Tíminn - 21.12.1962, Síða 15

Tíminn - 21.12.1962, Síða 15
 ORKELSSON bóndi, Brjánsstöóum Þessa merkisbónda og ágæta clrengs hefir ekki verið getig í blöðum, síðan hann lézt. í raun- inni var ég reiðubúinn að minn- ast hans látins, en ég taldi víst, r6 einhver sveitunga hans, sem unnið höfðu með Jóni, að veiferð- ar- og framfaramálefnum og nán- ast þekktu hann, myndu rita um hann minmngargrein. Þetta skipt ir raunar ekki öllu máli. Hugur manna til Jóns á Brjánsstöðum er jafnhlýr, þó að hann sé ekki lát- inn opinbeuega í ljós, og vissu- lega er það hugarfarið, sem hefir aðalgildið, þó að einnig sé eðlilegt s.8 láta vináttuvott koma fram í blaðagrein. Á þann hátt má staö- festa það, sem hugsað er til vanda fólks og vina og sýna, að ekki sé allt gleymt þrátt fyrir viðskiln- að góðvinar og kunningja. Móðir Jóns var Halldóra Péturs- dóttir, fjármanns hjá séra Jóni Thorsteinsen á Þingvöllum. Heyrt hefi ég, að honum hafi ekki verið fisjað saman. Hið sama má víst segja um Halldóru dóttur hans. Hún er látin fyrir allmörgum ár- um. Faðir Jóns er Þorkell Þor- leifsson, bóndi á Syðri-Brú í Gríms nesi. Eg hefi nýlega notið þeirr- ar ánaégju að hitta hann að' máli og sitja hjá honum stundarkorn og rabba við hann, þar sem hann býr f Reykjavík hjá Lilju, dóttur sinni og Jóhannesi Kárasyni tengda- syni. Þorkell er enn skemmtileg- ur og glöggur í samræðu, ótrúlega minnugur og fylgist með útvarp- inu af lífi og sál og lærir ýmislegt, sem hann heyrir þar og rifjar það sv» upp síðar, heyrnin er allgóð, en sjónin er ag mestu horfin. Lík- aminn er enn furðu sterkleg- ur og heilsan góð hjá svo háöldr- uðum manni, 94 ára 18. júní s.l. Þessi hjón bjuggu á Brjánsstöðum í 28 ár, til ársins 1925, en þá tók Jón, sonur þeirra við, einn af níu systkinum, »em upp komust. Þor- kell sagði mér, að fyrr meir hefði heyskapurinn á Brjánsstöð'um ver- ið mjög erfiður, túnið lítið og engjarnar þýfðar, snöggar og blaut ar, svo að aumara gat þetta ekki verið. Þannig hefur þessi jörð breytzt úr örreitisbýli í mjög eigu- lega stórjörð, svo sem auðsætt er á því, sem húnkframfleytir nú. Kona Jóns er Guðrún Jóhannes- dóttir frá Eyvík í nágrenni Brjáns staða, hún lifir mann sinn. Guð- rún er þekkt kona, meðal annars fyiir gestrisni, áhuga og atorku og þó ekki sízt fyrir það, hve hrein- skiptin hún er í orðum og athöfn- um. Eg þekkti Jón Þorkelsson mjög vel og féll ágætlega við hann. Með okkur var hin bezta vinátta og naut ég, sem og aðrir, sem við hann áttu samskipti, drenglyndis hans og skapfestu. Meðal annars aí þessum ástæðum langaði mig með línum þessum ag minnast hans látins. Þó að við værum ekki i sveitungar né ynnum saman að sveitarmálum, áttum við eigi að síður ýmis sameiginleg áhugamál og svipaða lífsskoðun að mörgu leyti. Þetta leiddi okkur saman með verulegu öryggi og frá hans hlið einnig af Ijúfmennsku og rnikilli árvekni. Aldrej var Jón svo önnum hlaðinn né þreyttur, að hann vildi ekki fúslega fórna tíma og kröftum í þágu sameiginlegra áhugamála, væru þau þörf og gagn leg. Eg á mjög fáum mönnum meira að þakka fyrir skilning og hiýhug í baráttumálum en Jóni Þorkelssyni. Hann var einlægur samvinnumaður og ætíg í víglínu Framsóknarmanna, af þessu leiddi margs konar félagslega starfsemi til heildar hagsbóta. Hann var um tugi ára á flestum félagsmálafund- um alls konar hér í sýslu og gegndi þar fulltrúastörfum að vali sveitunga lians: í stjórnmálum, rnjólkurbúinu, kaupfélaginu, svo að dæmi seu nefnd. Heima fyrir var hann áhugasamur ungmenna- félagi, að minnsta kosti tvö kjör- fimabil í sveitarstjórn og lengi í skattanefnd og ýmsum fleiri trún- aðarstörfum. Jón naut trausts