Tíminn - 19.01.1963, Side 3
MARTIN BORMANN
ER BORMANN LÍFS EÐA LIDINN?
NTB-Bucnos Aires, 18. jan.
Óháða argentíska dagblað
ið El Mundo segir í dag, að
nazistaforinginn Martin
Bormann, sem leitað er að
vegna stríðsglæpa, búi að
öllum líkindum í Andes-
fjöllum í Suðvestur-Argen-
tínu. Fyrir skömmu var
skýrt frá því, að Bormann
muni hafa látizt fyrir nokkr
um árum.
Þýzkur maður, sem býr í
litlu fjallaiþorpi, Bariloche, hef
ur skýrt fréttaritara ElMundos,
Meyer Gleizer, frá því, að
Bormann búi í smákofa við
Tronador-fjallið, um 50 km.
vestan við Bariloche.
Gleizcr fékk sér leiðsögu-
mann, og komst að 'kofa nokkr-
um, bar sem bjó maður nokkur,
sem kallaði sig Mervin, og tal-
aði þýzku. Maðurinn neitaði að
láta. hafa við sig viðtal.
Gleizer lýsir manninum
þannig, að hann sé næstum því
sköllóttur, helmingur andlits-
ins liafi brennzt illa, og á hann
vantj hægri handlegg.
Fréttamaðurinn skýrir einn-
ig frá því, að myndir þær, sem
hann tók af þýzku nýlendunni
í Baciloohe hafi verig teknar
af sér af þýzka ræðismanninum
á staðnum. Hafi hann borið því
við, að myndir þessar gætu
valdið allt of mörgum mann-
eskjum erfiðleikum.
HEINESEN
FÆR HEEÐ-
URSLAUN
Aðils-Kaupmannaliöfn, 18. jan.
AKTUELT skýrir frá því í dag,
að 12 þúsund króna lieiðurslaun á
fjárlögum, sem skáldkonan Karen
Blixen var aðnjótandi, verði veitt
■færeyska rithöfundinum William
Héinesen.
Hann er þekktasti rithöfundur
Færeyinga og hafa sumar bóka
hans verið þýddar á íslenzku. —
Heinesen hefur verið nefndur í
sambandi við Nóbelsverðlaun,
þótt hann hafi ekki fengið þau
enn. Meg þessum heiðurslaunum
hafa Danir sýnt hinum ágæta fær
eyska ritihöfundi verðskuldaðan
6Óma.
RYTINGUR I
BAK BRANDTS
NTB-Berlín, 18. janúar.
WILLY BRANDT, borgarstjóri
Vestur-Berlínar, sagðí í dag, að
það hefði verið eins og rýtings-
stunga í bakið, þegar Kristilegir
demókratar hótuðu að hætta sam-
starfinu við flokk hans í borgar-
stjórninni, ef hann léti verða af
því að' fara til Austur-Berlinar til
þess að ræða við Krústjoff for-
sætisráðhcrra.
Brandt lýsti yfir því, að hann
hefði alls ekki hugsað sér þennan
fund sem kosningaáróður, en
kosningar eiga brátt að fara fram
í Berlín.
— Það er ekki hægt að leika
sér þannig að Berlín, sagð'i Brandt
borgarstjóri.
Hann lagði áherzlu á það, að
fundurinn hefði því aðeins verið
haldinn eða ákveðinn, að vestur-
þýzka stjórnin hafði lýst velþókn
un sinni á honum.
Kínverjar klappaðir nið-
ur á f undinum í A-Berlín
NTB—Berlín, 18. jan. j í dag; 0g var |ítt fagnað af I ur heimsótti hann verksmiðju
Kínverski fulltrúinn á þingi þeim sem viðstaddir voru. ■ nándinni og talaði þar til
kommúnistaflokksins í Aust- Krustjoff forsætisráðherra j verkamanna-
Kinverjanum Wu Hsiu-Chuan
ur-Berlín hélt ræðu á þinginu I kom ekki á þingfundinn, held-l var illa tekið, er hann hóf að verja
afstöðu stjórnar sinnar, og deila á
stefnu sovézku stjórnarinnar. Tal-
aði hann í hálftíma, en þá tóku
áheyrendur að blístra og stappa
í gólfið.
