Tíminn - 30.01.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.01.1963, Blaðsíða 3
* ÞANN 28 JANUAR síðastliS- inn kom danska prinsessan, ANNE-MARIA til Aþenu. Hún er hln væntanlega krónprinsessa Grlkkja og kom hún í fylgd með unnusta sínum KONSTANT- IN, krónprlns. f för með henni voru foreldrar hennar, konungs- hjón Danmerkur. Hundrað og fimm'tíu þúsund manns fögnuðu prinsessunni við komuna tll borgarinnar, og sýnir myndin, að stundum var æði þröngt um þau kærustupörin, enda héldu fólki engln bönd, er prinsinn og prinsessan óku i gegnum fagn- andi mannfjöldann. — Polfoto. HORFA TIL BAKA, EN IKKI FRAMÁVEGIi sagði Macmillan um frönsku sfjórnina í gær NTB—Bruxelles, 30. jan. Stjórnmálastarfsemi vest- rænna ríkja í dag hefur aðal- lega snúizt um samningaslitin í Bruxelles, og eru menn mis- jafnlega harðorðir um þau. Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið kallaði slitin sérstaklega óheppileg Annars er sagt af, áreiðanlegum heimildum í Bruxelles, að Efnahagsbanda- lagsríkin fimm, sem eru and-! snúin Frakklandi, ætli að hef ja viðræður við Breta um efna- hagssamvinnuna. Macmillan, forsætisiáðherra Bret- iands, sagði í útvarpsávarpinu i dag, að núverandi stjórn Frakk- lands horfði ekki fram á veginn heldur aftur til fortíðarinnar. Hann sagði, að atburðir gærdags- ins hefðu komið upp um djúp- stæðan ágreining Bretlands og eins vinarikis þess. Viðræðurnar um aðild Breta að EBE hefðu ekki ^ fallið saman vegna þess að þær voru fyrirfram dæmdar til að mis-' GULLEIT OG LJÓSRAUÐ OFANHRjÐ í JAPAN heppnast, heldur vegna þess, að all an ástæður voru til að trúa á farsæl an endi þeirra, þótt undarlegt megi virðast. MacMillan sagði einnig, að Bretland hefði ekki á reiðum hönd um neina aðra úrlausn í stað EBE, en mundi hafa nána samvinnu við Samveldislöndin um næstu aðgerð ír í málinu. Áreiðanlegir aðilar í Bruxelles segðu í dag, að fulltrúar Bretlands og fimmveldanna í EBE mundu senn þinga í London um frekari samvinnu sin á milli. Heath mun taka þátt í þessum viðræðum af hálfu Bretlands. Segja þessar heim ildir, að fimmveldin séu ákveðin í að viðurkenna ekki samnings- siitin sem afgerandi. Konrad Adenauer kanzlari og vestur-þýzka stjórnin urðu í dag algerlega sammála um yfirlýsingu, þar sem samningsslitin í Bruxelles t ru hörmuð. í henni er einnig tek- ið fram, að þrátt fyrir allt sé unægjulegt, að Bretland vilji enn vera aðili að EBE. f yfirlýsingunni segir, að nú verði allir að leggjast á eitt um efnahagslega og stjórn- inálalega einingu Evrópu, og auð- velda Bretlandi inngöngu i banda- lagið. Von Hase, blaðafulltrúi V- þýzku stjórnarinnar sagði þó í dag, rð Þjóðverjar mundu ekki gerast milligöngumenn milli de Gaulle og Breta. Óháða Hamborgarblaðið Die Welt segir í dag, að EBE sé ekki lengur neitt bandalag heldur stjórnmálalega sundrað, og stjórn arblaðið Kölnische Rundschau seg ir, að Evópuvagninn sitji nú fast- NTB—London, 30. jan. I i dag snjóaði víða. Hríðar- Ný kuldabylgja gengur nú mugga var á frönsku Rivier- yfir sunnanverða Evrópu, og I unni og sex stiga frost var í Vilja fá að dæma SS-menn NTB-Moskva, 30. janúar. STJÓRN Sovétríkjanna kraföist þess í dag, að rússneskir dómarar og vitni fengju að taka þátt í rétt. arhöldum í Vestur-Þýzkalandi gegn fyrrverandi SS-mönnum. Réttarhöld þessi hafa s'taðið yfir í Koblenz sið- an í október. Á blaðamannafundi í utanríkis- ráðuneytinu í Moskvu var skýrt frá því, að hinir ákærðu væru samsekir um fjöldamorð á sovézk- um borgurum í Hvíta-Rússlandi í stríðinu. Þá var skýrt frá því, að stjórnarvöld í Vestur-Þýzkalandi liefðu neitað þrem sovézkum dóm- urum um áritun á vegabréf. Sagði talsmaður ráðuneytisins, að þetta sýndi, að Vestur-Þjóðverjar ósk- uðu aðeins eftir takmörkuðum réttarhöldum til að létta málið fyr ir SS-afbrotamennina. Hann sagði, að þau rúmlega hundrað vitni, sem þegar hafa komið fyrir rétt- inn, legðu meiri áherzlu á að hvít- þvo afbrotamennina en sanna sekt þeirra. Talsmaður vestur-þýzka innan- rikisráðuneytisins sagði í dag, að rússnesku dómararnir þrír, hefðu ekki fengið vegabréfsáritun, þar sem þeir, samkvæmt þýzkurn lög- um, væru ekki atkvæðisbærir í réttinum, hvorki sem verjendur eða sækjendur. Þá var skýrt frá þvi, að hvorkj hefði verið neitað eða játað að veita þessa áritun, heldur hefði málinu verið vísað til dómstóls, sem enn hefði ekki kveðið upp úrskurð sinn. Meðlimur í stríðsglæpanefnd í Hvíta-Rússlandi hefur lýst því yf- ir, að stríðsglæpamennirnir í Ko- blenz hefðu ekki verig ákærðir fyrir einn tíunda þeirra afbrota, sem þeir hefðu framið. Þá sagði fulltrúi i rússneska ut- anríkisráðuneytinu á fyrrnefndum blaðamannafundi, að formaður fastanefndar NATO og Adolf Heusinger, yfirmaður herráðs V.