Tíminn - 25.04.1963, Blaðsíða 3
SENDIHERRAR RÆDA VID
KRUSTJOFF UM AFVOPNUN
NTB-Moskva, 24. apríl
Sendiherrar Bretlands og
Bandaríkjanna í Moskvu áttu
síðdegis í dag hálfs annars
klukkutíma samtal við Krust-
joff forsætisráðherra um
bann við tilraunum með kjarn
orkuvopn
Vesturveldin áttu upptökin að
þessum fundi, en tilgangur hans
var sá, að reyna að fá Krustjoff
til að samþykkja nýjar viðræður,
sem geti leyst þann hnút, sem
kominn er á málin á afvopnunar-
ráðstefnunni í Geneve.
Lundúnabúar voru í Hátíðarskapi
í dag, en þá voru gefin saman
í hjónaband þar í borg Alexandra
prinsessa af Kent, frænka Elísa-
betar drottningar, og kaupsýslu
maðurinn Angus Ogilvy, sem er
kominn af einhverri elztu og göf
ugustu aðalsaett í Skotlandi. At.
höfnin fór fram i Westmlnster
Abbey, og var þar margt stór-
menna viðstatt; drottningin sjálf
og Ólafur Noregskonungur og
Haraldur krónprins. Mikill mann
fjöidi hafði safnazt saman með
fram öllum vegum, sem brúðhjón
in óku um, og voru sumir búnir
að taka sér stöðu Strax í gær.
kvöldi og biðu í alla nótt. —
Myndin hér til hliðar er af brúð
hjónunum, tekln í gær fyrir fram
an Westminster Abbey, en þá fór
fram lokaæfingin fyrir sjálfa at-
hðfntna í dag. (UPI)
AFP hefur eftir góðum heim-
ildum í London, að vel geti komið
til mála að halda fund æðstu
manna þeirra Kennedys, Krustj-
offs og MacMillans, ef sjónarmið
þessara þriggja landa nálgist svo,
að von geti orðið tif samkomu-
lags. Sendiherrarnir nefndu þó
ekki slíkan fund í samræðunum
við Krustjoff í dag. Að sögn tals-
manns brezku 'stjórnarinnar er
skoðanamunurinn milli Vestur-
veldanna og Rússa um bannmálið
tiltölulega iitill, en ágreiningur er
um fjölda eftirlitsferða og hvern
ig eftirlitinu skuli háttað. í einka
viðtali Kennedys og MacMillans
fyrir nokkru kom fram sú hug-
mynd, að sendiherrarnir ræddu
málið við Krustjoff persónulega.
Talsmaður brezku stjórnarinnar
víldi þó þvorki játa né neita fregn
um um, að sendiherrarnir hefðu
afhent Krustjoff skrifleg boð frá
Kennedy eða MacMillan, en játað
var, að þeir hefðu borið fram til-
lögu um utanríkisráðherrafund
landanna þriggja.
Sagt er í Bretlandí, að Vest-
urveldin muni ef til vill geta fall-
izt á fækkun árlegra eftirlitsferða
og látið sér nægja þrjár, eins og
Rússar vilja, ef vissum skilyrðum
verði fullnægt.
í kvöld birti utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna yfirlýsingu um við
ræður sendiherranna við Krust-
joff, þar sem borið var á móti
fregnum frá Moskvu, sem sögðu,
að sendiheirarnir hefðú á fund-
inum borið fram tillögu um að eft-
irlitsferðir á sovézku landi yrðu
alls 30 og skipt niður á 7 ár.
Sagði talsmaður ráðuneytisins, að
ekki hefði verið rætt um neinn
ákveðinn fjölda eftirlitsferða.
BRETAR FAGNA,
FRAKKAR SÚRIR
NTB-Bonn, 24. apríl.
Flokkur frjálsra demokrata í
Vestur-Þýzkalandi lýsti í gær-
kveldi yfir ánægju siniii me'ð þá
ákvörðun kristilegra demokrata
að útnefna Ludwig Erhard sem
næsta kanslara flokksins, þegar
Adenauer lætur af Störfum í
haust. Sósiialdemokratar benda
Harriman fer til
vegna ástandsins í Laos
NTB—Washington og London,
24. apríl
Averell Harriman, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, mun
væntanlega fara tH Moskvu á
fimmtudaginn til að ræða um á-
standið í Laos vig Gromyko utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna.
Skömmu eftir að þetta var til-
kynnti vamarmálaráðuneyti Banda
ríkjanna, að í næsta mánuði myndu
orrustusveitir verða sendar til her
æfinga í Thailandi á vegum SEA
TO, vamarbandalags Suðvestur-
Asíu. Þag var tekið fram í sam-
bandi við þessar æfingar, að þær
hefðu verið ákveðnar fyrir mörg
um mánuðum, en því bætt við, að
menn gerðu sér vonir um, að dvöl
bandarískra hermanna í Thailandi
myndu hafa spekjandi áhrif á
kommúnistana í Pathet Laos-
hreyfingunni og þeir sýna meiri
stillingu.
AFP tilkynnir í kvöld frá Vien-
tiane, að bardagar hafi átt sér stað
að nýju milli hersveita kommún-
ista og hlutlausra á Krukkusléttu
NTB, 24. aprfl
• Pakistan hefur lýst því yf-
ir að viðræðunum við Indverja
um Kahsmirmálið verði að vera
lokið fyrir 1. júní.
