Tíminn - 19.01.1963, Síða 1

Tíminn - 19.01.1963, Síða 1
 StJPUR HEI LDSÖLUB íRGÐI R SKIPHOIIHF SÍMI23/3/ LUMA -4, _ ER UOSGJAFlt 15. tbl. — Laugardagur 19. janúar 1963 — 47. árg. i Fréttamenn frá Tínianum áttu leið meðfram höfninni í gær. Þeir veittu því þá eftirtekt, að björg- unarbátur Slysavarnafélags íslands, Gísli J. Johnsen, var algerlega innikróaður, þar sem hann hékk í davíðunum utaná húsi félagsins á Grandanum. Bátar lágu hlið við* hlið milli bryggjanna og svc nálægt landi, að bátur Slysavarnafélagsins hefði tæpast komizt niður milli stefna þeirra og bryggjunnar. Vart þarf orðum að því að eyða, hversu hættuleg slík innilokun er. Ef á björgun þarf að lialda, þarf að vera unnt að koma bátnum tafarlaust á flot og út úr höfninni. Vonandi verður þessu kippt í lag, svo slík vinnubrögð kosti ekki mnnslíf, ef á skjótri björgun þarf að halda. Drakk eitur í misgripum og lét lífið BÓ—Reykjavík, 18. jan. Seint á mánudaginn kom ungur skipverji af Kötlu, Þor- steinn Ingimundarson frá : Siglufirði, á slysavarSstofuna, bjáSur af ógleSi. Þorsteinn skýrði frá, að hann ' hefði sopið á hreinsilegi, í mis- gripum, um borð í skipinu daginn áður, en þar hafði verið um að ræða tetraklór-kolefni, sem er rojög sterkt eitur og veldur skemmdum á lifur og nýrum. ! Verkanirnar koma ekki fram fyrr | en nokkuð löngu eftir að efnið er komið í líkamann. Þorsteini var sagt, að hann yrði að leggjast á sjúkrahús þegar í stað og vísað á Landakotsspítalann. Hann fór þang að í leigubíl og lagðist þar inn um kvöldið. Tómas Á. Jónasson læknir jnnaðist Þorstein, en eitrið hafði þegar eyðilagt líffæri hans svo eng SJOMENNIRNIR UNNU MÁLID í FÉLAGSDÓMI um haldkvæmum vörnum varð við komið. Þorsteinn lézt klukkan tvö i gær. Hanr. var 18 ára gamall. Málið var iagt fyrir borgarlækni, sem vísaði því meg bréfi til saka- dóms seinni partinn í dag, eftir að hafa kynnt sér, hvort um það skyldi fjallað í sjódómi eða saka- dómi. Rannsókn mun vart hafin, en réttarkrufning mun hafa farið fram í dag. Tetraklór-kolefnið er afgreitt í tilluktum og sérstaklega merktum brúsum, en Þorsteinn mun hafa verið með það á flösku til eigin nota um borð í skipinu. KB-Reykjavík, 18. jan. Félagsdómur kvað í dag upp dóm ■ Sandgerðismálinu. Var niðurstaða dómsins sjó- mönnum í vil, og er útvegs- mönnum gert að greiða afla- hlut af síldveiðum síðastliðins sumars samkvæmt eldri samn ingum, en ekki eftir ákvæðum gerðardómsins. Sandgerðismálið stóð milli Al- þýðusambands íslands fyrir hönd SJA 3. SIÐU Sjómannafélags Miðneshrepps annars vegar og LÍÚ hins vegar. Ágreiningur stóð um aflahlut af sumarsíldiveiðunum. Útvegsmenn vildu greiða samkvæmt ákvæðum gerðardómsins, sem sett voru í sumar, en sjómenn töldu að eldri samningum hefði verið ólöglega sagt upp og bæri því, að greiða hlut samkvæmt þeim. Dómsniður- staða varð á þá leið, að samning- ur frá 13. júní 1958 með breyting- um gerðum 15. maí 1959, væri enn í gildi í Sandgerði, og ættu því kjör á síldveiðunum að miðast vð þann samning, en ekki ákvæði gerðardóms Þá dæmdi Félagsdómur einnig i öðru máli í dag, hliðstæðu hinu fyrra, nema hvað þar voru stýri- menn og vélstjórar málsaðilar. Féll dómur í því máli í samræmi við fyrri niðurstöðuna, þ.e. að þeim bæri og að greiða aflahiut eftir samningum frá 1958 Búast má við, að þessi niður- staða í Sandgerðismálinu dragi slóða á eftir sér, þvj að hér er um eins konar prófmál að ræða. Víðar stendur eins á og í Sand- gerði, a$ útvegsmönnum og sjó- mönnum hefur ekki komið saman Fer Björn í fast far- þegaflug? MB-Reykjavfk, 18. janúar. BLADID hefur fregnaS, aS Björn Pálsson, flugmaður, hafi nú I hyggju að hefja reglubundið áætlunarflug til ýmissa staða, sem Flugfélag ís- lands heldur ekkl uppi áætlunar- flugl tll. Ekki hefur Björn þó enn um lögmæti samningauppsagna. Á l hverja fleiri staði, og er þess að form,e9a soft um ,eyfj tll áætlunar- þetta við um Austfjarðahafnir, vænta, að Sandgerðisdómurinn f,uss á bessum lelðum, en mun Hús-avík. Siglufjörð og e.t.v. ein-lverði látinn gilda þar lika. I fFramhald á 15. síðu). SAITSKELL LÁ TINN NTB-London. 18. jan Hughe Gaitskell foringi brezka Verkamannaflokksins er látinn í London 56 ára að aldri. Gaitskell hafði legið i sjúkrahúsi að undanförnu með alvarlegan vírussjúkdóm, sem að lokum leiddi hann til dauða Gaitskell hefur um langan aldur verið einn af aðalfor ystumönnum brezka verka- mannaflokksins, og hann hefur verið foringi stjórnarandstöð unnar í brezka þinginu frá þvi árið 1955. Verkamannaflokkurmn hefur að undanförnu átt aukpu fylgi að fagna í Bretlandi, og var búizt við hagstæðum úrsíitum í næstu kosningum. Fyrir nokkru fór Gaitskell tii Banda ríkjanna, þar sem hann ræddi við Kennedy forseta, og var hann f þann veginn að fara ti) Sovétríkjanna í boði Krust joffs forsætisráðherra, þegar hann veiktist. Höfðu menn gert sér miklar vonir í sambandi við þessa för hans til Moskvu. Gaitskell stundaði nám í Ox ford. H&nn gegndi ýmsum op- mberum stöðum, og var kos inn á þing sem fulltrúi Verka mannaflokksins -fyrir South Leeds árið 1945, og var það upp frá því. Efnahagsmálaráð- herra var hann árið 1950 en Cjármálaráðherra árið 1950— 51. Eins og fyrr segir, var hann foringi stjórnarandstæðinga i neðri málstofu brezka þings- ins fra því 1955 HUGH GAITSKELL B3X

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.