Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 9
Mínir menn: aS draga fisk. sem fyrstur upp hóf þann söng, að ekki væri annað vel skrifað hér á landi en það, sem g' er í fýlu eða grátandi. Ég hélt það væri nú karlmannlegra fyr ir þá, sem hafa eitthvað til mála að leggja, að viðstaddjr bresti ekki endilega i grát. Lengi hafði ég það fyrir satt, að skáld gerðu sína hluti bezta með þvi að hafa þá sem einfaldasla og Ijósasta. Nú er sú breyting á orðin, að skáldin gera skrif sín sem allra torráðnust. — Ætli þessi leit að nýjum braut- um til hjarta og kirtla, eða eigum við að segja, svo við séum nógu hátíðleg, þessi leit að tröðum að gollurshús- um manna, ætli hún sé ekki komin út f gönur? Ég bið for- láts á því hvað ég er vitlaus, en ég held það sé mergurinn málsins, að vel sögð saga sé góð saga, hef ekki þekkt neinn annan bókmennta- mælikvarða. Það skipti ekki máli, hvort um sé að ræða skáldsögu, frásögu eða ævi- sögu, og raunar ekki heldur, hvort skrifað er um fjósakonu eða Napóleon. — Ég man ekki * í svipinn eftir dýrlegri bók en þeirri, sem Gorki skrif- aði um bernskuár sín og fólkið, sem hann umgekkst þá. — Eru margir húmoristar í bókmenntum, sem þú dáist að? Hverjir finnst þér góðir hjá okkur? — Af yngri mönnunum man ég ekki eftir nema einum, Jónasi Árnasyni. Mér finnst hann skemmtilegur sagnamað- ur, sem hefur ísmeygilegan og yfirlætislausan húmor. Og svo útlendingarnir? Já, hvers konar fólk það er nú, sem vill halda því fram, að það eigi ekki ekki skylt við bókmenntir, sem ligg- ur eftir karla eins og þá ágætu ameríkana Mark Twain, Dam- on Runyon og James Thurber. Hemingway sagði ufn Thurb- er: „We all knew he had it in him, if he only could get it out‘\ — Hvað um húmorista í elnri bókmenntum? — Aristophanes gamli þykir nú nógu góður nú orðið, enda er hann búinn að vera dauður alllengi. Svo er um marga, þeg- ar þeir eru fyrir löngu hættir að vera hættulegir. Og þegar þeir eru líka dauðir, sem sveið undan þeim. Hér hjá okkur eru til menn, sem þykir Atómstöð- in slæm. Það fer ekki milli mála, að Sókrates var geysileg- ur húmoristi, og það var þess vegna, sem þeir drápu hann. E.t.v. má til sanns vegar færa, að einhver óheilindi séu í húm oristanum, en honum bitur bet ur en öðrum. Ef einhverjum ágætis Þjóðverja hefði tekizt að fá sína menn til að hlæja að Hitler, þá hefðum við kann ske sloppið við heimsstyrjöld- ina. Ef til vill hefur Remarque skrifað Obeliskann einum mannsaldri of seint. Það er um að gera, að maðurinn segi sína sögu ógrátandi og í engri fýlu. — Þú hefur unnið með Karli Guðmundssyni leikara og þú hefur gaukað ýmsu í hann, er það ekki? — Kalli er stórmerkilegur miðill. Það hefur verið gaman að vinna með honum og sjá hann og heyra tjá ýmis við- horf stjórnmálamanna, sem þeim í önn og erli dags- ins hefur láðst að taka undan mælikerinu. Já, Karl er afburða eftirherma, og fólkið hefur kunnað að meta hann. En sár- grætilegast af öllu er það, að fólkið skuli ekki byrja á því að hlæja að fyrirmyndunum hans Kalla, originölunum. Þó að Kalli sé góður, þá getur hann auðvitað aldrei orðið eins hlægilegur og fyrirmyndir hans og fólkið uppgötvar ekki fyrr en Karl hefur teiknað þær upp, hve óskaplega hlægilegar þær eru. Þá kemur á daginn, að fólk ið lætur stórhlægilega stjórn- málamenn ráða sínum málum. Mínir menn: { humar, Samdi ádeilurit, sem varð kennslubók í