Alþýðublaðið - 07.03.1942, Page 3
JLá&gardáguir 7. marz 1942.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þessi mynd er af brezku stórskotaliði í frumskógunum á Malakkaskaga.
ofurefli Japana suður á Java.
Þeir berjast nú við
Bretar í frumskógunum.
avia,
ii
höfnðbor
rmnar
Japanír preyta lið bandamanna
með stöðugum loftárásum.
—..—-.......
jLT ERSVEITIR Bandainanna á Java þreytast nú smátt og
smátt, þar eð Japanir veita þeim enga hvfld frá loft-
árásum sínum. Engu síður verjast hermennirnir af miklum
vaskleik, þótt þeir séu ofurefli heittir á landi og flugher
þeirra sé orðinn ^máttvana. Á landi er ofurefli Japana svo
mikið, að þeir hafa 5 hermenn fyrir hvern andstæðinganna.
Liðsauki, sem átti að koma til Java í febrúar, hefir ekki
komið til eyjarinnar enn.
Það var staðfest í Bandung í gærkyeldi, að Batavía
væri fallin í hendur Japfönum. Áður en hollenzku hersveit-
imar yfipgáfu borgina, eyðilögðu þær allt það, sem komið
gæti Japönum að gagni. Þá er það og staðfest, að Japanir
hafi Vokyakarta á Mið-Javá á sínu valdi og hafa þeir þann-
ig skorið eyna algerlega í tvennt, því að sú borg er mjög
nærri suðurströndinni. Um hana liggur önnur tveggja jám-
brauta, sem em milli Batavía og Surabaya.
Japanir misstu ðll
skip sín í árásinni
ð Pearl Barbor.
AÐ var opinberlega viður-
kennt í Tokio í gærkvöldi,
að JapanÍT hefðu misst öll skip
sín í árásinni á Pearl Harbor.
Fréttist síðast til flotadeild-
arínnar þrem klukkustundum
eftir að árásinni lauk, en síðan
hefir alls ekkert. til hennar
spúrzt.
Vilhjáimnr Stefáns-
sonheldnrfyrirlestra
fyrir ameribska
herinn.
AMERÍKSKA herstjórnin er
þeirrar skoðunar, að her-
mennirnir eigi að vita góð skil
á því, aj hverju þeir eru að berj-
ast, svo og við hverju má búast
af óvinunum. í þessu augnamiði
hefir hún ráðið mjög marga
fræga vísindamenn og fyrirles-
ara, þar á meðal Vilhjálm
Stefánsson.
Velferðarnefnd ameríkska
flotans óg hersins stendur fyrir
þessu máli og hefir hún ráðið
150 fyrirlesara, þar á meðal
Vilhjálm Stefánsson, blaða-
mennina William L. Shirer og
Hallett Abend o. fl. Þeir munu
fá að launum 65 kr. á dag og
allan kostnað, ferðir, fæði o. fl.
Alþýðuflokkurinn,
er ílofekur launastéttanna. Þeir
launamenn, er vilja vera sjálfum
sér og stétt sinni trúir, kjósa A-
Itetann. 4.
Enskur fréttaritari, sem er í
Bandung, heldur því fram, að
aðalorustan á Java sé enn eftir
og muni. hún að líkindum verða
háð í fjöllunum umhverfis Ban-
dung.
Herlið Japana er nú komið
svo nærri þeirri borg, að fall-
byssudunurnar heyrast glöggt
þangað. Harðar orustur geisa
norðan við borgina, þar sem
árásarherinn sækir hægt eftir
járnbrautinni milíi Batavía og
Bandung. \
Fréttaritarar tala um gagná-
hlaup Hollendinga á þessum
sömu slóðum, en þeir munu
hafa hér meginherstyrk sinn.
Látlausar loftárásir eru gerð-
ar á flugvelli Bandamanna og er
árangurinn augljós: Flugher
þeirra lætur" æ minna til sín
heyra. Er þar með sagan frá
Dunkirk, Noregi, Grikklandi og
Krít að endurtaka sig, því að
hreystileg vörn dugir ekki gegn
ofurefli flugvéla.
Vörn MacArthurs á Bataan-
skaga hefir verið hin mikla fyr-
irmynd Java-búa, en þeir vita,
að landshættir gera þeim allt
illt, en á Bataan eru varnarskil-
yrði afbrágðsgóð.
Allmiklar orustur geisa við
Sittangána, en þær hafa þó ber-
sýnilega ekki náð hámarki sínu
enn, enda er búizt við auknum
áhlaupum Japana. Harðastir
eru bardagarnir við bæina Wow
og Pegu. Japanir munu hafa
orðið fyrir allmiklu manntjóni.
Nýr hervegur
til Alaska.
AÐ var tilkynnt í Ottawa
í gær, að leggja eigi nýja
braut yfr Kanada til Alaska.
Á að flytja hergögn og lið eftir
þessari nýju braut, enda hafa
Bandaríkjamenn mikinn við-
húnað í Alaska.
l
Rðssar tóko Yukbov eftir
mjög harðvitnga barJaga.
Mikið flugvélatjón Þjóðverja.
