Alþýðublaðið - 10.03.1942, Page 3
£rið}udagur '10. mant 1942.
ALÞÝDUBUVPIÐ
imeríkskir kafbðtar
slkkva japðnsknm
herskipum.
TILKYNNING frá flotamála-
ráðuneytiuu í Washington
I gærkvöldi segir frá því að
síðastliðna viku hafi ameríkskir
kafbátar í Kyrrahafi-sökkt ein-
tun japönskum tundurspilli og
stóru olíuskipi. Ennfremur
hefðu þeir skenunt alvarlega og
gert óstarfshæf 3 beitiskip og
eitt flugvélamóðurskip.
flitier kominn til
dkrainn.
Mynd þessi sýnir ameríkskan kafbát, þeir hafa, eins og kunnugt, er, sökt fjölda japanskra her-og kaupskipa á Kyrrahafi.
Ameríkskur kafbátur.
H XTLER er nú kominn til
suðurvígstöðvanna, • þar
•sem Rússar sækja í áttina til
Dnépropetrovsk. Er talið, að
haim muni leggjá mikla á-
herzlu á að verja þá borg, enda
væri það mikið áfall, ef Rússar
næðu henni á sitt vald.
Rússneska útvarpið til-
. kynnti í gærkvöldi, að Rússar
hefðu tekið rammvarinn stað á
Krím, eins og það er orðað.
Freghir hafa borizt um mik-
inn liðssamdrátt Þjóðverja í
; Eystrasáltslöndunum. Þá er og
sagt frá nýjum liðflutningum
til Danmerkur.
i
fileymið ekki Peari i
Hðrbari
Ameríkska þjóðin vakn-
aði við vondan draum, er
í Japanar gerðu árásina á
Pearl Harbor. En hún
er ákveðin að gleyma
þeím atburði ekki, eins og
myndin sýnir. Á merkinu,
sem stúlkan ber á barmi
sér, stendur: „Gleymið
ekki Pearl Harbor.”
Alþýítiií okkarirut.
er flokkur . iaunastéttanna. Þeir
launamenn. ér vilja vexa sjáiíunj
sér og stétt stoni trútr, Itjósa A-
llstajut.
Bandoeng fallin
Japanir halda pvi fram að
Surabaya sé einnig fallin.
Bardögutn mun brátt vera lokið á Java.
I f ÖRN Bandamanna á Java virðist nú vera á þrotum. ■—
* Bandoeng, sem var aðsetur stjórnarinnar og talin
bezt varða borgin, er fallin. Japanir tilkynna einnig, að
Surabaya, flotastöðin mikla, sé á valdi þeirra. Það hefir þó
ekki verið staðfest af Hollendingum, en stjórnin í London
bendir á, að Japanir geti breitt út hávaðairéttir, sem þeim
þóknist, þar eð hollenzka stjómin hefir ekkert samband
haft við Java síðan á laugardag.
í fregnum frá Tokio er skýrt frá því, að Japanir hafi
neytt Bandoeng og Surabaya til að gefast upp skilyrðis-
laust. Segir þar ennfremur, áð bardögum sé lokið á eynni
og samningar hafi tekizt um vopnahlé. (
Þessu svarar hollenzka stjórnin í London á þá leið, að
engir samningar verði gerðir við Japani, þótt .bardögum sé
lokið. Hollenzkir foringjar á Java hafi fyrirskipanir um að
verjast til hins síðasta, ef vörnin er ekki algerlega tilgangs-
laus á stoðum þeirra.
Nokkrir háttsettir foringjar
Hollendincja hafa koynizt frá
Java til Adeleide á Ástralíu í
flugvél. Sögðu þeir við blaða-
menn, er þeir stigu út úr flug-
vélinni, að þeir hefðu slæmar
fréttir: Bandoeng sé fallin. —
Sögðu þeir ennfremur, að þeir
væru ‘komnir til Ástralíu til að
halda baráttunni áfram við
Japani. Þeir sÖgðust vera viss-
ir um að tímarnir mundu
breytast Bandamönnum í hag.
Loks skýrðu þeir frá því, að
Japanir hefðu hdft 8 herfylki
á Java, en það væri miklu
meira lið en Bandamenn hefðu
haft á að slcipa.
20 gísl skotin
i Paris.
JÓÐVERJAR hafa enn
skotið 20 gísl i París
fyrir árás á þýzkan varðmann.
Stöðugar fréttir berast frá
hinum herteknu löndunum um
harðstjórn og ofríki nazista.
í Noregi hafa allir bifreiða-
viðgerðarmenn verið kvaddir í
þjónustu nazista.
Við Þrándheim er verið að
byggja skrauthýsi fyrir þýzkan
herforingja og vinna norskir
verkamenn í nauðungarvinnu
við bygginguna.
