Tíminn - 04.01.1963, Side 1

Tíminn - 04.01.1963, Side 1
GAMLARS mmm ÞAÐ VAR LÍF OG FJÖR í SkfSa- skálanum í Hverárdölum um jól- in og áramótln, og skemmtu fasta gesítir sér hið beita. Ljósmynd- ari Tímans brá sér þangaS upp eftir á gamlárskvöld, en þá var dansaS þar lengi nætur. Þessa ágætu mynd tók hann þar efra meSan stóS á dansinum en hún er af Óla J. Ólasyni yngsta, sem »r aS dansa gamlárstwistiS viS einn gestanna. Annar gestur horf ir á og skemmtir sér konung- lega. Óli J. Ólason er sjö ára. sonur Óla J. Ólasonar unga, sem rekur skíSaskálann, og aSspurS- ur sagSi hann, þegar farlS var aS Inna eftir twistkunnáttu hans, aS s'túlkurnar í eldhúslnu hefSu kennt honum dansinn. CLjósm.: TÍMINN-RE). Laug upp manndrápi BÓ-Reykjavík, 3. jan. Klukkan 10 í gærkveldi hringdi kona á lögreglustöðina, tilkynnti nafn sitt og heimilisfang og kvaðst hafa nýlokið við að drepa mann- inn sinn, 'hefði hún stungið hann til bana með gaffli. Lögregla og sjúkralið var þegar sent á stað- inn, en konan hringdi aftur á lög- reglustöðina meðan bílarnir voru á leiðinni og spurði „hvort þeir færu ekki að koma“. Lögreglu- maninum, sem sváraði í símann, fannst þá að hann kannaðist við röddina, svo að hann sleit ekki sambandið, en i húsinu sem kon- (Framhald á 15. síðu). MAÐUR MS-Reyðarfirði, 3. jan. Hér hefur í dag staðið yfir mikil leit að einum heima- manni, sem ekkert hefur spurzt til síðan að morgni nýj- ársdags. Töldu menn í fyrstu ekkert óeðlilegt, þótt hann kæmi ekki heim til sín, en í gær var tekið að halda uppi spurnum um hann. Var meðal annars auglýst eftir honum í útvarpinu. í dag var svo geng- ið á fjörur og höfnin slædd, en allt án árangurs. Maðurinn, sem hér um ræðir, heitir Hreinn Ágústsson, maður um þrítugt. Hann var á dansleik, sem hér var haldinn á nýársnótt og stóð til klukkan fimm um morg uninn. Að honum loknum fór um borð í Helgafellið, sem kom hingað um miðnætti um nótt ina, og gisti þar hjá brytanum, sem var góður vinur hans. Laust fyrir hádegi er talið, að Hreinn ha-fi haldið í land, en síðan hefur ekkert til hans spurzt. Ekki er vitað um sjónarvotta að landgöngu Hreins. í fyrstunni var ekki talin ástæða til þess að undrast neitt um Hrein. Var hvort tveggja, að ekki var talið ósennilegt, að hann hefði hitt einhverja kunningja sína, er hann kom í land, og farið með þeim á næstu firði, en héðan er nú bílfært í allar áttir, svo og hitt, að ótrúlegt þótti, að nokkuð hefði komið fyrir Hrein í landgöngunni, LOFTLEIÐUM NEITAÐ UM SAS-AFSLÁTTINN IGÞ-Reykjavík, 3. jan. Fréttaritari Tímans í Kaup- mannahöfn segir í skeyti til Tímans í dag, að Norðmenn hafi syniað Loftleiðum um leyfi fyrir svonefndum sjó- mannafargiöldum. Er hér um að ræða 20 prósent afslátt til handa þeim norsku sjó- mönnum á verzlunarflotanum, er hafa verið lengi í siglingu, en vilja skreppa heim. I SAS fékk leýfi norskra stjórn- arvalda í febrúar síðastliðnum til að gefa þennan tuttugu prósent afslátt af sínum fargjöldum, þeg- ar heimfúsir norskir sjómenn væru annars vegar. Mun vera um einhverja sérreglu hjá IATA að ræða, sem afsláttur á borð við þennan heyrir. í fréttaskeyti Aðils frá Kaup- mannahöfn segir, að Berlingske Aftenavis hafi birt fréttina um neitun norska samgöngumálaráðu neytisins við umsókn Loftleiða. Jafnframt segir í skeytinu, að| Morgunblaðið norska hafi skýrt! afstöðu ráðuneytisins á þann veg.l að Loftleiðir, sem ekki eru aðilarj að IATA, fljúgi þegar fyrir svo lágt gjáld, að enn lægra verð mundi hafa óheppilega samkeppni í för með sér. Tíminn frétti í gær, að Loftleið- j ir hefðu sent inn umsókn sína um að mega flytja norska sjómenn með sama afslætti og SAS eftir að fargjaldastríðið hófst. Mun þessi umsókn Loftleiða ha-fa kom ið nokkuð á óvart og staðið í nokkru þófi um hvernig afgreiðslu hún skyldi hljóta, eftir fréttum í norskum blöðum að dæma, unz ákvörðun var tekin um að neita um leyfi fyrir sams konar afslætti og SAS var leyfður. Sú afstaða samgöngumálaráðu- neytisins norska, að það mundi hafa óheppilega samkeppni í för með sér, ef Loftleiðir fengju að lækka fargjöld sín um tuttugu prósent, eins og SAS, stafar ein- Iramhaid á 15. síðu. SJA BLS. 9 RÆTT VIÐ JOSE MIRO CARDÖNA TÝNIST REYÐARFIRÐI þar eð skipið lá fast við bryggj- una, landgangurinn var uppi og blæjalogn. Þegar Hreinn kom svo ekki fram í gær, var farið að spyrjast fyrir um hann og m. a. auglýst eftir honum í útvarpinu. Þetta bar eng an árangur og var það þá til ráðs tekið í dag að slæða höfnina og ganga fjörur. Bar það engan ár- angur, en mun gert að nýju á morgun. BRENND- IST TIL SKADA Á FEITI FS-Fosshóli, 3. jan. Það slys varð á Lundar- brekku í Bárðardal um hálf eittleytið í dag, að Hjördís Kristjánsdóttir, húsfeyja á einu býlinu þar, brenndist illa í andliti og víðar, er hún hrasaði f eldhúsi með pott með heitri feiti í höndum. Feitin skvettist í andlit Hjördísar og yfir háls henn ar og herðar, einnig brennd ist hún á höndum og fótum. Var þegar reynt að ná í lækni, sem er á Breiðumýri. Stöðin þar var lokuð og átti ekki að opna aftur fyrr en klukkan fjögur. Var því leit að á náðir útvarpsins og les in upp tilkynning í hádegis útvarpi, um að Breiðamýri væri beðin um að svara Fosshóli. Jafnframt voru strax gerðar ráðstafanir til þess að fá sjúkrabifreið frá Akureyri til þess að flytja Hjördísi þangað. Símstöðin á Breiðumýri var rétt nýbú- in að svara FosshóJi, er til- kynningin var lesin upp í útvarpinu. Kom Þóroddur Jónasson læknir þegar á vettvang, og gerði að bruna sárunum til bráðabirgða. Taldi hann konuna ekki í neinni lífshættu, og von til, að ekki þyrfti að græða á hana skinn. Sjúkrabíllinn frá Akur- eyri var fljótur í förum og kom með sjúklinginn til Ak ureyrar um klukkan fimm í dag og var þá líðan Hjör- dísar eftir atvikum. Hjördís er um þrítugt, gift Sigurgeir Sigurðssyni og tveggja barna móðir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.