Tíminn - 01.08.1963, Page 7

Tíminn - 01.08.1963, Page 7
Utgefi i«3»: FKmMSOKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu. símar 18300—18305 Skrif stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl., sími 19523 Aðrar skrifstofur. sími 18300 Áskriftargjald kr. 65.00 á mán. innan- lands í lausasölu kr 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f — Stöðug síidarleit SÍLDVEIÐIN nyrSra og eystra hefur gengið erfiðlega til þessa vegna óhagstæðs veðurs. Engin ástæða er þó til að örvænta, enda nú fengin reynsla fyrir því, að síld er ekki aðeins hægt að veiða nokkrar vikur fyrir norðan og austan land, heldur er hægt að veiða hana víðsvegar við landið allt árið. Af þessum ástæðum er það nauosynliigt, að síldarleit sé stundoð skipulega allt árið en ekki aðeins tíma og tíma, eins og át.t hefur sér stað. í samræmi við þessa reynslu. fluttu þeir Jón Skafta- son, Eysteinn Jónsson og Ólafur Jóhannesson á seinasta þingi tillögu til þingsályktunar þess efnis, að Alþingi skori á ríkisstjórnina, að gera ráðstafanir til þess, að síldarleit eigi sér stað allan ársins hring allt umhverfis landið“. Stutt greinargerð fylgdi tillögunni og hljóðaði hún á þessa leið: „Nú má telja, að örugg vitneskja sé fengin fyrir því, að síldin haldi sig á miðunum umhverfis landið árið um kring. Mikið ríður á því að afla sem mestrar vitneskju um göngu hennar og hvar hún hefst. við á hverjum árs- tíma. Reynsla undanfarinna ára hefur leitt í ljós, að viti menn um dvalarstað síldarinnar, þá er unnt að veiða hana á hvaða tíma sem er með því að beita nýjustu tækjum og góðum skipum. Stöðug síldarleit þarf því að eiga sér stað allt um- hverfis landið. Rannsaka þarf síldargöngur út af Norður- og Austurlandi á haustin og veturna. jafnhliða því sem leitað er fyrir Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi. Síldarleitina verður að miða við, að síldarúthald geti átt sér stað sem lengst árlega frá sem flestum byggðarlög- um og að menn geti stundað veiðarnar sem mest heiman að. Með því nýtast síldarverksmiðjurnar og söltunarstöðv- arn»F bezt og ættu að geta borgað hærra verð fyrir síldina. Nauðsynlegt er að hafa nægilega mörg síldarleitar- skip úti hverju sinni,.til þess að sem gleggst yfirlit fáist um síldargöngur og veiðihorfur. Sá kostnaður. er af því leiddi. fengist margfaldlega endurgoldinn með auknum afla. Eðlilegt er, að ríkissjóður standi undir þeim kostn- aði. er af þessari starfsemi kann ao leiða“. Þrátt fyrir hinn augljósa rökstuðning, sem er rakinn hér að framan, náði tillaga þremennúiganna ekki fram að , nga. heldur dagaði uppi. Aukin rök hafa nú fengist fyrir h-'nni, eins og vikið er að í upphafi og ætti því að mega ^ ta þess. að hún fengi betri undirtektir á næsta þingi. Sjreifing byggðarinnar «LÞÝÐUBLAÐIÐ ræðir í gæ'- um fjölgun þjóðarinn- ar í tilefni seinasta manntals. Grein þessari lýkur þannig: ,,Ein skuggaleg hlið er á niðurstöðum manntalsins. Það er dreifing byggðarinnar, því fjölgunin er svo til öli á suðvesturhorni landsins. Reykiavík — Kópavogur — Hafnarfjörður er að verða samfelld borg með nálægt 100.000 íbúum, sem væri ágætt, nf það væri ekki á kostn- að annarra landshluta. Þetta mál verður að taka fastari tökum en hingað til með þvi að byggja upp þéttbýlismið stöðvar og blómlegar sveitir umhverfis þær. Það er hægt ef þjóðin vill“. Hér er tekið ánægjulega undir það sjónarmið, seir. Framsóknarflokkurinn hefur haldið fram, m. a. á sein asta þingi, og reynast þessi ummæli Alþýðublaðsins von andi meira en orðin ein. 0LARE ROOTHE LUCE: hversvegna sendu Sovétríkin ferðaiag um geiminn ? Rússar ieggja mikla áherziu á jafnrétfi og jafnræði kvenna og karla. Clare Boothe Luce er í röð þekktustu kvenskörunga í Bandaríkjunum. Hún hefur átt sæti á þimgi Bandaríkj- Eiiina, verið isendiherra þeirra í Róm og geignt fleiri ábyrgð- arstörfum. Hún er þelcktur rit höfundur og er gift úíigefanda liinna útbreiddu vikurita Time og Life. Hú,n er mikill andstæðingur kommúnista, en Iiikar samt ekki við að við- urkenna það, sem hún telur rétt hjá þeim, eins og sést á eftirfarandi grein: HVERS VEGNA sendu Sov- étríkin konu út í geiminn? Það kann en nað reynast dýr- asta skyssa Bandaríkjamanna í kalda stríðinu að geta ekki gefið rétt svar við þessari spurningu. En þeir eru þegar byrjaðir að veita röng svör. Bandarískir geimfræðingar gáfu fyrsta ranga svarið. Sam- kvæmt blaðafréttum eru þeir