AT ÁNARI fregnir hafa nú borizt af áhlaupi því, er leiddi
til þess, að Rússar tóku bæinn Yukhov á Smolensk-
vígstöðvunum. Voru háðar geysilega harðvítugar orustur
um bæinn, sem Þjóðverjar höfðu notað sem eina af mið-
stöðvunum fyrir vorsóknina miklú og þess vegna víggirt
mjög rækilega.
Á 15 km. svæði allt í kring-
um Yukhov úði og grúði állt af
jarðsprengjum, skriðdreka-
gildrum, gaddavír og vélbyssu-
hreiðrum. í gegnum þetta brut-
ust Rússar, en þegar lokaá-
hlaupið átti að hefjast hófu
Þjóðverjar skothríð, sem var
svo ógurleg, sem fellibylur af
byssukúlum væri. TJm nóttina
gerðu Rússar áhlaupið og rudd-
ust inn í bæinn, en urðu að
berjast svo að segja um hvert
einasta hús.
í lofti er nú meira barizt en
undanfamar vikur, og segir
Moskvaútvarpið, að í fyrradag
hafi verið skotnar niður 79
þýzkar flugvélar eða þær eyði-
lagðar á jörðu niðri, en Rússar
hafi misst 14.
Á Leningradvígstöðvunum er
talið, að manntjón Þjóðverja
(fallnir, fangar og særðir) sé
um 100 000 manns. Stöðugt er
þjarmað að 16. hernum innikró-
aða og hefir hann nú nær ein-
göngu samband við umheiminn
loftleiðina.
Norðar, milli flmenvatns og
Leningrad, hafa Rússar rofið
varnarlínu Þjóðverja, og .er það
viðurkennt í Berlín. Þýzk gagn-
áhlaup hafa orðið árangurslaus.
Krlpplingar, bliidlr
og berklaveikir látn
irvinna í Þýskalandi
BRITTON offursti, stofnandi
V-hersins, sem berst gegn
yfirráðum og ofbeldi Hitlers á
meginlandinu, hélt í gærkveldi
ræðu í brezka útvarpið og á-
varpaði her sinn. Hann sagði,
að brezki flugherinn hefði kom-
ið til verksmiðjanna í París,
sem unnu fyrir Þjóðverja, og
lagt þær í rúst. Og brezki flug-
herinn mun koma aftur, heit
offurstinn áfram, þess vegna
skuluð þið reyna að komast
burt frá verksmiðjunum, verka-
menn Evrópul
Þá talaði um leið hinn ný-
skipaði ráðherra flugvélafram-
leiðslunnar, Llewellyn, og sagði
hann þetta m. a.:
Síðastliðna viku voru fram-
leiddar í Bretlandi fleiri flug-
vélar en nokkra aðra viku fyrr.
Takmarkið er að auka fram-
leiðslu Bandamanna — og
minnka framleiðslu Þjóðverja.
Þýzki iðnaðurinn á nú við
svo mikinn mannskort að búa,
að börn 14 ára,. gamalmenni,
krypplingar, blindir og berkla
veikir hafa verið neyddir til að
vinna, — það er verið að pína
út úr þeim síðustu vinnustund-
irnar áður en þeir deyja.
lOOPélverjar skotnir
Fyrir árás á tvo Djóðverja.
ÍÐASTLIÐINN sunnudag
vonx 100 gislar skotnir í
Varsjá fyrir árás, sem gerð var
á tvo Gestapo-menn, en annar
þeirra dó og hinn særðist. Eftir
aftökuna var hengt upp auglýs-
ingaspjald frá nazistastjóminni,
þar sem hún tilkynnir morðin,
bersýnilega til að skelfa al-
menning. Er þetta í fyrsta sinni,
sem þýzk yfirvöld viðurkenna
opinberlega slíkar aftökur.
Þjóðverjum gengur afar illa
að halda Pólverjum í skefjum,
eins og þetta sýnir. Nýlega til-
kynnti nazistastjórnin í Pól-
landi, að Varsjá yrði einangruð
og matvælaflutningar til borg-
arinnar stöðvaðir, ef ekki hætti
árásum á Þjóðverja og andstöð-
unni þar í borg. í Gyðingahverf-
inu í Varsjá hefir nú verið hrúg-
að saman mörg hundruð þús-
und Gyðingum, og er ástandið
hörmulegt, sem þetta fólk á við
að búa.
í París hafa 7 Frakkar verið
dæmdir til dauða.
Amerikski verkalýðs
leiðtooinn Tom
Nooney látinn
Tom Mooney.
rF OM MOONEY, hinn heims-
X frægi verkalýðsleiðtogi
Ameríkumanna er látinn.
Hann hafði sptið alls 22 ár í
fangelsi. Var hann ákærður
fyrir að hafa kastað sprengju á
hersveit, sem gekk um götur
San Fransiscoborgar, og var
hann dæmdur í fangelsi, enda
þótt það sannaðist, að hann
hefði verið í öðrum borgarhluta,
er árásin var gerð. En sú sönn-
un dugði ekki gegn ljúgvitnum.
Það var ekki fyrr en demo-
kratar komust til valda í Kali-
forníu, að Mooney var látin laus.