allra manna, sem hann þekktu. Kom þar til ráðdeild, hyggindi og ósér- plægni ásamt annarri vinnuhæfni. Jón Þorkelsson var stór maður vexli og fyrirmannlegur. Ekki eyddi hann uppvaxtarárum sínum í skólasetur, barnaskólann lét hann sér nægja. Vinnugleðin og vinnu- áhuginn skipuðu öndvegi í huga lians og lífi. í blórna lífsins vann hann jöfnum höndum til sævar og sveita. Hann reri í Herdísarvík, Grindavík, var á skútu og síðast á togara. Þegar togarinn lenti í Beykjavík 12. maí 1925, beið ást- mey hans í bryggjunni og segja má, að þau hafi leiðzt beint til prestsins, sem þann dag gaf þau saman í heilagt hjónaband. Jón Þorkelsson var mjög skap- stilltur maður og gætinn, svo að af bar, en jafnframt mjög einarð- ur og ókveigjanlegur frá málstað, rem hann hafði hugsað og valið sér ef hann skipti verulegu máli. Kona hans hefur sagt, að Jón hafi veríð sér slíkur eiginmaður, að, rnnar eins væri óhugsanlegur. Starfsþróttur Jóns var rómaður og hið sama má segja um konu hans, ef heilsan leyfði. Hann vann á vinnustöð nálægt heimili sínu á haustin. Þegar Jón var dáinn, sagði yfirmaðurinn, að sér nægðu ekki minna en þrir vel vinnandi menn í hans stað. Búskapinn ráku þessi hjón af einstæðu kappi, enda var búið orðig stórt, sem þau og son- ur þeirra stóðu að. í fyrra var á fóðrum um 20 kýr auk viðkomu og víst full 800 fjár. Sinn góða þátt í þróun búskapar á Brjánsstöð i.m átti Sigurjón bróðir Jóns. — Hann byrjaði hjá honum níu ára drengur og vann með bróður sín- um af mikilli trúmennsku og kappi öll hans blómaár, þar til heilsan bilaði, og bá var sonur Jóns kom- inn til nokkurs þroska, auk þess vorn ætíð góg úrræði meg vinnu- kraft. Þannig hefur þróun Brjáns staðaheimilisins verið slungin sam vinnu húsbænda og skyldmenna, svo sem raunar víða hefur gerzt á liðnum árum. Böm þeirra Guð- rúnar og Jóns eru þrjú. Þau eru kappsfull og ötul, svo sem þau eiga ætt til. Hjörtur, eini sonur- inn, hefur um árabil verig í sam- býli við foreldra sína. Hann er kvæntur Sonju Ingólfsdóttur, frá Miðfelli í Þingvallasveit. Þau eiga íjögur börn. Halldóra er gift Gunn ari Ágústssyni, þau búa á Stærri- bæ í nágrenni Brjánsstaða við mik il búskaparumsvif og framkvæmd ir. Þau eiga þrjú böm. Eldri dótt- irin, Bryndís, er gift Indriða Jóns- syni, húsamálara frá Bergþórs- hvoli. Þau eiga fjögur börn og búa í Reykjavík. Mér hefur ætíð virzt Brjánsstaða heimilig fullt af börnum á ýms- um aldrí og vart hefur þeim far- ið fækkandi hin síðari ár, enda er allt þess háttar í samræmi við mannvináttu og starfsgleðj hjón- anna, Guðrúnar og Jóns, sem þar bjuggu saman í 37 ár. Að Brjáns- staðafjölskyldunni standa sterkir stofnar. Jóhannes, faðir Guðrúnar, lifir enn og hefur fótavist nær hundrað ára gamall og Þorkell er 94 ára eins og fyrr segir. Jón fæddist á Brjánsstöðum 12. maí 1898. Hann kvæntist eftirlif- andi konu sinni, á afmælisdaginn sinn 1925, dó 16. maí 1960 og var jarðsettur 24. maí. Maímánuður var þannig hans mikli mánuður. Við jarðarförina hélt séra Ingólfur Astmarsson hlýja og fallega hús- kveðju eins og hans er háttur, en í Stóru-Borgarkirkju flutti séra Sigurður Pálsson fagra og eftir- minnilega ræðu. Ekkja Jóns býr enn við mikla reisn móti syni sínum, Hirti, dug iniklum framfarabónda. Eg sendi Guðrúnu og fjölskyldu hennar kær rr keðjur og votta inni lega samúð vegna missis ágæts maka, föður og vinar. Bjarni Bjarnason, Laugarvatni Halldór Pálsson Hálfáttræður varð s.l. miðviku- dag Halldór Pálsson, fyrr bóndi á Nesi í Loðmundarfirði, nú til heim iiis ag Álfheimum 52 í Reykjavík. Halldór er fæddur ag Víðilæk í Skriðdal 19. des. 1887, sonur Páls bónda þar Þorsteinssonar (Melaætt) eg konu hans, Elín- borgar Stefánsdóttur frá Þóreyj- arnúpi í V.