Tíminn - 23.11.1962, Page 3

Tíminn - 23.11.1962, Page 3
Veldur Preludin vansköpun? NTB—Stokkhólmi, 22. nóv. Komið hefur í Ijós við rannsóknir í Svíþjóð, að 49 börn af 131, sem fædd- ust vansköpuð vegna notk- unar móðurinnar af lyfinu Thalidomide, hafa látizt. Félagasamtök, sem stofnuð hafa verið með það fyrir augum að aðstoða Thali- domide-börnin, hafa farið fram á að fá samstundis fjárhagsaðstoð frá stjórn- inni. Foreldrar þessara vansköp- uðu barna standa fyrir stofnun félagsins, og fór fulltrúi þeirra á fund Rune Johannsson inn- anríkisráðherra um leið og dagblöðin skýrðu frá því, að enn eitt lyf hefði fundizt, sem orsakag gæti vansköpun. Þýzkt fyljafyrirtæki hefur aðvarað fólk, eftir að kona nokkur í Englandi fæddi tvö vansköpuð börn, en hún hafði notað megrunarlyfið PRELU- DIN. Ake Liljestrand dósent sagði í dag, að rannsóknir sem heil- brigðismálaskrifstofan hefði látið fara fram, og framkvæmd ar eru af sérfræðingi hennar, Jan Winberg, hafi ekki leitt í Ijós að börn hafi fæðzt vansköp uð vegna notkunar móðurinn- ar á preludin. Frekari rann- sóknum ei ætlað að leiða í ljós, hvort önnur lyf en Thalidom- ide geta orsakag vansköpun, sé þeirra neytt á meðan móðir gengur með barn sitt. Preludin er eitt þeirra megr unarlyfja, sem notuð hafa ver- ið sem nautnalyf í Svíþjóð á undanförnum árum, en þau fimm ár, sem það hefur verið selt þar, hefur það aðeins ver- ið selt gegn lyfseðli, og er þvr ekki talið, að neyzla þess hafi verið mjög mikil Kyrrt á laitdamæniniim Indverjar báða átekta í fyrsta sinn um árabil ríkti algjör kyrrð á landamærum Indlands og Kína í dag. Kín- verska varnarmálaráðuneytið staðfesti, að í samræmi við vopnahléstilboð Kínverja hefðu herir þeirra hætt allri skothríð á tilsettum tíma. Þá berast þær fréttir frá Nýju Delhi, að Indverjar muni ekki formlega taka afstöðu til vopnahlésins, heldur verði her irnir gerötr reiðubúnir til frekari átaka, ef til þess kynni að koma, að Kínvrjar hefji aftur árásir. I þessu sambandi er sagt í Nýju Delhi, að bæði Nehru og samstarfs menn hans hafi misst allt traust sitt á Kínverjum, og ætli ekki að láta koma sér að óvörum einu sinni enn. Grunur manna ér sá, að flutn- ingaleiðir Kínverja séu orðnar svo langar, að nú neyðist þeir til þess að hætta aðgerðum á með- an þeir tryggja aðstöðu sína bet- ur, og um leið hafi þeir hafið frið- arherferð til þess að afla sér stuðnings Afriku- o.g Asíuland- anna. KÍnverjar segja, að í dag hafi indverskar flugvélar látið ófrið- lega yfir kínverskum stöðvum við Spanggur-vatnið í Ladakh, en Kín- verjar hafi ekki hafið skothríð. f V. - Þjóíverjar hafa í hótunum Vestur-þýzka stjórnin hef- ur tilkynnt aðildarríkjun- um að Efnahagsbandalagi Evrópu, að hún muni neita að viðurkenna aukaaðildar- samninga milli EBE og 18 sjálfstæðra Afríkuríkja, ef þessi ríki viðurkenna aust- ur-þýzku stjórnina, að því er haft er eftir áreiðanleg- um heimildum í Brússel. Aukaaðildarsamningar við þessi ríki áttu samkvæmt áður gerðum áætlunum, að ganga í gildi 1. janúar 1963, en starfs- maður vestur-þýzka