Tíminn - 16.01.1963, Side 1

Tíminn - 16.01.1963, Side 1
 12. tbl. — Miðvikunagur 16. janúar 1963 — 47. árg. Hafnar- vörður ÞatS er varla einleikið hvað dýralífið er fjörugt við Fiski- félagshúsið nýja við Skúlagötu, þar sem Ríkisútvarpið er til húsa. Löngum fylgdust menn með sel á skeri framundan hús inu leika sér í lognsævinu á kyrrum sumardögum, og nú hefur fálki tekifi ástfóstri við húsið. Hann hefm- komið dag- lega upp á síðkastið og setzt á stöng yfir þakinu, og ýmist mænt inn yfir bæinn eða þá út á höfnina. Þetta er stór fálki og virðulegur og í gær stóð hann það lengi við, að ljósmynd ari Tímans náði af honum mynd inni, sem er hér til hliðar. Ljós- myndarinn komst jafnvel alla leið upp á þakið til hans án þess að liann styggðist við. Fálkar halda sig yfirleitt frá mannabyggð og mjög er sjald- gæft að þeir komi liingað til borgarinnar. En hvað sem því liffur, þá hefur þessi gert okk- ur heimsókn, hvort sem það er nú af því að stöngin hefur freistað hans sem áningarstað- ur eða hann telji sig þurfa að hafa eftirlit með liöfninni. (Ljósmynd Tíminn-GE.) SÍLDARMÓTTAKAN OG STJÓRNIN Viljaleysi til úrbóta Taaunuam ' - •- Framsdknarmenn í Hafnar- firði hætta samvinnu við Sjálfstæðism. í bæjarstjórn Á fundi í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar í gær lýsti Jón Pálmason bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins því yfir, að samstarf Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins um stjórn bæjarins væri slitið. Var yfirlýsing Jóns Pálmason- ar á þessa leið: „Vegna alvar- legs ágreinings, sem risið hef- ur á milli Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins, um samstöðu í bæjarmálum, og þar sem Fulltrúaráð Fram- sóknarfélaganna hafnaði mála miðlun hinn 7. janúar s.l. svo og með tilvísun til bréfs, er Fulltrúaráð Framsóknarfélag- anna ritaði bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins hinn 3. janúar s.l., lít ég svo á að bæj- armálasamningur frá því í júlí 1962, á milli nefndra flokka, sé ekki lengur í gildi." Undanfarið hefur samstarf flokkanna verið ýmsunr erfiðleik- um háð. Hafa árekstrarnir einkum átt rót sína að rekja til Bæjarút- gerðarinnar og forstjóra hennar, sem hefur haft mjög takmarkaðan skilning á, að bak við hann stóðu tveir flokkar en ekki einn. Hafa ýms mál komið upp, sem valdið hafa óánægju og deilum milli flokkanna, þó að ekki hafi skorizt verulega í odda fyrr en um mánaðamótin nóvember og des- ember s.l. er einum af verkstjórum bæjarútgerðarinnar, ágætlega far- sælum manni í sínu starfi, var sagt upp án þess að nokkrar frambærilegar ástæður væru færðar fyrir uppsögninni. í mótmælaskyni við uppsögn- ina sögðu svo allir þeir verka- menn, sem undir stjórn þessa verkstjóra unnu, 13 að tölu, upp starfi sínu hjá fyrirtækinu. Höfðu menn þessir unnið margir hverj- ir árum saman hjá bæjarútgerð- inni. Framhald á 15. síðu. ★ ÞAÐ hefur verið’ mönnum mikið gleðiefni, að sjórinn í kringum landið hefur verið og er fullur af sild bæði sumar og vetur. En þetta notast ekki nema að takmörkuðu Ieyti, — þrátt fyrir góð'a tið, vegna skorts á síldarbræðslum. Síð- ustu misserin hefur mönnum blöskrað meir en org fá lýst tómlæti ríkisstjórnarinnar í síldarmálunum. Það hefur þó ekki vantað áhuga manna til úrbóta. En ríkisstjómin sjálf hefur veri® eitt og það sama: PENINGAR EKKI TIL. Á sama tima hefur verið gortað af því að fé hafi verið