Tíminn - 11.09.1963, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.09.1963, Blaðsíða 5
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON ÞAÐ HEFUR löngum stafaö mikill Ijómi af gamla Vesturbænum, þegar minnst er á knattspyrnu. — í Vesturbænum stendur eiginlega vagga knatt- spyrnuíþróttarinnar á ís- landi. Það segja að minnsta kosti sanntrúaðir KR-ing- ar an þess að roðna. Sjálf- ur er ég ekki frá þessu, þótt Austurbæingur sé. Það er að minnsta kosti eitthvað sérstakt við Vesturbæinn og KR, þetta tvennt er eins og órofa heild, sterkur og gamall stofn. Hafi ljóminn yfir Vestur- bænum gamla einhvern tíma verið afar stór og mikill, er það bó ekkert í samanburði við birtuna, sem skín frá honum í dag. Vesturbærinn ætlar nefnilega hð leggja í Bretann á laugardaginn kemur í þeirri stóru borg, Lundúnum. Sann- leikurinn er nefnilega sá, að það eru 8 KR-ingar í landslið- inu. Landsliðið í dag, er styrkt KR-lið — og KR og Vestur- bærinn. það er jú eitt og sama. Mér hefur alltaf fundizt Fel- ixbræðumir, Hörður, Bjarni og Gunnar, vera dæmigerðir full- trúar Vesturbæjarins í knatt- spyrnu. Og nú vill svo til, að bræðurnir leika í landsliðinu á laugardaginn — í fyrsta skipti allir þrír saman. Það er merkilegt að því leyti, að aldrei fyrr í sögu íslenzkrar knattspyrnu hafa þrír bræður leikið saman í landsliðinu, og þetta er áreiðanlega mjög ó- venjulegt, og sárafá dæmi til þess í heiminum, þó t. d. megi bendia á Nordahl-bræðurna sænsku í því sambandi. Það' hef ur hins vegar komið fyrir áð- ur hér að bræður hafa leikið saman í landsliðinu, og má þar nefna auk Felixbræðra, þá Rík harð og Þórð Jónssyni. Ég skrapp á skrifstofuna til Harðar Felixsonar hjá Trygg- ingarmiðstöðinni í gær til þess að ræða við hann um þennan merkilega atburð, þar sem hann er elztur þeirra bræðra. Hörður vildi þó lítið um það tala, en sagðist vera ánægður með, a^ þeir bræður skildu nú í fyrsta skipti vera valdir í landslig saman. Þetta var kannski síðasta tækifærið, sagði Hörður, ég geri nefnilega rág fyrir að hætta í knattspyrnunni eftir þetta keppnistímabil. Þeir bræður, Hörður, Bjarni og Gunnar, sem allir eru stúd entar að mennt, eru synir hjón anna Ágústu Bjarnadóttur og Felixar Péturssonar, gjaldkera í Hamri og fyrrum hlaupara í KR, og eiga þau hjón ekki fleiri börn. Fæddir og uppald- ir í Vesturbænum og hafa ver ið í KR svo lengi sem þeir muna. Hörður lék fyrst með BræSurnir HörSur, Gunnar og Bjarni. (Ljósm.: TIMINN—GE). SUNDMOT í STRðND meistaraflokki KR 1949, Bjarni 1956 og yngsti bróðirinn, Gunn ar, 1960. Hörðnr. sem er 31 árs að aldri, hefur leikið flesta lands- leiki — eða tíu sinnum, og auk þess verið fyrirliði íslenzka landsliðsins í handknattleik. Bjarni hefur fjóra landsleiki að baki og Gunnar þrjá. — Hörð- ur lék með landsliðinu gegn Norðmönnum í fyrra og þá var Bjarni einnig í liðinu. Hörður lék með landsliðinu gegn Eng- lendingum 1961. Þá lék Bjarni ekki með, en hins vegar Gunn- ar. Svo hafa þeir tveir, Bjarni og Gunnar, leikig saman í lands liði — nú síðast gegn Englend- ingum — og þá var Hörður ekki með. Allir hafa þeir bræð ur náð eins langt í knattspyrnu og hægt er að gera, þ.e. hafa orðið íslandsmeistarar, Reykja víkurmeistarar og bikarmeistar ar með félagi sínu. Eg spurði Hörð, hvað honum fyldist um landsleikinn, sem við töpuðum á laugardaginn með 6 marka mun. — Blessaður minnstu ekki á þau ósköp. — Og hvernig heldurðu að gangi í Lundúnum á laugardag inn? — Það er bezt að segja sem minnst um það, en nú verða átta KR-ingar í liðinu, það hlýt ur að ganga betur, maður von- ar að minnsta kosti það bezta. Það var margt fleira, sem gaman hefði verið að spjalla vig Hiirð En tíminn er naumur. Klukkan orðin fimm. Rétt áð- ur en við kvöddum kom Bjarni inn um dyrnar. Þá voru þeif samankomnir allir þrír bræð urnir, Gunnar vinnur eins og Hörður, hjá Tryggingarmiðstög inni, en Bjarni hjá Hamri. Við notuðum því tækifærið og smelltum af mynd. Bræðurnir héldu síðan heim til Harðar, en sonur hans átti afmæli. Lík l'ega geta