Tíminn - 15.12.1962, Qupperneq 2
Ferðarolla er 155. bókin -
nýblaðamannabókíathugun
GB-Reykjavík, 14. des.
„Sama veður. Bólgnaði upp
sleikifingur minn á vinstri
hendi með miklum verki til í-
gerðar, sem óhentugt er fyrir
morgundagsveizlu kóngs. Keypti
ég mér plástur við hann. Komu
til mín jústitsráð Hammerich og
konferensfáð Brorson úr hæsta-
rétti, hvei eftir annan og sátu
hér stundarkorn. Drukku eitt
glas madera. Nú er kvisað, að
presturinn Freckland heitinn.
nefndur við 22. janúar á næst-
undangengnu blaði.hafihengtsip
sjálfan í ruminu. í dag er mælt,
að kammerjúnkur Abrahamson
sér orðinn kammerherra (úr því
varð þó- ei), en að hann á að
sendast strax þann 29. til Péturs
vorgar til að færa Rússakeisara
Nikulási 1 lukkuóskir Dana-
kóngs til hans keisarastjórnar.“
Þetta hefur Magnús Stephen-
sen konferensráð skrifað 27. jan
úar 1826 i dagbók sína í Kaup-
mannahöfn, þar sdfii hann dvald-
ist veturinn þann. Dagbókin nefn
ist Ferðarolla Magnúsar Stephen
sen og hún kom út í fyrsta sinn
í gær á vegum Bókfellsútgáfunn-
ar.
— Ferðarolla er 5. og síðasta
bók okkar á þessu ári og 155.
Birglr Kjaran.
bókin síðan Bókfellsútgáfan var
stofnuð fyrir 19 árum, sagði Birg
ir Kjaran torstjóri á fundi með
blaðamönnum í gær. Um skeið
voru gefnar út 10—15 bækur á
ári, en svo var fyrir nokkrum ár-
um horfið að því ráði að gefa út
færri bækur og vanda þeim mun
meira til þeirra, og hafa þvi
seinni árin verið gefnar út 5—6
bækur á ari. Framan af voru út-
gáfubækurnar ýmist frumsamd-
ar íslenzkax, eða þýddar, en upp
á síðkastið hafa nær eingöngu
verið gefnar út bækur eftir ís-
lenzka höfunda. Af bókum okk-
ar undanfarin ár má helzt nefna
þessar ævísögur og minninga-
bækur: Thor Jensen, Ingólfur
Gíslason hekmr, Einar Jónsson
myndhöggvari, Jón Stefánsson,
Siguiður frá Balaskarði, Guð-
mundur Hagalín og Kristmann
Guðmundsson, þá eru viðtals-
bækur Valtýs Stefánssonar, bréfa
söfn Finns Sigmundssonar, þjóð-
lega fræði eftir Jón Þorkelsson,
Björn fra Viðfirði, Guðbrand
Jónsson, og Árna Óla. Af safn-
ritum er að nefna Merka ís-
lendinga (sem 6 bindi komu af
og nú er endurvakið með nýjum
flokki). Góðar stundir, Faðir
minn, Móð'ir mín, og Blaðamanna
bókin. Hún kom út í fjögur ár.
En síðan hafa orðið svo miklar
breytingar á starfsliði blaðanna,
að athugandi er að hefja útgáfu
blaðamannabókar á ný með efni
eftir nýrri blaðamenn en skrif-
uðu í fyrri bækurnar.
— Bækurnar, sem við höfum
gefið út í ár, eru ísold hin gullna
Háttfíwiéttiwfm
'Oani02otís
Moaatjs
i7atvawe
'erja/s
/pökÆum
SKREYTTAR ÍSTERTUR
úr vanillaís og súkkuliðiís
Þrjár stærðir:
6 manna
9 manna
12 manna
'stertur þarf að nanta
’mð 2ia dapa fvrirvara i
itsölustöðum á
EMMESS-ÍS
Mjólkursamsalan
(lokabindi ævisögu Kristmanns),
Norður yfir Vatnajökul 1875
(feröasaga Englendingsins unga
Watts, sem fór með Páli jökli
yfir Vatnajökul, og mega jarð-
fræðingar eins og Sigurður Þór-
arinsson öfunda þá félaga, sem
voru svo „heppnir" að hitta á
tvö eldgos á leiðinni, í Öskju og
á Mývatnsöræfum). Þá er bók-
in Með Valtý Stefánssyni, sem
varð fyrstur hér á landi til að
setja saman viðtalsbók, og þetta
sú sjötta frá hans hendi og langt
viðtal við hann efíir Matthías
Jóhannesen. Loks er svo Ferða-
rolla Magnúsar Stephensens,
sem Jón Guðnason sagnfræð-
ingur hefur búið til prentunar,
en framan við bókina er grein
um Magnús eftir Þorkel Jó-
hannesson prófessor. Jón segir
frá því í eftirmála, að hann hafi
búið bókina út eftir eiginhand-
riti Magnúsar, sem er í eigu
Magnúsar V. Magnússonar, sendi-
herra í Stokkhólmi.
