Tíminn - 30.01.1963, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.01.1963, Blaðsíða 6
okt. 1958 okt. 1962. kr. 1.696,00 kr. 3.446,00 Vísitala vöruverSs, þjón- a 100% verð hækkuná mjölvörum ustu og húsaleigu hefur hækkaS um 42 stig síSan „viSreisnin" hófst en þaS samsvarar 82 stigum á þeim vísitölukvarSa, sem miSaS var viS í tíS vinstri stjórnarinnar. í núgildandi vísitölu er húsaleigan reikn uS allt of lágt, aSeins 900 krónur á mánuSi fyrir meS- alfjölskyldu og vita allir, hve fjarri þaS er raunveru- leikanum. Vísitöluhækkun- in segir því ekki nema hálf- an sannleikann um hinar gífurlegu verShækkanir, sem orSiS hafa. Séu ^eknar f jórar tegund 1»’*' ir mjölvöru, sem hver ein- asta fjölskylda í landinu kaupir til lífsviSurværis og boriS saman verSlag á þess um vörum í október. 1958 annars vegar og í október 1962 hins vegar, kemur glöggt í Ijós, hve gífurleg verShækkunin er. Hún er hvorki meira né minna en næstum 100%. Þannig hafa stjórnar- flokkarnir efnt loforSiS frá síSustu kosningum um stöS ugt verSlag án nýrra skatta og tolla. Þannig var leiSin til bættra lífskjara. Menn ættu aS bera þessar gífuf- legu verShækkanir saman viS kauphækkanirnar, sem orSiS hafa á umræddu tíma bili og sjá, hvort ekki hall- ast tölúvert á. Þingstörf í gær Fundur var í sameinuðu þingi í gær. Tvö mál voru á dagskrá fundarins, bankaútibú á Snæfellsnesi bg éfnahags- bandalagsmálið. Aðeins annað málið var tekið fyrir, þ. e. bankaútibú á Snæfellsnesi, en efnahagsbandalagsmálið tekið út af dagskrá. Ekki er vitað, hvað olli því. Ef til vill hafa ráðherrar ekki verið búnir að endursemja ræður sínar í sam ræmi við þá atburði, sem orðið hafa á þeim vettvangi síðustu daga. Kannske var það vegna þess, að Bjarni Benediktsson var ekki viðstaddur — en' vill halda í höndina á Gylfa í mál- inu? Benedikt Gröndal hafði fram sögu fyrir þingsál.yktunartil- lögu sinni um bankaútibú á Snæfellsnesi. Sagði hann mikla þörf fyrir það á nesinu og ósk- ir komið fram frá íbúunum, að slíku bankaútibúi yrði komið á fót. Tillaga Benedikts er ann ars áskorun á ríkisstjórnina að hlutast til um að bankaúti- bú verði reist á Snæfellsnesi. Skúli Guðmundsson kvað ekki ástæðu til að gera þetta mál að þingmáli. Undanfarið hefðu bankarnir reist mörg úti- bú víða um land' og fyrirhugað væri að. koma upp fleirum. Bankarnir sjálfir tækju einir um þetta ákvarðanir og ekki vitað, að ríkisstjórnin hefði þar komið nærri. Það væri því við bankastjórnir og bankaráð að eiga og ekki þörf afskipta Alþingis af málinu að sinni. Hitt væri efalaust, að mikii þörf væri fyrir slíkt bankaúti- bú á Snæfellsnesi. Sigurður Ágústsson sagði, að þetta væri ekki í fyrsta sinn, sem tillaga hefði komið fram á Alþingi um að reist yrði bankaútibú á Snæfellsnesi. Fyr ir 45 árufn hefði verið sam þykkt áskorun á stjórn Lands- bankans að reisa útibú í Stykk ishólmi. Útibúið væri ekki komið enn. Gylfi Þ. Gíslason, bankamála ráðherra, sagði það samkv. lög- um algerlega á valdi bankanna sjálfra, hvar og hvenær þeir kæmu sér upp útibúum. Að hans áliti væri hlaupinn ofvöxt ur í bankaútibúin hér í Reykja vík, en hins vegar gætti ekki nægilegs jafnvægis, þegar litið væri á landið j heild. Viðskipta málaráðuneytið gæti hins veg- ar engin afskipti haft af þess- um útbúamálum bankanna. Skúli Guðmundsson sagði Framhald á 13. siðu. KÚSBYGGJENDUR! HdSEIGENDUR! Ég vil vekja athygli ykkar á BUCHTAL-kera mikverksmiðjunum, vestur-þýzku, sem fram- leiða hinar þekktu Keramik-plötur til vegg- og gólfklæðningar. — Keramik-plötur þessar, sem eru bæði skrautlegar og mjög endingargóðar, þola mikil högg, salt og sýrur, hafa rutt sér til rúms, sér í lagi þó í öllum stórbyggingarframkvæmdum. BUCHTAL-keramikverksmiðjurnar voru sæmd- ar guil-medallu á heimssýningunni í Briissel, 1957, fyrir fyrsta flokks vörugæði. Keramik-plötur þessar eru notaðar m.a. til Frystihúsa, sundhalla, mjólkurvinnslustöðva, verksmiðju- byggingá og íbúðarhúsa af öllum stærðum, skólabygginga og til allra opinberra bygginga, véla- og raforkuvera, hjúkrunarbaða og snyrtiherbergja, bílaþvottastöðva og íþróttahúsa, kjötvinnslustöðva, kjöt og fiskverzlana, brauðgerðarhúsa og mjólkurbúða, húsaanddyra og- gang- stétta og til alls konar skreytinga á börum og anddyrum. Það eru fyrst og fremst hagsýnir menr. sem nota Buchtal- keramik-plötur, því að með notkun þeirra sparast við- haldskostnaður að öllu leyti. Eins og ofangreid upptalning sýnir má nota kearmik-plöturnar bæði innan húss og utan. Styrkleiki þeirra og ending hefur reynzt frábær samkvæmt niðurstöðum á rannsóknum, sem framkvæmdar voru við vestur-þýzka háskóla af þekktustu efna-vísindamönnum Þjóðverja. Keramik-plöturnar eru endingarbezta og fegursta byggingarefni, sem völ er á. Myndalistar og sýnishorn fyrirliggjandi. Allar nánari upplýsingar gefur einkaumboðsmaður á íslandi: MAGNÚS HARA.LDSSO■ Umboðs og heildverzlun, Aðalstræti 8, símar 16401 og 18758. Símnefni: ÁRVAKUR 6 T f M I N N, fTmmtudagur 31. janúar 1963.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.