Tíminn - 10.04.1963, Blaðsíða 16
Færeysk landheigi s höndum
íslenzku ríkisstjórnarinnar
Miðvikudagur 10. apríl 1963
85. tbl.
47. árg.
— segir sjávarútvegsmálaráðherra Færeyja í viðtali við
Tímann í gær
JK-Reykjavík, 9. apríl
Framlenging dönsku stjómar-
innar á togveiðileyfum innan fær-
eysku tólf mflna landhelginnar hef
ur vakift mikla reiði í Færeyj-
um. Færeyingar þykjast illa svikn
' ir, að landhelgin skyldi ekki færð
út í tólf mQur 28. þessa mánaðar,
eins og ráð hafði verið fyrir gert.
Knút Wang, ritstjóri Dagblaðs-
ins, og Erlendur Patursson, sjáv-
arútvegsmálaráðherra færeysku
landsstjómarinnar, létu I dag i
ijós ótta um, ag eitthvaS byggi
á bak viS það, að framlengingin
gildir til sama dags og samningur
íslands og Bretlands um undanþág-
ur inan íslenzku landhelginnar
rennur út.
Erlendur Patursson sagði Tím-
anum í dag, að hann liti svo á
málin, að Bretar ætluðu að þrýsta
bæði á íslendinga og Dani í einu,
Jægar báðir samningarnir renna
út 12. marz á næsta ári. Hann sagði
að nú ylti allt á því, hvað íslend-
ingar aðhefðust í landhelgismálun-
um, því Danir mundu taka sömu
afstöðu og þeir. Hann sagði, að
segja mætti, að færeyska landhelg-
Framhald á bls. 15.
wMM m
W v&éTti 'S- mm>' 0U
'm' if í'/ ■■
* JK-REYKJAVÍK, 9. apríl.
Þessl mynd er tekin úr nýja
flugturninum á Reykjavíkur-
flugvelli og' sést yfir flug-
stöðvarbyrggingu LoftleiSa. í
gær var lokið við að steypa
loftlð á 'fyrstu hæð bygging-
arinnar, en húsið á að vera
fullsteypt í júnílok. Bygglngin
á að vera tilbúin til notkunar
í febrúar á næsta árl.
Loftleiðir byggðu sjálflr
kjallarann undir skrifstofu-
álmunni og undirstöðurnar
undir afgreiðsluálmuna. Skrif
stofuálman var síðan boðin
út, en hún verður þrjár hæðir
fullgerð. Verktakarnir eru
Þórður Kristjánsson og Ragn-
ar Bárðarson byggingameist-
arar. Þessi álma er 800 fer-
metrar að flatarmáli og önn-
ur hæð hennar á að verða
fullsteypt eftir fjórar vikur.
Teikningum af afgreiðslu-
álmunni, sem verður tvær
hæðir, er ekki lokið, og á-
kvörðun hefur ekki verið tek-
in um, hvenær hún. verður
tekln í notkun. — Jóhannes
Eínarsson, verkfræðingur
Loftleiða, hefur eftirlit með
þessum framkvæmdum. — Á
myndinni sést næst, grunnur
afgreiðsluálmunnar, en hún
liggur milli skrlfstofuálmunn
ar og flugturnslns, sem mynd
in er tekin úr.
(Ljósm.: TÍMINN-GE).
Félagsmálaskólmn
Af óviSráðanlegum orsökum
feUur niður auglýstjir. fui^dur í
kvöld.
15 kr. inngöngu-
gjald í vínhúsin
BJORGUN-
ARLAUNIN
URDU 20%
BÓ-Reykjavík, 9. aprll
í gær var samið. um björg-
unarlaun Vestmannaeyjakaup
staðar og Landhelgisgæzlunn-
| ar vegna þýzka togarans
Trave, sem tók niðri á Faxa-
skeri og Vestmanaeyjalóðs og
varðskipið Albert drógu til
hafnar.
Samig var um 1,2 milljónir kr.
eöa 20% af virðingarverð'i skips
og farms hér. Var samningurinn
gerður með milligöngu Trolle og
Rote, sem hafði ábyrgzt óákveðna
upphæð fynr hönd þýzka ábyrgð-
arfélagsins. Áður hafði verið rætt
um björgunarlaun að upphæð kr.
3,6 milljónir, eða 60% af virðing-
arverðinu. Skipti björgunarlaun-
anna hafa ekki verið útkljáð.