Matrósaföt
Matrósakjólar
Rauð Blá
Drengjajakkaföt
allar stærðir
Hvítar drengjaskyrtur
frá 4 til 16 ára
Æðardúnssæng
er bezta jólagjöfin
Póstsendum
Simi 13570.
Vesturgötu 12
BRITISH OXYGEN
LOGSUÐUTÆKI og
VARAHLUTIR
fyrirliggjandi
Þ Þorgrímsson & Co.
Suðurlandsbraut 6.
Sími 22235 — Reykjavík
Trúlotunarhringar
Fliói aígreiðsla
GUÐM öORSTEINSSON
gullsmiður
Bankaslræti 12
Slmi 14007 .
Sendum gegn póstkröfu
ViS sama heygarðs-
hornið
Leiðari MorgunbLaðsins í
fyrradag hefst þanniig:
„Því miður fór eins og Mbl.
óttaðist, að Framsóknarfor-
kólfarnir væru svo djúpt sokkn
ir í komniúnistasamstarfinu, að
þeir treystu sér ekki til að
draga í la.nd, þótt opinberlega
sé nú uppvíst, hver áform
kommúnista eru með „þjóðfylk
ingunni“, sem þeir eru að und-
irbúa með Framsóknarflokkn-
um“.
Síðan eru tekin upp nokkur
orð o.g setninigar úr leiðara
Tímans um málið og reynt að
læða því inn, að þær sýni, að
Tíminn sé „þjóðfylkingar-
áformum“ kommúnista sam-
mála en aðeins reiður því, að
Mogginn skyldi segja frá því.
Svona snýr Moggi snældunni
sinni svo að segja hvern ein-
asta dag — í þessum fölsúnum
er hann sérfræðingur, og svo
dregur Moggi þá ályktun af
sínum eigin fölsunum, að
„Framsókn lætur sér ekki segj-
ast“.
Sannleikurinn er vitanlega
sá, eins og allir vita, að Tím
inn hefur ekkert „að Iáta sér
segjast" í þessum efnum, og
ekkert að „draga til baka“, því
að Tímanum eða Framsóknar
flokknum koma hreint og beint
ekkert við hugarórasamþykkt-
ir kommúnista á þingum sín-
um svipaðs eðlis og þeir hafa
gert í áratugi, og það færir
ekki Framsóknarflokkimn feti
nær neinni „þjóðfylkingu“
hvað sem þeir samþykkja.
Það er aðeins sú blekkingar-
iðja Mbl. að lesa út úr sam-
þykktum kommúnista einhvern
vilja Framsóknartnanna, sem
Tíminn hefur haft hörð orð
um og við auga þær ásakanir,
sem Mbl. tilfærir, Og um slíka
fölsunariðju þyrfti raunar að
hafa miklu harðari orð.
Það Ieynir sér ekki, að það,
sem Mbl. er mest j mun, er
ekki að bannfæra fyrirætlanir
komúnista, heldur að Ijúga því
hrei.nlega upp á Framsóknar-
flokkinn, að hann standi að
slíkri ,,þjóðfylkingu“ með
kommúnistum. Það var sú
smánarlega blekkingariðja,
sein Tímiun hafði um hörð orð,
og það veit Mbl. ofur vd, þó
að hann haldi sig við vi'ð sama
heyigarðshornið í rangsnúningi
sínum í von um að geta smíðað
tréfætur undir ósaunindi sín.
BauS kommum
lögregluna
Morgunblaðið slær því upp
s.l. sunnudag, að eitt af „þjóð-
fylkingaráfonnum" kommún-
ista hér sé að „styðjast við póli
tíska iögreglu og sovézkan
her“. Vel getur það verið rétt,
að þetta sé draumur kommún
ista og er ekki girnilegt. En i
þessu sambandi mættu ritstjór
ar Mbl. vel miunast þess, sem
frain hefur komið i játningu
Áka Jakobssonar í Mbl., að
Sjá'lfstæðisflokkurinn bauð
Íkommúnistum embætti dóms-
málaráðherra i nýsköpunar-
stjórninni og þar með fullt
vald yfir lögreglunni, sem er
eini „her“ íslendinga. Þar með
bauð Sjálfstæðisflokkurinn
kommúnistum opið tækifæri
til að koma sér upp „póli-tískri
lögreglu“. Slíkt kostaboð hef-
ur enginn flokkur annar á ís-
Slandi gert kommúnistum fyrr
eða síðar.
Frarnhald á 13 slðu
aaBa™|iiiwii n'wii'irpm—inwiii n
2
T f MIN N , laugardaginn 15. desember 1962