þeir ekki stanzað lengi þar. Hörður var að tala um áríðandi æfingu .... — alf. Ingl aramót í sundi SUNDMÓT Strandamanna fór fram við Gvendarlaug í Bjarnarfirði 11. ágúst 1963. Keppendur voru frá tveim fé- lögum irtnan HSS, Sundfélag- ið Grettir í Kaldrananeshreppi (Gr.) og U. m. f. Geislinn í Hólmavíkurhr. (G.). — Auk þess kepptu 19 gestir úr U.m. f. Tindastóll á Sauðárkróki. Belgíski 'lögreglumaðurinn G. Roela.nts setti á mánudag nýtt heimsmet í 3000 m. hindrunar- hlauipi, hljóp á 8:29,6 mín., sem er 8/10 betra en eldra heimsmet ið, sem Pólverjinn Kryszkowiak átti. Úrslit í ensku knattspyrnunni á m ánudaginn urðu þessi: 1. deUd: West Ham—Nottm. Forest 0—2 Wolves—Liverpool 1—3 2. deild Middlesbro—Rotlierham 2—2 Preston—Plymouth 0—0 Scunthorpe—Sunderland 1—1 Keppt var í þessum greinum: 25 m. baksund karla: Ingimundur Ingimundars. Gr. 18,7 Nýtt Strandamet. Jón Arngrímsson Gr. 20,8 Gestir: Birgir Guðjónsson 17,7 Þorbjörn Árnason 20,7 50 m. frjáls aðferS kvenna Anna Halla Björgvinsd., G. 47,8 Nýtt Strandamet. Kolbrún Guðjónsdóttir, Gr. 56,5 Gestir: Hallfríður Friðriksdóttir 38,3 Inga Harðardóttir 39,7 50 m. frjáls aðferð drengja, 13 ára og yngri. — Keppt um bikar, sem gefinn var til eignar: Gunnlaugur Bjarnason, G. 54,7 Jóhann S. ^“nússon, Gr. 54,8 Gestir: Sigurður Jónsson 45,4 100 m. aðferð karla — bikarkeppni: Ingimundur Ingimundars. Gr. 1:14,9 Jón Arngrímsson, Gr. 1:22,8 Gestir: Birgir Guðjónsson í:13,4 50 m. bringusund drengja, 15 áto og yngri — bikarkeppni: Svanur Á. Ingimundars., Gr. 43,7 Jón Jóhannsson, G. 46,0 100 m. bringusund kvenna — ný grein — Gestákeppni: Helga Friðriksdóttir 1:37,5 Hallfríður Friðriksdóttir 1:46,6 50 m. bringusund karla — bikar- kcppni: Sigvaldi Ingimundarson, Gr. 42,1 Ingimundur Ingimundarson, Gr. 42,5 Bragi Sigurðsson, Gr. 43,3 Gestir: Birgir Guðjónsson 42,5 Þorbjörn Árnason 42,6 25 m. flugsund karla. — Gestakeppni: Þorbjörn Árnason 19,7 Birgir Guðjónsson 24,6 4x50 m. bringusund kvenna — bikarkeppni: 1. Sveit Sundfélagsins Grettis 3:50,3 2. Sveit UMF Geisla 4:05,2 Gestir: A-sveit Tindastóls 3:16,5 B-sveit sama 3:34,5 4x50 m. bringusund karla, — blkar keppni. (Keppt um nýjan og veglegan farandbikar sem H.S.S. gaf): 1 A-sveit Sundfél. Grettis 2:49,2 Nýtt Strandamet. 2. B-sveit sama fél. 3:10,3 Sveit UMF Tindastóls 3:04,7 Tvö sambandsfélög tóku þátt í mótinu: Uc . Geislinn (G) — 7 kepp endur með samanl. 18 stig; Sundféi. Grettir (Gr.) — 16 keppendur með samanl. 64 stig. — Stigahæsti ein- staklingur var Ingimundur Ingimund arson (Gr., fékk 13 stig. — Auk þess kepptu sem gestir 19 ungmenni frá Umf. Tindastól á Sauðárkróki. Unglingameistaramót fslands í sundi 1963 verður háð í Sund- höll Selfoss sunnudaginn 15. sept. p.k. og liefst kl. 4 e.h. Keppnisgreinar: Stúlkur 14—16 ára, 100 m. bringus’-tnd, 50 m skriðsund, 50 m baksund og 50 m flug sund, einnig 4x50 m fjórsund. Drengir 14—16 ára, 100 m bringusund, 100 m skriðsund, 50 m baksund, 50 m flugsund Glampandi sólskin og góðviðri var meðan mótið stóð yfir og fjölmenni. Ræsir mótsins og yfirdómari var hinn landskunni sundkennari og þjálfari, Jón Pálsson úr Reykjavík, en þeir Guðjón Ingimundars., íþrótta kennari á Sauðárkróki komu með hið bráðefnilega og sigursæla sundlið frá Umf. Tindastól. Sundfélagið Grettir sá um mótið. og 4x50 m fjórsund. Teipur 14 ára og yngri, 50 m skriðsuud, 50 m bringusund og 50 m baksund. Svsinar 14 ára og yngri, 50 m bringusund, 50 m skriðsund og 50 m baksund. Þátxtaka er heimil öllum með limu.n iþrótta- og ungmenna- félaga innan UMFÍ og ÍSÍ, sem eru á drengja- eða stúlknaaldri þ. e. 1.6 ára á þessu ári eða yngri Sigurvegari í hverri grein hlýtur sæmdarheitið „Ungúngameistari fslands" í þeirri grein. Þá verða og veitt sérstök verðlaun fyrir bezta afrek niótsins Þátttökutilkynn- ingar skulu berast sem fyrst eða fyrir 12. sept. til Harðar S. Óskarssonar Engjavegi 42, Sel- fossi, sími 227. Sundsamband íslands T ( M I N N, miðvikudaglnn 11. september 1963. 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.