háskólum — Jón H. IVIagníisson ræóir við banda- ríska rithöfundinn W. J. Lederer St. Paul, 28. nóvember. ÁRIÐ 1958 var gefin út hér í Bandaríkjunum bók sem heitir „The Ugly American" og er á- deila á getuleysi bandarísku ut- anríkisþjónustunnar og starfs- menn hennar. Bókin var rituð af William J. Lederer og Eug- ene Burdick. Bók þessi vakti þegar mikla athygli manna bæði hér og um heim allan. Slíkt er gildi bókarinnar að hún er notuð sem kennslubók hér við flesta háskóla. Fréttaritari Tímans hitti annan höfundinn að máli, nú nýlega, er hann var staddur hér í St. Paul. William J. Leder. er var 28 ár í flotanum og mest an þann tíma í Austurlöndum, enda má segja að þar sé hans annað heimili. Síðan hann kom á „þurrt“ hefur hann verið Asíu-ritstjóri Reader’s Digest, með aðsetur á Hawaii. Lederer er mjög viðkunnanlegur maður, með háðslegt augnarráð og leggur aldrei frá sér klunnalega pípu sína. „Allir höfundar verða að reykja pípu“, segir hann. Er ég hitti Lederer var hann ný risinn úr rekkju og hafði í misgripum gleypt þrjár svefn- pillur í staðinn fyrir þrjár asp- irnir. — Ef ég sofna þá verður þú að hrista mig og vekja mig, annars sef ég í allan dag. Hann dró upp úr vasa sínum gleraugu, rauð, og átti í erfið- leikum með að setja þau upp. — Ég týndi mínum í flugvél- inni í gær og keypti þessi af Skandinava á fimm dali; þau eru betri en ekkert; hann sat við hliðina á mér; bara vel gert af honum. — Bókin þín um Ijóta Ame- ríkumanninn seldist vel og hef ur verið mikið notuð sem kennslubók í, hvernig ekki eigi að haga sér sem stjórnarstarfs maður. Hvag kom til að þú gafst út aðra í svipuðum dúr. — Eftir að „The Ugly Ameri- can“ kom út 1958, fékk ég og Eugene Burdick þúsundir af bréfum frá flestum hornum Bandaríkjanna og heimsins. í flestum þessara bréfa var spurt hvað fólk gæti gert tii að auka álit þjóðar sinnar á erlendri grund. Við reyndum að ferðast um landið í boði ýmissa skóla og félagssamtaka og halda er- indi um hvaða hlutverki al- menningur gæti gegnt í þessum málum. Eins reyndum við að svara sumum bréfunum, en svo fór þetta allt út úr höndunum á manni. Þá varð það, að kunn- ingi minn stakk upp á því við mig að ég skrifaði bara aðra bók, sem gæti á einn eða ann- an hátt sýnt fólki hvemig það getur aflað sér upplýsinga um það sem er að ske í heiminum. Þá skrifaði ég „A Nation of Sheep“, sem kom út í fyrra. — Hún var eins lengi á topp- listanum eins og hin, var það ekki? — Jú, hún vakti allmikla athygli. — Hvemig varð bókin „The Ugly American" til? — Það má segja að bæði ég og Burdick væmm orðnir hálf svekktir á þessum endalausum gloríum, sem landar okkar vom að gera í nafni utanríkis- þjónustunnar í vanþróuðu lönd unum, sem einungis gerðu Bandaríkin hlægileg í augum bæði innfæddra og svo alheims ins. Svo við skrifuðum bókina til að vekja almenning og yfir- valdið til umhugsunar. — Hvernig skiptið þið svo verkinu á milli ykkar? — Annar skrifaði alla kafla með oddatölunum, en hinn með jöfnu tölunum. Eg talaði mína kafla inn á segulband í Hawaii, en Burdick las sína inn á band ið í New York nokkrum dögum áður en skila átti handritinu til útgáfunnar og fórum yfir þetta saman, með þeim afleið- ingum að við skrifuðum bók- ina upp á nýtt, á sex dögum. — Endurskrifuðuð þið verk- ið vegna þess að þið vorað of berorðir? — Nei, vig vorum ekki nógu berorðir. — Svo við snúum okkur að seinni