Tíminn - 01.08.1963, Side 8

Tíminn - 01.08.1963, Side 8
Ólafur Ólafsson, kristniboði: Maðurinn frá Suður-Afríku Hér var á ferð síðast liðna viku fágætur og ágætur gestur, víðfrægur vakningaprédikari og eldheitur ættjarðarvinur — frá Suður-Afríku. Hann skrifar sig Allister Smith majór, sem cnerkir að hann er háttsettur foringi í Hjálpræðishernum. Auk þess má segja að hann er háttsettur í áliti okkar, sem kynntust hon- um dálítið, þrátt fyrir annarieg- ar og okkur nánast ósikiljanleg- ar skoðanir han.s á kynflokka- málum. Hingað kom hann þeirra erinda einna að prédika hjá Hernum. Á samkomum birtist eldmóður trúarinnar, í samtöl- um föðurlandsástin. Faðir 'hans, Skoti að uppruna, flutti ungur að árum til Suður- Afríku, í þjónustu Hjálpræðis- hersins og varð brautryðjandi kristniboðs meðal Zúlúmanna. Hann gat sér mikinn orðstír sem prédikari og ferðaðist víða um lönd — jafnvel til Kína og Japans — sem fulltrúi Booths, yfirhershöfðingja. Majórinn kvaðst hafa snemma fetað í fótspor föður síns, að einum útúrdúr fráskildum. Hann nam nefnilega lögfrœði við háskólann í Pretoria og var um þrettán ára skeið dómari og héraðsstjóri í þjónustu hins ver- aldlega ríkis, unz hann vígðist undir fána Hjálpræðishersins og tók að boða Guðs ríki. Undan farin fimmtán ár hefur hann ferðast á vegum Hersins til fimmtiu landa. Héðan flaug 'hann til Ameríku — og þaðan? Allister Smith majór var gagnkumnugur málum hinna ný stofnuðu ríkja Afríku. Þó ræddi hann ekki margt um þau. Hann sneri samtalinu óðar að stjórn- málum síns eigin lands, Suður- Afríku, sem hann geibk alveg út frá að væru misskilin á íslamdi eins og annars staðar í heimin- um, sökuim gífurlegs einhliða áróðurs, — ek'ki sízt frá Banda ríkjunum. Hvað sem um það kann að vera, þá var vissulega fengur að því, að kynnast málflutningi menntaðs og gáfaðs manns úr þeirra hópi, sem nú eru þung- um sökum bornir um víða ver- öld sökum stjórnarfars síns. Og majórinn hafði margt að segja því stjórnarfari til máls- bóta: — We have a Godfearlng Government, — guðelskandi stjóm, sem vill öHum lands- mönnum vel, svörtum sem hvít- um. Hvergi liður svörtum mönn um betur en í Suður-Afríku. Það vita allir, sem þangað hafa komið. Enda streymdu svartir innflytjendur til landsins svo að 'grípa varð til ráðstafana og stemma stigu fyrir því. Að mönnum hafi verið vísað úr landi? — Já, kommúnistum. — f Ameríku er ek'ki önnur kynflokkaskipting en svartra og livítra. Þó hefur það valdið ó- yfirstíganlegum erfiðleikum. f Suður-Afríku er margþætt kynþáttaskipting. Til dæmis eru í Zúlúlandi á aðra milljón Indverjar. Zúlú- menn hata þá, og væru fyrir löngu búnir að strádrepa þá, hefðu st.iórnarvöldin ekki haldið yfir þeim hlí'fisskildi. Indverjar hafa komið sér vel fyrir og margir hverjir auðgast stórlega. Þeir myndu fremur kjósa að deyja en hverfa aftur til Ind- lands, enda af paríum — lægstu stétt — komnir. Hvergi er stéttaskipting meiri í heiminutm en á Indlandi. — Því fer víðs vegar fjarri að hvítir menn einir eigi sök á þjóðflokkaaðgreiningu í Suður- Afríku. Hún fer eftir litarhætti manna, að mestu leyti. í landinu eru átta þjóðflokk ar svartir: Zúlúmenn; Pondó; Xosa, Tembú; Fingó; Shangaan, Bapedi, Bavanda. Litaðir menn (eða blandaðir) greinast eftir mismunandi dökkum hörundslit í marga flokka, og jafnvel eftir því hvort hárið er slétt eða hrokkið. Allt þetta veldur mikl um erfiðleikum í sambúð alls þessa fólks í sama landi, undir sömu stjóm. — Frumbyggjar Suður- Afríku voru