Tíminn - 20.03.1963, Síða 5
RITSTJORi HÁLLUR SIMONARSON
UNGLINGAlANDSLIDID
HÉLT UTAN í MORGUN
Leikir Norðurlandamótsins hefjast á föstudaginn
íslenzka unglingalandsliðið
í handknatfleik hélt flugleiðis
til Noregs í morgun, en um
næstu helgi tekur liðið þátt í
Norðurlandamóti unglinga í
handknattleik, sem fram fer í
borginni Hamar. — Með í för
inni verða fjórtán leikmenn,
auk tveggja fararstjóra —
þeirra Jóns Kristjánssonar og
Ásbjarnar Sigurjónssonar, en
einnig verða með í förinni
þjálfarinn, Karl Benediktsson,
og Magnús Pétursson, sem
dæma mun nokkra leiki í mót-
inu.
Eins og við skýrðum frá hér í
blaðinu fyrir nokkru, hefur verið
ákveðið ag fyrsti leikur mótsins
verði milli íslands og Noregs o'g
fer hann fram á föstudaginn og
hefst kl. 3 eftir íslenzkum tíma —
og tveimur tímum síðar mætir ís-
land Dönum eða kl. 5.05. Þennan
sama dag leika Finnar og Svíar
Unglingalandsliðið í liandknattleik 1963, sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Hamer um næstu helgi.
— Aftasta röð frá vinstri: Viðar Símonarson; Knist mann Óskarsson; Björn Blöndal; Auðunn Óskars-
son; Jón Karlsson og Sigurður Dagsson. — M'iðröð: Tómas Tómasson; Sigurður Karlsson; Sigurður
Hauksson, fyrirliði; Brynjar Bragason og Theódór Guðmundsson. — Fremsta röð: Ólafur Friðriksson;
Hinrik Binarsson og Stefán Sandholt. (Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson).
og fer sá leikur fram strax á eftir
leiknum ísiand—Noregur.
Á laugardaginn leikur ísland
einn leik — gegn Finnum og hefst
hann kl. 3,30. Þennan dag leika
Danmörk og Finnland fyrsta leik
— þá Noregur og Svíþjóð, síðan
ísland og Finnland þama á milli,
og síðasti leikurinn verður á milli
Noregs og Danmerkur.
Á sunnudaginn lýkur mótinu og
fara þá fram þrír leikir. — í fyrstá
leiknum mætast ísland og Svíþjóð
og hefst hann kl. 09,00 eftir þar-
lendum tíma — eða kl. 12 eftir ís-
lenzkum. f öðrum leiknum mætast
Finnland og Noregur og í síðasta
leiknum mætast svo Svíþjóð og
j Danmörk — liðin sem börðust um
j efsta sætið í fyrra, en eins og
: kunnugt er urðu Svíar sigurveg-
arar.
I Fyrir keppnina núna er Svíum
! aJmennt spáð sigri, en þeir eiga
mjög góðum unglingaliðum á að
skipa, en annars er erfitt að spá
fyrir um úrslit — og varla hægt
að d>-aga nokkrar , ályktanir af
síðasta Norðurlandamóti, sem
fram fór á svipuðum tíma í fyrra,
þar sem aldurstakmarkið hefur
iækkað og fáir leikmenn frá því
■ í fyrra leika nú með.
íslenzka unglingalandsliðið skipa
eítirtaldir leikmenn:. Brynjar
Bragason, Víking, Sigurður Karls-
scn, ÍBK, Kristmann Óskarsson,
Val, Sigurður Dagsson, Val, Stef-
ón Sandhoit, Val, Jón Karlsson,
Val, Hinrdk Einarsson, Fram, Tóm
as Tómasson, Fram, Theodór Guð
mundsson KR, Björn Blöndal. KR.
Viðar1 Símonarson, Haukum, Auð-
unn Óskarsson, FH, Ólafur Frið- j
riksson, Víking og Sigurður Hauks
son, Víking, sem jafnframt er fyr-
irliði liðsins.
Íþróttasíða Tímans óskar ung-
lingalandsliðinu góðrar ferðar og
vonar að frammistaða þess verði
íslenzkum íþróttum til sóma.
FENGU
6ÆÐI
STIGIN
Eins, og Tíminn skýrði
frá fyrir nokkru kærði Vík-
ingur leikinn vig ÍR í fyrri
umferð íslandsmótsins í
liandknattleik, sem fram fór
fyrir áramót og Iyktaði með
jafntefli. — Byggði Víking-
ur kæru sína á því, að með
liði ÍR lék þennan umrædda
Ieik, Matthías Ásgeirsson,
sem hafði leikið með ÍBK áð
ur á árinu, en í lögum ÍSÍ er
skýrt tekið fram, að Ieik-
manni sé óheimilt að leika
með tveimur félögum á
sama almanaksárinu.