© Yithzhak Ben Zvi, forseti
ísraels, var jarðaður í dag
• WiIIy Brandt, borgarstjóri
í Vestur-Berlín ræddi í dag
við de Gaulle forseta Frakk-
Iands í Norðaustur-Frakklandi,
en þar er de GauIIe nú í yfir-
reið um landið.
• Vesturveldin hafa ráðið
Vestur-Þjóðverjum frá því, að
kalla sambandsþingið til fund-
ar í Vestur-Berlín.
• Eftir 13 umferðir í lieims-
mcistarakeppninni í skák
standa leikar þannig, að Petro-
sjan hefur enn yfir, 7 vinninga,
en Botvinnik hefur G.
• Ríkisstjórn Vestur-Þýzka-
lands hafnaði í dag tilmælum
frá ráði EBE um samræmingu
komverðs í aðildarlöndum
bandalagsins.
• Danir hafa náð samkomu-
lagi við Breta um lækkanir
tolla á dönskum landbúnaðar-
afurðum.
í Laos, og virtist vopnahléð, sem
hefur staðið síðustu þrjá dagana
að fara út um þúfur.
Averill Harriman hefur ag und-
anförnu verið í London og rætt
við Home lávarð um Laos-málið,
en Home var ásamt Gromyko í
forsæti á ráðstefnunni í Geneve
um málefni Laos, og Harriman
átti meiri þátt þar en nokkur ann
ar fulltrúi í samningu þess sátt-
mála um hlutleysi landsins, er ráð
stefnan náði samkomulagi um.
Home lávarður flutti ræðu um
Laos-málið í lávarðadeild brezka
! þingsins í dag. Þar sagði hann m.
m., að alþjóðlegu eftirlitsnefnd-
inni hefði verið meinað að senda
menn til landsvæða á valdi komm
! únistahreyfingarinnar Pathet La-
os, en það skipti meginmáli, að
nefndin fengi að ferðast um allt
i iandið til að fylgjast meg því,
; hvort ákvæðum Geneve-sáttmálans
væri hlýtt. Þá sagði Home lávarð
ur einnig, að sendiherrar Bret-
iands og Sovétríkjanna í Vientiane
hefðu báðir veitt Souvana Phouma
forsætisráðherra virka aðstoð í til
raunum hans til að stöðva bardag
ana og koma á aftur eðlilegu á-
standi í landinu.
hins vegar á að kjör Erhards sé
aðeins bráðabingðalausn, þar eð
þingkosningar eigi að fara fram
árið 1965.
Kjöri Erhards er tekið með mik
illi ánægju í Bretlandi, þar eð
Bretar telja víst, að Erhard sé
frjálslyndari og hliðhollari Bet-
um en Adenauer hefur vérið, og
kveðast stjómarvöldin gera sér von
ir um að vinátta Breta og Þjóð-
verja fiari vaxandi við kamslara-
skiptin.
Brezk bl'öð skrifa flest um kjör
Erhards í morgun. The Times
fagnar því nánara samstairfi Breta
og Þjóðverja, sem hljóti að leiða
af skiptunum, og The Guardian
bendir á, að alkunna sé, að Er-
hard sé hliðhoHari Bretum og
ekki eins mikill Frakkavinur og
Adenauer. Blaðið segir, að mesti '
munurinn á Erhard og Adenauer
sé sbapgerðarmunur. Adenauer
sé án efa íhaldssamasti þjóðarleið
togi Þýzkalands síðan Bisimarck
leið.
Tilkynningunni um útnefningu
Erhards hefur verið tekið með
lítilTi hlýju í París. Talsmenn
stjómiarinmar viljia ekkert segja
um málið, þar eð það sé þýzkt inn
anríkismál, en það fer ekki á milli
mála, að franskir ráðherrar eru
miðlungi hrifnir af kjöri hans, þar
eð þeim er ljóst, að Erhiard hall-
ast meir á sveif með Bretum og
Bandaríkjamönnum en Adenauer,
sem var ævinlega opnari fyrir
frönskum áhrifuim en nokkur ráð
herra hanis.
-t-
Sænska stúdentinum sieppt
NTB-Stokkhólmi, 24. apríl.
Sænski stúdentinn, Lif Pers-
son, sem síðasta mánuðinn
hefur setið í fangelsi í Aust-
ur-Berlín, ákærður fyrir að
hafa aðstoðað Austur-Þjóð-
verja við flótta til Vestur-
Berlínar, var í dag látinn laus
og kom það mjög á óvart bæði
sænskum stjórnarvöldum og
| foreldrum hans í Alingsás,
skammt frá Gautaborg.
Eins og áður hefur verið skýrt
ifrá, var Persson tekinn fastur 20.
! marz á leið simni frá Sassnitz til'
Berlínar, em hann stundaði áður
I niám í Vestur-Berlín. Fyrst hálf-
I um mánuði síðar var opinberlega
skýrt frá hamdtöku hans í Austur-
; Þýzkalandi, og þá var sagt, að
1 hann hefði aðstoðað flóttamenn
T I M I N N, fiimmtudagurinn 25. april 1963.
við að komast úr landi. Að sögn
Austur-Þjóðverja hafði Persson á
sér meira en 40 sænsk vegabréf,
þegar hanm var tekinm höndum.
Það var austur-þýzka fréttastof
an AD'N, sem skýrði fyrst frá því í
morgun, að Persson hefði verið
sleppt úr haldi. Að sögn frétta-
stofunnar hafði Persson játað á
blaðamanmafundi í Austur-Berlín
að hamn hefði verið í félagsskap
Framhald á 15. siðu.
3