Tíminn - 28.02.1963, Blaðsíða 15
rww\
Mmning j
Framhald af 4. síðu.
ems munaði um, og Framsóknar-
menn eiga þar fulltrúa, sem þeir
bæði meta og treysta.
Arnþór Þorsteinsson er skap-
stór maður og fjörmikill og eirir
hvorki hugsanaleti né lognmollu.
Hann hefur þó ekki það lagið á
að standa sjálfur fínpússaður á
einihverjum hefðarpalli og skipa
öðrum fyrir, heldur ræðst hann
ævinlega sjálfur fram til atlögu
og verka og lætur menn fylgja sér.
Fyrir þetta er hann dáður og á
það skilið.
Ein« og margir af sömu mann-
gerð er Arnþór Þorsteinsson ein-
hver skemmtilegasti félagi, sem
hægt er að kjósa sér, hvort heldur
í leik eða starfi. Undirhyggjulaus
og ærlegur, stórorður og bersög-
ull og stundum dálítið hryssings-
legur, er Arnþór nákvæmlega eins
og hann er séður. Og þó: Margir
vita ekki, að undir hinni hrjúfu
skel athafna- og fjörmannsins,
sem engum dylst, býr hrifnæmt
eðli bókmennta- og listelskandi
manns, sem nýtur alls göðs skáld-
skapar í orðum og litum af sannri
nautn. Veit ég fáa lesnari í ís-
lenzkum skáldskap og enn færri,
sem kunna jafnmikið af góðri
lýrík og hann. Sjálfur er hann
snjall hagyrðingur og leikur sér
að bragarháttum, ef hann vill það
við hafa.
Arnþór er sextugur í dag og á
því langan starfsferil að baki, en
hann á einnig svo margt óunnið
enn, að það er í rauninni engin
ástða til að rekja í löngu máli
öll hans störf, sem þó eru orðin
svo mikil, að vel mætti verða efni
í heila bók. Þessar linur eru að-
eins kveðjur saman settar í
skyndi. Ég veit, að ég mæli fyrir
munn allra hinna mörgu vina Arn-
þórs, þegar 'ég óska honum þess,
að hann megi alla ókomna ævi
vera sá, sem hann er, og okkur
samborgurum hans óska ég þess,
að við faum lengi enn að njóta
SKURÐGRÖFUR
með moksturstækjum
-: ■ ; ■■.
■■
Vér höfum tekið að oss einkaumboð hér á landi
fyrir J. C. Bamford (Excavators) Ltd. í Bret-
landi og gefum allar upplýsingar um fram-
leiðsluvörur þeirra.
★
Gröfurnar eru framleiddar í tveim stærðum,
JCB-3 og JCB-4C. Verksmið.ian er sú stærsta
í heiminum, sem sérhæfir sig í framleiðslu
á skurðgröfum af þessari gerð og hafa gröf-
urnar náð útbreiðslu um allan heim. Bent
skal á, að gröfurnar eru ekki byggðar til áfest-
ingar á traktora, heldur sem ein heild. Þær eru
því mjög sterkbyggðar og.afkastamiklar. Báð-
ar gröfurnar eru með mjög rúmgóðu húsi og
vökvastýri. Þeim er stjórnað á allan hátt úr
sama sætinu með aðeins tveim stjórnstöngum.
Gröfuarminum á minni vélinni er komið fyrir á færibraubað aftan og má með einu handtaki flytja arminn
til á brautinni með vökvakrafti. Getur því grafið nær alveg upp að húBveggjum. Snúa má henni í 200 gráðu
boga, Grafarafl um 5 tonn á gröfu og um tveggja tonna lyftuafl á moksturstæki. Vegur um 5 tonn.
Stærri grafan, JBC—4C — er enn þá öflugri. Graftarafl um 10 tonn. Vegur um 7 tonn. Báðar gerðirnar
má fá afgreiddar með moksturstækjunum án þess að kaupa skurðgröfuútbúnaðinn.
Nú þegar eru komnar til landsins nokkrar gröfur og fleiri á leiðinni.
Neitið nánari upplýsinga um verð og greiðsluskilmála.
ARNI GESTSÖON
Vatnsstíg 3 — Sími 17930.
starfskrafta hans og litríkra per-
sónueiginda, sem gert hafa Arn-
þór Þorsteinsson hinn minnis-
stæðastaæ mann og einn af ágæt-
ustu þegnum þessa lands.
• Ingvar Gíslason.
Frá Alþingi
í þessum efnum og tillaga eins af
framkvæmdastjórum SÍS því inn-
antóm yfirborðstillaga. Taldi ráð-
herrann að lokum, að slíkur belg-
ingur, borgaði sig sjaldan.
Fundartíma var lokig er hér
var komið og umræðunni frest-
að.
Axel saksóttur
Franiaaid rt > síðu.
framkvæmdastjórnar, skrifstofu-;
kostnaðar, húsaleigu, ljóss, hita
og fleira í 15 mánuði, kr. 214.000.-
00, án sundurliðunar eða skýringa
á þeim reikningi og þrem öðrum,
» sem getið var í bréfinu.
Vai'ffandi skrúfuna, sem getur
í tilkynningu saksóknara, segir í
bréfinu, að upphaflega hafi ekki
verið annað fylgiskjal fyrir slík-
ura viðskiptum en ókvittað papp-
írsblað, sem gaf til kynna, að
keypt hefffi verið koparskrúfa á
skipið fyrir kr. 135.000,00. Síðan |
skilaði Arel reikningi frá starfs-
manni sínum Nefndin taldi reikn-
inginn lítils virði, en raunar var
þessi skrúfa til.