- Þýzkalands, hefðu tekið þátt í að skipuleggja og framkvæma refsi- aðgerðir í Sovétríkjunum. Hollandi. Danskir veðurfræð- ingar hafa skýrt frá því, að þar í landi hafi kuldinn í jan- úarmánuði ekki verið eins mik ill síðan árið 1776. Þá snjóaði í dag í Wales og á vestanverðu Englandi. Einnig var snjókoma í London. í fjallendinu í suðaustur Serbíu hefur snjókom- an numið um 50 sentímetrum síð- ustu dagana, segir í fréttum frá Júgóslavnesku veðurstofunni. Á vestanverðum Japanseyjum féll gulur og ljósrauður snjór í dag. Veðurfræðir.gar gefa þá skýringu að snjórinn hafi blándast ryki frá meginlandj Kína, er borizt hafi vestur eftir með hagstæðri vind- átt. Á stórum svæðum í Japan hef- ur verig uppstyttulítil hríð i næst- um þrjár vikur, og hafa orðið stór íelldar umferðatafir þar í landi af völdum snjóa, og rafmagnstrufl anir tíðar. Tíu þúsund hermenn hafa verið kvaddir til starfa við að gera við rafmagnslínur og moka snjó af vegunum. j bardoT SKILIN NTB-París, 30. jan. — Franska kvikmyndadísin Brigitte Bardot hefur nú fengið skilnað frá manni sínum, leikaranum Jaques Charr- ier. Þau höfðu bæði óskað eftir skilnaði og var dæmdur hann í dag af dómstól j París. Þetta skiln aðarmál hefur fengið einna skjót- asta afgreiðslu í franskri réttar- sögu. Fyrsti eiginmaður Bardot var Roger Vadim, sem gerði hana fræga. Charrier heldur syni þeirra hjóna, en Bardot fær að hafa hann hjá sér nokkra mánuði á hverju ári. Jens Otto Krag, forsætisráð- herra Dana, sagði í London í dag, a£ í þessari aðstöðu gæti Dan- mörk alls ekki gerzt aðili að EBE Ér. þess að Bretar væru með. Hann sagðist hafa mikinn áhuga á að finna leiðir til þess, en hann sæi ekki fram á, hvernig það mætti gerast. Ekkert benti þó til þess, að allir hefðu gefizt upp fyrir fullt og allt. Norðmenn ætla að halda áfram yiðræðum sínum við EBE í Bruxell es, og ætla m.a. að gefa bráðum svar Noregs við sjávarútvegsstefnu EBE-landanna. Óháða Parísarblaðið le Monde segir, að Bretland geti verið orð- inn aðili fyrir löngu, ef það hefði viljað, en aftur á mótj hefði franska stjórnin ekki hegðað sér samræmi við hinn evrópiska anda. Bandaiíska utanríkisráðuneyt- ið kallaði í dag slitin ákaflega óheppileg, og muni þau aðeins seinka þróuninni til sterkrar og sameinaðrar Evrópu. Tvær flugvélar farast NTB-New York, 30. jan. Tvær herflugvélar fórust í dag í Banda- ríkjunum. Fyrri vélin var í gæzlu flugi, er hún stakkst í hafið með fjórfán manns innanborðs, um 150 sjómílur austur af New York. Leitarflugvél tilkynnti síðar í dag, að sézt hefðu tveár gúmmíbátar.á floti og brak úr vélinni, en auð- séð hefði verið, að enginn hefði verið lífs um borð í bátunum. Fjörutíu leitarflugvélar og einn kafbátur tóku þátt í Ieitinni að flugvél þessari. Samtímis þessu bárust þær frétt ir frá Santa Fe í Nýju Mexíkó, að sprengj uþota af gerðinni B-52 hefffli steypzt til jarðar í fjöllun- ujn norðaustur af Santa Fe með sex mariiia áhöfn. Menn i leitar- véluni komu auga á brennandi brak vélarinnar skömmu síðar. Útilokað er ta'lið, að nokkur áhafn ar hafi kornizt lífs af. Bingó Framsóknarfélögin í Reykjavík halda Bingó í Glaumbæ sunnudaginn 3. febrúar kl. 8,30. Fjöldi góðra vinninga er á þessum vinsælu Bingó-skemmtunum Þ.á.m. friálst val ef húsgögnum í Húsgagnverzlun Austurbæjar eða fatnaði úr Markaðnum að verðgildi kr. 10.000.00 Síðast var haldið Bingó í Glaumbæ fvrir hálfum mánuði og var þá húsfyllir. Aðgöngumiða er hægt að panta í símum 15564 og 12942. T í M I N N, fimmtudagur 31. janúar 1963. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.