" Eftirtektarvert ein- leiksverk fyrir einleiks-óbó eftir B- Britten, gat óbóistinn ekki lokið við, vegna smágalla á hljóðfæri hans, en að lokum léku þau Jude Webster, harpa; Averil Wiliams, flauta og Einar Sveinbjörnsson, viola, tríósónötu eftir Debussy, sér kennilegt og fínlegt verk, sem þau þremenningarnir fluttu af alúð og vandvirkni. A. Williams er flautu- leikari hjá Sinfóníuhljómsveitinni, og cr hún bæði örugg, og hefur vald á sínu hljóðfæri, þótt stund- um vilji bregða fyrir hrjúfum tón hjá henni. Einar Sveinbjörnsson, sem einnig er fiðluleikari hjá hljómsveitinni, kynnti sig þarna sem mjög góðan „bratch“-leikara. Tónleikar þessir voru léttir og aðgengilegir og vel af hendi leystir. Unnur Arnórsdóttir. Rafmagnstalíur 400—800—1500 kg. fyrirliggjandi — HÉÐINN — Vélaverzlun Þvotfavélin MJÖLL fœst nú aftur hjá okkur — HÉÐINN — Vélaverzlun Æðardúnsæng er nytsöm og góð jólagjöf Vöggusængur - Æðardúnn Koddar — Sængurver (damask) Drengja- og unglingajakka- föt frá kr. 780,—, stærðir frá 6—14 ára Matrósföt frá 2—7 ára frá kr. 535,— Matróskjólar frá 3 ára Drengjapeysur, Drengja- skyrtur, hvítar. Srepnælonsokkar Sokkabuxur frá kr. 95.— Póstsendum Sími 13570. Vesturgötu 12 2 T f M I N N, föstudagurinn 23. nóvember 1962

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.