Málið var lagt fyrir saksóknara
á sínum tíma. Síðan hefur það ver i
iff í dómsrannsókn. unz saksóknari
fékk það til umsagnar og ákvörð-
unar um málshöfðun eins og fyrr
getur. I
Einvígi í skák
Framhald af 16. síðu.
Á næstu hæff fyrir ofan, í salar-
kynnum málarafél. munu ýms-
ir færustu skákmenn borgarinnar
skýra skákirnar á sýningarborð-
um. Geta áhorfendur þar rætt
hverja skák og borið fram fyrir
spurnir um framvindu hennar og-
lagt fram tillögur og ágizkanir um
næstu leiki. Sú nýlunda verður
upp tekin, að keppendurnir sjálf
ir munu, ef aðstaða þeirra leyfir,
einnig koma í þennan sal og skýra
viffhorf sín og ráðagerðir í skák-
inni. Við þá mega áhorfendur
eðlilega ekki rökræða, og þeim
er fyrirmunað að skýra öðrum
keppanda frá áformúm hins.
Eins og áður segir, verffur fyrsta
skákin tefld föstudaginn 1. marz,
en önnur sunnudaginn 3. marz
kl. 2. Biðskákir (biðskák) verða
þriðjudaginn 5. marz. Þriðja skák-
in er ráðgerð föstudaginn 8. marz
kl. 8, en fari hún í bið, verður
henni haldið áfram daginn eftir,
iaugardag, kl. 2. Sú fjórða og
síðasta verður tefld sunnudaginn
10 marz kl. 2.
í fyrstu skákinni mun Friðrik
Ólafsson tefla með hvítum mönn-
um. Skákstjórar verða þeir Jón P.
Emils og Jóhann Þórir Jónsson.
Albert
Framhald ai 1 síðu
hversstaðai niðri og brotið
skiúfu ig stýri. Vegna lekans
varð að stöðva vélarnar, þar eð
vatn komsi upp á katlana. Lóðs
inn tók togarann þegar í tog
og hélt af. stag inn til Eyja.
Jörðín Karlsá
við Dalvík er til sölu og er laus til ábúðar á vori
komandi. Þeir, sem óska upplýsinga, snúi sér til
Sigurjóns Hjörleifssonar, Dalvik.
Skipstjón á Lóðsinum er Ein-
ar Jóhannesson.
Varðskipið Albert lá hér inni
er þetta gerðist. Ilélt skipið
þegar út til aðstoðar og mætti
Lóðsinum og hjálpaði til viff
að koma togaranum inn undir
Eiði. Þar var sett dæla um borð
frá Albert og togarinn varpaði
akkerum. En svo mikill var
veðurofsinn, að akkerisfestar
slitnuðu og 'varg Albert þá að
taka togaiann í tog og halda sjó
með hann. Lóðsinn er þarna
einnig til aðstoffar og nú er
annað varðskip á leiðinni til
hjálpar ef með þarf, en vonandi
kemur ekki til þess, en veðrið
hefur farið heldur skánandi
með kvöldinu. Ekki mun enn
ákveðið, hvort farið verður með
togarann inn hér til viðgerðar
eða til Reykjavíkur, þegar veð
ur gengur niður.
Víðivangur
akv. en lýðræðissinnar 197 og
var þá 30 atkvæða munur“.
Hér er alrangt skýrt frá úr-
slitum og auðséð að ekki er um
prentvillu að ræða, þvi að lagt
er út af röngu tölunum oig sagt
að 10 atkvæða munur hafi
verið.
Úrslitin urðu þau, að A-list-
inn, listi vinstri manna hlaut
290 atkv. en B-listinn 227 O'g
var munurinn 63 atkvæði, en
við stjórnarkos.ninguna i fyrra
var munurinn aðeins 16 atkv.
Af þvi að Mbl. er svo strang-
heiðarlegt blað í fréttaflutn-
ingi, voru menn að búast við
ieiðréttingu og afsökunarbeiðni
í gær, en hún sást ekki í Mbl.
þó leitað væri með logandi
Ijósi. Getur það verið, að Moggi
sé fréttafalsari? Það hefði lík-
lega fremur mátt búast við
þessu í „fréttafölsunarblaðinu“
Tímanum, er það ekki, Moggi
sæll?
T I M A N N
vantar börn til bíaöburðar i eftirtalin hverfi:
Langholtsveg (innri hluta).
Grimstaðaholt
Seltjarnarnes (Melabraut)
Bankastræti 7 — Sími 12323 og 12504.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er heiðruðu
okkur með gjöfum, skeytum og heimsóknum á 50 ára
hjúskaparafmæli okkar 31. janúar s.l.
Sigríður Jónsdóttir og Sigurður Guðmundsson
Ásmundarstöðum
Þökkum auðsýnda samúö við fráfall og jarðarför föður okkar
KARLS HALLDÓRSSONAR
tollvarðar,
sérstakar þakkir færum við samstarfsmönnum hans og karlakórnum
Fóstbræðrum.
Guðlaug Karlsdóttir Reynir Karlsson
Stjúpmóðir okkar,
ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR .
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að kveldi hins 26. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Guðrún Þorstelnsdóttir
Hans Þorsteinsson
T í M I N N, fimmtudagur 28. febrúar 1963.
15