bókinni þinni „A Nation of Sheep“, segðu mér fékk hún eins góða dóma og sú fyrri? — Já, ég er mjög ánægður með söluna, ef telja mætti af öllum bréfunum sem komið hafa til mín. þá er fólk almennt ánægt með hana. — í þessari bók segir þú m. a. að hér í landi séu aðeins fá- ein blöð, sem telja megi lesandi ef fólk vill eitthvað fylgj- ast með, þar á meðal er New York Times, Christian Science Monitor, Washington Post og nokkur fleiri. — Þetta er mikið rétt, ég tel aðeins rúm tíu blöð vera verð til lestrar fyrir þá, sem vilja vita eitthvað. Flest önnur dag- blöð i stærri og smærri borg- um hér í indi og era annaðhvort full af auglýsingum eða ábyrgð arlausu kjaftæði, eða hvort tveggja. Það má segja að meðal maður hér í Bandaríkjunum eyði tuttugu mínútum á dag í að lesa dagblöð, þar af eyðir hann átta mínútum í innlend- ar fréttir, og þrem mín. í er- iendar fréttir, hitt fer í íþrótt- ir og annað enn verra. Ef við tökum t. d. dagblaðið hér ; St Paul í dag og athugum það, þá getur þú séð ag það er 288 dálkar og af þeim eru tveir dálkar erlendar fréttir, en tve;r þriðju hlutar blaðsms fara svo undir auglýsingar. — Samt halda blaðaútgefend- ur því fram hér að þeir eyði milljónum dollara á ári í að gera skoðanakannanir um hvað almenningur vill sjá í blöðun- um. — Rétt, en almenningur er ekki alltaf dómbær á það, sem hann vill sjá og lesa, blöðin eiga að sýna meiri ábyrgð í að fræða fólk á því, sem er að ske bæði heima fyrir og í heiminum. Bandarikjamenn lesa alls ekki nógu mikið af dagblöðum og fylgjast ekki nógu með því sem skeður utan hins daglega lífs. — Þú segir að Bandaríkja- menn lesi of lítið og að press- an sýni ekki nógu mikla ábyrgð artilfinningu. Heldur þú þá að sjónvarpið ykkar sé nógu gott til að fara að sýna það um heim ailan í gegnum Telstar? — Því miður er sjónvarpið ekki nógu gott hjá okkur enn, þó að hluti þess sé mjög boð- legur. Þag er ekki tímabært að senda út prógrömm í gegn- um Telstar. — Hvað heldur þú að mundi ske ef bændur í Burma sæju bara á sjónvarpinu hjá sér ameríska lúxusbíla og flottheit, meðan þeir eru svang ir. Þag væri nær að sýna þeim hvemig kollegar þeirra í einu smáhéraði í Kaliforniu, ég man ekki hvað þag heitir, rækta 10 sinnum meira grjón en þeir. Bændur í Burma þurfa frekar að læra betri búskap, heldur en að sjá amerískt sjónvarp, sem þeir hvort er eð ekki skilja. — Álítur þú þá að ríkisíhlut un sé nauðsynleg á þessu sviði? — Ég geri ráð fyrir ag við verðum að hafa eitthvað ríkis- eftirlit með alheimssjónvörpun. — Síðan Kennedy tók við for setaembættinu, hefur hann endurbætt utanríkisþjónust- una? — Ef hann heldur áfram að skipa menn eins og Edwin O. Reischower, ambassador í Jap- an, og Kenneth Galbraith, am- bassador í Indlandi, í mikilvæg ar stöður erlendis og senda fleiri „Friðarsveitir" þangað sem þeirra er þörf þá erum við á réttri leið. — Hvað er það, sem ykkur Bandaríkjamenn vantar mest til að vinna meira á í stjórnarstörfum? — Tvímælalaust nýtt ráðu- neyti, sem kalla mætti „depart- ment of cold war“. (Kalda- stríðsráðuneytið). Ekki gat viðtalið orðið lengra þar sem William J. Lederer þurfti að fara. Áður en hann fór sagðist hann vilja koma einhvern tíma til íslands: — „vegna þess að ég hef mikinn áhuga á menningu ykkar og sögu“. — jhm. T f M I N N, sunnudagur 9. desember 1962. — 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.