safnað alls staðar. f Sandgerði hefur t. d. ekki veri® hægt að bræða neina síld fyrr en núna á dögunum, og hefur þó ekki vantað áhuga þar né tilraunir til að útvega fé í síldarbræðslu. I öðmm plássum Suðvestanlands hafa einstaklingar brotizt um og glímt misserum saman við yf- irvöldin, sem safna peningum, og viffikvæðið hefur verið þetta sama yfirleitt: Peningar ekki til. Loksins varð eitthvað lítils- háttar lát á ríkisstjórninni í sumar með fyrirheit um ein- hvern píring til endurhóta hér syðra, sem þar að auki virðist hafa komið alltof seint; það sýna framkvæmdirnar. En þær framkvæmdir, sem um er affi ræða, hafa orðfff fyrir um- brot einstaklinga þeirra, sem aff þeiin standa og eftir harða glímu við tregðu ríkisstjórnar- innar og „peningaskorts“. Og allt er þetta of lítiö mlffiað við þörfina og möguleikana. Á Austurlandi hafa síldar- verksmiffjurnar, sem byggffar- lög og einstaklingar reka, ekki fengiff grænan eyri til stækk- unar og endurbóta af því láns- fé, sem ríkisstjórnin ráffstafar. Sfldarverksmiðjur rfldsins lögðu í stækkun Seyffisfiarffiar- verksmiðjunnar og í aff byggja litla verksmiffju á Reyffarfirffi, auk smáendurbóta annars staff- ar. Ríkisstjórnin sagffiist ekki fimmta hluta þess, sem þetta kostaffi, af því lánsfé, sem hún réði yfir. Peningar ekki til frekar en fyrri daginn, þegar um þaff var að ræffa aff nýta sfldina, sem fiskiflotinn aflar. Sfldarverksmíffijur ríkisins hafa þvi orffiff aff leggja kostn- affinn aff mestu fram af eigin fé meff þeim afleiðingum, að nú vantar fé til þeirra stækk- unar, sem þær þurftu endilega affi ráðast í! Öllum, sem nokkuð þekkja til þessara mála, blöskrar al- veg framkoma ríkisstjórnarinn ar. Þaff er eins og henni sé al- veg sama hvort sfldin veiðist eða ekki. Stefnan er þessi: — Það er betra að eiga peninga „frysta“ í Seðlabankanum en tæki til að taka á móti sfld og gera hana affi peninguin. Þeir Guðmundur á Rafnkelsstöðum og Eggert Gíslason, skipstjóri hans, sögðu um daginn nokk- ur orð í útvarpiff í fréttaauka, sem lýstu vel hvaff það getur kostað þjóffiarbúið að þrjóskast við að greiða fyrir eðlilegum (Framhald á 15. síðu) Nuddlæknar einir mega þjálfa sjúka — EBA SJA um SJÚKRAÞJALFUN á vegum sjúkrasamlagsins HF-Reykjavík, 15. janúar. í GÆR héldu hinir fjórir nudd- læknar bæjarins meS sér fund um, hvort rýmka bæri ákvæðin um, hverjir megi annast sjúkraþjálfun, en þessi ákvæði eru mjög umdeild. Ekki var tekin neln endanleg af- staSa á fundi nuddlæknanna. í núverandi samningum milli Læknafélags Reykjavíkur og Sjúkrasamlagsins eru ákvæði, sem meina starfandi sjúkraþjálfurum og sjúklingum þeirra, að.fá nokk- uð borgað úr Sjúkrasamlagi, nema nuddlæknir hafi þar hönd í bagga. Er þetta eins og gefur að skilja mjög bagalegt fyrir sjúklinga, sem kannski þurfa að borga 60—-70 Þ.Þ. SKRIFAR EBE-BLS. 7 kr. fyrir hvert skipti, sem þeir eru þjálfaðir. Blaðið leitaði álits Arinbjarnar Kolbeinssonar, formanns lækna- félagsins á málinu. Sagði hann, að persónulega fyndist honum rétt að sjúkrasamlagið tæki þátt í kostnaði við störf sjúkraþjálfara, þar sem þeir ynnu mjög mikil- vægt starf. — Oft væri þyí þannig varið, að sjúklingar þeir, sem sjúkraþjálfarar annast í heima- húsum, mundu vera á spítala, ef rúm væri fyrir þá, en tilfinnan- legur skortur á sjúkrahúsrúmum, (Framhald á 15. síðu). Íi.i.1.1.1 I \‘ r *

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.