Tíminn - 11.09.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.09.1963, Blaðsíða 3
NÝ GANGA Nú ráðgera svertingjaleiðtogar í New York að fara í mikla mótmœlagöngu hinn 29. september, þ.e. nákvæm lega einum mánuði eftir frelsisgönguna, sem farin var að minnismerki Lincolns, forseta í WashSngton. Þá tóku yfir 100.000 manns þátt í göngunni, þar af fjöldi hvítra manna, en nú er búizt við, að um 50 þúsund manns gangi um New York í lok mánaðarins. Munu forystumenn göngunnar ganga á fund borgarstjó.t^ Manhattan, Roberts Wagner og afhenta honum mótmælaskjal. Kennedy sviptir Wallace öllum völdum í Alabama! NTB-Washington, 10. september. KENNEDY, Bandaríkjaforseti.. lét í dag til skarar skríða gegn George Wallace, ríkisstjóra í Alabama með hvass- yrtri tilskipun, þar sem Wallace er skipað að hætta að- gerðum sínum til að hindra skólagöngu svartra barna með hvítum, en þær aðgerðir brjóta í bága við bandarísk lög. SAMTÍMIS var því lýst yfir, að Alabama-herinn og lögregl- an þar væri nú undir stjórn sambandsstjórnarinnar, en það þýðir, að Robert McNamara, varnarmálaráðherra hef- ur nú alla lögreglustjórn í Alabama, Fékk Alabama-lögregl an og herinn skipun um að sjá um, að þeldökk börn fengju skólavist, svo sem lög ákveða. Skömmu eftir, ag Kennedy hafði gefið út tilskipun sína, fengu 20—30 svartir nemendur aðgang að þem skólum, sem Wallace hef- ur higað' til látið herlið standa vörg um til ag hindra skólagöngu blökkubarna. Kennedy nefnir aðgerðir Wall- ace samsæri gegn landslögum og skipar honum að aflétta banninu við skólagöngu þeldökkra í Tusk- egee, Birmingham og Mobile. f dag kom tfl óeirða í Birming- ham, er mörg hundruð hvítra skólabarna í Mutphy High School, sefnuðust saman fyrir utan skóla- bygginguna og hrópuðu niður með Niggarana. Fjöldi fullorðinna bætt ust í hópmn og tóku undir hrópin. Öflugt herlið var hvatt á vett- vang, auk lögregluliðs, og er mannfjöldinn vildi ekki láta und- an skipunum lögreglumannanna, létu þeir til skarar skríða og tvístr uðu manníjöldanum. Víða annars staðar kom til átaka milli lögreglu og hvítra ofstækismanna og voru margir har.dteknir. UM 500 MANNS HAFA FARIZT í ELDUNUM í BRASILÍU Helirigning er talin eina björgunarvonin í Parana SAMKVÆMT fréttum frá AFP-fréttastofunni, kom Ner- ly Laubem, yfirmaður bruna- varnadeiidar bandaríska land- búnaðarráðuneytisins til Rio de Janeiro á mánudaginn, en þaðan hélt hann í gær til Para- ná-héraðsins í suður-hluta BRUTUST UT UR RlKISFANGELSI NTB-Dar-Es-Salaam, 10. september. SJÖ afríkönsk börn særð ust, er mikil sprenging varð meðan á blaðamanna- fundi stóð, vegna flótta- mannanna tveggja frá S,- Afríku. Arthur Goldreich og Harold Wolpe, sem komu í dag frá Elisabeth- ville ti! höfuðborgar Tanga nyika. Tekig var á móti fl'óttamönn- unum með kostum og kynjum og var þeim fagnað af gífurleg um mannfjölda ems og þjóð- hetjum. Söng mannfjöldinn afríkanska frelsissöngva og lýsti á annan hátt gleði sinni yfir, að flóttamönnunum hefði tekizt að brjótast út úr aðalfang elsinu í Jóhannesarborg og komast heilu og höldnu til Tanganyika. En mitt í þessum fagnaðarlátum kvað vig mikil sprenging og er lögreglan kom á staðinn til rannsóknar fann hún 7 lítil börn, sem orðið höfðu fyrir sprengjubrotum og meiðzt. Á blaðamannafundinum sögðu flóttamennirnir, að brezk yfirvöld í Bechuinalandi hefðu hvorki hjálpað þeim né hindr- að þá á flóttanum. Er flótti tví- menninganna talinn mikið af- rek. Brazilíu, þar sem ægilegir skóga- og plantekrueldar hafa lagt stór landsvæði í