Tíminn - 16.06.1963, Blaðsíða 15
MINNING
Guðjón Jónsson
Aldamótakynslóðin er sameigin-
legt naln á því fólki sem kom til
starfa og forustu í íslenzku þjóð-
lífi um s.l. aldamót. Þetta fólk sem
margt var merkt af kröppjum kjör-
um hefur skilað landinu 7 hendur
þeirra kynslóða sem nú hafa tekið
við störfum og völdum í landinu
með svo miklum ágætum að seint
verður fullþakkað.
Flestir aldamótamennirnir eru
horfnir af sjónarsviðinu og þeir
síðustu troða nú ört moldarskafl-
inn.
í Vestmannaeyjum kvaddi aldr-
aður sægarpur, Guðjón Jónsson,
skipstjóri, lengi kenndur við heim
ili sitt Heiði, en hann andaðist
22. marz s.l., og greftraður frá
Landakirkju 2. apríl s.l.
Að fomum rausnarsið bauð
ekkja Guðjóns, frú Bjarngerður
Ólafsdóttir öllum jarðarfarargest-
um til kaffidrykkju eftir útförina
og hæfði sú rausn vel höfðings-
manni þeim, sem kvaddur var.
Guðjón Jónsson var fæddur 18.
maí 1882 í Indriðakoti undir Eyja-
fjöllum; alinn upp við mikla vinnu
en kröpp kjör eins og þá var svo
títt í landi hér, kominn af traustum
bændaættum, þessu þróttmikla,
sei'ga fólki, sem aldrei gafst upp
hvað sem að höndum bar, enda
urðu þessir kostir ríkir í eðli Guð-
jóns.
Guðjón var eitt þeirra ungmenna
sem batt bjartar vonir við hina
rísandi tuttugustu öld, en með öld
inni hófst hinn eiginlegi starfsdag-
ur Guðjóns þótt hann hefði strax
fimmtán ára unglingur hafið sjó-
róðra á Suðurnesjum.
Trú og dáð og dugur sveik Guð-
jón aldrei og mildi og ríkidæmi
Guðs hans entist honum alla ævi
þess vegna varð starfsdagur Guð-
jóns svo langur og giftudrjúgur.
Guðjón á Heiði stundaði sjó 52
vertíðir, lengst af skipstjóri, harð-
sækinn og aflasæll og ungir menn
sóttust eftir skiprúmi hjá honum,
vegna alls, öruggrar vissu um góð-
an aflahlut, samstarf og leiðsögn
viturs og mikilhæfs skipstjórnar-
manns og hollráð og leiðbeiningar
góðs félaga og húsbónda.
Guðjón á Heiði missti aldrei
mann af skipum þeim er hann
stjórnaði og skipverjar hans urðu
aldrei fyrir slysum eða meiðslum.
Margir kalla þetta heppni, en
það er annað og meira, forsjált og
vökult formannsauga horfir hauk
fránum augum yfir störf skipverj-
anna og verþá hættum og áföllum.
Farsæl skipstjórn byggist fyrst
og fremst á vitsmunum og þekk-
MESTA FLUGÞJOÐIN
Framhald af 1. síðu.
forsíðu ritar forseti íslands,
herra Ásgeir Áageirsson,
kveðju til Norðmanna, og þar
er ennfremur grein eftir Har-
ald Guðmundsson, aimbassador
íslands í Noregi, og viðtal við
Tohan Cappelen, ambassador
Noregs á íslandi.
Um efni blaðsins hefur Mats
Wibe Lund jr. séð, og einnig
ritað að mestu leyti og tekið
margar myndanna. Auk grein-
arinnar um flugmálin, má geta
greinar um siglingar íslend-
inga, um skógrækt á íslandi,
um ferðamannaland, um ís-
lenzkan landbúnað, um fisk-
veiðarnar, um iðnaðinn, um ut-
anríkisverzlun o. fl. o. fl.
Vert væri að geta nánar urn
þessa myndarlegu íslandsút-
gáfu Norges handels og sjöfarts
tidende, sem augljóslega er
gerð af alúð og aðdáun á landi
og þjóð.
ingu x skipstjórnarstarfinu sem
beitt er með athygli og fyrirhyggju,
og því, að beina hæfileikunum í
þann farveg sem að skipstjórnar-
starfinu lýtur. Þetta gerði Guðjón
með frábærum árangri.