-Húnavatnssýslu. Síðan fluttu foreldrar Halldórs að Tungu í Fáskrúðsfirði. Þar ólst hann upp og er oft einnig við þann bæ kennd ur sem þeir fleiri bræður. Nítján ára ag aldri fór Halldór á Ólafs- dalsskólann og stundaði þar nám tvo siðústu veturna, sem skólinn var haldinn og sumarið á milli. Þar á eftir sótti hann kennaranám- skeið í Reykjavík. Að loknu þessu námi hvarf Halldór heim aftur til Fáskrúðsfjarðar og gerðist barna- kennari sveitarinnar næstu 10 ár- in (1907—1917). Vorið 1910 (19. apríl) kvæntist Halldór Hólmfríði, dóttur Björns bðnda í Dölum í Fáskrúðsfirði, Stefánssonar, sy?tur séra Stefáns á Hólmum, og næsta vor fldttust þau til búskapar að Nesi í Loð- mundarfirði og bjuggu þar til vors 1947, ag þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur. Síðan hef- ur Halldór stundað ýmis störf og slundar enn. Halldór var áhugasamur og at- hafnamikill búmaður, bætti mjög ábýlisjörð sína að ræktun og húsa- kosti. Þá tók hann einnig mikinn Jón Sigmundsson Á tímum tækni og hraða gefst naumast tóm til að slaldra við og skyggnast nm farinn veg. Þó geta þeir hlutir gerzt, sem orsaka það að litið er um öxl, og hugurinn hvarlar til liðins tíma og dvelst þá við þær minningar er hugstæð- astar eru alla jafna tengdar bernskuárunum. Þannig var það með mig, er mér barst fregnin um lát Jóns Sig- mundssonar, sem lézt hinn 27. nóv. s.l. Jón var borinn og barnfæddur | í Fljótum i Skagafirði, 30. júní 1890, sonur hjónanna Sigmundar i og Önnu er kennd eru við Vestra Hól í Flókadal. Jón fór á unga aldri ag sjá fyrir sér sjálfur eins og þá var títt um unga menn i því byggðarlagi. Alla jafna dvaldj hans í Fljótum, fyrst í vinnu- mennsku, eða þar til að hann siofnaði sitt eigið heimili. Jón var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Margrét Guðbrandsdóttir og áttu þau saman einn son, en skildu eftir skamma sambúð. Síðari kona Jóns var Sigríður Guðmunds dóttir og lifir hún mann sinn. Þau hjón eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi. Þau héldu tryggð við Fljótin og stunduðu þar búskap um 40 ára skeið, eða þar til á s.l. hausti, að þau fluttu búferlum til Snorra sonar síns, sem búsettur er í Kópavogi, en þá var heilsu Jóns svo farið að nauðsyn bar til að hann væri undir læknishendi. Lengst af sínum búskap bjuggu þau hjón á Molastöðum og við þann stað eru mínar minningar og fyrstu kynr.i tengd. Þegar ég var tveggja ára -gamall var mér komið í fósiur að Molastöðum til þeirra hjóna vegna veikinda móð ur minnar og var ég hjá þeim í liálft ár. Að sjálfsögðu man ég ekki eftir veru minni á Molastöð- um, en tengslin við heimilið rofn uðu ekki þó ég flyttist þaðan. Mér er minnisstæð sú alúð og tryggð, som þau hjón sýndu mér allt frá því að ég man fyrst eftir mér, þau voru mér sem fósturforeldrar öll bernskuárin og kallaði ég þau pabba og mömmu fram til 10 ára aldurs, og ég leit á Molastaði sem mitt annað heimili. Eg minnist jólapakkans, sem ég átti vísan á aðfangadagskvöld- ið og vitnaði um lilýhug og rausn. Jólin höfðn þá ekki tekið á sig þann kaupsýslubrag, sem svo mjög einkennir þau nú, og gleði barns- ins yfir gjöfinni var ekki metin í peningum. Eg er viss um að þeir dýru munir, sem börnum eru nú gefin, megna ekki að veita þá gleði, sem þessi pakki veitti mér, en þar með var ekki jólagleðinni lokið, ég fékk að fara í jólaboð I að Molastöðum og vera þar nokkra tíaga. Þar bar svo margt nýtt fyr- ir augu og eyru að ævintýri var likast fyrir mig, sem var einn barna á heimili. Hjónin tóku bæði þátt í leikjum okkar bamanna Jón fór með sög- ur og