Tíminn - 09.12.1962, Síða 15
Félag símamanna
Framhald ai 16. síðu
1937, komu þrjátíu símamenn sam
an í Kaupþingssalnum til þess að
ræða og stofna með sér stéttar-
félag. Fyrstu stjórn félagsins skip-
Uðu: Halldó' Vigfússon, formaður,
Kristinn Eyjólfsson, varaformaður,
Gústaf Sigurbjarnason, ritari,
Gunnar Bððvarsson, gjaldkeri, og
Guðmundur Erlendsson, meðstjóm
andi.
Félag símalagningarmanna hef-
ur ekki fengið viðurkenningu sem
síjálfstætt stéttarfélag, enda þótt
tveggja ára náms og námskeiðs sé
krafizt af símalagningamönnum,
áður en þeir eru taldir fullgildir.
Er félag þeirra nú deild innan
V'erkamannafélagsins Dagsbrúnar.
Félagar eru nú 43, þar af 21
í Reykjavik. Núverandi stjórn
skipa: Karl Stefánsson, formaður,
Ragnar Guðmundsson, varaformað-
ur, Guðni Steindórsson, ritari, Æv-
ar Árnason, gjaldkeri og Einar M.
Eínarsson, meðstjómandi. Af hin-
um upphaflegu stofnendum em nú
aðeins tveir í félaginu.
Félagið mun halda upp á afmæl-
ið síðar, þar eð nú eru margir með-
limir þess starfandi úti á landi.
Þing listamanna
Framhald af 16. síðu
borið sig fjárhagslega, svo að
stuðningur yrði að koma frá öðr-
um aðilum.
Bandalag íslenzkra listamanna
telur 358 meðlimi frá sjö félög-
um: leikurum, myndlistarmönn-
um, danslistarmönnum, tónlistar-
mönnum, tónskáldum, rithöfund-
um og arkitektum. Stjórnin er
skipuð sjö mönnum, einum frá
hverju félagi. Núverandi stjórn
skipa eftirtaldir: Brynjólfur Jó-
hannesson, formaður; Karl Kvar-
an; Sigríður Ármann; Jón Þórarins
son; Skúli Halldórsson; Stefán
Júlíusson, Sigvaldi Thordarson. —
Fjölmennastir í bandalaginu eru
rithöfundar, en leikarar eru næst
ir á blaði.
Aldamótamenn
Framhald af 16. síðu
(sem hefur undirtitilinn: Þættir
úr hetjusögu) bera þessi nöfn: Þor
mundsson (skólaskáld). Valdimar
Briem, Stephan G. Stephanson,
Þórarinn Böðvarsson, Guðmundur
Friðjónsson, Jón Trausti, Þorvald
ur Thoroddsen, Bjarni Sæmunds-
son, Einar Benediktsson, Haraldur
Níelsson, Einar H. Kvaran, Markús
Bjarnason, séra Jón Bjarnason,
Stefanía Guðmundsdóttir.
Bátar til hafna
Framhald af 1. síðu.
a.m.k., en þó fara heldur minnk
andi, en annars myndi á morg-
un frost um allt land, hríðar-
veður á Norðurlandi en bjart
um sunnanvert landið.
Blaðið hafði í dag tal af
fréttariturum sínum á Vest-
fjörðum. Bátarnir, sem lágu
undir Látrabjargi í nótt eru á
leið heim, þeir fyrstu lögðu af
stað í birtingu. Hafði þeim geng
ið vel yfir röstina, sem til hafði
frétzt. Sæborgin, sem í gær-j
kvöldi var bæði með bilaða rat |
sjá og dýptarmæli, varð fyrst I
undir bjargið, tókst skipverj-
um að koma ratsjánni í lag.
Veiðarfæratjón þeirra báta,
sem voru að veiðum þar fyrir
sunnan varð minna en þeirra,
sem voru djúpt úti; þó mun
Tálknfirðingur hafa misst um
hálfa línuna, og aðrir eitthvað.
Á ísafirði var kominn mikill
snjór, allt að hálfs annars metra
skaflar á götunum og bílar sátu
þar fastir um allan bæ. Bíll fór
þaðan í gærkvöldi með sjómenn
af Bolungarvíkurbátum, sem
fluttir voru til ísafjarðar, vegna
lélegra hafnarskilvrða í Bolung
arvík. Ferðin fram og til baka
tekur venjulega um eina
klukkustund, en þessi bíll var
7 klst. á leiðinni. Síðan hefur
mikið snjóað þar.
Oldin átjánda l-ll
árin 1701—1800
IÐUNN
! Skeggjagötu 1
Sími 12923
Seljum
allar okkar
forlagsbækur
með
hagstæðum
afborgunar-
kjörum
Lifandi saga Biðinna atburða
,,AIdirnar“ eru tvímælalaust vinsælasta ritverk, sem út hefur komið á ís-
Ienzku, jafn eftirsóttar af konum sem körlum, ungum sem öldnum. Þær eru nú
samtals sex bindi og gera skil sögu vorri í samfleytt 250 ár í hinu lífræna formi
nútíma fréttablaðs. Samanlögð stærð bókanna er sem svarar 3350 venjulegum
bókasíðum, og myndirnar eru samtals yfir 1500 að tölu.
„ALDIRNAR“ fást nú allar, bæði verkið í heild og einstök bindi, en óvíst er, að svo
verði lengur en til jóla. Ef yður vantar einstök bindi, þá notið tækifærið nú þegar.