allir þeirrar skoðunar, að Vel- entina Tereshkova hafi verið send sem venjulegt tilraunadýr sovézkra geimvísinda, og til- raunin sé einskis verð, að minnsta kosti um fyrirsjáan- lega framtíð. Harold M. Sehmeck, yngri. segir í New York Times: „Haldi geimrannsóknir áfram að taka 'framfö'rum . . er talið líklegt, áð konur taki þátt i þeim í framtíðinni. . . en ekki virðist neitt áþreifanlegt benda tjl, að kvenlegir eiginleikar til líkams eða sálar séu sérlega hagfelldir til geimferða.1' John Glenn geimfari er orðvarari: „ . . . ti] þessa hefir okkur virzt, að þeirra eiginleika, sem við vor- um á hnotskóg eftir, gætti einkum hjá karlmönnum11. Ó- nefndur fulltrúi NASA var harðorðari í sínum hleypidócni. Tal um geimferðir bandarískr- ar konu „veldur mér klígju“ sagði hann ANNAÐ RANGA svarið á rætur að rekja til hins fyrsta (þ. e. áskapaðra yfirburða karla til geimferða), að send- ing Valentinu út í geiminn hafi aðeins verið áróðursbragð af hálfu Rússa. Leighton Davis, yfirmaður eldflaugarannsókna- stöðvar flotans á Canaveral- höfða, afgreiddi geimförina með þeim orðum, að hún væri „aðeins áróðursbragð". Emanu- el Celler, þingmaður frá Brook- lyn, sem gjarnan vill líta á sig sem forustumann í baráttunni gegn kynþátta- og trúarbragða- fordómum, sagði einnig, að þetta væri „eins konar áróðurs- bragð“ Vandalítið er fyrir banda- ríska karlmenn að telja það áróðursbragð af hálfu Rússa að senda konu út í geiminn. Auglýsendur hafa um langt skeið notað kyntöfra til að selja hvaðeina, allt frá lykteyðandi efni og upp í bíla. Það er þvi auðvelt fyrir Bandaríkjamenn að gera ráð fyrir, að enn hafi þetta töfrabragð náð árangri EN HVORUGT er rótt. Val entina Tereshkova er hvorki ó- Krústjoff fagnar Valenfinu eftir geimferðina. merkilegt tilraunadýr vísind- anna né Moskvuútgáfa af kyn- töfragyðjum auglýsenda á Madison Avenue. Rétta svarið er, að Rússar sendu konu út í geiminn vegna þess, að komm- únisminn boðar jafna hæfni og jafnrétti kvenna og karla og hefir reynt að virða það í fram- kvæmd allt frá byltingunni 1917. FRAMI kvenna hefir verið mjög mikill í öllum löndum kommúnista og alveg sérstak- lega í Sovétríkjunum. Árið 1929 unnu 3.118.000 konur fyr- ir launurn í Sovétríkjunum, en árið 1961 voru þær 31.609.000. Árið 1917 gegndu 600 konur verkfræðistörfum í Rúslandi, ’en 1961 voru þær 379.000, eða 31% alla verkfræðinga Sovét- ríkjana. Það ár voru 53% sér- lærðra Sovétborgara konur 26% æðstaráðsmeðlimanna eru konur og konur eru í forsæti í 200.000 héraðastjórnum. Rússneska konan hefir þó hvergi hlotið jafn öran frama og innan læknastéttarinnar 74% sovézkra lækna eru konur, — 332400 konur eru starfandi sem læknar árið 1962, en i Bandaríkjunum eru aðeins 14.000 skráðar sem læknar. Kommúnisminn stendur and. spænis hinu bandaríska kerfi í baráttu upp á líf og dauða Þetta vita bæði rússneskir karl menn og rússneskar konur Þær vinna erfiðisvinnu í miklu meiri mæli en banda- rískar kynsystur þeirra. Margir ferðamenn, sem frá Sovétríkj- unum koma, hafa orð á því, hve margar konur sjáist bl'anúa steinsteypu, aka almennings- vögnum, moka heyi og sópa götur. Rússnesk forusta nýtir til fulls andlega og líkamlega orku kvenna á öllum sviðum þjóðlífsins. Við hljótum að líta á geim- ferð fyrstu rúsnesku konunnar í ljósi þeirrar staðreyndar, að rússneskar konur taka fullan þátt í hverri raun, allt frá hirð- ingu gripahúsa til könnunar himintunglanna. GEIMFARINN er áhrifa- mesti dýrlingurinn í augum al- mennings í dag. Þegar búið er að skjóta honum út í geiiminn er á hans valdi annað og meira en hylkið hans og tæki þess, sem þó kosta milljónir dollara Undir honum er komið áhrifa- vald þjóðar hans og heiður hennar. Honum hefir verið trúað fyrir þessu vegna þess, að hann er talinn ráða yfir mjög mikilli tæknikunnáttu og gæddur miki um gáfum, vera þrautseigur. úrræðagóður, hlýðinn, hugaður og fær um að taka ákvarðanir. sem varða líf eða dauða. En geimfarinn er samt annað og meira um leið. Hann er tákn um hversdagslíf þjóðar sinnar Sovétríkin hafa, með því að trúa 26 ára gamalli stúlku fyrir hlutverki geimfarans. sannað konum ómótmælanlega, að þau telja þær gæddar öllum þeim hæfileikum, sem til þessa þarf Flug Valentinu Tereshkovu er því tákn um fulla lausn komm únista konunnar við ófrelsi Framhald á bls. 6. T f M I N N, finuntudagurinn 1. ágúst 1963. — 1

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.