vísur, sem hann kunni svo mikið af, svo dró hann fram tvö- földu nikkuna og spilaði fyrir okk ur dillandi ræl og vals og bað- stofan iðaði af lífi og fjöri. Stund um orti Jón um mig vísu, sem væri ég sérstakur heiðursgestur. I'yrir mig voru þessir dagar sann- kölluð sæluvika og endurminning- in um þá entist mér til næstu jóla. Ekki hefði verið hægt að fagna mér betur þó ég hefði verið þeirra sonur og ég var kvaddur á sama hátt. Þá minnist ég heimsókna Jóns, er hann átti leið fram hjá Hreins- stöðum t. d. á réttardaginn, þá gaf hann sér jafnan tóm til að hitta „Glókoll“, en það gælunafn valdi hann mér. Viðdvölin var að vísu ekki löng, því Jón var ekki fyrir að dunda og mörgu þurfti að sinna á slíkum anna og gleðidegi. Fyrr en varðj hafði hann snarazt á bak, Blesi skeiðaði niður traðirnar og Jón söng við raust, en ég stóð eft- ir með gljáfægðan krónupening í lófanum sem gaf mikil fyrirheit, fyrir hann var hægt að kaupa inargs konar góðgæti í næstu kaup staðarferð eða máske yrði hann þátt í stjórn sveitarinnar og fé- Ltgsmálum. Var lengi oddviti sveitarstjórnar og formaður Fram sóknarfélags Loðmfirðinga og einn ig formaður skólanefndar. Öll srn störf — einkastörf sem félagsstörf — rækti hann af áhuga og alúð og lét hlut sinn hvergi eftir liggja, hvar sem bann var kvaddur til starfs. Hann var ekki einn í leik. I öllum störfum var bann studd- ur af sinni mikilhæfu eiginkonu. Áhugamaður er Halldór um op- inber mál og velfarnað lands og þjóðar, einmg um sögu þjóðarinn- ar og sögulegan fróðleik og bók- menntir fornar og nýjar. Hann á vel valið bókasafn og vel búið. Halldór á mjög stórt handrita- safn, sem hann nefnir „Skaðar og skaðaveður“ Það er tómstunda- vinna hans á mörgum árum. Hafa einstakar frásagnir úr því verið fluttar í útvarpinu og birzt í blöð um. Mikill fengur væri að fá þenn an Skaðaannál birtan á prenti. Eg óska Ilalldóri og fjölskyldu hans allra heilla á þessum þriggja órsfjórðunga afmælisdegi hans. 19/17 1962 Halldór Stefánsson. undirstaða alls þess, sem ég ætl- aði að framkvæma, þegar ég yrði stór. Hófadynurinn fjarlægðist og söngurinn dó út. Jón og Blesi voru horfnir á bak við næsta leiti. Eg kreppti lófann utan um krónupen inginn og strengdi þess heit að ég skyldi verða karl í krapinu eins og pabbi á Molastöðum. Tímarnir liðu, ég sleit barnsskónum og hugð arefni og viðhorf breyttust, ferð- um mínum að Molastöðum fækk- aði. Þar kom að ég fluttist alfar- inn úr Fljótunum og kom þar að- enis sem gestur af og til og hafði þá jafnan skamma viðdvöl, gafst því sjaldan tóm til að hitta kunn- , ingjana og rifja upp gamlar minn- ingar. Jón var harður atorkumaður og gekk til verks með einurð og festu. Á yfirborðinu var hann hrjúfur, en þeir sem bezt þekktu vissu, að liann hafði næmar tilfinningar, scm kom meðal annars fram í hjálpsemi hans við náungann og alúð og hlýju við lítilmagnann. Hann lagði ungur út í lifsbarátt- una og tókst að skapa fjölskyldu sinni góð lífsskilyrði með orku tveggja handa. Hann unni söng og gleði og þunglyndi og drungi þreifst ekki í návist hans. Hann sagði meiningu sína hver sem í hlut átti og lét ógjarnan hlut sinn ef í odda skarst. Þau hjón voru í mörgu ólíh, en það hefur eflaust átt sinn þátt í að skapa þann ferska og hreina blæ er jafnan i ríkti á þeirra heimili. Ekkju Jóns sendi ég hugheil- a” samúðarkveðjur og þökk fyrir þá móðurlegu umhyggju, er hún veitti mér með svo ljúfu geði er ég þurfti mest á að halda. Þessi kynni mín af þeim hjón- um og heimili þeirra hafa orðið til að móta hugljúfar minningar sem mér er kært að geyma. Hjálmar Jónsson 15

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.