Annar kinverskur fulltrúi tók
einnig til máls, og kvað hann kín-
versku stjórnina ekki breyta
stefnu sinni þrátt fyrir svon ó-
kurteislega og lítilfjörlega fram-
komu fundarmanna.
Krustjoff heimsótti í dag verk-
smiðju í Austur-Berlín og talaði
þar til 6000 verkamanna. Sagði
hann, að aðalmarkmiðið ætti að
vera að afl fólkinu ríkidæmis, en
slíkt mætti ekki takast með því
cinu að dansa foxtrot, heldur yrðu
menn að vinna.
Krustjoff sagði, að enn hefðu
Bandaríkjamenn ckki náð fram úr
Sovétríkjunum á sviði geimrann-
sókna. Þeir segðu alltaf, að þeir
yiðu komnir lengra að 5 árum
liðnum, en eftir 5 ár myndu þeir
enn segja hig sama.
V/ÐRÆÐUMIDRUSSEL
HEFUR VERIÐ FRESTAÐ
NTB-Briissel, 18. jan.
Á fundi ráðherranefndar
Efnahagsbandalags Evrópu í
Brússel í dag var ákveSið, að
frestað skyldi frekari viðræð-
um þar til 28. janúar n. k.
Segja sumir, að útlitið sé þann
ig, að helzt megi ætla að þessi
tíu daga frestur verði til þess
eins, að samningsaðilar geti
komið saman aftur til þess að
ákveða, að viðræðum skuli
hætt fyrir fullt og allt.
Bæði Bretar og samningsfull-
trúar landanna fimm innan EBE
eru órólegir út af niðurstöðum
væntanlegra viðræðna, og þykir
það ekki boða neitt gott, að Frakk
Bramhald á 15. síðu
★ ALLT frá fyrstu tfð, hefur
því verið haldið fram, og ef til
vill ekki að ástæð'ulausu, að
kvenfólkið ráði nokkug miklu
í heimi hér. Fonur mikilla og
frægra stjórnmálamanna, eru
sagðar hafa töluverS áhrif á
gang heimsmálanna, og afstöðu
manna sinna til þcirra. Til er
franskt máltæki, sem segir: —
„leiti® konunnar", þ. e. a. s.
finnist konan, þá sé upphafs-
maðurinn fundinn. Hérna eru
tvær konur, hvaða hlutvcrki
skyldu þær þjóna? Konan til
vinstri er Rutha Tshombe, eig-
inkona Tshombes forseta Kat-
anga, en vinkona hennar er
Yav Osimba, kona varnarmála
ráðherra Katanga. Myndin var
tekin fyrir nokkru í Róm, er
þær höfðu þar skamma viðdvöl.
f
Bidault gengur Ijésum kgum í Lendon
NTB-Briissel, 18. janúar.
í dag birtist viðtal við
Georges Bidault, fyrrum
forsætisráðherra Frakka, í
belgíska blaðinu Gazet van
Antwerpen. Þar segir
Bidault, sem farið hefur
huldu höfði um langan
tíma, að mikil vandræði
muni rísa upp, þegar de
Gaulle forseti hverfur af
leikvangi stjórnmálanna.
Bidault hefur farið huidu
höfði frá því hann var sviptur
þinghelgi í júlí í fyrra, en hans
er leitað, þar eg hann er sagð-
ur hafa verið foringi OAS-
hreyfingarinnar, eftir að Raoul
Salan hershöfðingi var hand-
tekinn. Einnig er Bidault for-
ingi Franska andspyrnuráðsins.
Að sögn Gazet van Antwerp-
en var viðtalið við Bidault tek
ið í London, en í dag birtir
brezka blaðið Daily Express
mynd af forsætisráðherranum
fyrrverandi, og segir það, að
hún hafi verið tekin í miðri
London á fimmtudaginn.
í viðtalinu við Gazet van
Antwerpen segist Bidault vera
foringi Franska andspyrnuráðs
ins, en ekki megi rugla því sam
an við OAS-samtökin. Kvaö
hann hreyfingui\a í upphafi
ekki hafa verið órólega yfir
Framhald á 15. síðu
GEORGES BIDAULT
T f M I N N, laugardagur 19. janúar 1963.
3