Innrás á Nýjfl
fiiiinen.
JAPANIR hafa sett lið á
land á Nýju Guineu. Sást
mikill skipafloti úti fyrir Norð
urströndinni og byrjuðu Jap-
anskar herdeildir í smábátum
brátt að streyma í land.
Lítið mun hafa verið um
varnir á landi, enda er eyjan
stór og strjáibyggð.
Aftur á móti gerðu ástralsk-
ar flugvélar miklar loftárásir á
skipin og bátana og munu þær
hafa hitt mörg þeirra.
Japanskar flugvélar hafa
gert enn eina loftárás á Port
Movesby, sem er höfuðborg
Nýju Guineu. Hún er á Suð-
austurströndinni.
Birgðastöð i
Indlandi.
DANDARÍKIN hafa nú sent
fjölmenna sendinefnd til
Indiands til'að undirbúa mikla
birgðastöð, sem koma á upp á
Indlandi.
Rangoon fallin
♦
Bretar ákváðu síðastl. laug
ardag að yfirgefa borgina.
—1 »
Bardögum heldur enn áfram við Pegu.
D ANGOON, höfuðborg Burma, er fallin í hendur Jáp-
ana. Samkvæmt tilkynningu frá New Delhi í gær-
kvöldi, var tekin ákvörðun um að yfirgefa borgina síðast-
liðinn laugard. Voru nær allar birgðir, sem fluttar höfðu
verið til borgarinnar, og áttu að fara til Kína, fluttar burt,
og einnig var mikið af íbúum borgarinnar flutt á brott.—
Ennfremur var allt, sem gæti komið Japönum að gagni,
eyðilagt.
Japanir tilkynntu í fyrradag, að þeir hefðu tekið borg-
ina, en Bretar viðurkenndu það ekki fyrr en í gaerkveldi.
Brezki herforinginn, Alexander, hefir verið skipaður
til að stjórna bardögum í Burma. /
Bardögum í Burma heldur
áfram og er barizt mest í ná-
grenni bæjarins Pégu, sem er
80 km: norðan við Rangoon
við járnbrautina, sem liggur
til Burmabrautarinnar.
Ekki hefir | verið skýrt frá
því enn, hvar stjórn Breta í
Rangoon hefir sezt að. Það
hefir aðeins verið tilkynnt, að
allir brezkir þegnar, sem vom
í Rangoon, séu heilir á húfi,
þótt þeir geti ekki sent boð til
fjölskyldna sinna, eins og sak-
ir standa.
Bretar gera niklar
loftárásir á
megínlandifi.
Ll REZKI flugherinn hefir nú
hafið miklar árásir á meg-
inlandið að nýju ef dæma má
eftir starfsemi hans undan-
fama tvo daga. Árásir hafa
verið gcrð á iðn- og orkuver í
Norður-Frakklandi, á innrásar-
hafnimar og Ruhrhéraðið.
í fyrrakvöld gerðu stærstu
sprengjuflugvélar Breta árás-
ir á Essen, hina miklu iðnað-
arborg í Ruhrhéraðinu, þar
sem Kruppsverksmiðjumar
eru. Flugmennimir töldu um
20 stórelda og marga smærri.
í þessari árás yoru stærstu
sprengjuflugvélar Breta notað-
ar.
í gærkvöldi gerðu Douglas
(Frh. á 7. síðu.)
flerforingi Japana á
Lnzon fremnr kvið-
ristn.
(D4MKVÆMT því, sem jap-
^ anskir fapgar er hafa fall-
ið Ameríkumönnum í hendur á
Baatanskaga, skýra frá, hefir
yfirforingi Japana á eynni,
Masaliarn Homma, framið kvið-
ristu.
Japanir hafa mótmælt fregn-
unum iim sjálfsmorð Homma.
En Mac Arthur tilkynnir í
sama mund, að foringi Japana í
Malaya hafi tekið við herstjórii-
inni á Luzon.
Það leikur enginn vafi á, hver
ástæðan er: Honum hefir ekki
tekizt að sigra Mac Arthur og
menn hans.
Homma hefir komið fyrr við
sögu en nú. Árið 1939 stjórn-
aði hann hafnbanni Japana á
brezka hluta Tientsinborgar. Þá
tóku japanskir hermenn marga
Evrópuþegna og léku þá á ýmsa
lund grátt, m. a. flettu af kon-
um klæðum. Þegar ameríkskir
blaðamenn minntust á þetta við
Homma, sagði hann að Japanir
álitu enga skömm að nektinm.
Homma, sem er maður stór
og feit.ur, hefir haft náin kynni
af Evrópumönnum og ferðast
allmikið um VesturlÖnd.
Fyrir hálfu öðru ári var hon-
um fengið sérstakt starf með
{Frh. á 7. síðu.)