Handknattleiksráðið fékk
kæruna til meðferðar og
sendi hana til sérráðsdóm-
stóls síns, sem nú hefur
dæmt í málinu og komst að
þeirri niðurstöðu, að lið ÍR
hafi verið ólöglegt í Ieiknum
og beri Víkingi ag fá bæði
stigin.
ÍR krafðist þess, að kær-
unni yrði vísað frá, á þeim
forsendum að síðasta HSÍ-
þing samþykkti breytingu á
keppnisárinu, þannig að það
hæfist 1. septembcr ár hvert
en ekki um áramót eins og
verig hefur, og hefði ÍR-
liðið því verið löglegt um-
ræddan leik.
Á jsetta sjónarmið ÍR gat
dómstóllinn ekki fallist —
þar sem dæmt er eftir lög-
um ÍSÍ — og breytir þar
afstaða HSf engu.
Víkingur, 'sem hafði 10
stig i mótinu áður en kær-
an var tekin fyrir — hefur
eftir þessu nú 11 stig, en
ÍR 7 stig — hafði 8 áður.
Kar 1 Benedi iktsson um t i-landsliðiö
Ghnwm ennþá irið drauginn
frá í fyrra — áthaldsleysið
— Ég neita því ekki, að ég
tel úthaldi og snerpu íslenzka
liðsins áhótavant og er hálf
hræddur um að það tvennt
komi til með að verða okkur
fjötur um fót, þegar til átaka
kemur vig unglingalandslið
hinna Norðurlandaþjóðanna —
eða með öðrum orðum, við eig-
um við sama drauginn ag glíma
og í fyrra, er ísíand tapaði
flestum sínum íeikjum á Norð-
urlandamótinu með litlum
mun, vegna úthaldsleysis.
Eitthvað á þessa leið fórust
Karli Benediktssyni, þjálfara
unglingalandsliðsins, sem kepp
ir á Norðurlandamótinu um
pæstu helgi, orð, er við rædd-
um lítillega við hann um mögu
leika íslenzka liðsins í mótinu.
— Megin orsökin fyrir þessu
sífellda úthaldsleysi er um-
hverfið, sem unglingarnir hafa
alizt upp í, heldur Karl áfram,
— þeir piltar, sem mynda ftetta
landslið, hafa keppt í íþrótta-
húsinu ag Hálogalandi, allt frá
því að þeir fóru að æfa hand-
knattleik og hafa vanizt aðstæð
um þar, sem eru gjörólíkar að-
stæðum á venjulegum velli. —
Ef við tökum t.d varnarleikinr
fyrir, sést srlðvelegá hvað mis
munurinn er eífurlegur. — A?
Hálogalandi þarf leikma.ður
ekki að verja nema helming
þess svæðis, sem hann þarf að
verja á leikvelli af réttri stærð.
Af þessu leiðir að leikmaður-
inn venst við hægar hreyfingar
og sumir hverjir hreyfa sig
varla úr stað t. d. þeir, sem eru
í hornunúm. Þegar leikmaður
tekur tvö skref í litla salnum
að Hálogalandi — þarf hann að
taka fjögur skref á velli af
réttri stærð — og gera það á
jafnlöngum tíma. — Þetta
verða menn að reka sig á til
að skilja tilaang þrekæfinga —
,ng ég verð að viðurkenna, að
mætingar hjá niltunúm á þrek
æfingarnar hjá Benedikt Jak
obssyni hafa verið slæmar —
gallinn er nefnilega sá, að þeir
hafa ekki skilið tilganginn.
Framhald á bls. 15.
Kvennaleikir
Tveir leikir fóru fram í meistara
flokki kvenna á íslandsmótinu í
handknattleik á laugardagskvöld-
íð. auk tveggja leikja í 3. flokki.
í fyrri kvennaleiknúm mættust
Fram og Ármann og sigraði Ár-
mann með 18:14, eftir að hafa
haft yfir í hálfleik 9:7. Ekki er
hægt að segja að mikil reisn
eða glæsibragur hafi verið yfir
leiknum — hann var daufur og
leiðinlegur og táknrænn fyrir leik
kvenfólksins í dag. í seinni leikn-
um vann Víkingur Breiðablik með
9:8.
í 3. flokki vann ÍR Víking með
14:8 og Valur vann Þrótt með
25:10.
Jörö til sölu
Jörðin Haukagil í Vatnsdal er
til sölu Upplýsingar gefur eig-
andi larðarinnar, Konráð
Eggertsson. sími um Ás.
VIMINN, miðvikudaginn 20. marz 1963