utanríkis- ráðuncytisins, Rolf Lahr, skýrði frá þessari afstöðu lands síns á fundi ráðherranefndar- innar í síðustu viku. Lahr er sagður hafa skýrt frá því, að stjórn hans hafi bor- izt uppiýsingar varðandi það, að eitt hinna afríkönsku ríkja sé nú að velta því fyrir sór, hvort það eigi að viðurkenna austur-þýzku stjórnina. Ekki rr vitað, við hvaða ríki er átt, en stjórnmálamenn í Briiss el telja, að hér sé átt við lýð- yeldið Mali. Þjóðverjinn tók mjög fasta afstöðu til þessa máls, og komu fram þrjú aðalatriði í ræðu hans: 1. Ef það er rétt, að afrík- anskt ríki hefur í hyggju að viðurkenna Austur-Þýzkaland, þá mun Vestur-Þýzkaland ekki undirrita aukaaðildarsamning- inn. 2. Viðurkenni afríkanskt ríki Austur-Þýzkaland milli þess að samningurinn hefur verið undirritaður og þar til þing landsins hefur staðfest hann, þá mun vestur-þýzka þingið ekki staðfesta samninginn. 3. Viðurkenni ríkið h:ns veg ar Austur-Þýzkaland eftir að vestur-þýzka þingið hefur stað fest samninginn mun vestur- þýzka stjórnin krefjast þess, að framfarasjóður Evrópuland anna hætti að veita viðkom- andi landi fjárhagsaðstoð. EBE-rlkin sex hafa ákveðið, að veita Afríkuríkjunum 730 milljón dollara aðstoð úr evr- ópska framfarasjóðnum. Ekkert hinna aðildarríkj- anna í EBE er sagt hafa stutt Lahr. Frakkland er mjög á mqti aðgerðum sem þeim, er La’hr stakk upp á, þar eð all- flest ríkjanna 18 voru áður franskar nýlendur. Margir fulltrúarnir á fundin- um reyndu að skýra fyrir Lahr að aukaaðildarsamningur sá, sem hór um ræðir sé einungis viðskiptalegs eðlis, og að hann hafi ekkert stjórnmálalegt gildi. Þá lögðu þeir einnig áherzlu á það, að þrátt fyrir það, að Bonn-stjórnin viðurkenni ekki austur-þýzku stjórnina eigi sér stað mjög þýðingarmikil við skipti milli landanna. Kínverjar hafa þó vakandi auga með stöðvum Indverja. Kínverska stjórnin hefur látið í ljós von um, að Indverjar athugi nákvæmlega vopnahléstilboðið, því það hafi verið borið fram í von um að svar Indverja yrði jákvætt og í samræmi við þetta hafi Kínverj- ar hætt við að skjóta á flugvél- arnar. Indverski herinn bætir nú að- stöðu sína á norðaustursvæðinu fyrir norðan Tezpur til þess að geta stöðvað sókn Kínverja niður í Assam-dalinn, ef bardagar hefj- ast aftur. Formælandi varnarmála ráðuneytisins sagði í dag, að í nánd við bæþin Foothills hefðu Indverjar enn samband við kín- versku hcrmennina, en neitaði að svara því, hvort hér væri um að ræða vopnaviðskipti, Austast við landamærin l"nágrenni Walong hafa Indverjar sett upp nýjar stöðvar vjg Hayuliang, 130 km. neðar í Lohitdalnum. Sendinefndir Bandaríkjanna og Breta eru komnar til Delhi, og þangað eru einnig komnar 12 stór ar flutningaflugvélar frá Banda- ríkjunum, sem flytja eiga vistir og hergögn til vígstöðvanna. Þá eru væntanlegar tvær vélar frá Áíitraliu, an ástralska stjórnin hefur ákveðið að senda 12.000 byssur til Indlands, og eru þær sams konar þeim, sem NATO-her irnir nota. Fjórar Dakota-vélar frá Kanada eru komnar til Delhi en þær eiga að annast flutning á hermönnum og vistum. Verzlunarmálaráðherra