TK-Reykjavík, 9. apríl.
f dag Iagði ríkisstjórnin fram
frumvarp um breytingar á lögum
um skemmtanasbatt. Var frum-
varpið tekið til 1. umræðu í neðri
deild á síðdeigisfundi í gær og
mælti Gylfi Þ. GísQiaso,n, mennta-
málará'ffherra, fyrir frumvarpinu.
Heiztu nýmæll frumvarpsins eru
þau, að á vínveitingahúsunum,
senr ekki hafa krafizt aðgangseyr-
is af igestum, verður nú tekið upp
svokallað rúllumiðu-fyrirkomulag
og 15 króna inngöngugjald heimt
af hverjum gesti. Af þessum 15
krónum eru 8 krónur skemmtana-
skattur, 2 kró,nur renna til menn-
imgarsjóðs og 5 krónur taka húsin
sjálf. Þá kveður frumvarpið á um
að leiksýningar, klassískir tónleik
ar, sýningar á íslcnzkum lcvik-
myndum og æskulýðsdansskemmt
anir séu undanþegnar skemmtana-
skatti.
í greinargerð með frumvarpinu
■segir enn fremur, að dansskemmt-
' anir fél'aga og annarra aðila skuli
. undanþegnar skemmtanaskatti, ef
‘ víri er' ekki háft þár um hörid, en
samkvæmt núgildandi lögum hef
ur orðið að greiða skemmtanaskatt!
af hvers konar skermmtunum, efi
einhver dans hefur farið þar fram.
; Vínlausir skemmtistaðir fyrir
æskufólk verða undanþegnir!
; skemmtana‘skatti. Jafnframt segir;
|í greinargerðinni: „Ekki þykir!
ástæða til að láta undanþáguna |
ná til stærstu dansskemmtihúsa,!
sem halda dansleiki að staðaldri!
í eigin nafni. í frumvarpinu sjálfu
segir hins vegar: „Loks er ráð-
herra heimilt að undanþiggja
■skemmtanaskatti dansskemmtanir,
með eða án minni háttar skemmti-
atriða, enda sé vín ekki haft um
hönd á Jressum skemmtunum, og
þær ekki haldnar í danshúsum,
sem löggilt eru fyrir 300 gesti eða
fleiri í sæti. Ráðherra ákveður,
Framhald á 15. síðu.
SamiB um
fíokkun
Samningar hafa nú tekizt milli
samninganefndar ríkisstjórnarinn-
ar og kjararáðs BSRB um skipun
rikisstarfsmanna i 28 launaflokka.
Flokkunin er birt á 9. síðu í dag.
Enn er eftir að semja um laun,
vinnutíma, yfirvinnu og ýmis al-
menn ákvæði, en frestur til að
vísa málinii til Kjaradóms, rennur
út 15. apríl n.k.
VÖRUSALA M.F. NÆR 200 MILLJ.
Aðalfundur Mjólkurbús Flóa-
inanna var haldinn í félagsheimil-
mu að Flúðun: í Árnessýslu í gær
og hófst klukkan 1 e.h,- Varafor-
maður stjórnar mjólkurbúsins,!
Sigurgrímur Jónsson í Holti, setti
fundinn með ræðu og minntist m.
a. tveggja nýlátinna manna, sem
lengi hafa verið fulltrúar á aðal-
fundum M.B., þeirra Eiríks Jóns-
! sonar i Vorsabæ og Jóns Þorkels-
1 sonár frá' Brjánsstöðum.
Fundarstjorar voru kjörnir Þor-
steinn Sigurðsson, Vatnsleysu og
Sigmundur Sigurðsson í Syðra-
l.angholti.
Á fundinum voru 65 fulltrúar
fiá 32 félagsdeildum og að vanda
tjöldi bænda af félagssvæðinu og
ýmsir gestiv og munu fundarmenn
hafa verið a sjötta hundrað.
Grétar Simonarson, forstjóri
mjólkurbúsms flutti ýtarlega
skýrslu um reksturinn og skýrði
reikninga búsins. Alls bárust bú-
inu 34.6 míllj. kg. af mjólk árið
1962 en var 32,8 millj. árið 1961
og er aukningin 5,6%.
1113 bændur lögðu mjólk í búið
á árinu og eru það 24 færri en
arig áður.
Mest miólkurmagn kom úr
Hrunamannahreppi, 2,6 millj. kg.
en bezta mjólkin úr .Hörgslands-
hieppip96,889& 1 1. fjcúck.
FramfiaTd a '15. síðu.'