Tíminn - 21.12.1962, Síða 6

Tíminn - 21.12.1962, Síða 6
Fyrir nokkru var gerð uppreisn f olíurikinu Brunei á Norður-Borneo. Brunei er verndarríki Breta, en mun innan skamms ganga f Malayaríkja- sambandið, en uppreisnarmenn eru sambandinu mó'tfallnlr, og vildu koma f veg fyrlr að Brunei gengl i það. Brunei er mjög auðugt af olíu, og á Shell-olíufélagið mikið af olfuvlnnslustöðvum þar. Hér er mynd frá elnni stöðinnl f Seria. Stöðvar Shell urðu fyrir litlu hnjaski f uppreisninni, og mun félagið ekkert tjón hafa beðið vegna hennar. Amerfskl llðsforinginn er klæddur nýjustu herklæðum, sem eru upphituð og búin rakastilli. Þetta þýðir, að hermenn, sem staðsettir eru í Mexíco, geta farið til Alaska f skyndi án þess að skipta um klæðnað. Liðsforing- inn er að skoða brynju frá mlðöldum, sem hvorki var upphituð eða með rakastilli. En þá voru menn sigursælir engu síður en nú. Mynd þessi er tekin nýlega i garði keisarahallarinnar í Tokfó. Keisarahjónln eru þarna á göngu með barna- barni sinu, Hlro prins, Akihito krónprins, Mlchllko prinsessu og Yosl prins, sem er yngsti sonur þelrra. Krón- prlnsinn helmsótti foreldra sína til að fagna með þeim nýju áril — árinu 1963. Danskir fornleifafræðingar eru nú að ganga frá víkingaskipunum úr Hróarskeldufirði til geymslu. Kerið á myndinni er fyllt með sérstakri upplausn, sem skipaleif arnar eru baðaðar upp úr, en síðan eru þær lagðar innan i glært plast. Þannig umbúnaður á að tryggja að skipln geymist um aldur og ævi. Gamli og nýi tíminn á Indlandi mætlst svo að segja á þessari mynd. indverskir verkamenn eru að fiytja ofaní- burð f veg með sama hætti og forfeðurnir, en í baksýn er kjarnakljúfur, sá fyrsti í Asíu og byggður fyrir styrk frá Kanada. Hann var tekinn f notkun f nóvember 1960. 6

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.