TH þess eru miklir menn að setja
markið hátt. Guðjón var einn þess
ara miklu manna sem gerði alltaf
mestar kröfur til sjálfs sín og þýð
ing starfs hans lá fyrst og fremst
í því hversu honum tókst að beita
meðfæddum hæfileikum til velferð
ar samstarfsmönnum sínum. Þau
eru ófá heimilin, bæði í Vestmanna
eyjum og utan Eyja sem hafa skap
að sér fjárhagsgrundvöll með tekj
um öfluðum undir skipstjórn Guð-
jóns á Heiði.
Guðjón Jónsson var með hæstu
mönnum, beinvaxinn og vel lim-
aður, svipmikill og bjarteygur og
lék gjaman góðlegt bros um andlit
hans. Hann var léttur og kvikur
í hreyfingum og Elli kerlipg beygði
hann aldrei, hann kvaddi jarðlífið
með bros á vör eftir nýsögð gaman
yrði.
Gæfa Vestmannaeyja hefur legið
í því, hversu margir afreksmenn
á ýmsum sviðum hafa búið og starf
að á Eyjunum fyrr og síðar.
Guðjón Jónsson var þríkvæntur,
dauðinn sleit samvistum hans við
tvær fyrri konumar, en síðasta
kona hans Bjarngerður Ólafsdóttir
lifir mann sinn.
Með Guðjóni Jónssyni er geng
ið óvenjulegt þrekmenni sem skil-
að hefur miklu og góðu dagsverki
og átt virkan þátt í því að móta
svip Eyjanna, sem hann að segja
má vann öll sín störf. H.B.
FARIÐ AÐ BRÆÐA
Framhald af 1. síðu.
en undirbuningur að því verki
er enn ekki hafinn og óvíst hvað
úr því verður í ár.
Mikill rafmagnsskortur hefui
þjáð Vopnfirðinga, ekki hvað sízt
á sumrin. Þar hafa verið settar
upp fleiri og stærri vélar í diesel-
rafstöð staðarins, og síldarbræðsl
an þár er í þann veginn að hefja
vinnslu. Gagngerðar breytingar
hafa faiið fram á verksmiðjunni,
en hún getur brætt 5500 mál á
sólarhring.
LÁTA VITA
Framhald af 1. síðu.
veginn, enda virtist það læra að
vara sig á bílunum.
Bóndinn á Bitru í Hraungerðis-
hreppi kvaðst ekki hafa misst
lamb af þessum sökum síðan í
hitteðfyrra, en ökumaður gaf sig
fram og borgaði. Engar spurnir
voru um slíkt frá nsestu bæjum.
í Áshól og Meiritungu í Holtum
var ekki Kinnugt um ákveðin til-
felli, n«mh hvað orðrómur bendir
til, að slíkt komi einstaka sinnum
fyrir. í Ey í Vestur-Landeyjum
var ekki kunnugt um neinn slík-
an skepnudauða þar eða nærlend-
isv
í Steinum undir Eyjafjöllum var
aðeins kunnugt um tvö tilvik í
sveitinni í fyrra, en viðkomandi
gáfu sig fram og borguðu.
DRUKKNUN
Framhald af 1. síðu.
beita línu um kvöldið í skúr við
bryggjuna, en hann reri einn á
trillu frá Suðureyri, og er talið,
að hann hafi séð til Þóris og geng
ið út hafnargarðinn. Útstreymi
var, og flekann rak fram hjá brim
brjótnum. Mun þá Þórir hafa
fleygt sér útbyrðis, og Sigurður
ætlað að koma honum til hjálp-
ar.
Með lífgunartilraunum tókst að
fá Sigurð til’ að anda, en stuttu
síðar lézt hann. Leit að Þóri hafði
enn ekki borið árangur um kl. 4
í dag.
Mennirnir voru báðir ógiftir. —
Sigurður lauk stúdentsprófi fyrir
ári og stundað nám í Háskólanum
s.l. vetur. Aðstandendum hefur
verið tilkynnt um atburðinn.