ísBeuzkt mannlíf 4. bíndi
Nýtt bindi af hinum listrænu frásögnum JÓNS
HELGASONAR er komið út, myndskreytt af HALLDÓRI
PÉTURSSYNI.
„Þessi höfundur fer listamannshöndum um efni sitt,
byggir eins og listamaður af þeim efnivið, sem hann
dregur saman sem vísindamaður“, segir DR. KRISTJÁN
ELDJÁRN um höfundinn og verk hans.
Eignist þetta snjalla og skemmtilega ritverk
í heild, meðan tími er til. Fyrri bindin fást enn.
hátignaT5 Ódysseifur
Ný æsispennandi og hörkuvel rituð bók eftir hinn heims-
fræga metsöluhöfund ALISTAIR MACLEAN, höfund
bókanna BYSSURNAR f NAVARONE og NÓTTIN
LANGA, þýdd af Andrési Kristjánssyni.
Enn eru til örfá eintök af fyrri bókunum
. tveimur, en þser eru alveg á þrotum.
Ráðstefna FUF
um EBE hafin
Ráðstefna FUF í Reykjavík
um Efnahagsbandalag Evrópu
var sett í félagsheimilinu að
Tjarnargötu 26 kl. 2 í gær af
formanni félagsins, Steingrími
Hermannssyni, verkfræðing.
Minnti Steingrímur á, að und-
irstaða traustrar málefnalegr
ar baráttu væri sem gleggst
alhliða þekking á þeim málefn
um, sem ágreiningur og átök
væru um, og þess vegna hefði
FUF boðað til þessarar ráð-
stefnu um þetta stóra mál.
Aft setningarræðu formanns lok-
inni hófust framsöguerindi. Ólaf-
ur Jóhannesson, prófessor, varafor
maður Framsóknarflokksins, flutti
erindi um stjórn og skipulag Efna-
hagsbandalagsins. Helgi Bergs,
verkfræðingur. ritari Framsóknar-
flokksins, erind' um verzlun og
'úðskipti innan bandalagsins og
utan og Steingrimur Hermanns-
son, verkfræðingur, form. FUF, um
fíutning vinnuafls og fjármaans
milli landa :r.nan bandalagsins
Að loknu fundarhléi tóku svo
umræðuhópar til starfa og störfuðu
í svonefndu hringborðsformi. Um
ræðuhópar voru þrír og var hverj
um umræðuhóp ætlað að fjalla
fyrst og fremst um framsöguerindi,
eins frummælanda og mættu
framsögumenn í umræðuhópunum
og svöruðu fyrirspurnum.
Milli 60 og 70 þátttakendur eru
í þessari ráðstefnu FUF.
Ráðstefnan heldur áfram í dag
ki. 2 e.h. Þá flytja þeir Jón Skafta
son, alþm., og Heimir Hannesson,
lögfræðingur, erindi um eigin
kynnj og niðurstöður eftir heim-
sókn til ríkja og aðalstöðva Efna-
hagsbandalagsins. Þá munu fund-
arstjórar skýra frá þeim megin-
sjónarmiðum, sem fram koma í
hverjum umræðuhópi, en að lokum
fara fram almennar umærður.
6 þús. kr. stolið
ED-Akureyri, 7. des.
Nýlega fór 14 ára piltur hér
mn í mannlausa íbúð og fann þar
lykil að læstri hirzlu og tók úr
henni fimm til sex þúsund krón-
ur. Hefur pilturjnn nú meðgeng-
ið þjófnaðinn, en sex þúsund
krónur ber í milli í framburði
hans og eigandans.
3 bátar róa
Patreksfirði 7. des. — Héðan róa
3 stórir bátar. Hafa þeir aflað
fremur illa, þar til f gær, að þeir
fengu 30 tonn, sá aflahæsti þeirra
var með 12 tonn. Var þetta falleg-
ur göngufiskur. Bátarnir þurfa
að sækja alllangt á miðin, 7 tíma
stím. Einnig stundar héðan einn
11 tonna bátur línuveiðar, og hef-
ur hann aflað sæmilega. — SJ.
Athugun á stöðugleika
Framhald af l. síðu.
Þag verður ekki lengur hjá því
komizt að heita á íslenzk yfirvöld
að taka á þessum málum af fyllstu
alvöru. Við verður að reikna út
stöðugleika skipa okkar og yfir-
völdin verða að sjá svo um, að
útgerðarmenn og skipstjórar fylg
ist með breyttum aðstæðum.
Myndin, sem fylgir þessari
grein talar sínu máli. Síðan um
áramótin 1958/’59 hefur tíu ís-
lenzkum skipum hvolft hér við
land eða í hafi, þar af átta fiski-
skipum, án þess að um slíkt aftaka
veður væri að ræða, að skipin
hefðu ekki í flestum tilfellum átt
að þola það, ef allt hefði verið
með felldu. ■
Er þetta ekki nóg? Er ekki kom
inn tími til þess hér, alveg eins
og í Danmörku, að athuga hvort
skipin séu nægilega vel byggð,
hvort þau geta mætt breyttum
aðstæ/um breýtingalaust og hvort
fullrar skynsemj sé ávallt gætt. í
hleðslu þeirra?
Póstsendum
Félagsmálaskólinn
Fundur verður á mánudagskvöld
kl 8,15 að Tjarnargötu 26. Fram-
söguerindi flytur Halldór E. Sig-
uvðsson alþingismaður um fjárlög.
iiu
T f M I N N, sunnudagur 9. desember 1962. —