Breta, Frederick Erroll hefur mælzt til þess við ráðherra kínversku stjórnarinnar, sem fjallar um ut- anríkisverzlun, Lu Hsu-Chen, að hann fresti vináttuheimsókn sinni Framh á 15, síðu 4 Börn farast NTB—Barcelona, 22. nóv. Fjögur börn létu lífið og 25 slösuðust hættulega, þegar áætl- unarbíll keyrði út af 90 metra hárri hæð í nánd við Barcelona í dag. Börnin höfðu verið að skoða sögufrægt munkaklaustur í fylgd með kennara sinum i Santa Creus í Ttyragona-hóraðinu. J VISSU UM SAMBAND WICHT VID SPIEGEL NTB-Bonn, Berlín, 32. nóv. Á mánudaginn hefur Aden- auer viSræSur í þeim tilgangi aS finna lausn á stjórnardeil- unni. Á sunnudag fara fram kosningar í Bayern og er bú- ist viS aS úrslit þeirra muni hafa nokkur áhrif á, hver verSur framvinda mála. Franz Josef Strauss varnarmála ráðherra, og sá, sem deilan stend ur um innap stjórnarinnar, er for ingi Kristilegra demókrata í Bay- ern. Skýrt hefur verið frá því i Þýzkalandi, að einn af starfsmönn um vestur-þýzku öryggisþjónust- unnar, Adolf Wicht, hafi staðið í sambandi við Der Spiegel. en Wicht var handtekinn fyrir nokkru. Er Wicht sagður hafa skýrt blaðinu frá því. að beita ætti það einhverjum aðgerðum, áður en lögreglan gerði húsrann- sókn á skrifstofum þess og hand- tók nokkra af starfsmönnum blaðsins, Örygglslögreglan hefur staðfest, að hún hafi vitað um samband Wichts við blaðið og látið það gott Heita, en þó ekki ætlazt til þess að hann skýrði því frá hin- um væntanlegu aðgerðum. NTB—París, 22. nóv. Rene Coty, fyrrverandi forseti Frakklands er látinn, 80 ára að aldri. Coty sat um árabil í franska þinginu, og einnig hafði hann með hönd- um fjölda ráðherraembætta, m.a. var hann innanríkisráð herra á árunum milli heims styrjaldanna og endurreisn. arráðlierra eftir síðari heimsstyrjöldina. Hann var kosinn forseti 1953, en það var síðasta opinbera emb- ættið, sem hann hafði með höndum. Átta féllu í Suður Afríku NTB—Höfðaborg, 22. nóv. Átta menn féllu, er til átak; kom milli lögreglunnar í bænun Paarl um 50 km. frá Höfðaborí og hóps manna, sem æddi um göt ur borgarinnar. Tveir þeirra, sen létu lífið í þessari viðureign, von hvítir. Talið er að orsakirnar, sem leiddu til þessara átaka, séu hand- tökur 7 blökkumanna í fyrri viku, cn þeir voru sakaðir um morð. Að þessu sinni voru 18 blökkumenn handteknir. Fúsir til samvinnu NTB—Stokkhólmi, 22. nóv. í kvöld voru samþykkt- ir stjórnarfundar SAS I Zurich birtar opinberlega í Stokkhólmi, og segir þar, að SAS muni halda þeim fyrirvara. sem gerður var á lATA-ráðstefnunni um flugtargjöld yfir Atlants- hafið. Forstjórinn KarL Nilsson vildi ekkert segja um það, hvort búast mætti vig dipló- matiskum aðgerðum gegn ís- landi þagar hann kom frá Zurich. „Um slíkt get ég ekki sagt?,“ sagði hann. Nilsson lagði áherzlu á það, að SAS hafi stungið upp á sam vinnu „Við erum fúsir að ræða hvaða tiiboð sem er,“ sagði Nilsson. Þó vildi hann ekki segja neitt um það, í hverjum hætti þessi samvinna gæti orðið 3 í M I N N, föstudagurinn 23. nóvember 1962 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.