SKIPAUTGCRH RIKISINS
Ms. Esja
fer austur um lamd í hringferð
hinn 22. þ. m. Vörumóttaka á
þriðjudag til Fáskrúðsfjarðar,
Eeyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norð
fjarðar og Seyðisfjarðar. Far-
seðlar seldir á þriðjudag 19/6.
Þörf skýrinp
í leiðara Alþýðublaðsins í
gær, laugardaginn 15. júní eru
margir hlutir athugaverðir frá
sjónarmiði kaupfélagsfólksins
í landinu. Verður ekki komist
hjá að freista þess, að skýra
nokkur atriði varðandi þennan
leiðara, ef til gagns mætti
verða bæði fyrir blaðið sjálft
og samvinnumenn. Verður það
að vísu ekki gert í lítilli blaða-
grein, heldur þarf meira til.
í upphafi leiðarans er að því
vikið, að raunar hafi vondir
menn tekið samvinnuhreyfing-
una hér á landi frá jafnaðar-
mönnum, sem átt hefðu að
njóta hennar, svo sem blaðið
segir að sé á Norðurlöndum og
Bretlandi. Gætir þar mikillar
minnimáttarkenndar vegna
þess, að blaðið telur menn
sem ekki eru jafnaðarmenn,
fjölmennari innan samvinnufé-
laganna og ráði þar meiru. Þeir
hinir vondu menn hafi svo mis-
notað aðstöðu sína á hinn herfi
legasta hátt.
í samvinnufélögunum á ís-
landi eru yfir 30 þús. félags-
menn. Hvað eftir annað er
svo að skilja á blöðum Alþýðu
flokksins hér á landi, ag þessi
mikli fjöldi félagsmanna ætti
helzt ekki að hafa skoðana-
frelsi am þjóðmál. Nú hafa
þeir það; einnig málfrelsi og
ritfrelsi eins og aðrir borgar-
ar þjóðfélagsins. Jafnaðarmenn
hér á xandi hafa svo sannar-
lega átt þess kost að styðja og
efla samvinnufélögin allt frá
tilkomu sinni, eins og allir
borgarar þjóðfélagsins hafa átt
þess kost. Margir jafnaðarmenn
hafa gert það og gera enn. En
ritstjórar þeirra og flokksfor-
ingjar í seinni tíð hafa held-
ur kosið annan kost og aðra af-
stöðu. Því ráða þeir sjálfir,
eins og aðrir menn í lýðfrjálsu
landi ráða sínum skoðunum
Um misnotkun trúnaðarmanna
samvinnufélaganna á acjstöðu
sinni, um hin svokölluðu
„skattafríðindi", um hótanir
gagnvart Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga og margt
fleira í leiðara Alþýðublaðsins,
verður ekki komist hjá að tala
meira síðar. — PHJ.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Ragnhildur Thorlacius
andaðist 14. iúní. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 19. júni, kl. 13,30.
Áslaug Thorlacius.
Anna og Erlingur Thorlacius.
Sigríður og Birgir Thorlacius.
Aðalheiður og Kristján Thorlacius.
Innilcgar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móð-
ur okkar og tengdamóður,
SigríSar Sigurðardóttur,
Miklubraut 7.
Óskar Sveinbjörnsson, Jóna Ágústsdóttlr
Erla Sveinbjörnsdóttir, Ingólfur Jónsson,
Júlíus Sveinbjörnsson, Þóra Kristjánsdóttlr,
Sigurður Svelnbjörnsson, Inga Ingimundardóttir.
Jarðarför fóstursonar okkar og sonar mlns,
Jóns Björnssonar,
fer fram miðvikudaginn 19. júní kl. 3 siðdegis frá Fossvogskapeiiu.
Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hins látna er vlnsam-
lega bent á Slysavarnaféiag íslands.
Þórný Þórðardóttir, Jóhann Jóhannesson,
Björn Jónsson.
ekkert
heimili
án
húsbúnaðar
litið á
á
húsbúnaðinn
hjá húsbúnaði
laugavegi 26 simi 209 70
SAMBÁND HÚSGAGNAFRAMLEIÐElráA s
i5J
TÍMIN N, sunnudaginn 16. júní 1963