gul dvergþjóð (Bushmen). Þeir gengu naktir, kunnu ektki að byggja hús, rækta jörðina eða elda mat sinn. Fyrir þrem öldum fluttu svart ir menn norðan úr megin- landinu búferlum til S-Afríku. Um sama leyti komu hvítir menn sjóleiðina og úr suðurátt inn í landið. íbúar eru nú alls 12 millj. Þar af eru hvítir fjórði hluti, eða 3 milljónir. Því er í áróðri haldið á lofti, að þessir 25 hundraðshlutar íhúanna hafi sölsað undir sig 75 hundraðs- hlutum landsins. Sannleikurinn er sá, að land hvítra er að ekki litlu leyti auðnir, en svartir byggja frjósamasta hluta lands- ins og leyfist engum hvítum að kaupa minnsta skika af því. — Gullvinnsla er aðaltekju- lind Suður-Afríku. Af námu- mönnum eru 90 af hundraði svartir. Því ætti að vera auð- skilið að verkföll eru ekfci vel séð, enda óforsvaranleg og bönn uð .Setjum svo að það væri á valdi sjómanna að stöðva allar fiskveiðar á Íslandi. Hvernig mundi þá fara? — í óbilgjörnum áróðri er það gagnrýnt, að sérsvæði svartra manna og litaðra í Suð ur-Afríku séu of lítil ,og því óforsvaranlega þröngt um íbúa þeirra. Einnig það er misskiln- ingur. T.d. er eitt þeirra stærra en fsland. Að vísu má vera að þeim, sem eru miklu landrými vanir, þyki þröngt um sig. Við því verður ekki gert fyrr en þeir sjálfir taka að semja sig að sið- um breyttra tíma, fækka skepn um, yrkja jörðina og leggja stund á iðnað. Það sem því er einkum til fyrirstöðu er m.a. giftingarsiðir þeirra. Sú eld- gamla hefð tíðkast enn að menn kaupa sér konu, margir fleiri en eina ef efnahagur leyfir. Verð og gjaldmiðill hefur ekki breytzt: Tíu kýr fyrir hverja konu. Tala skepnanna skiptir öllu máli, en útlit eða holdafar engu. Afleiðing þessa verður feiknmikið kúastóð. Kýrnar ganga sjálfala allt árið og þarfn ast æ rýmra haglendis, raun- verulega í hlutfalli við fólks- fjölgun og þá jafnframt fjölgun Allister Smith. giftinga. Slíkt kann ekki góðri luk'ku að stýra. — Fjöldaflutningar fólks úr þorpum til bæja og borga er í S-Afríku líkt og í flestum hinna nýstofnuðu ríkja í Afríku, stórkostlegt vandamál. Að sjá öllum þeim manngrúa fyrir hús næði og atvinnu, er engihn leik ur. Einnig verður að taka tillit til þess, að átt hefur sér stað skyndileg og alger upplausn fornra þjóðfélagshátta. Flutn- ingur tugþúsunda fjölskyldna úr landsbyggðinni leiðir af sér upplausn aldagamals, rígbund- ins ættflokkaskipulags. Hvað tekur við? Mikill fjöldi fjar- skyldra ættflokka, sem hafa áð- FRÁ JÓHANNESARBORG ur átt i innbyrðis erjum, eiga nú að blandast í bæjum og borg um og taka upp nýja siði í flest um efnum. Slíkt gengur ekki vandræðalaust. En hatursfullur áróður kenn ir ríkisstjórninni um allt sem aflaga fer. — Aðgreiningarstefna ríkis- stjórnarinnar er ekki síður nauðsynleg svörtuim mönnum og lituðum, en hvítum. Ráðsett ir menn meðal þeirra skilja það og vona að stjórnin haldi völd- um sem lengst. Hvernig mundi fara, væri þeim þrem fjórðu hlutum landsmanna, sem eru ekki hvítir, veitt kjörgengi og kosningaréttur? Þá kæmust til valda heiðnir menn, sem og að öðru leyti hefðu ekki þekkingu eða þroska til að stjórna stóru lýðveldi. Raunar verður ekki annað sagt að þeim sé bættur skaði. Þeim hefur verið veitt sjálfstjóm á sérsvæðum sínum. (Þó að majórinn væri hér gestur mjög langt að kominn og því sjálfsagt að hann hefði orðið, í viðtali eins og þessu, varð ekki hjá því komizt að gera smá athugasemd við það, sem hann nefndi „sjálfstjórn“ á sérsvæðum Suðurafríkanska lýðveldisins. Ríkisstjórnin hef- ur nefnilega