Tíminn - 21.12.1962, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.12.1962, Blaðsíða 4
 ÍÞRDT' I i R 11 Illi íiiiiiiiSSiiiiiiiSii RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON — Ingólfur Óskarsson, Fram, Karl Marx, Haukum, eg Rósmundur Jónsson, Víking, en uppistaða liðsins er úr Fimleikafélagí Hafnarfjarðar eins og áður. í gær tilkynnti landsliðs- nefnd hvaða leikmenn skipa landsliðið í handknattleik, sem leika á gegn Frakklandi og Spáni í febrúar n.k. Flestir leikmannanna eru gamal-j kunnir landsliðsmenn, sem leikið hafa fjölmarga lands- leiki, en þrír nýliðar eru þó í liðinu, Ingólfur Óskarsson, Fram, Karl Marx Jónsson, ’-^ukum, Hafnarfirði og Rós- — •nrJur Jónsson, Víking, en '—*ir leikmenn hafa vakið ^thvgli undanfarna tvo v"*ur. Uppistaða landsliðsins er eins og áður úr FH — eða sex leik- menn af brettán — cn l’ðið er cnnars þannig skipað: Hjaiti Sinarssón FH. Karl Marx, Haukum. °4tur Antonssr*”. FH, Finar Sigurðssrn, FH. Kristján Stefánsson, FH. Birgir Björnsson, FH. Örn Hallsteinsson, FH. Gunnlaugur Hjálmarss., ÍR. Matthías Ásgeirsson, ÍR. Karl Jóhannsson, KR. Karl Benediksson, Fram. Ingólfur Óskarsson, Fram. Rósmundur Jónss., Víking. Sterkt lið Þetta er áreiðanlega mjög sterkt lið og þess má geta, að níu af þessum leikmönnum tóku þátt í síðustu heimsmeistarakeppni, sem fram fór í Þýzkalandi, og ísland komst þar í úrslit sem kunnugt er. Þó saknar maður tveggja leik- manna, þeirra Guðjóns Jónsson- ar, Fram, og Ragnars Jónsson- ar, FH, en þeir gátu ekki gefið kost á sér til fararinnar. Fyrst í París. Eins og aður segir verða tveir leikir í förinni. Fyrri leikurinn or gegn Frakklandi og verður háð- ur í París hinn 16. febrúar. Þetta verður annar íandsleikurínn milli þessara þjóða. Fyrrj leikurinn var í sambandi við síðustu heims- meistarakeppni og sigraði ísland þá með yfirburðum. Síðan hefur Frökkum farið' mikið fram, sem bezt sést á því, að fyrir aðeins r.okkrum dögum tapaði Frakkland leik gegn Svíþjóð með aðeins þriggja marka mun. Leikið var í Sviþjóð. Landsleikurinn gegn Spánverj- um verður í Bilbao hinn 19. febr. Spánverjar hafa mikinn áhuga fyrir handknattleik — en lið þeirra er varla eins sterkt og Frakka — þó munur sé ekki mik- iii. ísland hefur aldrei áður keppt gegn Spáni — hvorki í handknatt- leik né öðrum íþróttagreinum — og verður því gaman að fylgjast með þessari fyrstu eldraun þjóð'- anna. En ekki fer á milli mála, að íslenzka landsliðið er sigurstrang- lc-gra í þessum landsleik, en hins vegar er leikurinn í París opnari. En hvað sem því líður ætti þetta að geta orðið glæsileg för fyrir landslið okKar. — hsím. undsambands Islands Ársþing Sundsambands ís- lands var haldið í Hveragerði 19. maí s.l. Þingtð setti for- maður SSÍ, Erlingur Pálsson, tilnefndi hann sem þingfor- seta Benedikt G. Waage, for- seta ÍSÍ og til vara Þóri Þor- geirsson, íþróttakennara Laug arvatni. Þingið sátu þrettán fulltrúar frá sundráðum og héraðssamböndum auk gesta, en meðal þeirra var Þorsteinn Einarsson, íþróttafuIItrúi. Erlingur Pálsson flutti skýrslu fráfarandi stjórnar, gat hann þess m. a. að keppendur hefðu verið sendir á Sundmeistaramót Norð- urlanda s.l. ár og unnið væri að þátttöku af íslands hálfu í Evrópu meistaramótinu í sundi sem hald ið yrði í Leipzig, hefðu lágmarks- tímar verið settir og landsþjálí- ari skipaður Jónas Halldórsson. Nýjar sundknattleiksreglur voru gefnar út á árinu og verið væri að ljúka við að semja nýjar sund reglur. Þá hefði stjórnin látið gera merki fyrir sambandið og væri væntanleg reglugerg um sundmerki SSÍ. Formaður ræddi einnig nokkuð u:n væntanlega Norræna sundkeppni sem fram á að fara næsta ár. Þórður Guðmundsson, gjaldkeri SSÍ las upp endurskoðaða reikn- inga Sundsambandsins, er voru saimþykktir athugasemdalaust. Töluverðar umræður urðu um skýrslu stjórnarinar en þingfull- trúar voru á einu máli um a'ð gera veg sundíþróttarinnar sem mestan, þó að menn greindi nokk uð á um leiðir. Samþykktar voru tillögur frá stjórninni varðandi samþykkt meta, ep bætt var inn i meta- skrána þrem vegalengdum: 200 og 400 m. einstaklings fjórsundi og 4x100 m. flugsundi, og að fram- vegis verði keppt í 200 m. ein- staklings fjórsundi, karla og kvenna á Sundmeistaramóti ís- lands. Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi ræddi nokkuð um hin at- hyglisverðu samskipti sem komið hefði verið á milli nokkurra sér- sambanda og íþróttakennaraskóla íslands, varðandi kennslu og taldi hann að Sundsambandið ætti kost á að gerast þar aðili að. Vöktu upplýsingar Þorsteins mikla athygli og var stjórn SSÍ Framhatd á bls. L3 Ort vaxandi körfu knattleiksdeild KR Sjöundi aðalfundur Körfu- knattleiksdeildar KR var hald- inn 17. nóv. s.l. Fundarstjóri var Einar Sæmundsson, for- maður KR. Formaður deildar- innar, Hetgi Sigurðsson, las upp skýrslu stjórnarinnar og kom eftirfarandi m.a. fram í skýrslunni: „Námskeið fyrir byrjendur í karla- og kvennaflokkum ásamt 4. flokk karla var haldið snemma á þessu ári og tókst það með ágæt- um. Leiðbeinendur á námskeið- inu voru félagar úr eldri aldurs- fiokkum. Er ráðgert að halda ann- að námskeið svipað þessu eftir áramót. Þjálfaraleysi hefur háð starf- semi nokkuð, en úr því er að ræt- ast og hefur Ólafur Thorlacius núna verið ráðinn þjálfari fyrir eldri aldursflokka. í Reykjavikurmótið 1961 sendi ! KR alls 5 lið, þ.e. eitt úr hverjum fi.okki. Þessu móti lauk með sigri KR í meistaraflokki kvenna og í 3. fl. karla, en 2. fl. kvenna og 4. fl. karla höfnuðu í öðru sæti í sínum flokkum. f íslandsmótið' 1962 sendi KR alls 8 lið. Gekk KR-ingum frekar iila í mótinu, en um þetta leyti gekk yfir umgönguveiki er herj- aði þá illilega. Meðalaldur meðlima í Körfu- knattleiksdeild KR, hefur hækkað og þó að deildin sé enn ung að árum má segja að hún sé nú bú- in að slíta í arnsskónum og hefur i dag margan góðan efnisvið". í yfirstandandi Meistaramóti Reykjavíkur sendir KR alls 6 lið til þátttöku. Samþykkt var á fundi bjá stjórn Körfuknattleiksráðs Keykjavíkur, að II fl. A lið KR léki sem „gestalið" með meistara- j fiokksmönnum KR., þar sem flest . :r II. fl. leikmenn KR ganga upp i meistaraflokk eftir n.k. áramót. ' Æfingar eru haldnar í KR-hús- Jón Þ. Ólafsson Met hjá Val- birni og Jóni í fyrrakvöld var haldið innan hússmót í frjálsum íþróttum á vegum KR. Mörg góð afrek náðust, m. a. setti Jón Þ. Ól- afsson nýtt íslandsmet í há- stökki og Valbjörn Þorláksson bætti met sitt í stangarstökki um tvo sentimetra. Hið nýja met Jóns Þ. Ólafsson- ar f hástökki er 2.08, eða einum sentimetra hærra en fyrrá metið, sem Jón setti á innanfélagsmóti fyrir skömmu. Jón átti góða til- raun við 2.11 og var kominn vel yfir þá hæð, en felldi rána í niður- leið. Með þessu nýja meti sínu hefur Jón unnið það afrek að setja alls 11 íslandsmet á þessu ári — ðll í hástökki eða langstökki. Ferill inu á miðvikudögum og sunnudög- um, en á fimmtudögum og sunnu- dögum í íþróttahúsi Háskólans. Núverandi stjórn skipa: Helgi Sigurðsson, formaður, IIalldór_ Sigurðsson, varaformaður, Helgi Ágústsson, gjaldkeri, Mar- grét Georgsdóttir, ritari Jón Otti Ólafsson, meðstjórnandi. Jóns í hástökkinu er mjög eftir- tektarverður. — Fyrir tveimur árum glímdi hann við hæðirnar 1.80 til 1.90, en hefur síðan smám- saman verið að bæta sig. Að öllum líkindum ætti Jón að vera nokkuð öruggur með að stökkva 2.10 á næsta sumri með sama áfram- haldi. Hið nýja met Valbjarnar Þor- lákssonar í stangarstökki innan- húss er 4.27, eða tveimur senti- metrum hærra en fyrra metið, sem Valbjörn átti sjálfur. Val- björn reyndi ekki við aðrar hæðir, en öruggt má telja, að honum ( ætti að reynast auðvelt að stökkva mun hærra-, þar sem atrennan innanhúss er sú sama og utan- húss. Valbjörn hefur nú sett alls sex fslandsmet á þessu ári — fimm f stangarstökki og eitt í tug- þraut. Það er mikill hugur í frjáls- íþróttamönnum þessa dagana, og verður m.a. haldið mót í kvöld í KR-húsinu, en einmitt um þessar mundir dveljast margir yngri frjálsíþróttamannanna í bænum, sem hafa verið skólum úti á landi í vetur. Þá er ráðgert að halda jólamót einlivern tíma milli jóla og nýárs, eins og gert hefur verið undanfarin ár. . Valbjörn Þorláksson 4

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.