bruna- auðn. Taiið er nú fullvíst, að um 500 manns hafi orðið eld- inum að bráð en hundruð manna hafa orðið fyrir hættu legum brunasárum í flótta sín- um undan eldinum. Þrátt fyrir þrotlaust slökkvistarf hefur enn ekki tekizt að hefta út- breiðslu eldanna og er það nú margra mál, að ekkert geti orðið hinu dýrmæta kaffihéraði Brazilíu til bjargar, en hellirigning, sem slökkvi eldana. Laubem, fulltrúi landbúnaðarráðu neytisins, mun taka að sér stjórn slökkvistarfsins og reyna að hefta útbreiðslu eldanna og hóf hann störf í gær. Frá Curitiba berast þær fréttir, að vindátt hafi staðið inn á land- svæðið milli suðurhluta Sao-Paudo ríkisins og norðurhluta Santa Cater ina-rikisins, en þar eru mikil furu- vaxin landsvæði í stórkostlegri eld hættu. Yfirvöld senda stöðugt hjálpar- beiðnir um brunaliðsfólk og hjúkr Pramh a 15 síðu VERJANDI ENAHORO ÁFRÝJAR NTB-Lagos, 9. september. VERJANDI hlns þekkta stjórnmálamanns í Nigeríu, Anthony Enahoro, sagðl í dag, að dóminum yfir Enahoro yrðl að áfrýja til æðri dómstóls inn an 14 daga og vært hann stað ráðinn í að fá málið tekið fyrir að nýju, þar sem Ena- horo hefði verið dæmdur sak laus í 15 ára fangelsi af und Irrétti. Eins og kunnugt er af frétt um dæmdi undirréttur í Lag os, hinn fræga höfðingja og stjórnarandstæðing í Nigeríu, Enahoro, á laugardag, í 15 ára fangelsi fyrir að hafa tek- ið þátt í samsæri til að steypa stjórn Nigeríu. Enahoro hefur ætíð neitað ákærunni á hend ur sér og hefur þessi harði dómur vakið gífurlega athygli. Meðan dómurinn var kveðinn upp, stóð öflugur hervörður i fylkingu kringum dómhúsið. Mál Enahoros vakti gífur- lega athygli í mai i vor, er brezk yfirvöld neituðu honum um landvist og framsel'du hann í hendur yfirvalda Nig- geríu, en sú ráðstöfun mæli- ist mjög illa fyrir í Bretlandi og þá aðallega meðal stjórn- arandstæðinga, sem óttuðust, að mál hans hljrti ekki óvil- halla afgreiðsl'u í Nigeriu. Til Englands hafði Enahoro komið frá írlandi, en yfirvöld í Nigeriu höfðu veður af því, að hann hyggðist byðja um pólitiskt hæli i Bretlandi og kröfðust þess, að hann yrði framseldur. ANTHONY ENAHORO Nefndi fimmburana eftir sjúkrahúslæknunum Eins og kunnugt er af fréttum varð sá fátíði atburður aðfara- nói-í síðasta sunnudags, að 35 ára gömul kona í Venezuela eignað- ist flmmbura og jók með því barnatöluna innan f jölskyldu sinn ar í 18. í þakklætisskyni við lækna sjúkrahússins í Caracas, nefndi konan fimmburana eftir læknum sjúkrahússins og heita þeir: Robinson, Fernando, Otto, Juan José og Mario. Kona þessi, Ines Maria Guervo de Prieto, á uppkomin börn og er orðin amma. Fimmburarnir, sem hún átti eru allir drengir, eins og raunar er fram komið, og voru þeir 1040—1890 grömm að þyngd, en þeir fæddust um tvo mánuði fyrir tímann. Um 50 mínútur liðu á milli fæðing- anna og voru allir drengirnir settir í súrefniskassa, þar sem þeir dafna vel. Móðirin er tvígift og hafði með sér úr fyrra hjónabandi sínu fimm börn, en síðari eigihmaður hennar hefur hjá sér 8 börn af fyrra hjónabandi sínu. Er því fjölskyldan orðin 20 manns. — Romulo Betancourt hringdi strax til sjúkrahússins á sunnudags- morgun til að spyrjast fyrir um l'íðan fimmburanna og tilkynnti um leið, að stjórnin hafi ákveðið að láta hinni stóru fjölskyldu í té eigið hús til ráðstöfunar og sömuleiðis myndu stjórnarvöldin sjá um menntun fimmburanna. Þetta eru þriðju fimmburarnir sem fæðast í Ameríku og 46. í öllum heiminum. T í M I N N, miðvikudaglnn 11. september 1963. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.