algeriega í sínum höndum landvarnir, utanríkis- mál, löggæzlu-, póst- og síma- tnál, almennar samgöngur. gjaldeyrismál, út og innflytj- endaleyfi sérsvæðanna o.s.frv.) —Það er einkum yngri kyn- slóðin, segir Allister Smith majór, — sem hefur verið æst upp gegn yfirvöldunum. Hafa hvítir menn átt sinn mikla þátt í því. Það vakir einikum fýrir þessum byltingasinnum í Suður Afríku, að ná undir sig landinu og eighum hvítra manna. — Um stjómarháttu ýmsra hinna nýstofnuðu ríkja Afríku á það við, að „til þess eru vítin að varast þau“. Sem dætni má nefna .... Kongó. Landið er á stærð við Vestur-Evrópu, en tungumál miklu fleiri en þar. Eftir 2000 ára þróun hefur ekki enn tekist að stofna bandaríki í Evrópu, hvað þá eitt alls herj ar ríki. En með öllum sínum manngrúa, málagraut og fjar- skyldu þjóðflokkum, hefur Kongó verið þröngvað til að lúta einni ríkisstjórn, án þess að íbúarair hefðu yfirleitt nokk urn þroska til þess. Afleiðing þess verður einræði. Hjá því fer ekki. — Sú er og ógæfa Afríku, að mörg þessara ríkja eru leik- soppur mestu stórvelda heirns, sem bjóða í þau hvert í kapp við annað. Og í mörgum til- fellutn selja þau sig hæstbjóð- anda. Leið til jafnvægis og frið ar er þróun en ekki bylting. — Hvað um kristniboð í Afríku? — Það hefur mikinn fram- gang og því standa allar dyr opnar — einkum vegna lækn- ingastarfs þess og sfcólahalds, — nema þar sem Múhameðstrú er alls ráðandi, eins og t.d. í Súdan. Kristni'boðar era komn ir aftur til síns fyrra starfs í Kongó, og nú sem samverka- menn og ráðunautar sjálfstæðra safnaða í landinu. — Múhameðstrúarmönnum hefur fjölgað miklu örar í Afríku en kristnum, eða á síð- ast liðnuim 40 árum úr 40 millj. upp í 82 millj. Orsök þess er sú m.a., að múhameðskir trú- boðar krefjast sáralítillar þekk ingar, engrar skólagöngu, leyfa fleirkvæni, undirokun konunn- ar og þrælahald, og ýmislegt fleira, sem er ósamrýmanle'gt kristindóminum. Auk þess er þetta trúboð einatt tæki Nass- ers til að ná sem viðtæ'kustum yfirráðum í Afríku, og nýtur mi'kils stuðnings frá ríkisstjórn hans. Þannig útskrifast á hverju ári yfir 1000 trúboðar í Kairó. (Eftir er aðeins að spyrja um Luthuli). — Luthuli er ágætur kristinn maður. En stjórnmálaflokkur hans var undir sterkum komm únistískum áhrifum, þó að sjálf ur sé hann fjarri því að vera kommúnisti. Þegar hann fékk leyfi til að fara til Osló og taka við friðarverðlaunum Nobels, varð honum sú skyssa á að gagn rýna ríkisstjórn lands sfns. Það hefði hann ekki átt að gera, nógir aðrir hafa orðið til þess. Þess skal að lokum getið, að Allister Smith majór er maður einstaklega viðfeldinn. Sem þjóðhollum manni virðist hon- um vera mikið í mun að fá tæfci færi til að „leiðrétta margvís- legan misskilning á innanríkis- málum“ lands síns og eiga um þau samræður við blaðamenn, — þótt „fúskari væri í faginu“. Sama dag og þetta viðtal fór fram barst frétt um það frá Stafangri, að þing kristniboðs- ráðs Lúterska heimssambands- ins hefði daginn áður samþykkt einróma að lýsa yfir fyllsta stuðningi við lúterska söfnuði í Suður-afríkanska lýðveldinu. vegna skaðabtóakröfu þeirra á hendur ríkisstjórninni. Vegna aðgreiningarstefnu 'hennar og nauðungarflutninga mikils fjölda lúterskra manna ekki hvítra, hafa húseignir safn ^ aða þeirra, kirkjur, skólar, íbúó arhús presta og kennara o.s.frv að verðmæti 15 millj. kr., orðið Framhald á bls 6 T í M I N \, fhnmtudagurinn 1. ágúst 1963. 8

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.